Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐUR STOFNAÐ 1913 76. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 5. APRIL 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mengunarslysið í Alaska: Búist við miklu tjóni í laxeldinu Getur haft áhrif á heimsmarkaðsverðið Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Stöðugt dofiiar tónninn í sjónvarpsfréttum af olíulekanum mikla við Alaska, enda verða menn æ svartsýnni á að takast megi að bjarg-a laxeldinu í Prins William-sundi, sem er eitt hið mesta í heiminum, frá tjóni eða eyðileggingu af völdum olíumengunarinn- ar. Tíu dagar eru nú liðnir frá því Exxon Valdez strandaði og þótt mikið hafi verið reynt að hefta útbreiðslu olíuflákans, stækkar hann stöðugt og er nú sagður ná yfir allt að 1.200 fermílna svæði. Olían hefur drepið fugla í tug- þúsundatali og einnig seli og rekur nú til vesturs í átt að laxeldisstöðv- unum. Sérfræðingar frá ýmsum lönd- um, til dæmis Noregi og Sovétríkj- unum, eru komnir á vettvang og sagði einn þeirra í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð, að þeir vildu reyna að verða að liði og kynnast sem best baráttunni við olíumengunina því að svona slys geta orðið alls staðar þar sem olíu- skip fara um. Er augljóst, að Norð- mönnum er mjög brugðið vegna slyssins. Björgunarmenn hafa lagt nótt við dag í baráttunni við meng- unina og eru að vonum orðnir þreyttir og vonsviknir vegna þess hve lítið miðar. Rétt fyrir síðustu helgi hafði aðeins tekist að ná upp 3% oliunnar, sem í sjóinn fór, og sýnt er að björgunarstarfið stend- ur að minnsta kosti fram á haust. Verst þykir þó að ekki hefur tek- ist að koma í veg fyrir stækkun olíuflákans. Ríkisstjórinn í Alaska hefur hótað að loka olíuleiðslunni, sem liggur frá olíusvæðunum norðan við Alaska til Valdez. Eftir henni hefur runnið fjórðungur allrar olíu, sem notuð er í Bandaríkjunum, og hefur hún gefið af sér 80% af þjóðartekjum Alaska. Laxeldið við Prins William-sund gefur af sér um 100 milljónir doll- ara í tekjur á ári. Ef það skaðast að einhvetju leyti, svo ekki sé tal- að um eyðileggingu þess, mun það hafa veruleg áhrif á heimsmark- aðsverð á laxi. Ferskur lax frá eldisstöðvum í Alaska hefur í æ ríkara mæli verið fluttur flugleiðis til flestra bandarískra stórmark- aða og lax því smám saman orðið eitt helsta fiskmeti milljóna Bandaríkjamanna. íÁÍP* Síðbúin snjókoma Veturinn hefur verið einmuna góður í Vestur-Evrópu og sums staðar jafnvel sumarblíða lengst af. í gær skipuðust hins vegar veður í lofti því að þá gerði kafaldsbyl i París og á Norður-Spáni lokuðust vegir vegna mikillar snjókomu. Veðurstofan þar í landi spáir kaldri tíð fram að helgi að minnsta kosti. Myndin er af fólki, sem var að koma úr neðanjarðarlestinni í París í gær, og er ekki sérlega sumarleg. Bretland: Ahrifarík auglýsing London. Reutcr. „NÝTT frá Ástralíu. Ilmvatnið Sheila. Drepur líka flugur." Þessi auglýsing birtist nýlega i 4.500 strætisvagnabiðskýlum viðs vegar um Bretland og árangurinn lét ekki á sér standa. í verslunum var varla um annað meira spurt en þetta vellyktandi, sem gerði hvort- tveggja í senn að laða karlpening- inn að konunum með Ijúfri angan og stúta flugunum. Þetta var þó of gott til að vera satt og í gær skýrði talsmaður bresks auglýsingafyrirtækis frá því, að „Sheila", sem er ástralskt slangur-, yrði yfir ungar konur, væri bara til- búningur, liður í tilraun til að kanna áhrifamátt auglýsinga í strætis- vagnabiðskýlum. Sagði talsmaðurinn, að ákveðið hefði verið að bæta við setningunni „Drepur líka flugur" til að gefa í skyn, að þetta væri bara grín og gaman en líklega hefði það haft al- veg öfug áhrif. Auk fyrirspurna í verslunum hefðu sumir snúið sér beint til auglýsingastofunnar, meðal annars klósettpappírsframleiðendur, sem hefðu haft mikinn áhuga. Skuldabyrði þróunarríkjanna: Aukinn stuðningnr við til- lögnr Bandaríkjastjórnar Washington. Reuter. VAXANDI stuðnings gætir nú við tillögur Bandaríkjastjórnar um hvernig létta skuli skulda- byrði þróunarríkjanna og í gær ákváðu Japanir að leggja