Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989 3 Borgarnes: Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson Túnin á bænum Bár í Hraungerðishreppi eru sem hafsjór yfir að líta og rétt sést í efsta hluta girðingastauranna. En á innfelldu myndinni sést vatni dælt frá ibúðarhúsum í Borgarnesi. Heita vatnið af í vatnsveðri Borgarnesi. í VATNSVEÐRI sem gekk yfír í fyrrinótt rofnaði aðveituæð Hitaveitu Akraness og Borgar- flarðar á Seleyri, gegnt Borg- arnesi. Var bærinn heitavatns- laus í sjö klukkutíma, frá klukkan 7 þar til viðgerð lauk um klukkan 14. í veðrinu mynd- uðust víða tjarnir og lón i bæn- um því niðurföll stífluðust í krapa eða höfðu ekki undan vatnsflaumnum. Einnig voru vandræði á veginum um Mýrar vegna vatnagangs. Bæjarstarfsmenn voru ræstir út um klukkan fimm um nóttina til að dæla vatni frá hótelinu en þar höfðu niðurföll ekki undan. Þá flæddi vatn inn í þijú íbúðar- hús. Vatn flæddi víða yfir götur og ófært var um tíma fyrir fólks- bíla um iðnaðarhverfið Sólbakka og götu í Sandvík. Upp úr hádegi fór vatn að sjatna enda þá búið að opna öll niðurföll og ræsi. Aðveituæð hitáveitunnar fór í sundur á Seleyri, skammt sunnan Borgarfjarðarbrúarinnar. Yfir bil- unarstaðnum hafði myndast stór tjörn og um hálfur metri var nið- ur á lögnina. Talið var að aðveitu- rörið hafi fallið saman vegna þunga leysingavatnsins. Þegar dælt hafði verið frá bilunarstaðn- um og viðgerð þar lokið kom í ljós að leki hafði komið að hita- veitulögninni á Gijóteyrarhæðum, skammt frá hitaveitugéymi sem þar er. Gert var við þá bilun til bráðabirgða. TKÞ Vatnselgnr í Flóanum Gaulveriabæ. MIKILL vatnselgur er í Flóan- um eins og víðar á Suður- og Vesturlandi vegna vatnsveðurs og leysinga í gær. Flæddi víða yfir vegi því skurðir koma ekki að notum vegna klaka. Vatn flæddi yfir Suðurlandsveg við Gaddastaðasíki, skammt aust- an við Hellu, og var hann ófær um tíma í gær. Hitaveiturör fór einnig í sundur við Hellu. Vatn flæddi yfir nýja veginn um Mýr- dalssand og var umferðinni beint á gamla veginn á meðan. Vega- gerðarmenn unnu við að veita vatni frá vegum víðar á þessu svæði. Valdim.G. Matsölustaðir: 74-200% verðmun- ur á aðalréttum AÐALRÉTTIR kostuðu allt frá 74% til 200% meira þar sem þeir voru dýrastir, heldur en á ódýrustu stöðum, þégar Verðlagsstofiiun kannaði verð hjá matsölustöðum án vínveitinga og skyndibitastöðum í janúar og febrúar síðastliðnum. Kannað var verð á ódýrustu rétt- unum á hveijum stað. Einungis var kannað verð, en ekki borin saman gæði, þjónusta, eða samsetning rétt- anna. Odýrasti kjötréttur dagsins á matsölustað var á 350 krónur í Ár- nesti í Reykjavík, sá dýrasti kostaði 1.050 krónur á Pottinum og pönn- unni, eða 200% meira. Ódýrasti fiskréttur dagsins á mat- sölustað án vínveitinga kostaði 355 krónur í Indókína í Kringlunni og sá dýrasti 820 krónur í Pottinum og pönnunni, eða 131% meira. Af drykkjarvörum var mesti verð- munur á appelsínusafa, hann var ódýrastur í Birninum og í Smiðju- kaffi á 30 krónur, en dýrastur hjá Kaffi strætó við Lækjartorg á 100 krónur, eða 233% meira. Á skyndibitastöðum var yfirleitt minni verðmunur. Heit samloka með osti kostaði minnst 130 krónur í Kaffihúsinu við Skemmuveg og mest 250 krónur á Súlnabergi á Akur- eyri, eða 92% meira. Píta með buffi kostaði minnst 225 krónur á Um- ferðarmiðstöðinni og sú dýrasta var á 430 krónur í Kaffiteríu í Skagfirð- ingabúð á Sauðárkróki, það er 91% munur. Hamborgari með osti var ódýrastur í Eikagrilli á 178 krónur og dýrastur á 310 krónur í Smiðju- kaffi, það er 74% verðmunur. Meiri verðmunur var á meðlætinu, hrásalat kostaði frá 40-95 krónur, sem er 137% munur, og ódýrustu frönsku kartöflurnar með mat kost- uðu 70 krónur, en þær dýrustu 125 krónur, sem er 79% hærra verð. í fréttabréfi Verðlagsstofnunar um þessa könnun er vakin sérstök athygli á því, að verðið var kannað á meðan verðstöðvun var í gildi, þannig að það gæti hafa breyst í einhveijum tilvikum síðan könnun- inni lauk. Heimsbikarmótið á Spáni: Jaftitefli hjá Jóhanni og Spasskíj JÓHANN Hjartarson gerði jafii- tefli við Bóris Spasskíj í 5. umferð heimsbikarmótsins í skák í Barcel- ona í gær. Jóhann er þá í 3.