Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989 Minning: Snjólaug Lúðvíks- dóttir kennari Fædd 23. október 1912 Dáin 24. mars 1989 „Sem kona hún lifði í trú og tryggð það tregandi sorg skal gjalda. Við ævinnar lok ber ást og dyggð sinn ávöxtinn þúsundfalda, og ljós þeirra skín í hjartans hryggð svo hátt yfír myrkrið kalda." (E. Ben.) Jafndægur á vori fyrir fáum dög- um síðan. Samt anda veðurguðimir köldu og landið er hulið frostgljáðum fannkyngiskrúða. En það styttist óðum til vorsins, hlýir vindar og geislar frá skini hækkandi sólar bræða snjóinn og þíða klakann. Vo- rið tekur völdin og gróður jarðar sem hefur blundað undir vetrarfeldinum vaknar til lífsins á ný og íklæðir jörðina sumarskrúða. Þegar þessi tímamót voru að nálgast, sveif eng- ill dauðans hægt og hljótt að hvílu- beði Snjólaugar Lúðvíksdóttur og færði anda hennar og sál til æðri heima, eftir að síðustu andvörpin höfðu liðið inn í kyrrð og frið up- prisuhátíðarinnar, sem var á næsta leiti. Snjólaug var fædd á Akureyri 23. október 1912, dóttir hjónanna Lúðvíks Siguijónssonar kennara frá Laxamýri og konu hans Margrétar Stefánsdóttur Thorarensen. Faðir Snjólaugar og Jóhann Siguijónsson skáld vom bræður. Snehima komu í ljós góðar gáfur og miklir hæfíleik- ar, og frábær lagni og smekkvísi. Kennaraprófí í handavinnu lauk hún 1937, og hafði þá áður verið eitt ár við nám í Svíþjóð. Handavinnukenn- ari við Gagnfræðaskóla Reykjavíkur 1936—1945. Einnig var hún stunda- ''fícennari við bamaskóla Skildinga- ness 1937—38 og Miðbæjarskólann 1938—39. Hún var gædd góðum kennarahæfíleikum og hafði næman skilning í garð þeirra sem minna máttu sín, enda kom það best í ljós seinna á lífsleiðinni þegar að henni kom að veita þeim skjól sem þess þurftu með. Árið 1939 giftist Snjólaug Jóni Guðmannssyni yfirkennara við Mið- bæjarskólann. Mann sinn missti hún 11. nóvember 1986, eftir 47 ára sambúð. Þau eignuðust tvær dætur; Guðrún, gift Jóni Ólafssyni kennara og búa þau suður í Keflavík á Hóla- braut 12, og eiga einn son. Guðrún er með kennarapróf og stundar líka kennslu. Margrét Lovísa banka- starfsmaður, gift Guðbjarti Jónssyni ' prentara og eiga þau tvö böm, dótt- ur og son. Þau búa í Hafnarfirði á Miðvangi 151. Báðar em þessar systur bráðgreindar, myndarlegar og mestu sómakonur. Dóttir Guð- rúnar, Snjólaug Pétursdóttir, fædd 1958, dáin 1972, var mestan hluta ævi sinnar á heimili ömmu sinnar og afa. Hún var fædd líkamlega vanheil en andlega heilbrigð, og má með sanni segja að þar hafi veik- byggður líkami vistað stóran og þroskaðan anda. Það er mikil guðs- gjöf að fæðast heilbrigður í þennan heim og sjaldnast þakkað og metið sem skyldi. Þeir sem þurfa fýrir vanheilum að sjá verða mikið á sig að leggja. Snjólaug Lúðvíksdóttir hafði næman skilning og göfuga sál og fómfýsi hennar í garð nöfnu sinnar var aðdáunarverð. Þeim sem fórna hluta af lífi sínu fýrir aðra má samtíðin ekki gleyma, heldur taka þá til fyrirmyndar, svo hver og einn verði betur undir það búinn að líkna þeim sem minna mega sín, ef að þeim kemur. Við skulum öll vera þess minnug að meta ástúð og umhyggju hvar og hvenær sem við mætum henni á lífsleiðinni. Þessir þættir í mannleg- um samskiptum mega aldrei bresta. Einnig ólst upp að nokkm leyti í skjóli ömmu sinnar og afa Jón Guð- mann Pétursson, sonur Guðrúnar og bróðir Snjólaugar litlu. Jón Guð- mann