þeim lið með 4,5 milljarða dollara Atlantshafsbandalagið 40 ára: „Sameinaðir ráðum við örlögum okkar“ ? - Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. í GÆR var þess minnst, að 40 ár eru liðin frá undirritun Atlants- hafssáttmálans og var afinælisins minnst ineð hefðbundnum hætti í höfuðstöðvum bandalagsins hér í Brussel. I ræðu, sem Manfred Wörn- er, framkvæmdastjóri bandalagsins, flutti á hátíðarfundi Atlants- hafsráðsins lagði hann áherslu á, að án bandalagsins væri friður og staðfesta í samskiptum austurs og vesturs óhugsandi. Wörner sagði, að framtíðin bæri í skauti sínu ómetanleg tækifæri fyrir NATO til að tryggja friðsamleg samskipti við Varsjárbandalagið. „Við verðum að ábyrgjast, að þau verði nýtt til fulls. Markmiðið hlýtur að vera að tryggja, að fólk geti haft áhrif á sitt eigið umhverfi. Við sjáum fyrir okkur Evrópu, sem tryggir rétt- indi þegna sinna. Án Atlantshafs- bandalagsins verður þessi hugsjón Manfred Wörner, framkvæmda- stjóri NATO, og Wolfgang Alten- burg, formaður hermálanefiid- arinnar, við hátíðarhöldin í gær. vart nema draumurinn einn. Samein- aðir ráðum við örlögum okkar, sundraðir munum við verða að lúta annarra vilja,“ sagði Wörner. Wörner minnti á, að Atlantshafs- bandalagið væri meira en varnar- bandalag, það væri einnig mikilvæg- ur vettvangur fyrir efnahagsleg og stjórnmálaleg samskipti ríkjanna beggja vegna Atlantsála. Þá sagði hann, að tímar mikilla breytinga væru jafnframt miklir óvissutímar og lagði áherslu á, að NATO yrði ávallt að ráða yfir þeim vörnum, sem dygðu. Einnig yrði að gera sovéskum stjórnvöldum það ljóst, að fögur orð og fyrirheit hrykkju skammt, heldur yrði áð fylgja þeim eftir í verki. framlagi. Eftir sem áður fínna Evrópuríkin tillögunum ýmislegt til foráttu en fulltrúar þróun- arríkjanna segja, að svo miklar vonir séu við þær bundnar, að það væri meiriháttarslys kæmu þær ekki til framkvæmda. „Ef okkur mistekst nú, þegar við höfum raunveruleg úrræði innan seilingar, verðum við að horfast í augu við efnahagslega og félags- lega upplausn í þróunarríkjunum með ófyrirsjáanlegum afleiðing- um,“ sagði Mailson da Nobrega, fjármálaráðherra Brazilíu, í gær í Washington á vorfundi Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabank- ans. Skuldir þriðjaheimsríkjanna, sem nema 1,3 billjónum dollara, hafa verið meginefni vorfundarins ásamt tillögum Bandaríkjastjórnar um hvernig taka skuli á þeim málum. Nicholas Brady, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, kynnti þær í síðasta mánuði en í þeim er meðal annars kveðið á um, að bankarnir, lánar- drottnarnir, afskrifi lánin að hluta gegn nýjum skuldabréfum frá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. Sjóðurinn sæi síðan um innheimtuna og að- stoðaði þróunarríkin við vaxta- greiðslurnar. Lagalega verður ekki um að ræða, að Álþjóðagjaldeyrissjóðurinn ábyrgist skuldir þróunarríkjanna en fulltrúar Evrópuríkjanna óttast, að í raun sé verið að kaupa bankana lausa, að skattgreiðendur muni loks borga brúsann með framlögum ríkjanna til sjóðsins. Satoshi Sumita, seðlabankastjóri í Japan, tilkynnti í gær, að Japanir ætluðu að styðja Brady-áætlunina með 4,5 milljörðum dollara á næstu árum og þykir víst, að sú yfirlýsing muni hafa mikil áhrif á framvind- una. Þá hafa Frakkar einnig fallist á hana og Kanadamenn að nokkru. Gengi dollarans lækkaði í gær og fengust þá fyrir hann 1,86 vest- ur-þýsk mörk og 130 japönsk jen. Heræfíngar í Danmörku Kaupmannahöfn. Reuter. FJÖGUR aðildarriki Atlants- hafsbandalagsins héldu í gær heræfingar yfir Danmörku og að sögn talsmanns konunglega, danska flughersins var tilgang- urinn með þeim sá að kanna loftvarnirnar. Fjörutíu og fimm ormstuþotur frá fjórum löndum, Bretlandi, Hol- landi, Vestur-Þýskalandi og Dan- mörku, flugu yfir landið í fjórar stundir en til þessarar æfingar, sem kallaðist nú Blár máni, er efnt íjórum sinnum á ári hvetju. Að þessu sinni bar hún upp á 40 ára afmæli Atlantshafsbandalagsins, varnarsamtaka vestrænna þjóða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.