Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐYIKUDAGUR 5. APRIL 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. Olafiir Skúlason biskup Séra Ólafur Skúlason, dóm- prófastur og vigslubiskup, hlaut góðan sigur og hreinan meirihluta í biskupskjöri 22. marz sl. „Þessi úrslit vóru skýr og afdráttarlaus; þau láta í ljós ótvíræðan vilja og sýna að hann nýtur trausts jafnt lærðra sem leikra,“ sagði Pétur Sigurgeirs- son, fráfarandi biskup, í viðtali við Morgunblaðið. Verðandi biskup hinnar íslenzku þjóðkirkju fékk 89 af 159 greiddum atkvæðum — eða 56% — og lögmætt kjör strax í fyrstu atkvæðagreiðslu. Hann verður væntanlega settur inn í biskupsembætti sunnudaginn 25. júní næstkomandi. Biskupskjör fór fram í frið- semd, eins og vera ber, og var öllum sem hlut áttu að máli til sóma í hvívetna. Kennimann- legar eða guðfræðilegar deilur, sem stundum skjóta upp kolli við tækifæri sem þetta, gerðu lítt eða ekki vart við sig. Það þýðir að sjálfsögðu ekki að enginn hugmyndalegur ágrein- ingur sé fyrir hendi í þjóðkirkj- unni. Þar er og á að vera hátt til lofts og vítt til veggja, að því er varðar sannleiksleit og skoðanamyndun, þótt festa eigi að ríkja í varðveizlu og kynn- ingu hins kristna boðskapar. En mergurinn málsins er að framkvæmd biskupskjörs, og allt er því viðkom, sýndi sam- stillta, sterka og heilbrigða þjóðkirkju. Sú mynd þjóðkirkj- unnar, sem biskupskjörið varp- aði út í samfélagið, lofar góðu um framhaldið og ætti að beina athyglinni að ánægjulegum viðskilnaði fráfarandi biskups, Péturs Sigurgeirssonar. í fréttaskýringu, „Manns- mynd“, sem birt var í Morgun- blaðinu, sl. sunnudag, segir m.a.: „Öllum ber saman um að Ólafur sé feikilega duglegur og benda á verk hans og feril því til sönnunar." Þar segir enn- fremur að Ólafur hafi „drifið byggingu Bústaðakirkju upp á mettíma“, en þar hefur hann gegnt embætti sóknarprests með miklum ágætum síðan 1963. „Að margra dómi býr enginn söfuður á landinu við betri aðstöðu en Bústaðasöfn- uður,“ segir þar. Þó margra grasa kenni í svipmyndum sem þessum og heimildir stundum tilviljanakenndar, er ástæða til að taka undir þessi orð kunn- ugra samstarfsmanna séra Ól- afs. Og starfsgleði og starfsár- angur hafa einnig sagt til sín í störfum hans sem dómpróf- asts og vígslubiskups. Þeir fjór- ir prestar, sem einkum var rætt um sem biskupsefni, eru allir mikilhæfir guðfræðingar og verðugir frama á sínum starfsvettvangi. Afgerandi sig- ur séra Ólafs í biskupskjöri segir í raun allt sem segja þarf um hinn verðandi biskup sem kennimann og stjórnanda. Séra Pétur Sigurgeirsson, fráfarandi biskup þjóðkirkjunn- ar, hefur gegnt sínu virðulega embætti með reisn, ljúf- mennsku og virðugleika. Það er mikil eftirsjá að slíkum öðl- ingi úr biskupsstarfi. Þjóð- kirkjufólk, sem er þorri þjóðar- innar, stendur í þakkarskuld við Pétur biskup Sigurgeirsson fyrir handleiðslu hans í trúar- og kirkjulegum málum um ára- bil. Framundan er mikið starf hjá hinum nýja biskupi og hjá öllum kristnum söfnuðum í landinu. Eftir rúman áratug, árið 2000, heldur íslenzk þjóð upp á 1000 ára afmæli kristni- töku í landinu. Kristnitakan er af mörgum talin merkasti at- burður Islandssögunnar. í fyrsta lagi var sérstætt er íslenzk þjóð gekk sem heild undir kristinn sið á löggjafar- þingi sínu, en Þorgeir Ljósvetn- ingagoði las upp þau lög að Lögbergi „að allir menn skyldu kristnir vera og skírn taka, þeir er áður vóru óskírðir á landi hér“, segir Ari fróði í ís- lendingabók. I annan stað hef- ur kristin kenning sett mót sitt og mark á íslenzkt samfélag og íslenzka menningu í bráðum þúsund