er bráðvel gefinn, viðskipta- fræðingur að mennt, kvæntur Kristínu Magnúsdóttur, og eiga þau þijú börn. Snjólaugu kynntist ég ekkert fyrr en eftir að hún giftist Jóni Guð- mannssyni, en við vorum báðir Svíndælingar, og áttum saman ýmis áhugamál. Fyrstu kynni mín af Snjó- laugu voru mjög traustvekjandi, en styrkust urðu þau eftir að ég eignað- ist eiginkonu, börn og heimili. Það var okkur Jóni báðum til gæfu og gleði hversu góð vinátta skapaðist á milli konu hans og konu minnar. Við þessi fjögur áttum oft mjög góðar samverustundir ýmist á heim- ilum okkar beggja eða þá í veislusöl- um þar sem slegið var á léttari strengi. Snjólaug var ákaflega fé- lagslynd og bráðskemmtileg í góð- vina hóp, gat verið spaugsöm og glettin, mjög eftirtektarsöm á það sem fram fór í kringum hana og fátt fór framhjá henni sem var þess virði að festa sér í minni. Hún var glæsikona sem með tígulegri fram- komu vakti eftirtekt í röðum fjöl- dans, fallega klædd og fagurlega vaxin, svipurinn hreinn og þýður, þögult vitni um manndóm og göfug- lyndi. Snjólaug var frábær húsmóðir, eiginkona og móðir. Hæg, hljóðlát og umburðarlynd gekk hún að dag- legum störfum. Reisn fylgdi allri framkomu hennar jafnt heima sem heiman. Hún átti svo létt með að miðla öðrum, uppbyggjandi, traust, hugrökk og glöð. Fyrir sextán mánuðum síðan kom ég heim af Landspítalanum eftir vel heppnaða hjartaaðgerð. Þegar heim kom sendi Snjólaug mér blóm og kveðju á þessa leið; „Velkominn heim, gamli vinur.“ Meiningin var augljós, hugur fýlgdi máli. Vináttan byggð á bjargi. Það er gott að njóta þess þegar á móti blæs, að fleiri muna eftir manni en þeir allra nán- ustu. Mörg síðustu ár ævinnar gekk Snjólaug ekki heil til skógar, en með aðstoð Rósu systur sinnar, gat hún séð um heimilið. Þær systur voru mjög samrýmdar og skyldleiki þeirra leyndi sér ekki í verkum þeirra og hugarfari. Á árinu eftir að Snjólaug missti eiginmann sinn flutti hún í nýja íbúð á Dalbraut 20 í vönduðu húsi með ýmsa þjónstuaðstöðu, sem byggt hefur verið fyrir eldri borg- ara. Þar átti hún heima það sem eftir var ævinnar og undi sér vel eftir aðstæðum. Heilsunni hrakaði eftir því sem æviárin urðu fleiri og eftir stutta legu á Landspítalanum fékk hún hvíldina sem bíður okkar allra. Þegar Snjólaug flutti í Dalbraut- ina, flutti Rósa systir hennar einnig í nýja íbúð í sama húsi, svo enn gátu þær notið þess að dvelja sam- an. Báðum hefur það verið mikill styrkur að eiga heima undir sama þaki og njóta þess, svo nátengdar sem þær voru hver annarri. Guð gefí Rósu huggun og þrek við þung- bæran aðskilnað. Þegar heiðurskona eins og Snjó- laug kveður þetta jarðneska líf, verð- ur samtíðin fátækari, en minnin- gamar auðugri af því veganesti sem hún lagði okkur í hendur, sem áttum með henni samleið. Birta, friður og mannkærleiki endurspeglast í verk- um hennar og veitir henni greiða leið að eilífðarljósinu sem vísar veg- inn til æðra lífs sem bíður á bak við fortjaldið mikla sem skilur á milli lífs og dauða. Þar bíða hennar vinir í varpa sem bjóða hana velkomna heim. Með þakklæti fyrir vináttuna og með virðingu fýrir minningunni, kveðjum við hjónin Snjólaugu Lúðvíksdóttur. Ástvinum hennar vottum við dýpstu samúð. Jakob Þorsteinsson „Næst er minnið mannsins hjarta.