Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989 Minning: Jón Þórir Áskelsson Fæddur 8. júní 1916 Dáinn 26. mars 1989 Mágur minn Jón Þórir Áskelsson verður kvaddur og til grafar borinn í dag frá þjóðkirkjunni í Hafnar- firði. Hann lést á St Jósefsspítalan- um í Hafnarfírði hinn 26. mars eft- ir nokkra legu. Hann hafði kennt lasleika um nokkurt skeið af þeim sjúkdómi sem loks dró hann til dauða. Jón fæddist að Hauganesi við Eyjafjörð þann 8. júní 1916. For- eldrar hans voru_ þau hjónin Lovísa Jónsdóttir og Áskell Þorkelsson, útgerðarmaður, sem lengst af bjuggu í Hrísey. Jón fluttist ungur með foreldrum sínum til Hríseyjar þar sem hann ólst upp með systkin- um sínum. Hann var næstelstur þeirra sem upp komust, en þau voru Sigríður, Jón, Ásgeir, Agnar Zophonías og Gyða. Þau Sigriður og nú Jón eru látin. Á uppvaxtarárum Jóns var sjáv- arútvegur vaxandi atvinnugrein við EyjaQörð. Fjörðurinn og miðin fyrir utan voru fiskisæl og hugur manna í stækkandi sjávarplássum beindist í vaxandi mæli að fiskveiðum til lífsbjargar sér og sínum. Á kreppu- tímanum sem þá fór í hönd virtust þær vera styrkasta stoðin í lífsaf- komu fólksins. Jón kynntist snemma þessum hugsunarhætti. Faðir hans var útgerðarmaður og mun Jon strax í æsku hafa kynnst og orðið þátttakandi í öllum þeim störfum sem þá voru algengust á þessum slóðum, sérstaklega hvað fískveiðamar snerti. Ungir sem gamlir unnu saman eftir kunnáttu og getu. Enginn mátti láta sitt eft- ir liggja í vorhlaupunum. Og nóg var að gera hjá föður hans bæði í landi og á sjó þar sem Jón vann á þessum árum. Jón fer í Menntaskólann á Akur- eyri og lýkur þaðan gagnfræða- prófi 1934. En lengra heldur hann ekki á þeirri braut. Sjómennskan virðist þá hafa orðið ofan á hjá honum. Hann heldur áfram að vinna hjá föður sínum á sjó eða í landi og fer á skipstjómamámskeið á Akureyri veturinn 1938-39 og lýkur þar skipstjóraprófí með réttindum til skipstjómar á 75 rúmlesta skipi. Hann stundar sjó næstu árin. Hann er formaður á bát föður síns um tíma og stýrimaður á stærri fiski- skipum. Á þessu tímabiji verða breytingar á högum hans. í desem- ber 1940 giftist hann eftirlifandi konu sinni, Ingibjörgu Sæmunds- dóttur frá Olafsfirði. Heimili þeirra er í Hrisey til ársloka 1945, en þá flytja þau til Skagastrandar. Hann hættír sjómennsku, en er enn sem fyrr tengdur fiskveiðunum. Hann gerist forstjóri frystihússins Hóla- ness á Skagaströnd. Auk þess gegnir hann þar ýmsum trúnaðar- störfum fyrir sveitarfélagið. Hann er t.d. hreppstjóri þar um nokkurra ára skeið. Árin á Skagaströnd urðu alls 13. Þaðan flytjast þau hjónin tíl Hafnarfjarðar þar sem þau hafa átt heima síðan, lengst af á Hraunstíg 5. í Hafnarfirði tekur við nýtt tíma- bil í ævi hans. Hann byijar fyrst að vinna á Skattstofunni í Reykjavík í nokkra mánuði, en hættir þar þegar hann fær starf á Skattstofunni í Hafnarfírði þar sem hann vinnur þangað til sjúkleiki hans bindur enda þar á. Jón var maður greindur og hvers- dagslega hæglátur. Hann las mikið og fylgdist vel með því sem var að gerast í kringum hann. Hann var ekki margmáll, en hafði sínar ákveðnu skoðanir á mönnu og mál- efnum án þess þó að reyna að þröngva þeim upp á aðra. Hann þoldi vel andmæli og hlustaði á skoðanir annarra. Mér fannst hann skemmtilegur í viðræðum og rökvís. Hann hafði auk þess næmt skop- skyn, sem hann greip til manni stundum að óvörum. Hann var mjög dulur í skapi og opnaði aldrei þær dyr sem veittu öðnim aðgang að hans innsta manni. Ástúð og tilfinn- ingasemi var honum ósýnt um að sýna vegna þess. Ég hygg þó að hann hafi átt slíkt ómælt innan þeirra dyra sem honum var ekki unnt að opna. Hann var maður sam- viskusamur í starfi og