Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
7
Borgardómur:
Rröfu Jafiiréttisráðs
á ríkissjóð vísað frá
BORGARDÓMUR Reykjavíkur
hefur vísað frá, vegna galla á
málatilbúnaði, kröfii Jafnréttis-
ráðs vegna Helgu Kress um að
viðurkennt verði að setning Matt-
híasar Viðars Sæmundssonar í
lektorsstöðu í íslenskum bók-
menntum við heimspekideild
Háskóla íslands í desember 1985
hafi Verið ólögmæt.
Sex umsækjendur voru um stöð-
Fundur sjávarútvegsráð-
herra Norðurlanda í dag:
Norræn
samstarfs-
áætlun
staðfest
Sjávarútvegsráðherrar Norð-
urlandanna koma saman til fund-
ar á Hótel Sögu í dag. Megin-
verkefiii þessa fundar verður
staðfesting á norrænni sam-
starfsáætlun um sjávarútvegs-
mál sem rædd var á þingi Norð-
urlandaráðs í Stokkhólmi fyrir
rúmum mánuði.
Ámi Kolbeinsson ráðuneytisstjóri
í sjávarútvegsráðuneytinu segir að
Norðurlöndin hafi ekki haft neitt
formlegt skipulag á samstarfi sínu
í sjávarútvegsmálum hingað til og
er áætluninni ætlað að bæta úr
því. Það var ekki fyrr en 1986 sem
fyrsta embættismannanefndin á
þessu sviði var stofnuð. Nú er svo
ætlunin að koma þessu samstarfi í
fastar skorður.
Þótt áætlunin sé meginmál fund-
arins verður margt annað til um-
ræðu þar. Má þar nefna samnor-
rænar rannsóknir á selum og hvöl-
um, viðskiptaþvinganir gegn ein-
stökum löndum vegna hvalveiða,
samskiptin við Evrópubandalagið,
mengun hafsins og samstarf um
markaðátak sjávarafurða úr Norð-
ur-Atlantshafinu.
una. Fimm voru taldir hæfir en
Matthías og Helga hæfust þeirra.
Dómnefnd mælti með Helgu sem
hefði meiri og víðtækari reynslu en
Matthías sem fræðimaður og há-
skólakennari. Á deildarfundi hlaut
Helga 26 atkvæði, annar umsækj-
andi 7 atkvæði og Matthías Viðar
4 atkvæði. Skömmu síðar skipaði
menntamálaráðherra Matthías í
stöðuna. Helga taldi rétt sinn, sam-
kvæmt lögum um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla, brotinn
og fól Jafnréttisráði að höfða mál
fyrir sína hönd. Menntamálaráð-
herra synjaði erindi Jafnréttisráðs
um að setja Helgu í stöðuna og kom
málið til kasta Borgardóms.
Kröfur Jafnréttisráðs voru að
viðurkennt yrði með dómi að með
setningu Matthíasar í stöðuna hefðu
fyrrgreind lög verið brotin og að
Helgu yrðu dæmdar miskabætur,
500 þúsund krónur auk vaxta.
Ráðuneytið krafðist frávísunar á
málinu með ýmsum rökum, bæði í
heild og eins hvað varðar kröfu um
viðurkenningu á ólögmæti ráðning-
ar Matthíasar.
í niðurstöðum Eggerts Óskars-
sonar borgardómara segir að kröfur
Jafnréttisráðs beinist hvorki að því
að fá Helgu setta í stöðuna né að
því að fá viðurkenndan rétt þess
efnis, eins og lagaákvæði um máls-
höfðunarrétt ráðsins kveði á um.
Heimild til að gera sjálfstæða viður-
kenningarkröfu um ólögmæti
stjórnarathafnar menntamálaráð-
herra sé ekki innan þeirra marka
sem lagaákvæði um málshöfðunar-
heimild leyfi. Því var fallist á að
vísa viðurkenningarkröfu Jafnrétt-
isráðs frá dómi.
Miskabótakrafan var ekki tekin
til meðferðar.
Morgunblaðið/Júlíus
Gamalthús á nýjan grunn
Húsið að Bergstaðastræti 6 var flutt vestur á Skerplugötu í
Skeijafirði aðfaranótt mánudagsins. Þar verður því komið fyrir
á nýjum grunni. Farið var með húsið á bílpalli stystu leið - yfir
Reykjavíkurflugvöll.
talarar (2 super woofer)
1« víddartónn (surround) • hraðfjölföldun • síspilun • 5 banda tónjafnari
• tengi fyrir geislaspilara.
Fallegt og nett gæðatæki.
Verð kr. 9.700 eða
kr. 9.200 stgr.
4 útvarpsbylgjur • 2 hátalarar
• klukka • vekjari • 5 stöðva-
minni • 10W magnari
• tengi fyrir geislaspilara.
/M* RONNING
•//'// heimilistæki
KRINGLUNNI OG NJÁLSGÖTU 49 SÍMI 685868/10259
AÐEINS KR.750-
EINNIG KYNNUM VIÐ NYJAN
:f< A/unið
HRAÐRÉTTA
MATSEÐIL
ATORKUFÓLKSINS
»—4\%STA.URANT
BANKASTRÆTI2
S.14430