Morgunblaðið - 12.04.1989, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 12.04.1989, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐE). IÞROTTIR MffiVIKUDAGUR 12. APRÍL 1989 43 HANDKNATTLEIKUR Þeir sem völdu heimafiðiö, eru: Ioan Kunst, Rúmeníu og Ivan Snoj, Júgóslaviu. Portugalaka handknattleikssambandið greiðir ferðakostnað léikmanna og uppi- haid í Portugal. Karkashevich ThleC Kang ÞORGILS Óttar Mathiesen, fyrirliði landsliðsins í hand- knattleik, verður í góðum fé- lagsskap í Lissabon í Portug- al, þar sem hann leikur með heimsliðinu gegn landsliði Portugals 8. júlí. Leikurinn er 50 ára afmælisleikur portu- galska handknattleikssam- bandsins. Búið er að velja fimmtán leik- menn frá jafn mörgum þjóð- um. Þorgils Óttar er eini llnumað- urinn í hópnum. Þrír markverðir maeta til leiks. Andreas Thiel, V-Þýskalandi, Mirko Basic, Júgóslaviu og Philippe Madard, Frakklandi. Þrír hægri hornarmenn voru vaidir, en þeir eru: Jan Novak, Tékkóslóvakíu, Erik Hajas, Svíþjóð og Alexander Karkas- hevich , Sovétríkjunum. Vinstra megin í homi eru: Mihaly Ivanc- sik, Ungverjalandi og Michael Penger, Danmörku. Sex útispilarar mæta - þrír hægra megin: Juan Munoz-Melo, Sþáni, Zhigniev Tzuczynski Póflandi og Frank-Michael Wahl, A-Þýskalandi og vinstra rnegin verða þeir: Martin Rubin, Ssiss, Marian Dumitru, Rúmeníu og Jae-Won Kang, S-Kóreu. mi leikur með heims- liðinu f Lissabon / Heimsliðiðleikurgegn Portugal ÍLissabon: Þorgils Ottar , verður ígóðum félagsskap KNATTSPYRNA Skipti Gunnars Gíslasonar: Hácken og Mossaðsemja Aðeins þrefað um 25% sölu- verðsfari Gunnartil þriðjafélags Ensk lið fá gull Ijós Ensk knattspyrnulið fá að taka þátt í Evrópumótunum haustið 1990 með þeim fyrirvara að breska ríkisstjómin sé því samþykk. For- seti Knattspymusambands Evrópu greindi frá þessu í gær eftir sér- stakan stjórnarfund í Portúgal. Enskum liðum hefur verið mein- uð þátttaka í tæp fjögur ár eða síðan ólæti urðu þess valdandi að 39 áhorfendur fórust á úrslitaleik Liverpool og Juventus í Evrópu- keppni meistaraliða 1985. Ensk knattspymuyfirvöld vom að vonum ánægð með ákvörðunina og töldu hana réttmæta, en sögðu að enn væru bullur til vandræða og allt yrði reynt til að koma í veg fyrir ólæti samfara knattspyrnu- leikjum, þó aldrei væri hægt að tryggja frið og spekt utan Bret- lands. Ekki hefur verið gengið frá þátt- töku enskra liða í smáatriðum og eins á eftir að ákveða, hvort Liverpool verði meinuð þátttaka lengur eins og kveðið var á um fyrir fjórum árum. Hins vegar er ljóst að enskir áhorfendur geta enn sett strik í reikninginn og verður sérstaklega fylgst með þeim á úrsli- takeppni heimsmeistaramótsins á Ítalíu á næsta ári, verði England á meðal þátttökuþjóða. Gunnar Gíslason KNATTSPYRNA Heldsá Austurríkis- menn tapa Sigi Held, landsliðsþjálfari ís- lands, sá Austurríkismenn tapa, 1:2, fyrir Tékkum á heima- velli í vináttulandsleik í gærkvöldi. 8.000 áhorfendur í Graz sáu Stan- islav Griga skora mörk Tékka (59. og 76. mín.), Andreas Herzog (71. mín.) skoraði fyrir heimamenn. Austurríki leikur gegn íslandi i heimsmeistarakeppninni í Reykjavík 14. júní. FLEST bendír til þess að Gunn- ar Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu, verði löglegur með 1. deildar liði Hacken f Svfþjóð innan fárra daga, en keppnin i Svíþjóð hefst á sunnudag. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá gerði Gunnar, sem lék með Moss í Noregi undanfarin tvö keppnistímabil, þriggja ára samning við Hácken í nóvember, en skömmu síðar sætti Moss sig ekki við umsamið kaupverð og skiptin sátu föst. Til að reyna að skera á hnútinn skipti Gunnar í KR eftir áramót, en Moss staðfesti aldrei þau skipti. Lengi ræddust Moss og Hácken ekki við, en sfðustu daga hafa samningaviðræður staðið yfir og í gær virtist, sem málið væri að leysast. Moss og Hácken komu sér þá saman um kaupverðið, en aðeins var þrefað um 25% sölu- verðs fari Gunnar til þriðja félags. Morgvnbiaðið ræddi við hlutað- eigandi í gærkvöldi. Formaður knattspymudeildar Moss sagði að fyrrverandi þjálfari Moss, sem nú þjálfar Hácken, hefði sagt að Gunn- ar væri verðmætasti miðvallarleik- maður Norðurlanda. Þeim hefði því þótt eðlilegt að fara fram á 600.000 sænskar krónur (rúmlega 5,4 millj- ónir ísl. kr.) fyrir Gunnar. Formað- ur Hácken sagðist þá hafa boðið 320.000 sænskar krónur og við það sat þar til í gær, er félögin sættust á að kaupverðið yrði 360.000 sænskar krónur. Formennirnir sögðust báðir hafa gefið mikið eftir í þeirri trú að málið leystist, því það hefði dregið dilk á eftir sér fyrir alla aðila. Félögin hafa samt enn ekki kom- ið sér saman um 25% söluverðs, fari Gunnar til þriðja liðs. Moss vill halda þeim hluta um ókomna framtíð, en H'cken vill fá réttinr eftir tvö ár. ■ VWAR HaJIdórsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í knattspymu úr FH og leikmaður Hafnarfélagsins, , var í gær ráðinn þjálfari hjá FH í stað Helga Ragnarssonar, sem hætti störfum fyrir stuttu. Viðar og Ólafur Jóhannesson, sem var þjálfari ásamt Helga, sjá um þjálf- un. ^ ■ FRAM mætir FH í í undanúr- sfit bikarkeppni kvenna. Leikurinn fer fram í Laugardalshöll annað kvöld kl. 20. Stjaman og Víkingur mætast í hinum undanúrslitaleikn- um ■ HANS Guðmundsson, UBK, tekur út leikbann í kvöld í 1. deild karla í handknattieik_ ásamt Sig- urði V. Friðrikssyni, ÍBV, og Ivan Duranec, þjáifara KA. Þremenn- ingamir voru reyndar úrskurðaðir í bann á þriðjudag í síðustu viku vegna fjölda refsistiga, en skrif- stofa HSÍ gleymdi að sendatilkynn- ingu þess efnis til viðkomandi þau- til á sunnudag. Bann tekur gildi á hádegi daginn eftir að tilkynning er send og því hefði Hans átt að vera í banni gegn Vikingi á sunnu- dagskvöld eins og Morgunblaðið greindi frá fyrir helgi, ef málið hefði verið afgreitt strax. Hans tryggði sér markakóngstitiiinn í leiknum. ■ SIGURÐUR Sigurðsson, ís- landsmeistari í golfi, fór til Banda- ríkjanna í síðustu viku til æfínga. Hann verðurj hálfan mánuð í Kali- forníu hjá Árna Áransyni eldri, fyrrum forstjóra Austurbakka hf. __ ■ ÞORSTEINN Gunnarsson, knattspymumarkvörður úr Vest- mannaeyjum, leikur með Gauta- borgarliðinu Qviding FIF í sum- ar. Liðið leikur í sænsku 4. deildinni. ■ JÚLÍUS Þorfínnsson, fyrrum leikmaður KR í knattspymu, hefur ákveðið að leika með IK í 3. deild f sumar. ENGLAND Liverpool á toppinn Liverpool skaust upp á toppinn í gærkvöldi þegar félagið vann Millwall, 1:2, í London í spennandi leik. Millwall fékk óskabyrjun þegar Denis Salman skoraði mark eftir aðeins átta mín. Það var ekki fyrr en rétt fyrir leikshlé að Liverpool náði að jafna, 1:1, með marki John Bames. John Aldridge skoraði síðan sigur- mark Liverpool í seinni hálfleik og var það umdeild. Annar línuvörður- inn iyfti upp flaggi sínu, en lét það síðan falla þannig að dómarinn dæmdi markið löglegt. Aðeins tveimur mín. fyrir leikslok munaði ekki miklu að Dean Horrix næði að jafna fyrir Millwall. Fast skot hans hafnaði á þverslánni á marki Liverpooi. Besti leikmaður vallarins var Brian Home, markvörður Millwall, sem varði hvað eftir annað glæsi- lega. Eftir leikinn gengu Liverpool- leikmennimir Steve McMahon, Steve Nicol og Ray Houghton tií Home og óskuðu honum til ham- ingju með leikinn. Staðan í meistaraslaginum er nú þessi: Liverpool..........32 18 9 6 56:24 68 Arsenal............32 18 9 5 61:32 63 West ham mátti þola tap, 1:2, fyrir Middlesbrough. Kevin Keen skoraði fyrst fyrir West Ham, en Bemie Slaven skoraði bæði mörk „Boro“ á fimm síðustu mín. leiksins. Fjórir leikir voru leiknir í 2. deild- arkeppninni: Hull - Crystal Palace................0:1 Leicester- Bamsley...................0:1 Shrewsbury - Boumemouth .............1:0 Watford - Stoke......................3:2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.