Morgunblaðið - 12.04.1989, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989
Alþjóðlega skíðamótið í Hlíðarfjalli:
Mikilvægt fyrir ísland
og skíðaíþróttina
- segir Jón Ásgeir Jónsson frá SKÍ
„ÞAÐ ER n\jög þýðingarmikið
fyrir skíðamenn okkar að fá tœki-
feri tíl að taka þátt í móti sem
þessu og geta þannig orðið sér
úti um punkta. Meðal annars þess
vegna höfum við í hyggju að knýja
á um að halda svona mót aftur,“
sagði Hermann Sigtryggsson
æskulýðsfulltrúi á Akureyri á
blaðamannafundi i gær, en þá lauk
alþjóðlega skíðamótinu í Hlíðar-
Qalli.
Á fundinum kom fram mikil
ánægja erlendra aðila með fram-
kvæmd mótsins og voru menn sam-
mála um að vel hefði tekist til á all-
an hátt. Jón Ásgeir Jónsson frá
Skíðasambandi íslands sagði að með
mótshaldinu væri ísland komið inn
á landakortið hvað varðar alþjóðleg
skíðamót. „Þetta var geysilega mikil-
vægt fyrir ísland sem keppnisland
og fyrir skíðaíþróttina í heild. Það
er líka mikilvægt fyrir skíðafólk okk-
ar að fá tækifæri til að vinna sér inn
punkta á heimavelli. Skíðafólk hefur
þurft að leggja í mikinn kostnað
vegna ferðalaga til Evrópu til að ná
sér í punkta á alþjóðlegum mótum,“
sagði Jón Ásgeir.
Þröstur Guðjónsson formaður
Skíðaráðs Akureyrar sagði mótið
hafa gengið vel og menn hefðu öðl-
ast mikla og góða reynslu í kjölfar
mótshaldsins. Ivar Sigmundsson for-
stöðumaður Skíðastaða sagði að
kostnaður vegna mótsins væri mik-
-ill, „en ég held að þetta eigi eftir að
borga sig. Ég lít ekki svo á að þeim
peningum sem varið hefur verið
vegna þessa móts sé kastað á glæ.
Til lengri tíma litið á_ þetta eftir að
skila árangri," sagði ívar.
Áætlað er að kostnaður vegna
mótsins sé um ein milljón króna.
Hluti af þýskri njósna-
flugvél í troll Dalborgar
DALBORG EA-317 kom á mánu-
daginn inn til löndunar á Dalvík
og fyrir utan 23 tonn af rækju
höfðu hlífar utan af hreyfli flug-
vélar af gerðinni Focker Wulf-
200 slæðst með í trollið. Dalborg-
in var að veiðum á Skjálfanda-
dýpi, skammt austan við
Grímsey, þegar hún fékk hlífina
og reyndar líka hreyfilinn í troll-
ið, en vegna mikils þunga hreyf-
ilsins hvarf hann aftur í hafið
og varð þess valdandi að trollið
var afar illa útleikið á eftir.
„Þetta er ekkert nýtt fyrir mér,“
sagði Snorri Snorrason skipstjóri á
Dalborginni í samtali við Morgun-
blaðið. Snorri sagðist hafa tapað
trolli þegar það flæktist í þessari
sömu flugvél fyrir um tuttugu
árum, en fengið það aftur tíu árum
síðar þegar trollið festist enn á ný
við flak flugvélarinnar. „Við höfum
oft og iðulega fengið stóra parta
úr þessari vél og hún hefur rifið í
sundur veiðarfæri fyrir íjölmörgum
bátum," sagði Snorri. Hlutum flug-
vélarinnar hefur ekki verið haldið
til haga, en Snorri sagðist hafa
komið með hlífina að landi að beiðni
Harðar Geirssonar, en hann er mik-
ill áhugamaður um flugvélarflök.
Hörður Geirsson sagði að flugvél-
in, sem er af gerðinni Focker Wulf-
200, hafí verið þýsk njósnaflugvél,
er stundaði veður- og eftirlitsflug
við Island. Tvær bandarískar
Lightning-flugvélar skutu vélina
niður á sumarmánuðum árið 1943
austan við Grímsey, á svipuðum
slóðum og skotið var á Súðina
skömmu áður.
