Morgunblaðið - 12.04.1989, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989
-4
Dósahnífínn og lóð-
bolta...
HÖGNI HREKKVISI
Um inntökuskilyrði ;
í framhaldsskóla
Til Velvakanda. Þegar ég sá
frétt á baksíðu Morgunblaðsins þ.'
4. apríl, var mér virkilega brugðið.
Þar stóð að engin inntökuskilyrði
ættu að vera í framhaldsskóla næsta
vetur. Þessi frétt virðist hafa fallið
í skuggann af fréttum um verkfall
kennara, en er þó mikilvæg engu að
síður.
Eg er sjálfur nemi og þennan dag
var þetta helsta umræðuefnið í skól-
anum. Það sem kom í Ijós, var að
flestir litu þetta mál virkilega nei-
kvæðum augum. Árangur þessarar
lagasetningar verður nefnilega ein-
ungis sá að framhaldsskólarnir munu
íyllast af fólki sem ekkert hefur þar
að gera. Eða eins og einn kennari
sagði, þá er „ .. .nóg af hálfvitum í
framhaldsskólum án þess að þar
bætist við fjöldi nemenda sem hafa
ekki meira að gera í tímum en soðin
ýsa“.
Málið er nefnilega það að nemend-
ur með einkunnir á bilinu 0—5 fara
ekki í framhaldsskóla til að læra.
Ástæður þeirra fyrir skólasókninni
eru tvær. í fyrsta lagi fara þeir í
skóla vegna þess að „allir" gera það
og það þykir „töff‘ að vera í fram-
haldsskóla. í öðru lagi fara þeir
vegna félagslífsins.
Þessir nemendur, sem kunna varla
að skrifa nafn sitt, munu láta ein-
hvern útfylla umsókn fyrir sig, til
þess að þeir geti kastað skutlum í
tímum og rifist við kennara.
Þeir munu vera í fyrsta bekk skól-
anna í nokkur skipti, þar til þeir falla
endanlega, og munu þar taka pláss
frá öðrum nemendum.
í lögum þessum um framhalds-
skóla, sem eru reyndar nr. 57/1988
segir í 16. gr.: „Allir, sem lokið hafa
grunnskólanámi eða hlotið jafngilda
undirstöðumenntun, eiga rétt á að
hefja nám í framhaldsskóla að full-
nægðum kröfum um starfsþjálfun
þar sem hennar er krafist. Nemend-
um er skylt að stunda fornám í ein-
stökum námsgreinum samkvæmt
ákvæðum í námsskrá hafi þeir ekki
náð tilskildum námsárangri. Nem-
andi, sem orðinn er 18 ára gamall,
getur hafið nám í framhaldsskóla án
þess að fullnægja inntökuskilyrðum
samkvæmt þessari grein nema að
því er varðar starfsþjálfun. Heimilt
er að setja lágmarkskröfur til inn-
töku í tiltekinn námsáfanga."
Ég spyr, hvaða hagsmunum á
grein þessi að þjóna? Ekki hagsmun-
um kennara, sem munu þurfa að
beijast við þessa nemendur í tímum.
Ékki hagsmunum toppnemenda,
sem munu þurfa að fara í aðra skóla
en þeir hefðu kosið, vegna þess að
einhveijir hálfvitar, sem búa á betri
stað í bænum, taka pláss frá þeim.
Ekki hagsmunum hins almenna
nemanda, sem mun dragast aftur
úr vegna sífelldra tafa í kennslu-
stundum.
Það mætti halda að ástæðan fyrir
samþykkt þessara laga sé sú að ein-
hveijir af háttvirtum alþingismönn-
um vorum eigi börn með svipaða
greindarvísitölu og þeir hafa sjálfir.
Þeir virðast vilja að þau böm komist
í menntaskóla, án þess þó að börnin
hafi áhuga eða getu til þess.
Það nýjasta í þessu máli er sú
fullyrðing deildarstjóra skólarann-
sóknardeildar menntamálaráðuneyt-
is vegna verkfalls kennara, að í
„ ... grunnskólum verði minnsti
skaðinn, þar sem inntökuskilyrðin í
framhaldsskólana hafa verið rýmkuð
verulega".
Þama hlýtur hann að eiga við það
að það skipti engu máli þótt allir fái
falleinkunn úr samræmdu prófunum
þar eð allir komist jú hvort sem er
í framhaldsskóla! Er þetta rökrétt?
Ég vil benda á það að samræmdu
prófin hafa hingað til aðeins gilt 50%
á móti skólaeinkunn og leyft hefur
verið að vera með undir 5 í tveimur
gieinum. Ég hefði haldið að það lág-
mark væri nógu lágt, án þess að
fella þurfi það endanlega niður. Eins
og margir muna, þá var skipulagið
þannig fyrir tíð samræmdu prófanna,
að reiknuð var aðaleinkunn og þurfti
hún að vera yfir 6 til þess að nem-
andi kæmist í framhaldsskóla. Ef til
viil væri best að taka það skipulag
upp að nýju.
Fyrir skömmu bar á því að pró-
fessorar við Háskóla íslands kvört-
uðu yfir auknu agaleysi nemenda.
Hver skyldi nú ástæðan vera fyrir
því?
Með von um að einhver taki mál
mitt til athugunar.
Furðulostinn nemandi
Ljósgeislar og líforku-
geislar frá Síríusi
Til Velvakanda.
Ég sá stjörnuna Síríus í kvöld í
fyrsta sinn á þessum vetri. Hversu
fagurlega blikaði hún þar sem hún
skein þama á heiðum himni, eigi
mjög hátt ofan við Bláfjöllin í suð-
austri. Heillaður stóð ég um stund
og horfði á skin þessarar björtustu
sólstjömu himins. Hvítt er ljós henn-
ar og snögg sýnast blossandi birtu-
blikin, sem frá henni berast.
