Morgunblaðið - 05.04.1989, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
Hætta á kalskemmdum:
Apríl ræður úrslitum
— svellalög hafa legið á túnum frá því
seinnipart janúarmánaðar
SVELLALÖG hafa legið á túnum
bænda á Norðurlandi frá því
seinnipart janúarmánaðar og
segir Olafur Vagnsson ráðunaut-
ur þjá Búnaðarfélagi Ejjaflarð-
ar að ef veðurfar breytist ekki
tíl hins betra á næstu vikum sé
ástæða til að óttast verulegar
kalskemmdir á túnum.
Ólafur segir að gengið sé út frá
þeirri þumalputtareglu að liggi
svellalög samfleytt á túnum í þijá
mánuði sé veruleg hætta á gras-
dauða fyrir hendi. „Aprílmánuður
ræður úrslitum, ef bregður til hlýj-
inda og snjóa og svell tekur upp
jafnt og þétt verður ástandið eflaust
ekki svo alvarlegt. Hins vegar ef
ekki hlýnar má búast við hinu
versta _ á afmörkuðum svæðum,"
segir Ólafur.
I Eyjafirði er vitað um mjög mik-
il svellalög á einstökum svæðum
og segir Ólafur menn áhyggjufulla,
þar sem snjórinn sé mikill, það taki
hann langan tíma að hverfa. Hefð-
bundin áhættusvæði hvað kai-
skemmdir varðar eru í Höfðahverfi,
á Árskógsströnd, hluti Arnarnes-
hrepps og í Svarfaðardal og Ólafs-
firði. Tún í framsveitum Eyjaljarðar
hafa yfirleitt sloppið betur, að sögn
Ólafs. í vetur hafa ár flætt talsvert
upp á land og þar undir eru mikil
svellalög, en Ólafur segir það ein-
angruð dæmi.
Krabbameinseftirlitið:
Aðeins 41 kona hef-
ur mætt til skoðunar
AF UM 200 konum á aldrinum 20-70 ára, sem fengið hafa bréf
frá Krabbameinseftirlitinu á Akureyri þar sem þær eru boðaðar
til skoðunar, hefur einungis 41 kona skilað sér. Þarna er um að
ræða konur sem annað hvort hafa aldrei áður komið til skoðun-
ar, eða lengra er liðið en þijú ár frá síðustu skoðun. Bréfin hafa
verið send út frá miðjum febrúar og segir Rósa Gunnarsdóttir
lyá Krabbameinseftirlitinu langt í frá hægt að hrópa húrra yfir
mætingunni.
Þær konur sem orðnar eru
fjörtíu ára eða eldri og einnig eru
boðaðar til skoðunar, jafnframt
því sem boðið er upp á bijósta-
myndatöku og eins konur sem eru
35 ára á árinu, hafa hins vegar
verið duglegar að mæta, að sögn
Rósu. Af 650 konum úr þessum
hópum hafa tæplega 520 konur
skilað sér. Krabbameinsfélag Ak-
ureyrar og nágrennis gaf FSA
bijóstamyndatökutæki í janúar
síðastliðnum og sagði Rósa að
konur hefðu almennt mætt nokkuð
vel til myndatökunnar, einkum
fyrst eftir að það var tekið í notk-
Vinabæj arhátí ð
í Danmðrku í júní
HALFRAR aldar afinæii vinabæjasamskipta á Norðurlöndum verður
haldið í Thisted i Danmörku dagana 3.-11. júní næstkomandi. Slík
vinabæjasamskipti eru talin hefjast með heimsókn frá Uddevalla í
Svíþjóð til Thisted fyrir 50 árum. Margrét Danadrottning setur hátí-
ðina og er búist við um 10.000 gestum hvaðanæva af Norðurlöndum
á hátíðina.
í undirbúningi er mjög fjölbreytt
dagskrá sem spannar yfir marga
málaflokka, s.s. tónlist, myndlist,
vísnasöng, golf, skák, brids og
ýmsar íþróttir.
Á vegum Norræna félagsins á
íslandi verður boðið upp á leiguflug
til Thistrup og aftur heim með
áætlunarflugi og er verðið 16.500
krónur fyrir fullorðna og 10.000
krónur fyrir börn. Farið verður frá
Keflavík, en 35% afsláttur verður
veittur á innanlandsflugi. Nánari
upplýsingar eru veittar hjá Nor-
rænu upplýsingaskrifstofunni, eða
hjá skóla og menningarfulltrúa
Akureyrarbæjar, Strandgötu 19 B.
un.
„Reynslan er sú að um 25% allra
kvenna mæta ekki til skoðunar
þrátt fyrir að þær séu boðaðar Qg
þó við höfum í frammi áróður,“
sagði Rósa og bætti við að hin
síðari ár hefðu þær konur sem
gert er að koma í reglulegt eftirlit
slegið slöku við varðandi komur á
leitarstöðina. Taldi Rósa að skýr-
ingar þar á væru ýmsar, „en ég
veit að það er eitthvað meira en
bara trassaskapur, ætli tímaleysið
og vinna utan heimilis skýri slak-
legar mætingar ekki að nokkru
leyti.“
Á síðasta ári voru skráðar 1.196
konur sem komu á leitarstöðina
og í reglulegu eftirliti hjá stöðinni
eru 311 konur, sem ýmist koma
einu sinni á ári eða á tveggja ára
fresti.
: ■■ : .
