Morgunblaðið - 12.04.1989, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989
7
Þinglýsingar í lág-
marki hjá fógetum
Mikill seinagangur hefur skapast
við þinglýsingar hjá bæjarfóget-
um vegna verkfalls Stéttarfélags
lögfræðinga í rikisþjónustu.
Hjá bæjarfógetanum í Kópavogi
fara til dæmis engar þinglýsingar
fram þar sem þeir tveir lögfræðing-
ar, sem annast hafa þinglýsingar í
Kópavogi, eru í verkfalli. Einn lög-
fræðingur starfar við skiptarétt hjá
embættinu og liggur sú starfsemi
niðri, að sögn Ásgeirs Péturssonar,
bæjarfógeta í Kópavogi. Aðeins er
veitt viðtaka skjölum hjá embætt-
inu. Ásgeir sagði að auðvitað gæti
hann sinnt þessum störfum og
myndi hann gera það í neyðartilvik-
um. Ekki hefði mikið reynt á það
til þessa.
Jón Skaftason, yfirborgarfógeti,
sagði að engin starfsemi, sem fram
færi á vegum borgarfógetaembætt-
isins, stöðvaðist alveg. Þó skapaðist
mikill seinagangur í allri þjónustu
embættisins. Verst kæmi verkfallið
niður á þinglýsingum. Þar störfuðu
venjulega sex lögfræðingar, en nú
væri þar aðeins einn starfsmaður,
o
INNLENT
borgarfógetinn Sigurður Sveinsson.
Jón sagði að nú hefði svo mikið af
skjölum til þinglýsingar borist að
ekki væri lengur hægt að svara
viðkomandi um það hvenær hægt
væri að sækja skjölin úr þinglýs-
ingu. Starfsemi firmaskrár og upp-
boðsréttar er nánast óbreytt, en í
fógetaréttinum starfa tveir lög-
fræðingar af íjórum.
Fimmtán
málverk-
um stolið
Hestur í fimdarlaun
FIMMTÁN málverkum eftir
ýmsa kunna listamenn, svo sem
Gönnar Örn, Magnús Kjartans-
son og Braga Asgeirsson, var
stolið í innbroti að Þúfu á Kjalar-
nesi aðfaranótt föstudags. Eig-
andinn heitir þeim, sem veitir RLR
upplýsingar sem leiða til þess að
málið upplýsist, tveggja vetra göml-
um fola sem hann hyggst hafa á
fóðrum uns hann verður tamningar-
hæfur.
Forsala aógöngumióa:
í dag og á morgun í Laugardalshöll og íþróttahúsinu í
Keflavík kl. 16-20. Símasala í síma 685949 á sama tíma.
Verð aögöngumida ki. 1000 í sæti, kr. 000 i stæði cg ki. 500 fyiii höin.
A*h! Sióas* seldis* upp í forsölu - tryggió
Hið íslenska kennarafélag:
Prófyfirseta fellur
undir störf kennara
Morgunblaðinu hefiir borist eftir-
farandi ályktun frá Hinu íslenska
kennarafélagi vegna þeirrar
ákvörðunar menntamálaráðu-
neytisins að láta samræmdu próf-
in fara fram þrátt fyrir verkfall
HÍK.
Lítil loðnuveiði
LOÐNUVEIÐI hefur verið lítil
undanfarna daga en á þriðju-
dagsmorgun voru 5 til 6 loðnu-
skip við Keflavík.
Víkurberg tilkynnti um 300 tonn
til Grindavíkur í gær, þriðjudag, að
sögn Ástráðs Ingvarssonar starfs-
manns loðnunefndar.
„Fram til þessa hefur yfirseta í
prófum talist hluti af störfum kenn-
ara og yfirstandandi verkfall breytir
engu þar um. Verkfallsstjóm HÍK
lítur því á það sem verkfallsbrot ef
samræmd próf verða lögð fyrir með-
an á verkfalli félagsins stendur.
Verkfallsstjóm skorar jafnframt á
félaga sína í KÍ að virða þessa
ákvörðun. Yfirlýsingar starfsmanna
menntamálaráðuneytisins um fram-
kvæmd samræmdra prófa í fjölmiðl-
um undanfama daga em algerlega
á þeirra ábyrgð, ekkert samráð hefur
verið haft við Hið íslenska kennarafé-
lag. Verkfallsstjóm HÍK treystir því
að menntamálaráðherra virði verk-
fall Hins íslenska kennarafélags,"
segir í ályktun frá HÍK.
ICY vodka í nýjum umbúðum:
600 þúsund flöskur
til Bandaríkjanna
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Erlingur Aðalsteinsson fylgist með starfi eins starfshóps bæjarstarfsmanna við undirbúning kröfiigerðar.
Samningaviðræður við bæjar-
starfsmenn heflast í dag
Starfsmannafélög taka mið af BSRB-
samningnum við launakröfur
Selfossi.
Samningaviðræður launanefiid-
ar sveitarfélaga og fulltrúa fé-
laga bæjarstarfsmanna liefjast í
dag, miðvikudag. Bæjarstarfs-
menn 21 félags hafa samflot í
þessum viðræðum og mun 5
manna viðræðunefhd ræða við
launanefiid sveitarfélaga um
launalið samnings þeirra og aðra
liði sem voru lausir í febrúar.
Bæjarstarfsmenn sögðu upp
launalið samnings síns frá 1. febrú-
ar en síðast þegar samið var gerðu
þeir þriggja ára samning sem gildir
til 31. desember þessa árs eins og
þekkt var á sínum tíma. „Við mun-
um ræða launalið samningsins og
aðra liði hans sem voru lausir í febr-
úar,“ sagði Erlingur Aðalsteinsson
formaður samninganefndar bæjar-
starfsmanna. Hann sagði einnig að
í því efni yrði tekið mið af nýgerðum
samningi BSRB.
40 manna samninganefnd bæjar-
starfsmanna kom saman á Hótel
Örk í gær og undirbjó kröfugerðina
sem lögð verður fram í viðræðunum
í dag. Þó um samflot sé að ræða
þá gerir hvert félag sinn samning.
Erlingur sagði að meginmarkmið
þess samnings sem í gildi væri hefði
verið að samræma kjör miili félaga
bæjarstarfsmanna annars vegar og
hins vegar við almenna vinnumark-
aðinn. Hann sagði samræmingu við
almenna vinnumarkaðinn hafa
gengið þokkalega en ákveðnir hóp-
ar hefðu orðið útundan. Krafa fé-
laganna væri að vinna áfram að
þessum markmiðum.
—Sig. Jóns.
ICY vodka er nú að koma á
markaðinn hér í nýjum umbúð-
um, sem sérstaklega eru hann-
aðar með útflutning í huga.
Áætlað er að flytja að minnsta
kosti 600 þúsund flöskur til
Bandaríkjanna.
Útflutningur til Bandaríkjanna
hófst í desember s.l. og í frétt frá
framleiðendum ICY, Sprota hf.
segir að framleiðslan hafi fengið
góðar viðtökur. Framleiðslan á
ICY hefur verið flutt til íslands
og fer hún fram í nýrri verk-
smiðju sem rekin er í samvinnu
Sprota og Mjólkursamlags Borg-
firðinga.
ICY vodka í nýjum umbúðum.