Morgunblaðið - 12.04.1989, Side 34

Morgunblaðið - 12.04.1989, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989 Minning: Sigurður Sigurðs■ son írá Veiðilæk Fæddur 15. mai 1913 Dáinn 14. febrúar 1989 Þann 20. febrúar sl. var gerð frá Borgameskirkju útför Sigurðar Sigurðssonar sem bjó í fjölda ára á Veiðilæk í Þverárhlíð, en átti nú síðast heima á Dvalarheimili aldr- aðra í Borgamesi. Diddi eins og við vinir hans köll- uðum hann, og ég mun gera hér í þessum minningarorðum, var fædd- ur í Kálsbrekku í Þverárhlíðar- hreppi í Borgarfirði sem er löngu komið (eyði og tilheyrir nú Högna- stöðum. Með foreldrum sínum flyst hann tveggja ára gamall að Veiðilæk. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Pétursson ættaður úr Þverárhlíð og kona hans, Sigurborg Halldórsdótt- ir ættuð utan frá Akranesi. Böm þeirra urðu tvö, Diddi sem hér er minnst og Hólmfríður kona Jóns Snorrasonar frá Laxfossi, en þau búa á heimili aldraðra í Borgamesi. Fyrstu kjmni mín af Didda og Veiðilælqarfóikinu voru þegar ég var átta ára gamall og kom þangað sumarlangt til snúninga. Mun það hafa verið að samkomulagi við hús- bændur að dvöl mín yrði eitt sumar til reynslu, enda óvíst um fram- haldið þar sem þetta var fyrsti við- skilnaður minn við móður mína, sem fylgdi mér þá í sveitina. En alls urðu þau nú fímm sumr- in sem ég átti þama á Veiðilæk og talar það sínu máli. Þegar ég kom á Veiðiiæk var þar fyrir telpa sem kom frá bammörgu heimili og var nokkru eldri en ég. Var það Guðrún dóttir Sigríðar og Magnúsar Finns- sonar sem þá bjuggu í Stapaseli í Stafholtstungum. Hún varð þama heimilisföst í nokkur ár. Magnús faðir hennar var kunnur fyrir ljóð og lausavsur um menn og málefni í Borgarfírðinum. Veiðilækur er byggður á háum hól, sem er eitt fegursta bæjarstæði í sveitinni, en þar sér til Hreðavatns, fjallsins Baulu, fjallanna Litlu Brókar, Stóra Brókar og Hraunsnefsöxl blasir við sjónum. Frá fossinum Glanna stíga Vatnsstrókar á góðviðrisdögum þar sem fossinn steypist ofaní gljúfrið. Niður undan bænum liðar sig Norð- urá þar sem silfraður laxinn þreytir sína árvissu göngu upp eftir ánni lengra og lengra þar til hrygningar- stöðum er náð. Þá skildi ég fyrst vel, hvers vegna Diddi og Veiðilækj- arfólkið batt svo mikla tryggð við stað eins og Veiðilæk, sem varla getur talist kostajörð þegar laxveiði er undanskilin ábúð. Aðeins lítill hluti túns sléttaður og erfíðleikar miklir með alla aðdrætti. Hallar- múlinn klettótt flalllendi og skriður, sem torvelduðu alla vegagerð að bænum. Vegir í Þverárhlíð voru á þessum tíma að stóram hluta reiðgötur sem einnig vora ætlaðar fyrir klyfja- hesta. Aðeins nokkum hluta leiðar- innar á þessum áram var hægt að fara með hestvagn ef aðgát var höfð, lengst var þá komist að Lækj- arkoti og Höll. Var þá enn löng leið ófarin að Veiðilæk. Stysta leið- in með mjólkurafurðir frá Veiðilæk var út á Norðurlandsþjóðveginn að bænum Laxfossi í veg fyrir mjólkur- bílinn hans Stjána Nordælings. Það kom oft í hlut Didda og Fríðu systur hans að fara með mjólkina, sem var hvorki létt verk né vanda- laust, því það þurfti sterka hand- leggi til að lyfta stóram mjólkur- brúsum. Farið var á hestum yfír Norðurá á Vaði sem er skammt ofan við fossinn Laxfoss. Einnig var hægt að fara niður undan bænum Veiði- læk. Allt gekk þetta nokkuð vel á meðan ekki hljóp vöxtur í ána, en þá varð að feija mjólkina á bát. Urðu þá tveir menn að annast flutn- ingana. Var þá hestunum sundlagt. Aftur þurfti að endurtaka þetta þegar farið var til baka svo það gat liðið langur tími sem reiðmaður mátti skjálfa í blautum buxum áður en komist var heim til að