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Snætt við snarkandi arineld
Nýlega var opnaður nýr veitingastaður á Hótel
Stefaníu á Akureyri, en hann tekur um 60 manns
í sæti. í hádeginu er boðið upp á heimilislega
rétti á borð við plokkfísk og rúgbrauð, en á
kvöldin geta menn snætt stórsteikur við snark-
andi arineld. Til hliðar við veitingasalinn er bar
þar sem ræða má lífsins gagn og nauðsynjar
yfir ölkönnu. Þá geta þeir gestir sem ekki eru
matar þurfi fengið afgreidda ostabakka eða
smárétti af ýmsu tagi.„Nú erum við loksins
komnir af stað með veitingasöluna og Stefanía
orðið fullkomið hótel eins og alltaf stóð til,“
sagði Stefán Sigurðsson, eigandi hótelsins. Er
gestir ganga til salar fara þeir um stigauppgang
prýddan málverkum á veggnum sjálfum, en þau
málaði Haukur Stefánsson árið 1935. Veturinn
kvað Stefán hafa verið óhagstæðan hótelhöldur-
um; vegna veðurs og ófærðar komst flöldi fólks
ekki á staðinn og Qölmargar helgar stóðu því
herbergin á Hótel Stefaníu auð. Veðrið gerði
Stefáni einnig grikk um páskana og voru þeir
heldur daufir yfir því. Aftur á móti væri vel
bókað yfir sumarið og fleiri útlendingar hefðu
boðað komu sina en áður í fjögurra ára sögu
hótelsins. Mest sagði hann bera á Svisslendingum
og Þjóðveijum og þá væru Bretar einnig margir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Perla Jóns Valbergs Árnasonar bar þrílembingum á laugardaginn
var og er það í þriðja sinn sem ærin ber þrílembingum.
Afrakstur frjálsra ásta
ÆRIN Perla hefur lagt sitt lóð
á vogarskálar við að koma
lömbum í heiminn. Á sex vetra
ferli sínum hefiir hún borið
Qórtán lömbum. Á laugardag-
inn var, þann 1. apríl, bar nú
þrílembingum, hvítri og svartri
gimbur og svörtum hrúti.
Eigandi Perlu er Jón Valberg
Árnason og er fjárhús hans í
Búðargili á Akureyri, þar sem eru
sextán ær og einn hrútur. Gott
tíðarfar í fyrra haust varð til þess
að ærnar — og hrúturinn, voru
úti við fram í nóvember og segir
Jón að þrílembingar Perlu séu
afrakstur fijálsra ásta.
Perla er undan Hvítingi, sem
e:‘t sinn var sjötti besti hrútur
Eyjafjarðar og sjálf er ærin talinn
í hópi 100 bestu kinda landsins.
Á fyrsta vetri bar Perla einu
lambi, þann annan og þriðja
tveimur og þijú síðustu ár hefur
hún borið þrílembingum. „Hún
hefur staðið sig býsna vel og aldr-
ei drepist undan henni larnb,"
sagði Jón Valberg.
Súlnafellið að koma úr
fyrstu veiðiferðinni íyrir KEA:
LítíH kraftur í þessu
— segir Guðmundur Kristjánsson skipstjóri
„ÞETTA er búið að vera frekar
lélegt,“ sagði Guðmundur Krist-
jánsson skipstjóri á Súlnafellinu
þar sem hann var á siglingu á
Héraðsflóanum í leit að þeim
gula, seinnipartinn í gær,
þriðjudag. Guðmundur bjóst við
að landa í Hrísey um hádegisbil
á morgun.
Súlnafellið er í sinni fyrstu
veiðiferð eftir eigendaskipti, en
sem kunnugt er seldi Utgerðarfé-
lag Norður-Þingeyinga Kaupfélagi
Eyfirðinga skipið fyrir skömmu.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
Guðmund í gær var hann búinn
að fá um 40 tonn af ágætis þorski.
„Við erum á leiðinni eitthvað
norður eftir, það er bræluskítur
hérna hjá okkur núna og ekkert
að hafa. Það er allt rólegt, maður
rekur bara á reiðanum eins og
ríkisstjórnin," sagði Guðmundur.
„Við eyddum fyrstu tveimur
sólarhringunum úti fyrir Norður-
landi, á meðan við vorum að ná
áttum um borð. Síðan héldum við
austur fyrir land, ætluðum að taka
þátt í fískiríinu þar, en það var
búið þegar við komum. Það hefur
lítill kraftur verið í þessu,“ sagði
Guðmundur.
Þreföld
meðalútkoma
MARSMÁNUÐUR var sá úr-
komusamasti á Akureyri frá því
árið 1953, en í mánuðinum mæld-
ist úrkoman 127 millimetrar, sem
er þreföld meðalúrkoma þessum
mánuði.
Úrkoma þessa eina mánaðar var
jafnmikil og að jafnaði mælist á
fyrstu tíu mánuðum ársins saman-
lagt. Dagana 28. og 29. mars
mældist jafnfallinn snjór 85 senti-
metrar, sem var það mesta sem
mældist í þessum mikla útkomu-
mánuði.
Meðalhiti á Akureyri mældist 2,2
stig og er það 1,4 stigum undir
meðallagi. Kaldast reyndist vera
þann 4. mars þegar frostið fór upp
í 18 stig hluta úr degi, en síðasti
dagur mánaðarins var sá hlýjasti;
8,4 stiga hiti þegar hlýjast var.
Að sögn Öddu Báru Sigfúsdóttur
hafa sólskinsstundir ekki verið
mældar á Akureyri frá því í fyrra-
haust, en hún sagðist vona að úr
því rættist fljótlega.