ár. Undir leiðsögn Krists hefur þjóðinni vel farn- ast. I þriðja lagi átti þýðing biblíunnar á íslenzka tungu, sem og ritun og endurritun Is- lendingasagna og fleiri fomra rita í klaustrum miðalda og fjöl- mörg trúarljóð í aldanna rás, mestan hluta að varðveizlu móðurmálsins. Móðurmálið var síðan og er sá homsteinn, sem þjóðerni okkar, þjóðmenning og fullveldi er reist á. Mikill meirihluti þjóðarinnar stendur trúan vörð um kirkju og kristni í landinu. Það er þessu fólki mikils virði að þjóð- kirkjan varðveiti sess sinn í vitund fólksins og boðunar- hlutverk. Það er því fagnaðar- efni þegar góðir menn sitja á biskupsstóli, eins og verið hefur lengi og verður áfram. Morgunblaðið árnar þjóð- kirkjunni, nýjum biskupi og konu hans farsældar í mikil- vægu framtíðarstarfi. ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ 40 ÁRA Um öiyggishags- muni Islendinga eftirArnór Hannibalsson Núverandi rílgaskipan Evrópu á sér sína sögu. Framan af öidum ríkti sú skoðun, að vald ríkisins væri í höndum konungs, sem þæði það frá guði. Smám saman ruddu aðrar hug- myndir sér til rúms. Valdið væri með þjóðinni og valdhafamir þæðu það frá henni. Aðalsstéttir skiptu sér lítt af því, hvaða mál undirsátar þeirra töluðu. Á 17. og einkum á 18. öld breyttist þetta. Hver þjóð taldi sig eiga rétt til að stofna eigið ríki. Þjóð er það fólk er talar sömu tungu. I Vestur-Evrópu lauk myndun þjóðríkja með fyrri heimsstyrjöld. Eystri hluti álfunnar hrapaði aftur á bak og fékk yfir sig þrælahald og kúgun, sem ekki á sinn líka í sög- unni. Eftir seinni heimsstyrjöld breiddist þessi skipan út allt að Sax- elfí. Á næstu öld munu þær þjóðir, sem austan Saxelfar búa, heimta rétt sinn. Sovétríkin munu liðast í sundur. Reglur hafa myndazt um sam- skipti þjóðríkja. Hvert ríki er sjálf- stætt og fullvalda. Það eitt hefur rétt til að hlutast til um eigin mál. Ekkert annað ríki hefur rétt til að blanda sér í stjóm mála í öðm ríki. Með þessu ætti friður að vera tryggð- ur milli þeirra. Rrki em misstór og misstyrk. Stundum er það freistandi fyrir eitt ríki að ásælast gæði í ná- grannaríki. Ef það ríki á ekki í fullu tré við nágrannann, getur svo farið, að allur friður sé úti, og að það ríki sem minna má sín, verði að láta í minni pokann. Af þessum sökum hafa allt frá 18. öld verið uppi hugmyndir um Banda- ríki Evrópu. Ríkin komi sér upp sam- eiginlegu lögregluvaldi, sem skakki leikinn, hvenær sem eitt ríki er órétti beitt eða fer halloka fyrir sterkari andstæðingi. Evrópubandalagið virðist þó ætla að ganga enn lengra. Landamæri ríkjabandalagsins eiga að verða sam- eiginleg landamæri allra bandalagsr- íkjanna. Innan þeirra verður einn markaður, samræmd lög og réttindi. Valdajafnvægi er skilyrði fyrir friði milli þjóðríkja. Veikist eitthvert þjóðríki, sökum innbyrðis sundr- ungar, efnahagshmns eða af öðmm orsökum, hljóta nágrannaríki að koma á vettvang og koma á nýju valdajafnvægi. Það er því fmm- skylda hvers ríkis að gæta öryggis síns. Ríki sem bregzt þeirri skyldu, er að lýsa því yfir, að það hirði lítt, hvort það er til eða ekki. En slíkt væri svik við sjálfa forsenduna fyrir tilvemrétti ríkisins. Öll ríki, í austri og vestri, hafa í stjómarskrám ákvæði um vamir ríkisins og öryggi þess. Stjómarskrá íslands kveður svo á í 75. gr. að (sérhver vopnfær mað- ur er skyldur að taka sjálfur þátt í vöm landsins, eftir því sem nákvæm- ar kann að verða fyrir mælt í lög- um). Þau lög hafa enn ekki verið sett. En eftir sem áður hvílir sú skylda á hveijum Islendingi að verja landið. Þetta ákvæði er í samræmi við gmnn þjóðaréttar. Samt hafa komið upp hugmyndir