“ Við vinkonurnar munum hafa ver- ið 5 ára þegar lítil stelpa vakti at- hygli okkar og bamslega undmn þar sem hún sat í hjólastól í dyragætt- inni á Gnoðarvogi 74. Dúðuð ullar- teppi og hempu, og það svo vandlega að ekki sást í annað af henni en lítið bjart andlit, sat hún hljóð og horfði næstum virðulega út í grátt veðrið. Forvitnin leiddi okkur spyijandi til hennar; hún sagðist heita Snúlla, og eiga heima hjá ömmu og afa og ekki geta gengið. Þama, þennan þungbúna dag, varð til sú falslausa vinátta, sem börn ein þekkja. Leikir okkar fóm allir fram með viðeigandi fyrirferð á heimili Snúllu, en húsráðendur þar væm afi hennar Jón Guðmannsson og amma Snjó- laug Lúðvíksdóttir. Snjólaug stýrði öllu húshaldi af þeirri festu og mildi, sem prýddu hana og tók okkur af slíkri alúð, að ekki leið á löngu áður en heimili þeirra var orðið okkur athvarf. Til hennar mátti leita — hún vann kærleiksverkin. Jafnframt því að annast Snúllu nótt sem dag, var hún hennar traust og hlíf. Þær nöfn- ur áttu líka skap sarnan og skildu hvor aðra. Heimur hinna fullorðnu var okkur framandi og ekki bauð okkur í gmn hversu mikill áhrifavaldur tengsl okkar við Snúllu áttu eftir að reyn- ast. Þótt hún væri líkamlega van- máttug og hjálparlaus, var hún okk- ur langtum fremri — einhvemveginn eins og langt að komin og ekki al- veg þessa heims. Vegna hennar urðu margar spurningar til, sem við fáum seint svarað, en í þau 10 ár, sem við áttum hana að, sýndi hún okkur hvemig krafturinn verður til í veik- leikanum og það „að bera eitthvað þungt — það er að vera“. Snúlla dó þann 17. ágúst 1972 og missirinn var sár. En við héldum áfram að leita til Snjólaugar og eign- uðumst í henni vinkonu, sem við gátum talað fijálslega við. Hún átti í sér auðmýkt fyrir því sem henni þótti fallegt, hégómi var ekki í henn- ar anda. Snjólaug var listfeng, hafði á unga aldri sótt menntun sína í handíð til Svíþjóðar og miðlaði öðr- um af þekkingu sinni. Hún naut þess að sækja leiksýningar, var bókavinur eins og hún átti kyn til og hafði sérstakt dálæti á verkum Jóhanns Siguijónssonar, föðurbróð- ur síns, og ljóðum Davíðs Stefáns- sonar. Síðasta heimsókn okkar til henn- ar, var á Landspítalann, en þá var líkamleg heilsa hennar þrotin. Við áttum saman indæla stund, og mun- um hana eins og hún kvaddi okkur í sólskininu á skírdag — með blik í augum og brosi. Legðu til birtunnar leið þína og myrkrið nær þér ekki þó að skuggi vísi þér veginn. (Þorgeir Sveinbjamarson.) Rósu systur hennar, fjölskyldu og vinum sendum við samúðar- kveðjur. Ásdís og Anna í dag kveð ég eina bestu vinkonu mína, ömmu Snjólaugu. Hún er horf- in á vit þess óskiljanlega; yfír móð- una miklu; þangað sem leið okkar allra liggur. Minningar streyma fram. Sem bam að alast upp, njótandi hlýju og umhyggjusemi ömmu og afa; sem unglingur, þiggjandi holl ráð; sem fullorðin, að rabba um lífið og tilver- una. Alltaf var návistin þægilegust. Amma var nútímakona. Fyrir rúmri hálfri öld, þegar flestar stúlkur á tvítugsaldri litu hýru auga til hús- móðurstarfsins, tók amma sig til og vann að baki brotnu. Hún ætlaði að ná sér í menntun og hana var að fá í öðru landi. Því var ekkert annað að gera en að vinna í síldinni þangað til nóg fé hafði safnast til fararinn- ar. Amma sagði stundum frá því þegar karlamir í síldinni hlógu og gerðu grín er þeir heyrðu áform hennar. Að ætla sér að leggja land undir fót, alein ung stúlka, til að læra handavinnukennslu, þvílíkt