stóð fast á því að rétt skyldi vera rétt. Aðaláhugamál hans var ætt- fræði. Hann safnaði að sér og skráði skipulega um áratuga skeið upplýs- ingar um gengnar kynslóðir, sér- staklega um ættir sínar og sinna. Þegar hann flyst suður breytist allt hjá honum. Hann fær starf við sitt hæfi og hann getur nú auðveldlega í frístundum sínum komist á söfn til að sinna þessari hjástund sinni, ættfræðinni. Hann eykur bókakost sinn jafnt og þétt á því sviði. Mér er ekki kunnugt um að nokkur hafi heyrt hann minnast á að gefa út eitthvað af því sem hann hafði safn- að, en stílabækurnar mörgu og blöðin voru honum dýrmæt og kær. Þegar ég lít til baka yfir lífshlaup þessa vinar míns sýnist mér ég sjái þar einnig speglast lífshlaup svo margra annarra sem finna sig ekki í starfi fyrr en seint og um síðir, sumir jafnvel aldrei. Jón fann sig ekki í sjómennskunni. Hann fann sig ekki í starfi sínu á Skagaströnd eins og hann hafði vonast til. Þau ár urðu honum þung í skauti. Þeg- ar væntingamar bresta og efinn kemur í staðinn er erfitt að feta sig áfram og viðurkenna það fyrir sér og öðrum að best sé að kanna aðr- ar leiðir. Það er ekki fyrr en í Hafn- arfirði að hann fínnur sig. Hann nýtur þar starfsins og leggur metn- að sinn í að leysa það sem best af hendi. Það var oft gaman að heim- sækja þau hjónin á Hraunstígnum. Þá var stundum tekið í spil, ræðst við um menn og málefni og slegið á gaman. Á slíkum stundum fann maður að Jón naut sín vel og lét ekki sitt eftir liggja. En er tímar líða fer lasleiki að gera vart við sig. Hann tekur þessum veikindum sínum með þeirri stillingu sem hon- um var lagið og skopast gjarnan að. Ég minnist þess eitt sinn þegar ég heimsótti hann á sjúkrahúsið þar sem hann var í rannsókn. Hann kímdi við er hann sagði: „Ég skal segja þér það Rögnvaldur að það er ekki nema fyrir fullhrausta menn að fara í svona rannsókn." Þau Ingibjörg eignuðust fjögur böm. Þau eru: Áslaug gift Páli Jó- hannssyni. Þau eiga tvö böm. Aðal- heiður gift Sigþóri Jóhannssyni. Þau eiga þijú böm, tengdadóttur og bamabam. Ari giftur Marellu Geirdal. Þau eiga tvo fóstursyni. Jóhanna gift Steinþóri Ómari Guð- mundssynl Þau eiga einn son. Vinur minn og mágur er genginn og horfinn yfir í hóp áa sinna. Blessuð sé minning hans og þeirra. Rögnvaldur J. Sæmundsson Allt á enda rennur, ekkert varir óbreytt og það sem óbrotgjamast er talið lætur undan sem annað. Mannfólkið kemur og fer, heilsast og kveður og fyrr en varir er kom- ið að hinstu kveðju. Þó að dauðinn sé lifendum sár, einkum þeim sem missa óvænt og ótímabært, er hann oftar en ekki líkn frá þraut og eðli- leg endalok vegferðar sem skilað hefur sínu. Þannig var því varið við andlát Jóns Þóris Áskelssonar á morgni hinnar eilífu upprisu. Hann hafði skilað sínu, þrekið þorrið, hvíldin því kærkomin og frekari bið þess sem koma skyldi tilgangslítil. Ég hitti Jón fyrst fyrir tæpum 14 áram er ég hóf störf á Skatt- stofu Reykjanesumdæmis. Aldurs- munur var töluverður en Jón kunni að koma fram við nýrenninga og lét þá hvergi fínna til síns van- máttar. Hann var sérdeilis vel að sér I öllu sem viðkom söluskatti og auðvelt var að leita ráða og upplýs- inga hjá honum. Öll svör hafði hann á reiðum höndum og niðurstöðum hans mátti treysta í hvívetna. Á Skattstofu Reykjanesumdæm- is átti Jón að baki langan og giftu- saman feril en þar starfaði hann allt frá stofnun embættisins árið 1962. Eftir að hann lét af störfum deildarstjóra í árslok 1986 nutum við áfram starfskrafta hans og nærveru í tæp tvö ár. Gafst því góður tími til að koma málum í hendur þeirra sem við tóku. Áður hafði Jón unnið á Skattstofu Hafn- arfjarðar og Skattstofu Reylqavík- ur og fylltu árin á skattstofum