um að strika það út úr stjómarskrá Islands. Við lok seinni heimsstyijaldar undu leiðtogar Vesturveldanna við það, að sjö þjóðríki Evrópu (og síðar hluti hins áttunda) hyrfu undir ok lögregluveldis og ritskoðunar að boði sovétstjómarinnar. Síðan bættust fjögur ríki í Asíu við. Þau ríki í Evr- ópu, sem sluppu við þessi örlög, hlutu að gera það sem hægt var til að halda uppi menningu og mannrétt- indum. Átlantshafsbandalagið spratt upp af nauðsyn. Samt vom og em til þeir menn á hinum fijálsa heimi, sem af heitri og einlægri sannfæringu beijast fyr- ir því, að ríki þeirra gefi upp á bát- [ inn viðleitni til að efla og tryggja | öryggi þeirra og taki upp friðmæling- | arstefnu í anda Chamberlains. Við lok seinni heimsstyijaldar I hlutu Vesturevrópuríki að draga ályktanir af því, sem gerzt hafði og I reyna til hins ýtrasta að tryggja sjálf- ! stæði sitt. Höfuðatriðið var það, að engu Evrópuríki yrði látið haldast það uppi, að þenja sig út á kostnað annarra ríkja í álfunni. Hvaða ár- angri náðu þau ríki, sem kappko- stuðu að friðmælast við Hitler? Frið- mælingarstefnan leiddi beint til styij- aldar. Höfuðatriði í utanríkisstefnu Evrópuríkja eftir stríðið hlaut að vera það, að tryggja sjálfstæði ein- stakra ríkja með samtökum um að veijast útþenslu- og landvinninga- stefnu. Þetta var sérstakt hagsmuna- mál hinna smærri ríkja. Hitler hafði tekist að sölsa undir sig hvert Evró- puríkið á fætur öðm, vegna þess að þau vom sundmð og tóku ekki nægi- lega snemma höndum saman gegn ásælni Þýzkalands. Það er því hluti af þeim vemleika, sem blasir við Evrópumönnum, að sjálfstæði og fullveldi ríkja þeirra em því aðeins tryggð, að þau njóti sam- stöðu annarra ríkja, sem em sama sinnis. Þörfin fyrir þessa samstöðu hefur yfirgnæft alla sundmng. Þessi samstaða hefur tryggt frið í álfunni í 44 ár. Lítum þá til þeirra ríkja, sem far- ið er að kalla Austur-Evrópu, þótt þau séu í rauninni í miðri Evrópu. Þau lentu undir hæl útþensluríkis, sem ekki aðeins skipaði þeim fyrir um utanríkisstefnu þeirra, heldur sendu lið til þess að umbylta þjóð- félagsgerð þeirra til samræmis við það sem J)á var tíðkað í ríki Stóra Bróður. Árangurinn af þessu blasir nú við. Hinn svokallaði „sósíalismi" er nú í andarslitmnum. Hið eina sem veldur mönnum áhyggjum er það, hvort hann drekkir sér í blóði eða fær hægt andlát. Örbirgð, fátækt og niðurlæging er hlutskipti þessarra þjóða. Höfuð- baráttumál þeirra er að endureisa fullveldi ríkja þeirra. Engin þjóð get- ur þrifízt til lengdar, sem ekki fær að ráða sér sjálf. Pólland er komið í algjört þrot efnahagslega, menning- arlega, stjómmálalega. Meginhluti þjóðarinnar er því sammála, að eng- in von sé um uppreisn fyrr en erlend- um yfirráðum á landinu linnir. Um leið og það mark næst verður kleift að endurreisa tengsl við önnur Evr- ópulönd, sem Pólland stendur næst í menningu, trú og siðum. Pólland er tekið hér sem dæmi um lönd í Austur-Evrópu. Aðrar þjóðir þar, sem lentu undir hinu sovézka I oki, dreymir um hið sama: Að tengj- I ast á ný hinum fijálsu ríkjum Evrópu j á grundvelli jafnréttis. ! Við vitum ekki núna, hvernig ! þeirri baráttu lyktar. En það er | skylda hinna frjálsu þjóða að styðja j þjóðimar milli Saxelfar og Bug í við- leitni þeirra. I Hér em að verða söguleg um- j skipti. Það er ekki nema aldarfjórð- ] ungur frá því það vofði yfír þjóðum j í Vestur-Evrópu að hljóta sömu örlög ! og þjóðimar í austurhluta álfunnar. | Sovétríkin vom sigurvegari seinni í heimsstyijaldar. Sovétstjómin var I staðráðin i því að nýta hina nýfengnu aðstöðu til að gera út um vandamál Evrópu með því að knýja