uppátæki. Og amma náði sér í prófið. Hún rifjaði oft upp minningar sínar frá Gautaborg þar sem hún dvaldi í einn vetur. Einnig ferðina sjálfa á áfanga- stað sem tók rúma viku og bar hún saman aðstæður þá og nútímans. Amma skildi því vel unga fólkið í dag sem vill ferðast, sjá og læra af öðrum þjóðum; unga fólkið og öll þau tækifæri sem því nú býðst til mennt- unar og starfa. Þessir hlutir vom henni hugleiknir, enda vom þeir ósjaldan ræddir okkar á meðal. Svo gaman sem hún sjálf hafði af að ferðast, lifði hún sig vel inn i og skemmti sér við að skoða myndir og heyra sögur frá ferðalögum og öðm sem við unga fókið tókum upp á. „Að lifa lífínu og njóta tækifæranna og æskunnar" var setning sem ég og hún notuðum oft þegar við spjölluð- um. Við vomm sammála um að það væri meira virði en að leggja of fljótt út í brauðstritið og lífsgæðakapp- hlaupið. Um mál af þessu tagi og öllu óskiljanlegri hluti eins og dulræn efni, var gaman að tala um við ömmu. Fram og til baka og enda- laust var hægt að velta þessum efn- um fyrir sér. Amma var mikil tilfinn- ingamanneskja og trúði því að eitt- hvert annað líf eða heimur væri til en þetta hér á jörðinni. Um nætur- jafnt sem dagdrauma var oft spjall- að. Eins og hverri annarri góðri vin- konu var líka gott að trúa henni fyr- ir draumum sínum og leyndarmálum. Hún skildi svo vel og var alltaf já- kvæð. Það var heldur ekki af tilviljun sem ég trúði henni fyrir nýjasta leyndarmálinu er við hittumst síðast; leyndarmáli sem við eigum enn bara tvær. Amma var fagurkeri. Heimili hennar bar þess glöggan vott. Fall- egur og listrænn smekkur hennar naut sín þar og í því sem hún tók sér fyrir hendur. Híbýli sín prýddi hún gjaman með eigin handverki enda voru þau ófá snilldarverkin sem hún bjó til í höndunum. Þótt sjóninni hafði hrakað mikið var hún fram til þess síðasta með eitthvað á pijónun- um sínum. Hún var og mikill leikhús- og bók- menntaunnandi og fylgdist lengst af vel með því sem var að gerast á þeim vettvangi. En amma bar vart sitt barr eftir að hún missti hann afa fyrir rúmum tveimur árum. Líkt og tré sem fellir lauf og nær ekki að laufgast að fullu á nýjan leik. Eftir að hafa staðið svo samhent sem klettar við hlið hvors annars í nærri hálfa öld, var missir- inn mikill. Amma, Snjólaug Siguijóna Lúðvíksdóttir, var fædd 23. október 1912 á Akureyri, þar sem hún ólst upp. Foreldrar hennar voru hjónin Margrét Stefánsdóttir Thorarensen frá Skriðu í Hörgárdal og Lúðvík Sigutjónsson frá Laxamýri. Amma var yngst fimm systkina. Tvö þeirra Lára og Lárus dóu ung að aldri en eftirlifandi eru Hulda, fædd 1898 og Rósa, fædd 1906. Þann 12. maí árið 1939, giftust amma og afi. Afí var Jón Guðmanns- son frá Snæringsstöðum í Svínadal, A-Húnavantssýslu. Hann var fastr- áðinn kennari við Miðbæjarskólann í Reykjavík frá 1939 til 1969 er skól- inn var lagður niður. Þar af var hann yfirkennari frá árinu 1954. Afi lést 11. nóvember 1986. Amma og afi eignuðust tvær dæt- ur. Þær eru: Guðrún, fædd 1939 og Margrét Lovísa, fædd 1946. Guðrún er gift Jóni Ólafssyni. Þau eru bæði kennarar og starfa og búa í Keflavík. Þau eiga einn son, Lúðvík Börk, fæddur 1963. Lúðvík Börkur er að Ijúka námi í sjávarútvegsfræðum frá háskóla í Tromsö í Noregi en starfar nú í Frakklandi. Sambýliskona hans er Gauja Sigríður Karlsdóttir og eiga þau fíögurra ára gamla dóttur, Snjó- laugu