hafa fata- skipti. Það var því ekkert skrítið þó lítill strákur sem var til snúninga á Veiðilæk ætti sér þá ósk að byggð yrði brú yfir Norðurá til að bæta samgöngur við bæinn. Þessi draumur smalans hefur enn ekki orðið að veraleika, enda arð- semi slíks mannvirkis líklega talið skila sér beint í krónum. Þó hefur tækninni fleygt svo mikið fram að þar sem áin rennur í gegnum þröngt gljúfur skammt frá Veiðilæk er breidd hennar ekki meiri en svo að þar nægðu tveir strengjasteypubitar til að bera uppi brúargólf. Myndu slíkar fram- kvæmdir gjörbreyta samgöngum við Þverárhlíð sem kæmist þá í þjóð- braut. En Veiðilækur er kominn í eyði og fleiri bæir þar í sveit. Bænd- ur hafa safnast til feðra sinna og böm þeirra flutt til þéttbýlisstaða svo draumur smalans um bættar samgöngur við Þverárhlíð verða að bíða komandi kynslóða. Hinsvegar hefur verið byggð brú yfír Norðurá á móts við Gilsstaði í Norðurárdal og leysir því ekki þetta mál, en það er önnur saga. Eins og fyrr segir voru túnsléttur nokkrar kringum bæinn sem era að nokkra umluktar mýrlendi og engjum. Við túnið var bætt nokkuð að nýrækt þegar ég var þar og hluti af gamla túninu plægt upp. Búskapurinn á Veiðilæk var blandaður búskapur sem byggði þó meira á fjárbúskap. Annað sumarið sem ég var þarna bættist við piltur til snúninga sem Haraldur hét svo þá var jafnvel hægt að spila fótbolta þegar stund gafst frá störf- um. Diddi var duglegur við búskap- inn og kindur vora afurðagóðar. A Veiðilæk vora alltaf til fymingar af heyi. Menn vora viðbúnir því að móðir náttúra gæti bragðist því slæmt árferði er algengur viðburður hjá bændum. Þegar húsmóðirin í Lækjarkoti féll frá hætti Magnús búskap á jörðinni og flutti að Veiði- læk til Sigurðar bróður síns og Sig- urborgar. Böm Magnúsar vora upp- komin og farin í vinnumennsku eins og títt var á þessum áram þegar búin vora of lítil til framfærslu margra fullorðinna. Guðmundur, sonur Magnúsar, átti líka heima á Veiðilæk og starfaði þar að tún- slætti og öðram bústörfiim í nokkur ár. Magnús var vinnulúinn, aldraður maður. Á þessum áram entust bændur illa. Vinnutíminn var oft óheyrilega langur enda vélar ekki komnar til að létta mönnum bú- skapinn í neinum mæli. Magnús reyndist mér vel eins og allt heimilisfólkið á Veiðilæk, róleg- ur og yfírvegaður hafði hann tíma til að skilja bamssálina. Löngu eft- ir að vera minni á Veiðlæk lauk og ég hafði stofnað mitt heimili, birtist hann mér oft-sinnis í draumi. Það lá því beinast við að fyrsti sonur okkar hjóna væri skírður í höfuð honum. Böm Magnúsar og konu hans, Þorgerðar Oddsdóttur, vora Oddur smiður í Borgamesi, dó 1976, var kvæntur Soffíu Guðmundsdóttur sem lifir mann sinn. Guðmundur (Mundi) sem einnig er látinn, hann starfaði í Borgamesi í fjölda ára, dó 1969, var ókvæntur og barn- t Bróðir okkar, DANÍEL STEFÁNSSON, múrari, Reykjahlið 14, Reykjavík, verður jarðsettur frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 12. apríl, kl. 13.30 (ath. breyttan tíma). Gunnar Stefánsson, Jón Hjörtur Stefánsson. t Öllum þeim sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, ÁSTRÍÐAR STEFÁNSDÓTTUR, Litla-Hvammi, Mýrdal, eru sendar hugheilar þakkir og kveðjur. Fyrir hönd aðstandenda, Börn hinnar iátnu. t Sambýliskona mín og móðir mín, MÁLFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Kleppsvegi 62, er látin. Jarðarförin hefurfarið fram íkyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Guðmundsson, Sigurður Benediktsson. laus. Sigþrúður dó í mars í fyrra, rúmlega áttræð, hún giftist ekki, þjó lengst af í Borgamesi, vann að skógrækt í Borgarfirði í tugi ára. Magnús var að mestu