Vestur- Evrópu til undirgefni. Á skömmum tíma var komið á sovétlíkri skipan í Austur-Evrópu. Þeir sem tregðuðust við að sætta sig við hinn nýja vem- leika, vom hengdir eða skotnir unn- vörpum. Skipun var gefin um að endumýja menninguna. En þegar það kom í ljós, að enga menningu var hægt að skapa af hræðslugæðum einum, var allt vit heimsins lýst að vera í Hinum Mikla Leiðtoga. Hann lét frá sér fara nokkra smápésa (sem Á þessu korti sést afstaðan til íslands og Norðurlanda frá Kóla- skaganum. vitrir menn sömdu fyrir hann) og það 1 var básúnað út um heimsbyggðina, að þar væri samankomin hin æðstu vísindi um þróun máls, menningar og atvinnulífs. Svo undarlega vildi til, að á Vest- urlöndum var stór hópur manna, sem synti um í sæluvímu yfir hinum yfir- þyrmandi sannindum. Byssurnar voru varla þagnaðar, þegar hungursneyð ríkti í Sovétríkj- unum. En höfuðáhugamál sovét- stjómarinnar var að efla her og vígbúnað. Á árunum um 1950 fóru allt að 40% ríkisútgjalda til þeirra mála. Árið 1950 gaf sovétstjómin út ávarp, sem hún kenndi við Stokk- hólm. I því er krafizt afnáms kjam- orkuvígbúnaðar. Svo vildi til, að á þeim tíma vom Sovétríkin rétt að byija tilraunasprengingar, en Banda- ríkin áttu þá þegar nokkurt safn slíkra vopna. Heimildir Heimsfriðar- ráðsins fullyrða, að undir þetta ávarp hafí ritað hálfur milljarður manna, að meginhluta til utan Sovétríkjanna. (Ein heimild segir, að af þessum mannfjölda hafi 115 mln manna undirritað það í Sovétríkjunum sjálf- um). Þetta var engin smávegis stuðn- ingsyfirlýsing við fyrirætlanir sovét- stjómarinnar. Hveijar þær vom fáum við skýrt að vita úr ræðu Stalíns á 19. þingi Kommúnista- flokks Sovétríkjanna í október 1952. Stalín lýsir þar því, að stuðningur við Sovétríkin sé stuðningur við hagsmuni þjóðanna. Síðan segir hann, að framvarðarsveitin sé ekki ein, heldur margar, frá Kína og Kóreu til Tékkóslóvakíu og Ung- veijalands. Þeir kommúnistaflokkar, sem enn hafa ekki tekið völdin (ásamt með lýðræðis- og verka- manna- og bændaflokkum) eigi nú hægara um vik. Þeir hafa fyrir aug- unum fordæmi Sovétríkjanna og al- þýðuveldanna, og samtímis sé höf- uðóvinur „frelsunarhreyfíngarinn- ar“, burgeisastéttin, orðin veikari. „Það em því allar ástæður til að ætla, að bróðurflokkamir í löndum auðvaldsins muni beijast árangursr- íkri baráttu til sigurs“. Sovétstjórnin hugsaði sér að afnema auðvalds- skipulagið með tilstyrk „bræðra- flokkanna" og þess lýðs sem hafði lýst stuðningi við sovétvaldið með því að undirrita Stokkhólmsávarpið. Stalín sá fyrir sér Sovét-Evrópu. Það að honum tókst það ekki með því að hefja þriðju heimsstyrjöldina stafaði af því einu að frá 5. marz 1953 naut hans ekki lengur við. Takmark sovétstjórnarinnar hefur ekki breytzt. Eftir sem áður er spum- ingin þessi: Vilja menn Sovét-Evrópu eða vilja menn hana ekki? Uppúr Stokkhólmsávarpinu setti sovétstjómin á stofn svokallað Heimsfriðarráð, til að rækta og nýta þann ógnar fjölda sem skrifaði undir ávarpið. Að vísu kom ekki til að hann yrði nýttur til að koma á pax sovietica í Vestur-Evrópu. En Heimsfriðarráðið hefur rokið upp íí 1 „Vilji íslendingar halda uppi sjálfstæði og full- veldi ríkisins með fiillri reisn, er það frum- skylda þeirra að sjá til þess að öryggismálum ríkisins sé fyrirkomið með tryggilegnm hætti. Til að fiillnægja þeirri frumskyldu verður að vera hægt að fylgjast með umferð skipa og flugvéla Varsjárbanda- lagsins við landið. ís- lendingar telja sig ekki hafa bolmagn til að halda uppi þeirri eftir- litsstarfsemi sem nauð- synleg er. Ef við viljum ekki njóta aðstoðar bandalagsþjóða okkar í Atlantshafsbandalag- inu við að inna þessi störf af hendi, verðum við sjálfir að koma okk- ur upp nægilega fjöl- mennu og tæknilega menntuðu starfsliði til þess.