Frá þessum atburði er greint í
fimmta bindi bókarinnar Aldnir
hafa orðið, þar sem rætt er við Óla
Bjarnason. „Það var glampandi sól
og margir Grímseyingar voru að
þurrka hey á túnum og þetta gerð-
ist yfír fólkinu og rigndi ýmsu úr
vélinni yfir eyjuna. Fólk varð auð-
vitað felmtri slegið og þurfti að
styðja sumar konur til síns heima,
því þær fengu taugaáfall af
hræðslu, sem ekki var nein furða
og engin vansemd af því,“ segir í
frásögninni. Síðar segir frá því að
Grímseyingar hafi róið í átt að
þýsku flugmönnunum þar sem þeir
voru í gúmmíbát. Er menn voru
tilbúnir að bjarga flugmönnunum
komu bandarísku flugvélarnar að
og helltu blýi í sjóinn fast að stefni
bátsins og fleyttu kúlurnar kerling-
ar um allan sjó. Ekki var eyja-
skeggjum þó heimilað að bjarga
þeim þýsku, frá Siglufirði kom bát-
ur með vopnaða Bandaríkjamenn
innanborðs og höfðu þeir áhöfnina,
alls sjö menn, á brott með sér.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Snorri Snorrason stýrimaður og faðir hans, Snorri Snorrason skip-
stjúri á Dalborginni, ásamt Herði Geirssyni, sem er mikill áhugamað-
ur um flugvélarflök, með hlíf af hreyfli þýskrar njósnaflugvélar sem
skotin var niður skammt utan við Grímsey á sumarmánuðum árið
1943.
Sex ættliðir í kvenlegg
Á milli elstu og yngstu konunnar á myndinni eru níutíu og sjö
ár. Sú elsta sem er langalangalangamma þeirrar yngstu er niutíu
og sjö ára og sú yngsta er sex vikna.
Siijandi frá vinstri er Siguijóna Jakobsdóttir, en hún er ekkja
eftir Þorstein M. Jónsson fyrrverandi skólastjóra og bókaútgef-
anda á Akureyri. Þorsteinn lést fyrir þrettán árum. Siguijóna
er búsett í Reykjavík, en niðjar hennar, konurnar fimm sem með
henni eru á myndinni, eru búsettar á Akureyri.
Við hlið Siguijónu er dóttir hennar, Jónborg Þorsteinsdóttir,
78 ára. í efri röð frá vinstri stendur dóttir Jónborgar, Edda
Magnúsdóttir, 59 ára og hennar dóttir Vilborg Gautadóttir, 40
ára er yst til hægri. Á milli þeirra er dóttir Vilborgar, Ragn-
heiður Baldursdóttir. Hún er 22 ára og heldur á sex vikna gam-
alli dóttur sinni í fanginu. Þeirri stuttu hefiir ekki verið gefið
nafii, en hún er Sigfusdóttir.
Guðrún íþróttamaður Akureyrar
Haraldur Ólafsson hlaut f SÍ-bikarinn
GUÐRÚN H. Kristjándóttir skiða-
kona úr KA var kjörin íþróttamað-
ur Akureyrar fyrir árið 1988.
I^jöri hennar var lýst um siðustu
helgi, á ársþingi ÍBA. Guðrún var
mikið í sviðsljósinu í fyrra, varð
m.a. þrefaldur sigurvegari á
Landsmótinu auk þess sem hún
keppti á Vetrarólympíuleikunum
i Calgary.
Guðrún hlaut 171 stig, en röð fímm
efstu var annars sem hér segir: næst
flest stig hlaut Haraldur Olafsson,
lyftingamaður úr LRA með 165 stig,
þriðji varð_ Erlingur Kristjánsson
handknattleiks- og knattspyrnumað-
ur úr KA með 97 stig, fjórði Guðlaug-
ur Halldórsson, júdómaður úr KA
með 95 stig og fímmti Haukur Val-
týsson, blakmaður úr KA með 81
stig.
Alls hlaut 21 íþróttamaður á Akur-
eyri stig að þessu sinni. Guðrún var
ekki viðstödd verðlaunaafhending-
una, þar sem hún var við keppni á
ísafírði.
Haraldur hlaut ÍSÍ-bikarinn
Við sama tækifæri var afhentur
svokallaður ÍSÍ-bikar, en hann er
árlega veittur þeim einstaklingi í
bænum sem talinn er hafa unnið
íþrótt sinni ómetanlegt starf. Harald-
ur Ólafsson, sem hefur verið aðal
driffjöðrin í starfi Lyftingaráðs Ak-
ureyrar undanfarið, hlaut bikarinn
að þessu sinni. í þakkarávarpi sínu
sagðist Haraldur hafa hlotið margar
viðurkenningar um ævina, en enginn
vafí væri á að honum þætti mest til
þessarar koma. „Mér þykir vænst
um þessa viðurkenningu," sagði
hann.
Guðrún H. Kristjánsdóttir,
iþróttamaður Akureyrar 1988.
Morgunblaðið/Reynir Eiríksson
Haraldur Ólafsson hlaut ÍSÍ-
bikarinn að þessu sinni.
Guðrún á fullri ferð á heims-
meistaramótinu í Colorado fyrr
á þessu ári.
m
eílir CJyiinoocl Sleiosson
16IKF6LAG AKURGYRAR
sími 96-24073
Uí
FRUMSYNING
föstudag 14/4 kl. 20.30
laugardag 15/4 kl. 20.30