því þijá tugi. Jóni var sýnt um að hafa góða reglu á þeim hlutum sem hann hafði umsjón með. Þó að vanafastur væri og átrúnaður á nýjungar ekki sterk- ur þurfti hann að ganga í gegnum þær breytingar sem af tölvutækn- inni leiddi en tölvuvæðing átti sér fyrst stað í söluskattinum. Elsti starfsmaðurinn varð því fyrstur til þess í daglegum störfum að vinna með tölvu þegar gagnaskráning er frátalin. í upphafi leit hiann trúlega þau tól óhýra auga sem honum vora þama færð til brúks. Eigi var þó kvartað undan hlutskiptinu og góðum tökum náið hann á hinum nýju vinnutækjum og hafði gaman af. Jón var í miklum metum hjá vinnufélögunum enda glettni og gamanmál honum sjaldan íjarri. Þrátt fyrir gott dagfar kom fyrir að skapið var snúið og víst er að eitt og annað er til ama í störfum skattstofufólks Eitt sem gremju olli var hve illa tókst á stundum til við lagasetningu í skattamálum frá sjónar homi framkvæmdarinnar. Hann var hinn verkséði maður og öll þarflítil vinna sem leiddi af snún- um og vanhugsuðum reglum var eitur í hans beinum. Eigi duldist að töluvert var af, Jóni dregið síðustu starfsmánuðina og furðu gegndi hversu mikið hann kom til vinnu. Ljóst var að hann ætlaði ekki að gefa sig baráttulaust. En sá sjúkdómur sem örlögum réði var þess eðlis að einsýnt var um mála- t Ástkær sonur. faðir og bróðir, VALDIMAR EYBERG INCUMARSSON, póstmaður, Hverfisgötu 26, Hafnarfirðl, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 6. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Islands. Fyrir hönd ættingja og vina, Valný Benediktsdóttir, Kristján Valdimarsson, og systkini. t Eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR RÚNAR GUÐMUNDSSON efnaverkfræðingur, Breiðási 9, Garðabæ, sem lést 29. mars verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 6. apríl ki. 15.00. AglaTulinius, Guðmundur Karl Sigurðsson, Þóra Sigurðardóttir, Þorgeir Sigurðsson, Friðrik Sigurðsson. t Elskuleg móðir mín, tengdamóöir og amma, RAGNHEIÐUR M. JÓNSDÓTTIR, Skúlagötu 60, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. april kl. 10.30. Sigríður Lárusdóttir, Lárus M. Bulat, Sigurður Ásgeirsson, Ásgeir Sigurösson. t Sonur okkar og bróðir, GUÐMUNDUR SIGGEIR EINARSSON, Dalsmynni, Villingaholtshreppi, verður jarðsunginn frá Villingaholtskirkju laugardaginn 8. apríl kl. 14.00. Bíiferð verður kl. 13.00 frá Árnesti, Selfossi. Eyrún Guðmundsdóttir, Einar Einarsson, systkini og aðrír vandamenn. Lokað Skattstofa Reykjanessumdæmis veréur lokuð frá kl. 12.00 í dag vegna jarðarfarar JÓNS ÞÓRIS ÁSKELS- SONAR. t BJÖRN GUÐJÓNSSON, Karfavogi 39, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. apríl kl. 10.30. Vigdís Bjarnadóttir og aðstandendur. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jaröarför SIGURÐAR ÞORKELSONAR, Lindargötu 17, Sauðárkróki. Guð blessi ykkur öll. Sigurlfna Stefánsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega öllum nær og fjær er auösýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HARÐAR JÓHANNSSONAR, Völvufelli 48, Reykjavík. Lára Benjamínsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ást- kærs bróður okkar, mágs og frænda, EINARS SÆVARS PÁLSSONAR. Sérstakar þakkir til sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir góða umönnun. Ólafur Pálsson, Valdfs V. Pálsdóttir, Kristinn V. Páisson, Snjólaug Pálsdóttir, MárG. Pálsson, Brynja J. Pálsdóttir, Guðmundur Pálsson, Jóhanna Pálsdóttir og aðrir vandamenn. Lokað Skrifstofan verður lokuð í dag vegna útfarar SIGURÐAR MAGNÚSSONAR, fyrrverandi blaðafulltrúa. Hæstaréttarlögmenn: Ólafur Þorgrímsson, Kjartan Reynir Ólafsson, Háaleitisbraut 68.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.