“ með áróðursherferðir, hvenær sem sovétstjómin hefur þurft á að halda. Sem dæmi má nefna, að ráð þetta rauk upp með mikla herferð gegn nifteindasprengjum, þegar Banda- ríkin voru talin eiga slíkar en Sov- étríkin ekki. Skammt er að minnast herferðarinnar gegn Pershing-eld- flaugunum 1983. Heimsfriðarráðið hefur aldrei svo mikið sem með einu orði minnst á stríðið í Afganistan. Þó skortir það ekki áróðurslögmál- gögn, sem dreift er ókeypis um alla jarðarkringluna. Ráð þetta er rekið á vegum al- þjóðadeildar miðstjórnar Kommúni- staflokks Sovétríkjanna. Það kostar flokkinn 30—40 milljónir banda- ríkjadala á ári. Auk þess leggja Aust- ur-Evrópuríki í púkkið. Oþreytandi leiðtogi þess er Romesh Chandra. Kommúnistaflokkur Indlands sendi hann til starfa fyrir Heimsfriðarráðið árið 1953. Þegar það þykir við eiga, kemur Chandra fram í nafni samtaka sem hafa nafnið International Liaison Forum of Peace Forces, eða Al- þjóðatengslabandalag friðarafla, skammstafað ILF. í þeirra nafni kom hann til íslands í október 1987. Hald- in var í Reykjavík alþjóðleg hring- borðsráðstefna með þátttöku fulltrúa hnattræns átaks þingmanna og þá- verandi utanríkisráðherra Islands, sem ávarpaði fundinn. Þetta atvik sýnir, hversu seint og treglega gengur að koma utanríkis- og vamarmálastefnu íslands á traustan grunn. Ekkert er að því, að íslendingar tali við útsendara al- þjóðadeildar miðstjórnar sovézka kommúnistaflokksins. En þá ber þeim einnig að skýra þeim frá því, að við sækjumst ekki eftir sovézkum friði, heldur sambúð jafnrétthárra fijálsra þjóða. Hnattrænt átak þing- manna beinist e.t.v. að einhveiju öðru. En forsendur öryggismála- stefnu Islands leyfa ekki, að íslenzk yfírvöld jánki boðskap Heimsfriðar- ráðsins. Á Kolaskaga, rétt við landamæri Noregs og Finnlands, er eitt stærsta vígbúnaðarhreiður í heimi. Óhjá- kvæmilega veldur þessi herstöð mikl- um þrýstingi á Norðurlönd, jafnvel þótt það megi satt vera, að vígbúnað- inum sé aðallega beint gegn Banda- ríkjunum. Sovétstjórnin hefur lagt höfuðkapp á að efla og stækka flota sinn. Sá hluti hans, sem hefur aðset- ur í Múrmansk, getur ekki siglt út á heimshöfín aðra leið en framhjá Noregi og inn á Atlantshaf. Þetta hefur það í för með sér, að Norðurl- önd hljóta að athuga nákvæmlega stöðu öryggismála sinna. Norðmenn hafa ákveðið, að erlendur her veði ekki á norsku landsvæði á friðartím- MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989 23 Frá Gdansk í Póllandi; almenningur sýnir stjórnvöldum hug sinn með því að kasta gijóti í herlögreglubíl. um. Hvernig má þá viðhalda nauð- synlegu jafnvægi i þessum heims- hluta? Það er höfuðskilyrði fyrir öryggi Norðurlanda, að ekki skapist valda- tómarúm á íslandi. Fari ísland úr Atlantshafsbandalaginu fyrir ein- hvem misskilning eða vanþekkingu á öryggisþörfum þess, myndi staða Norðurlanda versna að mun og friði á þessum slóðum yrði hætt. Svíar eiga þegar í vandræðum með sovézka kafbáta í landhelgi sinni. Hugmyndir um svokallað kjarn- orkuvopnalaust svæði á Norðurlönd- um myndi gerbreyta öryggisaðstöðu þessara landa til hins verra. Vilji íslendingar halda uppi sjálf- stæði og fullveldi ríkisins með fullri reisn, er það frumskylda þeirra að sjá til þess að öryggismálum ríkisins sé fyrirkomið með tiyggilegum hætti. Til að fullnægja þeirri fmm- skyldu verður að vera hægt að fylgj- ast með umferð skipa og flugvéía Varsjárbandalagsins við landið. ís- lendingar telja sig ekki hafa bolmagn