hættur útivinnu á þessum tíma. Hann var þó sístarfandi að hagsæld búsins, pijónandi, kemdi ull, skar tóbak, fléttaði reipi og gerði við áhöld. Sigurborg húsfreyja átti oft margar stundir við rokkinn sinn og má segja að henni hafi aldrei fallið verk úr hendi. Það ríkti því oft sannkölluð baðstofustemmning þegar heimilis- fólkið var samankomið í baðstof- unni til að hlusta á útvarp og vinna í höndum. Stundum varð að tak- marka hlustun því rafhlöðumar dugðu skammt. Veðurfréttir höfðu þó forgang. Vinsælustu útvarpsmennimir vora Helgi Hjörvar, Sigurður í Holti og Jón Eyþórsson. Þeir vora svo vinsælir meðal heimilisfólks að stundum fannst mér ég fínna ná- lægð þeirra í baðstofunni. Nokkram sinnum vora kvöldvök- ur á Veiðilæk. Lásu þær Fríða og Þrúða þá upp úr bókum sem ein- hveijum hafði áskotnast. Þar heyrði ég í fyrsta skipti lesið upp úr Leynd- ardómum Parísarborgar og fannst mikið til koma. Þá komu einnig uppsafnaðar stórar sendingar af dagblöðum. Ef ekki vora miklar annir þegar þessi stóri blaðastrangi kom, lét heimilisfólkið fara vel um sig við blaðalestur. Framhaldssögur Tímans vora góðar á þessum áram og var þeirra alltaf beðið með eftir- væntingu. Á afskekktum bæ í sveit fylgdist fólk vel með og þar var reynt að vei\ja mig af flámælgi, sem við Sunnlendingar voram svo þekktir fyrir. Á þessum sveitabæ ríkti sannkölluð baðstofustemmn- ing þar sem fólkið bjó sér sjálft til skemmtiefhi og vora virkir þátttak- endur. Unga fólkið á bænum var vanið á að hlusta. Á þessum áram var allt túnið slegið með ljá. Menn fóra því árla á fætur þegar grasspretta var góð og von var á þurrki. Þó Didda hafi famast vel búskapurinn hygg ég að hugur hans hafí frekar staðið til að vinna við smíðar og gera að lífsstarfi sínu, því hann var lagtæk- ur með afbrigðum. Oft vann hann vikum saman fyrir bændur í sveit- inni við að endurbyggja íbúðarhús, hlöður, skepnuhús og jafnvel reisa ný. Diddi var eftirsóttur til vinnu því hann var duglegur og traustur verk- maður sem var vandur að virðingu sinni. Hvar sem leið hans lá fór af honum gott orðspor. Á þessum árum vora hestar not- aðir til flutninga og dráttar við nær öll bústörf í sveitinni. Heysleðinn á Veiðilæk var heimasmíðaður eins og flest tól og hlutir sem notaðir vora við búskapinn. Ég náði því að kynnast mörgum þessum sveita- störfum áður en vélvæðing og tækni leysti þau af hólmi eða þau vora aflögð. Má þar nefna mótöku sem var ásamt kalvið og taði nær ein- göngu notað til eldunar á þessum áram á Veiðilæk. Torfrista var nokkuð stunduð á Veiðilæk. Minnir mig að Diddi hafí notað einristuljái við verkið. Var þetta þurrkað og notað á fjárhúsin og á heygalta. Þá var ullin þvegin heima, en við þvott hennar var notað hland sem safnað var saman frá heimilinu og fór þvotturinn fram úti þar sem stutt var í læk til að skola ullina. Vora settar upp hlóðir og stór pottur yfír sem ullin var soðin í. Þetta sápuefni er það besta við ull- arþvott, auk þess að gera ullina tandurhvíta drepur það færilýs og maura, sem vilja alltaf koma í ull. Sigurður faðir Didda féll frá 1939. Kynni mín af föður hans vora því minni en ég hefði kosið. Þama komu ný þáttaskil. Sigurborg bjó þó áfram á Veiðilæk með bömum sínum næstu árin. Systkinin tóku við búsforráðum og bjuggu með móður sinni. Á þessum árum var flest matarkyns sem heimilið not- aði, afurðir búsins. Smjör var strokkað heima í nokkram mæli, enda ekki alltaf hægt að koma frá sér mjólkurafurðum vegna sam- gönguerfiðleika. Sláturmatur var að sjálfsögðu unninn heima. Garðávextir og nið- ursoðin matvara, mjöl og kom var haft í ámum. Allt var þetta geymt í myrkvuiðum