-6. sæti með 3 vinninga. Ljúbomír Ljúbojevic er efstur á mótinu með 4 vinninga en Artúr Júsupov er í öðru sæti með 3 vinn- inga og yfirsetu. Jafnir Jóhanni að vinningum eru Robert Hubner, Yass- er Seirawan og Valeríj Salov. Jóhann byijaði vel á mótinu þegar hann vann Salov og Rafael Vaganj- an. Hann gerði jafntefli við Predrag Nicolic en tapaði síðan fyrir Jesus Nogueiras. Morgunblaðið/Þorkell Kennarar í Hinu íslenska kennarafélagi munu að öllu óbreyttu leggja niður störf á morgun, eins og fleiri háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn. Forustumenn þeirra sátu á fiindum í gær, til að undirbúa verkfallið. þá annaðhvort sendir heim eða á aðra spítala, en mér sýnist áhrif verkfalls ætla að verða mun minni á Landakotsspítala og Borgarspít- ala þar sem færri háskólamenntað- ir hjúkrunarfræðingar starfa. Sjálf- sagt verður reynt að koma veikustu sjúklingunum fyrir á öðrum deildum áður en verkfallið skellur á,“ sagði Davíð. Yfirmenn sjúkrahúsanna þriggja á höfuðborgarsvæðinu hitt- ast í dag til að bera saman bækur sínar enda ljóst að þau þurfa að hafa nána samvinnu á meðan á verkfalli stendur, að sögn Davíðs. Bókasöfti: Landsbóka- safii lokar Mikil röskun verður á vel flestum bókasöfnum ef verkfall skellur á, að sögn Huldu Þorkelsdóttur, for- manns kjaranefndar Félags bóka- safnsfræðinga. Ríkisstarfsmenn í Félagi bókasafnsfræðinga eru alls 66 talsins. Landsbókasafn verður alfarið lokað almenningi, en þar starfa bæði félagar úr Félagi íslenskra fræða og Félagi bókasafnsfræð- inga. Skólabókasöfn framhaldsskól- anna verða öll lokuð svo og lestrar- salur Háskóla íslands. Allir bóka- safnsfræðingar Landsspítalans verða í verkfalli. Samt sem áður verður bókasafnið þar opið og hægt verður að fá þar einhveija ljósritun- arþjónustu. Önnur þjónusta, sem bókasafnsfræðingar vinna, verður ekki til staðar á Landsspítalanum svo sem leit í erlendum tölvubönk- um, sem læknar þurfa oft að nýta sér. Á hinum ýmsu ríkisstofnunum, svo sem á Hafrannsóknastofnun, Orkustofnun og Iðntæknistofnun, verður engin þjónusta á vegum bókasafnsfræðinga. Að sögn Þórdísar Þorvaldsdóttur, borgarbókavarðar, verður engin röskun á starfsemi Borgarbóka- safnsins og útibúa þess þar sem allir starfsmenn eru borgarstarfs- menn, en ekki ríkisstarfsmenn. „Mér vitanlega hefur engin starfs- maður Borgarbókasafnsins gengið úr Starfsmannafélagi Reykjavíkur- borgar þrátt fyrir að nú sé háskóla- menntuðu fólki leyfilegt að flytja sig á milli félaga." Gísli Ragnarsson, launamálafull- trúi Félags íslenskra fræða, sagði að Þjóðskjalasafnið lokaðist að hluta með verkfalli. Lestrarsalurinn yrði opinn fyrir hádegi og öll af- greiðsla embættisins félli niður. Á Þjóðminjasafni fara allir fornleifa- fræðingar í verkfall, en sýningarsal- ir verða opnir þar sem BSRB-fólk annast störf. Á Listasafni íslands og Listasafni Einars Jónssonar eru forstöðumenn og er þeim óheimilt að fara í verkfall svo að þau söfn verða opin almenningi. Hinsvegar fellur öll fræðsla á vegum safnanna niður. Lögfræðingar í ríkisþjónustu: Dregið úr þjónustu Verkfall Stéttarfélags lögfræðinga í ríkisþjónustu