til að halda uppi þeirri eftirlitsstarf- semi sem nauðsynleg er. Ef við vilj- um ekki njóta aðstoðar bandalags- þjóða okkar í Atlantshafsbandalag- inu við að inna þessi störf af hendi, verðum við sjálfir að koma okkur upp nægilega fjölmennu og tækni- lega menntuðu starfsliði til þess. En enn er svo staðið að þessum málum af okkar hálfu að við hirðum ekki einu sinni um að halda úti hæfilegri landhelgisgæzlu, hvað þá meir. Ná- grannaþjóðir okkar leggja nokkum hluta þjóðartekna sinna til öryggis- ráðstafana. Við viljum helzt ekki veija til þeirra mála einum grænum eyri. Það er hrapallegur misskilningur að ætla, að með hlutleysisyfirlýsingu og úrsögn úr bandalögum myndi sjálfstæði og fullveldi Islands vera sem bezt tryggt. Ef það yrði hrapað að slíkri ákvörðun yrði landið leik- soppur stórvelda og ekki að vita hvert þeirra næði undirtökunum. Fullveldi ríkisins er betur tryggt með samningum og veru í bandalagi þjóða, sem hafa sömu markmið og við. Til eru þeir sem halda, að það sé „hjálenduhugsunarháttur" að ísland tryggi öryggi sitt með samningum og þátttöku í bandalagi. Endanlegur sigur í sjálfstæðisbaráttunni náist ekki fyrr en ísland segi sig úr öllum bandalögum og sigli eitt og einmana sinn sjó. En yrði horfið að því glap- ræði væri ekki aðeins sjálfstæði og fullveldi landsins hætt. Öryggis- hagsmunir nágrannaríkjanna myndu skerðast svo verulega, að stefnt yrði í mikla tvísýnu. Höfuðátökin á alþjóðavettvangi hafa verið milli sömu afla allt frá lokum fyrri heimsstyijaldar. Sov- étríkin settu sér það mark að sovét- gera Evrópu og síðan allan heiminn. En nú er sköpum skipt. Sovétríkin eru efnahagslegur dvergur en hem- aðarlegur risi. Hvarvetna þar sem komið hefur verið á sovétskipulagi, fylgir menningarleg auðn, örbirgð, hungur. Við lok þessarar aldar leita leiðtogar hins sovézka heims í ör- væntingu að ráðum til að bjarga sínu skinni. Byltingarhugsjónir fyrri ára eru allar gufaðar upp. Leiðtogar kommúnismans eru löngu hættir að trúa eigin hugmyndafræði. En þeir verða að láta svo í veðri vaka, því að þeir hafa ekki annað til að rétt- læta með alveldi sitt. Nú gera þeir sér ljóst, að ekki er hægt að halda þjóðum þeirra við hungurmörkin ára- tugum saman. Þeir sitja á púður- tunnu. Þeim liggur lífið á að bleyta í púðrinu eða klippa á kveikjuþráð- inn. Kínveijar hafa lagt samyrkju af og útdeilt landi ríkisins milli bænda. Nú hafa Kínveijar fengið nóg að éta. í Sovétríkjunum hafa enn ekki gerzt neinar höfuðbreytingar, þótt margt hafi verið rætt og menn uppgötvað, að eftir áratuga andlega kúgun blundar í hveiju bijósti þráin eftir sannleikanum. Brésfnéf-stjórnin hamraði á því, að „auðvaldið" væri að undirbúa innrás í Sovétríkin og stríðið gæti brotizt út hvaða dag sem væri. Til lengdar verður pólitík stórs lands ekki byggð á lygi. Fyrr eða síðar hlýtur sannleikurinn að renna upp fyrir mönnum. Og nú er að því kom- ið, að þar eystra viðurkenna menn, að sú ógn sem vofir yfir þessum ríkjum kemur ekki utanfrá, heldur innanfrá. Saga Sovétríkjanna er saga harðsvíraðr valdaklíku gegn þjóð- inni. En enn eru margar takmarkan- ir fyrir viðurkenningu á þeim sann- leika. Til eru þeir á efstu þrepum forréttinda og valda, að sókn þjóð- anna til sjálfstæðis og sannleika verður hamin endalaust. Von þeirra er sú, að þeim takist að koma málum þannig fyrir, að þeir missi ekki öll sín völd og auð í einu vetfangi. Þeir eru þá tilbúnir til að slaka örlítið á hinum æðisgengna vigbúnaði, í þeirri von að þá megi þeir klófesta vest- ræna tækni, sem geri þeim kleift að fullnægja að einhveiju leyti þörfum fólks (sem þeir hafa lítt