lqallara undir bað- stofiinni. Þó ekki hafi verið ríki- dæmi á þessum bæ var Veiðilækjar- fólkið vinnusamt svo það leið enginn skort. Diddi naut ekki skólamennt- unar umfram venjulega barna- fræðslu þeirra tíma. Mun þó hugur hans hafa staðið til frekara náms þó aðstæður leyfðu eigi, enda var hann bráðgreindur. Hann bætti sér þetta upp eftir föngum með sjálfs- menntun og lestri góðra bóka. Diddi hafði yndi af ljóðum og visum. Tveimur skáldum hafði hann mikið dálæti á, en það vora Þura í Garði og Sveinn frá Elivogum. Margt góðra reiðhesta var á Veiðilæk á þessum áram. Diddi átti hest sem hét Glanni sem honum var sérstaklega kær og veitti honum mikla ánægju og yndisstundir. Þessi hestur var afburða fljótur og hafði mikinn vilja. Þá var Kolskeggur sem Guðmundur átti (Mundi) fal- legur hestur með mikinn gang. Sig- þrúður átti steingráan viljugan hest, og Fríða átti skeiðhest sem Korgur hét. Diddi hafði gaman af hestum og fékkst lítillega við tamn- ingar í hjáverkum og stundum vora honum fengnir baldnir folar sem aðrir vora lítt hrifnir af. Einhveiju sinni sagði hann mér frá hesti sem var erfíður í tamningu en honum tókst að gera hann að ljúflings- hesti. í fyrstu hélt hann að hann myndi aldrei geta setið hestinn. Lengi hafði hann haft hann í taumi með öðram hestum, talað við hann og reynt að nálgast hann. Hesturinn var skapmikill og eftir nokkuð lang- an tíma tókst honum að hemja þetta mikla skap og uppskar góðan reið- hest. Árið 1942 hættu Diddi og Fríða búskap á Veiðilæk og fluttu í Borg- ames ásamt móður sinni. Diddi fór þá að vinna í versluninni Borg við pakkhússtörf og var þar um níu ára skeið. Eins og áður hefur komið fram var Diddi dugnaðarmaður sem lagði oft hart að sér við vinnu því hann var húsbóndahollur. Er mér ekki granlaust um að oft hafi hann ofgert heilsu sinni á þessum áram og hafí goldið þess þegar aldurinn færðist yfír. Árið 1951 þurfti Diddi að leita sér lækninga fyrir sunnan við erfíðum sjúkdómi. Vistaðist hann þá á heimili foreldra minna á meðan hann fékk bót meina sinna. Þótti okkur vænt um að hann skyldi vilja vera á okkar heimili, þó annað stæði honum til boða. „Ég hefði ekki komið suður nema af því að þið leyfðuð mér að vera hjá ykk- ur,“ sagði hann. Trygglyndi hans við mig og mína foreldra segja kannski meira en nokkur lýsingar- orð. Diddi var lengi að jafna sig eftir þessi veikindi. Eftir þetta fer hann að vinna við smíðar í sveitinni. Þessa hæfileika sína lét hann bænd- ur í Þverárhlíð, Norðurárdal og Stafholtstungum njóta og á mörg- um bæjum þar í sveit sjást merki um hagar hendur hans. Ekki kann ég nöfn á öllum þeim bæjum en nefni hér nokkra: Ambjargarlæk, Höll, Laxfoss, Hvassafell, Kvíar og Norðtungu. Á seinni árum sínum átti Diddi fastan samastað í Norðurtungu þar sem hann starfaði. Á heimili hjón- anna þar, Magnúsar og Andreu, var gott að vera enda átti Diddi auð- velt með að aðlagast fjölskyldunni og fínna sig þvingunarlaust sem einn af meðlimum hennar. Diddi kvæntist ekki og eignaðist ekki böm. En seint verður metin til fulls sú vinátta er hann sýndi Jakobi syni Fríðu systur sinnar, en á heimili hennar og Jóns á Lax- fossi átti hann löngurn athvarf. Seinustu æviárin kenndi Diddi sér nokkurrar vanheilsu, en þá naut hann umhyggju hjúkranarfólks á Dvalarheimili í Borgamesi og nú síðast á Akranesi. Fríða systir hans var ávallt reiðubúin að stytta hon- um stundir þegar hann í veikindum og einmanaleika þarfnaðist nær- vera hennar. Við vinir hans og samferðarmenn munum minnast hans með þökk og virðingu. Blessuð sé minning hans. Guðmundur Egilsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.