mun draga úr allri almennri vinnu í dómskerfinu. Hægt verður þó að sinna brýnustu málum. Að sögn Hjalta Zóphóníassonar, skrifstofustjóra í dómsmálaráðu- neytinu, kæmi verkfall þyngst niður á embætti borgarfógeta, bæjarfóg- etaembættum, lögreglustjóraemb- ættum og skattstofum. Að sögn Jóns Skaftasonar, borg- arfógeta, mun sum starfsemi emb- ættisins leggjast niður og hægja mun á annarri starfsemi, svo sem afgreiðslu þinglýstra skjala. Hafirannsóknastoftiun: Leiðöngrum fi-estað „Verkfallið kemur sér ákaflega illa fyrir starfsemi Hafrannsókna- stofnunar. Sá tími, sem nú fer í hönd, er einn aðalannatími stofnun- arinnar. Allir fiski- og haffræðingar fara í verkfall. Ég álít að um 40 manns leggi niður vinnu, eða rúmur helmingur af því starfsfólki, sem starfar á Skúlagötu 4,“ sagði Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsókna- stofnunar. Eitt skip Hafrannsóknastofnun- ar, Bjami Sæmundsson, er úti á sjó við störf og óvíst er hvort það komi í land ef af verkfalli verður. Einn starfsmaður er þar um borð sem færi í verkfall. „Við emm að fara í gang með úttekt á öllum helstu fiskistofnun- um og emm við vanir að geta sagt til í júnímánuði ár hvert eitthvað um ástand fiskistofna og aflahorfur árið eftir. Þessi úrvinnsla tekur að minnsta kosti tvo mánuði svo það munar um hvem dag. Þar fyrir utan em ýmsir leiðangrar áðrir famir á vegum Hafrannsóknastofn- unar á vorin þegar breytingarnar í sjónum em hvað mestar," sagði Jakob. Veðurstofan: Aðeins geftiar út aðvaranir Öll þjónusta Veðurstofu íslands verður minnkuð niður í það sem teljast má nauðsyn öryggi manna. Aðeins tveir veðurfræðingar skipta deginum á milli sín ef til verkfalls kemur og aðeins verða gefnar út aðvaranir ef þurfa þykir. Hlynur Sigtryggsson, yfirmaður spádeildar, sagði að öll þjónusta Veðurstofu íslands yrði í algjöru lágmarki. „Ef gefa þarf út aðvaran- ir um storm, verður þeim útvarpað á hefðbundnum veðurfregnatímum. Á spádeildinni starfa nokkrir rann- sóknamenn, sem ekki eru í BHMR, og starfa þeir áfram eins og venju- lega. Þeir munu eftir sem áður taka við öllum veðurskeytum og lesa þau í útvarp fjómm sinnum á sólar- hring, kl. 10.10, 18.45, 01.00 og kl. 4.30. Engar veðurspár munu þó fylgja. Starfsemi jarðeðlisfræðideildar minnkar töluvert og þeir tveir starfsmenn, sem skipa hafísdeild- ina, leggja báðir niður störf, ef af verkfalli verður. Framhaldsskólar: Starfsemin lamast „Það fer eftir lengd verkfallsins hvort við þurfum að grípa til ein- hverra sérstakra aðgerða. Hinsveg- ar mun starfsemi framhaldsskól- anna lamast algjörlega ef til verk- falls kemur því mikill meirihluti kennaraliðsins í framhaldsskólun- um er í HÍK,“ sagði Hörður Láms- son, deildarstjóri framhaldsskóla- deildar menntamálaráðuneytisins, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hörður sagði að reynslan hefði verið sú sama í öðmm kennara- skæmm og því byggjust menn ekki við að hægt yrði að halda skólunum gangandi með nokkmm hætti. Það hefur verið á valdi einstakra skóla hvemig þeir bæta nemendum sínum upp tapaðar kennslustundir, en venjan hefur verið sú að bætt hefur verið við kennsluna að afloknu verk- falli. „Maður getur ekki annað en vonað að próf geti hafist á réttum tíma og að það greiðist úr kjaradeil- unni áður en til verkfalls þarf að koma þó það sé ekki allt of bjart framundan. Skólastjórar ætla flest- ir að hafa opna skólana þannig að nemendur geta komið þangað og lesið. Kennararnir verða hinsvegar ekki til staðar.“ Félagsmenn í HÍK em um 1.200 talsins, þar af em um 300 við grunnskólana og um 900 við fram- haldsskólana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.