Síríus er ein af nálægustu sól-
stjömum himins, fjarlægð um átta
ljósár. Raunverulegt ljósmagn henn-
ar er 26-falt á við birtu okkar sólar,
enda allnokkru stærri og miklu heit-
ari á yfirborði. Um Siríus gengur
önnur sól, hvítt dvergstimi, kallað
Siríus B. Við sjáum það ekki bemm
augum, vegna smæðar þess og ná-
lægðar við aðalstjömuna.
Um Siríus hefur margt verið ritað
í aldanna rás, og hafa sumir sjáend-
ur talið sig skynja fullkomið líf á
reikistjömu einni er gangi umhverfís
móðursólina.
Einhveija snjöllustu frásögn og
merkilegustu um lífið í sólhverfí Sir-
íusar er að fínna í bókinni „Guðimir
á Siríusi" eftir K.D. Schmidts, sem
Þorsteinn Guðjóns þýddi og út kom
fyrir nokkrum árum. Þar eru
skemmtilegar og stórfenglegar lýs-
ingar á sólhverfi þessu og á því
lengra komna lífi, sem þar er lifað;
enda um fjarskynjanir að ræða, sam-
kvæmt hans eigin reynslu, en ekki
skáldskap eða heilaspuna.
En hvað sem þessum frásögnum
líður ættum við oft að fara út á heið-
skírum kvöldum til að njóta geislandi
birtublika þessarar skæm stjörnu,
og jafnframt þeirra heillandi áhrifa
og lífgandi orkustrauma, sem margir
telja sig hafa reynt í eigin bijósti.
Verum opin fyrir þeim fjarhrifum,
er frá lengra komnum stjarnbúum
stafa. Ingvar Agnarsson
4
4
4
4
Víkverji skrifar
*
Avenjubundinni sunnudags-
göngu Víkveija um síðustu
helgi þegar leiðin lá meðal annars
um Reykjavíkurhöfn og götur í
nágrenni hennar var það samdóma
álit göngufélaganna, að mikið starf
biði þeirra sem eiga að hreinsa
stræti og torg. Undan snjónum
kemur óhemjumikið magn af drasli
og skít, sem kostar sitt að hreinsa.
Víða hefur miklum sandi verið
dreift á götur og gangstéttar til að
draga úr hættu í hálkunni og nú
bera menn hann með sér inni í hús
og híbýli. Venjulega líður ekki á
löngu þar til hreinsibílar á vegum
borgarinnar koma á vettvang og
með þeim er unnt að fjarlægja
mest af sandinum. Auðvitað á ekki
alfarið að treysta á frumkvæði opin-
berra aðila heldur eiga borgararnir
sjálfír að huga að sínu næsta ná-
grenni og sjá til þess að það sé
snyrtilegt.
Víkveiji er til dæmis þeirrar
skoðunar, að stjórnendur skóla eigi
að láta nemendur hreinsa skólalóðir
og næsta nágrenni þeirra. Slíkt sé
mikilvægt uppeldisatriði.
Ungur vinur Víkveija hafði orð
á því, að sér hefði þótt miður
að hlusta á Sverri Stormsker tala
gegn fermingunni í sjónvarpsþætti
á dögunum og þó hefði verið verst,
að hann skyldi hafa notað orðið
bullshit, þegar hann var að lýsa
afstöðu sinni. Það ætti ekki að leyfa
fólki að fara svo illa með móðurmál-
ið í slíkum þáttum.
Um leið og tekið er undir þessa
aðfinnslu vill Víkveiji vekja máls á
því, að hann kveikti á útvarpi Rót
á dögunum, þar sem einhvetjir
vinstrisinnaðir öfgamenn voru að
ræða saman um kjarasamningana
og stöðuna á þeim vettvangi. Einn
þeirra gat ekki lýst afstöðu sinni
án þess að nota enska orðið disast-
er, sem þýða má með orðinu hörm-
ungar. Annar talaði í sífellu um að
ríkisstjórnin væri að biöffa alþýð-
una. Þá var rætt um að beina ætti
málum í ákveðna kanala og þar
fram eftir götunum.
XXX
Vinur Víkveija hefur fengið
upphringingu frá Danmörku
og síðan blaðabunka og reikning
upp á tæplega 2.000 danskar krón-
ur, sem eiga að renna til samtaka
bandaríska öfgamannsins Lyndon
LaRouche. Þessi samtök hafa nú
tekið sér fyrir hendur að styðja
málstað íslenskra stjórnvalda í
hvalamálinu gegn grænfriðungum
og segja þau að um samsæri sé að
ræða til að koma íslendingum á
kaldan klaka.
Meðal þess sem vinur Víkveija
fékk sent var ljósrit úr Morgun-
blaðinu, þar sem birtist í íslenskri
þýðingu hástemmd lofgrein eftir
einn félagsmanna í þessum furðu-
samtökum um íslensku óperuna, en
höfundurinn kom hingað til lands
sem blaðamaður vegna leiðtoga-
fundarins 1986. Er greinin í Morg-
unblaðinu nú notuð til að efla traust
manna á þessum félagsskap, sem
hefur lagt Elísabetu Englands-
drottningu í einelti og einnig Henry
Kissinger. Samtökin hafa komið ár
sinni fyrir borð að minnsta kosti í
Svíþjóð og Danmörku. Þau virðast
nú vera með sérstaka herferð gagn-
vart íslendingum, að minnsta kosti
í því skyni að fá þá til að gerast
áskrifendur að ritum sínum.
Víkvetji hvatti vin sinn til að endur-
senda blöðin og reikninginn.
4
4
4
4
i