Morgunblaðið - 12.04.1989, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRIL 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
BogmaÖur og Fisk-
ur
Bogmaður (22. nóvember —
21. desember) og Fiskur (19.
íebrúar — 19. mars) eru í
spennuafstöðu og því um
margt ólík. Það sem er líkt
er hins vegar að bæði eru
breytileg. Á milli merkja sem
eru í sepnnuafstöðu er oft tog-
streita en jafnframt viss að-
_ lögun því merkin geta haft
bætandi áhrif hvort á annað.
Bogmaöur
Viðfangsefni Bogmannsins
þurfa að vera fjölbreytt og lif-
andi. Það er t.d. æskilegt að
hann stundi íþróttir eða ferðist
og sé á töluverðri hreyfingu í
daglegu lífi. Hann þarf frelsi
til að víkka sjóndeildarhring
sinn. Hinn dæmigerði Bog-
maður er jákvæður í skapi og
að öllu jöfnu léttur og hress.
Hann er forvitinn og lítið fyrir
lognmollu og vanabindingu.
Fiskurinn
Fiskurinn þarf fjölbreytilega
örvun frá umhverfinu, en jafn-
iramt tímabundna einveru eða
breytingar á umhverfí sínu til
að endumýja og hreinsa
lífsorku sína. Hann er sveigj-
anlegur og lætur stjómast af
tilfinningalegu innsæi. Fiskur-
inn hefur sterka aðlögunar-
hæfni, en er skilningsrfkur og
á auðvelt með að setja sig í
spor annarra. í framkomu er
hann yfirleitt þægilegur og
lipur.
Leitandi merki
■^jBæði Fiskur og Bogmaður era
íeitandi merki sem sækjast
eftir þekkingu og vilja hafa
yfírsýn yfir umhverfi sitt. Þau
em einnig fijálslynd og því
getur samband þeirra orðið
allsérstakt og „bóhemískt“.
Óstöðugleiki
Ein hætta í sambandi Bog-
manns og Fisks er fólgin í að
bæði merkin em breytileg.
Það táknar að samband þeirra
getur orðið óstöðugt og brotn-
að við minnsta álag. Bæði
merkin hafa tilhneigingu til
að forðast að tala um hið nei-
kvæða og erfiða. Þau þurfa
því að varast að gefast of fljótt
upp og flýja erfiða ábyrgð.
Hressileiki
oglokun
Ólíkt skapferli þeirra getur
einnig leitt til áreksta. Bog-
maðurinn er opinn og jákvæð-
ur persónuleiki en Fiskurinn á
til að vera mislyndur og loka
annað slagið á umhverfið:
Bogmaðurinn kemur rjúkandi
heim úr vinnunni einn daginn
og segir: „Heyrðu, drífum
okkur út.“ Fiskurinn er þá
búinn að koma sér vel fyrir
uppi í rúmi og svarar: „Æ,
láttu mig í friði. Ég vil vera
einn í smástund." Þau em því
ekki alltaf samstíga í tjáningu
og aðgerðum. Viðkvæmni og
-einvemþörf Fisksins getur
farið í taugamar á Bogmann-
inum en hið opna eðli hans
farið í taugamar á Fiskinum.
Óhagsýni
Hvorki Bogmaður eða Fiskur
em sérlega hagsýn og jarð-
bundin. Það er því hætt við að
í samstarfi tveggja dæmi-
gerðra einstaklinga sé flogið
hátt og jarðsambandið verði
óstöðugt. Þau þurfa þv! að
gæta þess að allar áætlanir
séu raunsæjar og framkvæm-
anlegar. Þetta á ekki síst við
*á fjármálasviðinu.
HugmyndasviÖiÖ
Það er nauðsynlegt að lífsstíll
Bogmanns og Fisks sé fjöl-
breyttur. Þau þurfa breytingar
á daglegu umhverfi til að
koma í veg fyrir eirðarleysi.
Að lokum má geta þess að
samvinna þeirra ætti að vera
hvað best í hugmyndalegu eða
listrænu samstarfi.
GARPUR
Æ ÆT / PAK.Aód 1 \ C
| T/ETA,ErEG „
KSMSTUPPh pAtaBjjll'k. 'I
VEpBuP
HITT
Audueld/íi&k
GRETTIR
BRENDA STARR
hVAB NCkSU VEL TIL AD
Þhkjuebo v/ta a£> hann y/S£>i
PUDL ey HElDAEL EQA&n
PULL FOISSETI S/'ÐAH
VEL ? / ABFAHAM
L/NCOLN LE/E>,
LJÓSKA
FERDINAND
Mér er sagt að bókin þín um að
„Kyssa og kjafta frá“ hafí reitt
marga til reiði...
Ég var að velta því fyrir mér hvort
þú hefðir áhyggjur af hótunar-
bréfúm ...
Bara þessu þar sem þeir hótuðu
að sprengja upp matardolluna
mína...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Tromplitur sagnhafa gefur
tilefni til sjaldgæfrar öryggis-
spilamennsku.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ Á7
▼ 6532
♦ 8543
*D65
Vestur Austur
♦DG52 ,,,,,, ♦ 9
▼ GHÍ9 ▼ D874
♦ D96 ♦ K1072
♦ 743 + Á982
Suður
♦ K108643
▼ ÁK
♦ ÁG
+ KG10
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 1 grand Pass 3 lauf
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: hjartagosi.
Þetta er ágætur samningur
sem alltaf vinnst ef trompið ligg-
ur 3-2, því gefa má einn slag á
tromp til viðbótar við tapslagina
tvo í láglitunum. Vandamál
sagnhafa er því að leita uppi
4-1-legu sem hann ræður við.
Fyrsta hugsun margra er að
taka fyrst á spaðaásinn og spila
svo á tíuna. Með þeirri spila-
mennsku ræður maður við D,G
eða 9 blankt hjá vestri. En eigi
austur DG9x græðist ekkert á
þessari spilamennsku, því hann
stingur auðvitað drottningunni á
milli.
Hvað ef vestur á fjórlit í
trompinu? Má ráða við þá legu?
Við athugun kemur í ljós að það
kemur sagnhafa að engum not-
um ef austur á drottningu eða
gosa blankt. Vestur fær samt
tvo slagi á litinn. En þegar aust-
ur á níuna staka er hægt að
pína vestur með því að spila
tíunni út og láta hana rúlla ef
vestur dúkkar!
Er þessi spilamennska á
kostnað annarra möguleika?
Nei, því þegar vestur á D, G,
eða 9 blankt er einfaldlega yfir-
drepið með ás og trompi spilað
á tíu. Hin kórrétta íferð er því
að spila tíunni út.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Bad Ragaz í
Sviss í marz kom þessi staða upp
í skák þeirra Antonio, Filippseyj-
um, sem hafði hvítt og átti leik,
og alþjóðlega meistarans Dana-
ilov, Búlgaríu.
Svartur lék síðast 38. — He8-e8?
39. Hd7! - Rxd7? (39. - Dxd7
40. Bxd7 — Rxd7 41. Dxg6 var
mun betra og staðan er engan
veginn Ijós.) 40. Dxg6 — Rf6 41.
Dg8+! og svartur gafst upp, því
hann er mát í næsta leik. Svartur
hlýtur að hafa verið í miklu tíma-
hraki, því ef hann hefði drepið
annan hvorn hvíta hrókinn í 38.
leik er ekki annað að sjá en hann
hefði haft léttunnið tafl.