Morgunblaðið - 31.03.1989, Side 42

Morgunblaðið - 31.03.1989, Side 42
42 MORGUNBLAÐED IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1989 Rats Koeman ■ BARCELONA hefur fengið liðsstyrk út keppnistímabilið. Félag- ið hefur fengið Julio Cesar Ro- mero, landsliðsmann Paraguay, ■■■h Iánaðan frá FráAtla brasilíska félaginu Hilmarssyni Fluminense. áSpáni „Romerito," eins og kappinn er kall- aður, mun leika með Barcelona gegn Real Madrid á laugardaginn. Real er með þriggja stiga forskot áBarcelona. I SOVÉSKI landsliðsmaðurinn Vasily Rats, sem hefur leikið með Dynamo Kiev, hefur skrifað undir þriggja mánaða samning við spænska félagið Espanol. Rats, sem er 27 ára, mun leika með félag- inu frá 1. apríl fram í júní. Ef Espanol heldur sæti sínu í 1. deild, mun Rats skrifa undir nýjan tveggja ára samning I BALTAZAR de Morais skor- aði þijú mörk fyrir Atletico Madrid ■'í fyrri leik liðsins gegn Barcelona í 8-liða úrslitum spænsku bikar- keppninnar. Þessi þijú mörk dugðu ekki til sigurs, því að Julio Alberto náði að jafna, 3:3, fyrir Barcelona rétt fyrir leikslok. Gary Lineker fékk að leika allan Ieikinn með Barcelona, sem þótti að sjálfs- sögðu fréttnæmt. Hugo Sanchez skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid, sem vann Celta, 4:1. ■ RONALD Koeman, landsliðs- maður Hollands, sem Barcelona keypti frá Eindhoven, var á meðal áhorfenda þegar Barcelona lék gegn Atletico Madrid. Hann kom til Barcelona til að fínna sér hús. „Ég var mjög ánægður með sem ~ég sá hjá Barcelonaliðinu," sagði Koeman. ■ FIORENTÍNA á Ítalíu er nú að reyna að fá enska landsliðs- manninn Gary Lineker keyptan frá Barcelona. Þá hefur félagið einnig áhuga á að tryggja sér tékk- neska flóttamanninn Lubos Ku- bik, sem er nú samningsbundinn Derby. ■ TYRKIR lögðu Grikki að velli, 1:0, í vináttulandsleik í knatt- spymu, sem fór fram í Aþenu á miðvikudagskvöldið. Rivan Dilmen skoraði eina mark leiksins. Þetta var fyrsti landsleikur þjóðanna síðan 1952, en þá gengu Grikkir í NATO. S ANDERLECHT, lið Amórs Guðjohnsen, sigraði Lierse á mið- vikudaginn í belgísku 1. deildinni, 4:2. Eddie Krencvic gerði tvö mörk fyrir Anderlecht úr víta- spymum, en aðra þeirra fiskaði Amór. ■ RÚMENAR sigruðu ítali í vináttulandsleik í knattspymu, 1:0, í Rúmeníu. Það var Ovidiu Sabau sem gerði sigurmarkið á 48. mínútu. ■ BORDEAUX hefur lánað landsliðsmanninn Jean Tigana til Marseille út þetta keppnistímabil. Tigana, sem er 32 ára, var leikmað- ur í hinu sigursæla liranska lands- liði 1984. I DIEGO Maradona mun ekki leika með Napolí gegn Juventus á morgun. Maradona, sem hefur átt við meiðsli að stríða, hefur hug á að fá sig góðann fyrir UEFA-leik- inn gegn Bayera Miinchen á mið- vikudaginn kemur. HANDKNATTLEIKUR / SPANN „Misstum þrjá menn af leikvelli undir lokin" - sagði Atli Himarsson. Granollersvann Barcelona „EG er ekki orðinn nægilega góður - verð hálf slappur eftir æfingar og leiki. Læknar segja að ástæðan fyrir því sé að ég er með sex nagla og álplötu í beini við ökkla - þar sem ég brotnaði," segir