hirt um hing- að til) og þaggað niður óánægju- og gagnrýnisraddir. Allt er þetta gert í örvæntingu og ótta við endalokin, sem eru framundan. Af þessu draga nokkrir stjórn- málamenn á Vesturlöndum þá álykt- un, að nú sé „kalda stríðinu" lokið, og að Vesturlönd megi þá hætta að hirða um öryggishagsmuni sína. Þessir vesturlenzku stjómmálamenn hirða jafnlítt um hagsmuni fólks í Austurvegi og leiðtogar þar. Það ástand sem nú hefur skapazt kallar á enn meiri varúð en nokkru sinni fyrr. Ef Vesturlönd eru trú þeim höfuðhugsjónum, sem þau segjast aðhyllast, ber þeim að styðja og styrkja fólk í Austurvegi til að ná sjálfstæði og koma á hjá sér atvinn- ulífsskipan sem skilar árangri. Það verður ekki gert með því að mata hemaðarvél yfírstéttarinnar með nýj- ustu tækni og vísindum og halda svo að þessi vél sé orðin liður i „friðarbar- áttunni". Fólk í Austur-Evrópu hungrar og þyrstir eftir samfélagsháttum, sem byggjast á virðingu fyrir rétti ein- staklingsins, eftir tengslum við lönd mennignarinnar, þar sem sköpunar- löngun má fá útrás án ritskoðunar. Forréttindastéttin hopar skref fyrir skref, en fjörbrot hennar geta orðið fárleg. Á öllþessi málefni eiga Islendingar að leggja sitt eigið mat og bregðast við samkvæmt þvi. Island er og verð- ur hernaðarlega mikilvægt. Þetta verða allir íslendingar að gera sér ljóst. Islenzka ríkið verður að móta grunnstefnu í öryggismálum, sem ekki haggast hver sem situr í ríkis- stjóm. Hitt er svo annað mál með hvaða ráðum þeirri stefnu er fram- fylgt. En grunnstefnuna þarf að móta og efla skilning allra íslendinga á henni. Höfundur er prófessor í heim- speki við Háskóla íslands. NÚERÉG HLESSA - OG REIÐUR eftirÁsgeir Jakobsson Rétt sem vinir séra Ólafs Skúlasonar voru að fagna kjöri hans til biskups, hefúr fúndizt fólk, sem hefúr talið þá stund tilefni til að bera hinum kjörna biskupi á brýn að halda inni- haldslausar ræður, síðan fúndizt annað fólk á sjálfú Morgunblaðinu, sem hefúr talið tilhlýðilegt að birta þau um- mæli. Ég minnist mikilla deilna um kjör séra Sigurbjarnar Einarsson- ar til biskups, en ekki hnjóðsyrðis eftir að hann var kosinn. Maður vissi ekki annað en að um kjör Biskups íslands ætti að ríkja friðhelgi fyrir mannskemm- andi ummælum, líkt og um for- seta þjóðarinnar eftir að hann er kjörinn. Það er varla hægt að viðhafa meir skemmandi ummæli um kennimann en að hann haldi inni- haldslausar ræður. Mér sárnar að það skuli tekið á móti séra Ólafi með þessu móti af því að ég hef verið sóknarbam hans í 10 ár og er orðið hlýtt til hans, einmitt sem kennimanns, og veit að þessi ummæli eru alger þvættingur og öfugmæli. Það er oft að fólk sem verður fyrir mannskemmandi ummælum í blöðum, bregður á það ráð að anza þeim ekki af því að fáir hafa lesið þau, og það veki á þeim aukna athygli að svara, þögnin geti verið bezta svarið til að þau eyðist af sjálfu sér. Þessu er ekki til að dreifa um svipmyndina af hinum nýkjöma biskupi í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins. Hana hafa eflaust lesið nær allir fullorðnir lesendur blaðs- ins. Hún er skrifuð eins og palla- dómur um stjórnmálamann og fólki er það trúlega forvitnileg nýlunda að sjá slíka úttekt á kjöm- um biskupi, og hvað ætli fólk muni þá betur en það sem verst er sagt um manninn. Ekki er ég kirkjurækinn af trú minni, ég tel mig sjálfan bezt fall- inn til að tala við drottinn minn, líkt og ég tala við sjálfan banka- stjórann en ekki starfsmann hans, ef ég þarf að slá mér lán, og ég á mikið undir guð minn að sækja, og tel vissara að annast minn málflutning sjálfur. En ég met kirkjuna mikils sem stofnun í