Dís. Fyrir átti Guðrún tvö börn: Snjó- laugu Pétursdóttur, fædd 1958, hún lést árið 1972, og Jón Guðmann Pétursson, fæddur 1959. Jón Guðmann er viðskiptafræðing- ur, kvæntur Kristínu Magnúsdóttur. Þau eiga þijú böm, tvíburana Albert Guðmann og Magnús Guðmann 10 ára og Guðrúnu Osp fímm ára. Snjólaug átti við meðfædd veikindi að stríða. Hún ólst upp við sérstaka umhyggju og ástúð hjá ömmu og afa. Jón Guðmann ólst einnig að miklu leyti upp hjá þeim. Margrét Lovísa er gift Guðbjarti Jónssyni prentara og búa þau í Hafn- arfirði. Þau eiga tvö böm; undirrit- aða, fædd 1965, riemi í stjómmála- fræði við HÍ og Ásgeir Jón, fæddur 1968, iðnnemi. Eftir að amma hafði numið handa- vinnukennslu í Gautaborg, hélt hún áfram námi í uppeldis- og kennslu- fræðum við Kennaraskóla Islands. Þaðan lá leiðin í Gagnfræðaskóla Reykjavíkur þar sem hún kenndi handavinnu frá árinu 1936 til 1945. Á þeim tíma, sem og síðar, kenndi hún einnig að hluta við Miðbæjar- skólann í Reykjavík, en þar lágu leið- ir hennar og afa saman. Amma og afí bjuggu afar hlýlegt og traust heimili þangað sem gott var að koma. Gestrisnin var einstök enda var löngum gestkvæmt hjá þeim. Ekki síst vildum við bamaböm- in fá að dvelja hjá þeim sefn flestum stundum og vorum við ávallt hjartan- lega velkomin. Og þótt árin færðust yfír og við bömin og barnabömin yrðum fullorðin, var alltaf til tími fyrir heimsókn til ömmu og afa. Því þau voru alltaf kát og til í að spjalla. Eftir að afi féll frá flutti amma að Dalbraut 20 þar sem hún bjó sitt síðasta eina og hálfa ár. I sama húsi flutti einnig nafna mín Rósa, systir ömmu, en þær voru einstaklega sam- rýndar alla tíð og studdu hvor aðra. Þótt heilsu ömmu hafi hrakað mikið, eftir að hún missti sinn elskulega lífsfömnaut, var hún alltaf jafn and- lega ung að mér þótti. Þó að líkam- inn segði til aldurs var hugurinn ein- att opinn fyrir skemmtilegum hlut- um. Hún reyndi hvað hún gat til að njóta lífsins með okkur bömunum þar til þess síðasta. í mínum huga var amma aldrei gömul kona heldur jákvæð manneskja sem vildi fylgjast með þvi sem var að gerast í kringum hana og taka þátt. Mér fannst alltaf hægt að tala við hana eins og jafn- aldra. Og fundust mér oftar en ekki skoðanir hennar betri og nútímalegri en skoðanir margs yngra fólks. Skilningurinn var alltaf til staðar. Og óþreytandi var hún að segja frá . eftirminnilegum hlutum og miðla af reynslu sinni. Hún var sérlega vön- duð kona sem gerði hvert okkar sem var að betri manni. Ég sakna ömmu minnar mikið en veit að henni líður vel. Hún hafði lif- að góðu og mjög gefandi lífi og virt- ist ekki kvíða ferðinni löngu. Um leið og ég þakka fyrir að hafa notið hennar, bið ég guð að geyma hana. Rósa Guðbjartsdóttir + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALDIMAR S. P. ÁGÚSTSSON, skipstjóri, Vesturgötu 105, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 7. apríl kl. 11.15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á sjúkrahús Akraness. Guðrún B. Jónsdóttir, Jónína Valdimarsdóttir, Sigríður K. Valdimarsdóttir, Ingvar Baldursson, Jón Helgason, Guðrún Elin. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÍÐUR VIGFÚSDÓTTIR, Mundakoti, Eyrarbakka, verður jarðsungin föstudaginn 7. apríl frá Eyrarbakkakirkju kl. 14.00. Rútuferð frá BSÍ kl. 12.30. Börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.