Atli Hilmarsson, sem er byrjaður að leika á fullu með Gran- ollers. „Þetta lagastekki fyrr en íjúní- þegar naglarnir verða fjarlægðir." Atli skoraði fimm mörk fyrir Granollers gegn Caja Madrid, en Granollers mátti þola tap, 23:26, á heimavelli. „Við náðum okkur ekki á strik í leiknum, en eftur á móti gekk dæmið upp þegar við lékum gegn Barcelona á útivelli og unnum, 25:23. Barcelona hafði betur í fyrri hálfleik, 14:12, en við komum grimmir til leiks í seinni hálfleik. Skoruðum fyrstu fjögur mörkin, 14:16. Þegar 2.27 mín. voru til leiksloka og staðan 21:23 fyr- ir okkur, misstum við þijá leikmenn af leikvelli. Allt var á stuðupunkti. Þrátt fyrir að við lékum þremur færri, náðum við að halda forskotinu og unnum, 23:25,“ sagði Atli, sem skoraði tvö mörk gegn Barcelona. Kristján Arason og félagar hans hjá Teka gerðu jafntefli, 18:18, við Barcelona. Kristján skoraði þijú mörk í leiknum. Kristján meiddist síðan í leik gegn Lagisa, sem Teka vann, 29:18. „Kristján er enn ekki búinn að ná sér og leikur ekki með Teka gegn Bitasoa um helgina," sagði Atli. Caja Madrid er efst með fullt hús stiga, átta, eftir fjórar umferðir í úrslitakeppninni. Atletico Madrid er með sjö stig, Teka fímm, Valencia fjögur, Granollers ijögur, Barcelona flögur, Bit- asoa og Lagisa eru með ekkert stig. Atli Hilmarsson, íandsliðsmaður í handknatt- leik. KNATTSPYRNA / V-ÞYSKALAND Ásgeir og félagar mæta Dortmund þannig að áhorfendur eru vel með á nótunum. Werder Bremen, sem vann í Hamborg, 1:0, leikur úti gegn Bay- er Leverkusen í hinum undanúr- slitaleiknum. Ásgeir leikur ekki með Stuttgart gegn Uerdingen í deildarkeppninni á morgun - þar sem hann er í leik- banni. Miklar líkur eru á að Jiirgen Klinsmann leiki sinn fyrsta leik á árinu, en hann hefur verið meiddur. KNATTSPYRNA Valur leikur gegn Luzern í Sviss Bikarmeistarar Vals í knattspymu leika tvo til þijá æfingaleiki þegar þeir fara í æfingabúðir í Sviss í lok apríl. Þeir mæta Sigurði Grétarssyni og félögum hans hjá Luzem og þá hefur einn- ig verið ákveðinn leikur gegn Solothurn, en með því félagi lék Sævar Jónsson. Atli Eðvaldsson, sem leikur með TURU Dusseldorf, mun koma til móts við Valsmenn í Sviss og koma síðan með þeim heim. Ein- ar Páll Tómasson, sem æfír nú með Ciystal Palace, mun einnig vera með Valsmönnum í Sviss. Valsmenn verða í viku í Sviss. Asgeir Sigurvinsson og félagar hans hjá Stuttgart drógust gegn Dortmund í undanúrslitum bikarkeppninnar. Leikurinn fer fram í Dortmund og má fastlega reikna með að róður Stuttgart verði þungur. Dortmund er geysilega sterkt heima og völlur félagsins sá skemmtilegasti í V- Þýskalandi. Hann er eins og vellir í Englandi - án hlaupabrauta, FráJóni Halldóri Garðarssyni ÍV-Þýskalandi FRJALSAR IÞROTTIR Einar fjórði á heims- afrekaskránni Einarog Vésteinn Hafsteinsson keppa á Grand Prix-mótunum EINAR Vilhjálmsson, íþróttamaður ársins 1988, er í fjórða sæti á heimsaf rekaskránni yfir spjót- kastara og hefur hann tryggt sér rétt til að kappa í Grand Pix-mótunum. Einar kastaði spjótinu 84.66 m, sem varfjórða lengsta kastið í heiminum 1988. Tékkinn Jan Zelezny kastaði lengst á árinu - 86.88 m. Einar á góða möguleika á að blanda sér í stiga- baráttunni í ár, eins og hann gerði 1987. Vésteinn Hafsteinsson, kringlukastari, hefur einnig tryggt sér rétt til að keppa á Grand Prix-mótunum. Vésteinn er í 25.