þjóð- félaginu, og til séra Ólafs hef ég að auki farið all-oft í kirkju af því að mér hefur fallið hann svo vel sem kennimaður. Það heggur nærri minni eigin dómgreind, ef rétt væri um þetta „innihalds- leysi“, þar sem ég hef þakkað séra Ólafi með handabandi fyrir ræður hans í hvert einasta skipti, sem ég hef sótt Bústaðakirkju. Það er svo sem vænta mátti sannindi í því, sem séra Sigurður Haukur segir, að séra Ólafur leggi oft útaf hversdagslegum atburð- um í stólræðum sínum, og ég tel mig ekki verr dómbæran á það en hvem annan að hann gerir það af hreinni snilld oft á tíðum, en aldrei illa. Hann notar smáatvik hins daglega lífs í leiðinni að fólki beri að halda kristilegri hugsun sinni vakandi í daglegri hegðan, og í viðbrögðum við vandamál daglegs lífs, en ekki bara til hátí- ðabrigðis. Séra Ólafur er gæddur næmi skálds og hugkvæmni til að sjá hið smáa spegla hið stóra, og hef- ur bæði skírleik og málfar til að koma samlíkingum til skila í texta, sem mér hefur tíðum fundist að hefði kostað mig sjálfan langan tíma og mikið erfiði og uppskrift, og væri þó ekki jafnvel skilað verk- inu. Sem dæmi að nefna um efnistök séra Ólafs, þegar hann notar hið Ásgeir Jakobsson „Þeir; sem telja ræður séra Olafs innihalds- lausar, hafa hreinlega ekki áttað sig á aðferð hans við að boða krist- indóminn." einfalda til að skýra hið marg- ræða, man ég að nefna, að það var fyrir nokkrum ámm í dum- bungsveðri í desember, að ég hafði brugðið mér í kirkju að hlusta á séra Ólaf. Hann lagði í stólræð- unni út af atviki, sem hafði skeð við sjúkrabeð, þegar það varð að það brauzt sólargeisli innum stafngluggann á Bústaðakirkju. Séra Ólafur brá á samri stundu greinilega útaf hinum skrifaða texta og greip þennan óvænta sólargeisla til líkingar við trúarljós kristinna manna í nauðum, og mælti eftir það af munni fram, án þess að fatast í orðafari, og án þess að fletja líkinguna út í orðagjálfri — samlíkingin varð skýr og hlutlæg. Ræðumennska klerkastéttar- innar liggur, hefur mér fundist, í megin atriðum milli tveggja merkjasteina. Við annan em þá þeir, sem láta ritninguna tala fyr- ir sig, þeirra ræður em samfellt „Hósíanna", eða svo sem segir í upphafí sálmsins, „Dýrð sé guði í hæstum hæðum“. Þetta er ekki til að lasta, ef það er gert af trúar- legri innlifun, en ekki eins og staglsöm þula. En við hinn stein- inn em þeir prestar, sem leggja áherzluna á að koma kristindómin- um inní daglegt líf okkar með því að tengja hann daglegum við- fangsefnum og vandamálum. Og þá má heldur einkenna til upphafs á sálmi Einars Ben. „Hvað bindur vom hug við heimsins glaum, sem himnanna arf skulum taka.“ Ræð- ur þessara klerka verður hin eilífa spuming kristinna manna, af hveiju ekki er hægt að gera krist- indóm ríkjandi í dagfari mannsins. Þeir, sem telja ræður séra Ólafs innihaldslausar, hafa hreinlega ekki áttað sig á aðferð hans við að boða kristindóminn. Fyrir mér er hin lifandi hugsun þessa kenni- manns og frumleiki hans og vön- duð textagerð í notkun hinna hversdagslegu atvika, betri ræðu- mennska en að texti dagsins í guðspjallinu, sem lesinn er frá alt- arinu, sé allur aftur lesinn yfír mér í stólræðunni, og einnig betri ræðumennska en að yfir mig væri dembt trúfræðilegum vangavelt- um aftan úr miðöldum, enda þótt allir séu löngu sammála um það, að guðstrúin heyrir ekki undir fræðilegar vangaveltur. Ég efa ekki að séra Ólafur gæti haldið ræður af hverri þessari gerð sem er, en hann er of lifandi til þess að vilja það, og hefur valið sér aðra aðferð til kristins boðskapar. Höfiindur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.