-26. sæti á heimslistanum með ís- landsmetsjöfnun sinni, 65.60 m. Þetta var annar besti árangurinn á Norðurlöndum á árinu. Aðeins Svíinn Stefan Fernholm kastaði lengra - 68.24 m. Helga Halldórsdóttir, KR, vantaði aðeins sekúndu- brot í 400 m grindahlaupi til að öðlast sjálfkrafa keppnisrétt á Grand Prix. Hún hljóp á 56.54 sek, en lágmarkið er 56.44 sek. Einar Vllhjálmsson. FIMLEIKAR / REYKJAVIKURLEIKAR Fimleikahátíð í Höllinni Alþjóðlegt fimleikamót, Reykjavíkurleikamir, fer fram í Laugardalshöllinni um helgina. Mótið er haldið í annað sinn og hafa sjö þjóðir tilkynnt þátttöku sína - Búlgaría, Spánn, Belgía, Luxemburgj Svíþjóð, Nor- egur og Skotland. Átta Islending- ar keppa; Bryndís Guðmunds- dóttir, Fjóla Ólafsdóttir, Ingibjörg Sigfúsdóttir, Linda Steina Péturs- dóttir, Guðjón Guðmundsson, Jó- hannes Sigurðsson, Guðmundur Brynjólfsson og Jón Finnbogason. Búlgarar eiga marga góða fim- leikamenn og varð Búlgaría í fímmta sæti á Ólympíuleikunum í Seoul. Spánveijar eiga einnig snjalla fímleikamenn. Fremsta í flokki má nefna Lauru Munoz, sem varð í þrettánda sæti i Seo- ul. Hún keppti einnig á Reykjavík- urleikunum 1987. Mótið hefst kl. 14 laugardag. Á sunnudag verður keppt til úr- slita og keppa þá sex stigahæstu á hveiju áhaldi. ÍÞR&mR FOLK ■ ÍSLAND tapaði, 0:5, fyrir Brasilíu í heimsmeistarakeppninni í borðtennis - í gær í Dortmund. ísland tapaði áður, 0:5, fyrir V-Þýskalandi og FráJóni Malasíu. Súdan, Halldóri sem var einnig í riðl- <P,a/^?rfsYn‘ .. inum, hætti við tV-Þyskaland, keppni ■ JÖRG Rosskopt og Steffen Fatzer, bestu leikmenn V-Þjóð- veija, voru óhressir með litla mót- spymu sem þeir fengu í leikjunum gegn Islandi og Malasíu, sem V- Þýskaland vann, 5:0. Þegar Ross- kopt frétti að Súdan kæmi ekki með lið, var hann ánægður og sagði: „Það er gott - við getum 6á sofíð lengur þann morgun." I V-ÞÝSKA blaðið Kicker sagði frá því í gær að það væri slæmt fyrir Stuttgart að Ásgeir Sigur- vinsson gæti ekki leikið með liðinu gegn Uerdingen. „Stuttgart er ekki með neinn leikmann sem getur fyllt skarð hins 33 ára Sigurvins- sonar.“ ■ LEIKMENN Essen fóru aftur heim með freyðivínsflöskur þær sem þeir fóru með til Kiel á mið- vikudagskvöldið. Þeir voru búnir að kæla vínið fyrir leikinn, en ef þeir hefðu unnið hefðu þeir orðið meistarar meistarar. Leikmenn Ki- el komu í veg fyrir tappaskothríð, með því að vinna, 27:22. ■ LEMGO hefur mikinn áhuga á að fá Petre Ivanescu, fyrrum landsliðsþjálfara V-Þýskalands, sem næsta þjálfara liðsins. ■ MÖRG félagslið em nú á eftir Andreas Thiel, markverði Gum- mersbach, sem hefur hug á að breyta til eftir að hafa verið tíu ár í markinu hjá Gummersbach.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.