Morgunblaðið - 29.04.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989
19
Davíð Oddsson borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið:
Framkoma bæjaryfirvalda
í Kópavogi með ólíkindum
DAVÍÐ Oddsson, borgarstjóri, segir framkomu bæjaryfirvalda í Kópa-
vogi í garð Reykjavíkurborgar með ólíkindum. Bæjarstjórn Kópavogs
hefur ákveðið að segja upp einhliða hluta samnings sveitarfélaganna
frá 1973, sem lýtur að lagningu Fossvogsbrautar, og hefur nú úthlut-
að íþróttafélaginu Breiðabliki landi undir starfsemi sína í Fossvogs-
dal, þar sem fyrirhugað er að leggja brautina, ef nauðsyn krefur.
„Frá byijun voru þessi tvö sveitar-
félög sammála um að Fossvogs-
brautin væri hugsanlega mjög mikil-
vægur hlekkur í stofnbrautakerfí
höfuðborgarsvæðisins og þessi braut
var sett inn í aðalskipulag vegna
þess að bæjarstjóm Kópavogs sam-
þykkti sérstaklega legu hennar árið
1964. Brautin var raunar teiknuð af
Einari B. Pálssyni á bæjarskrifstof-
unum í Kópavogi," sagði borgarstjóri
í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Það má segja sem svo að það hafi
ekki skipt meginmáli hvoru megin
marka þessara sveitarfélaga brautin
lægi, vegna þess að það er sameigin-
legt verkefni þeirra að leysa um-
ferðarmál þessa svæðis. Það var hins
vegar ákveðið með samningi frá
1973 að brautin yrði í landi
Reykjavíkur og að mörkum sveitarfé-
laganna yrði breytt í samræmi við
það, ef nauðsynlegt reyndist að
leggja götuna. í þessum samningi
segir orðrétt um þetta atriði:
„... það er að segja að í ljós komi
að ekki finnist aðrar viðunandi lausn-
ir á umferðarkerfí höfuðborgarsvæð-
isins að dómi beggja aðila.“ Þetta
þýðir það að samþykki báðir aðilar
ekki að fara aðrar leiðir, eigi að
leggja brautina."
Land í Fossvogsdal
í stað Skemmuvegar
Davíð sagði að í samningnum
væri kveðið á um að Kópavogur
ætti að afhenda götustæðið án end-
urgjalds og kvaðalaust. „Það byggist
á því að með sama samningi, sem
gerður var 1973, afhendir Reykjavík-
urborg Kópavogi án endurgjalds 30,6
hektara lands, þar sem nú er risið
iðnaðarhverfið við Skemmuveg.
Borgin keypti hins vegar sjálf fullu
verði 33,6 hektara úr landi Fífu-
hvamms og síðan var lögsögunni þar
breytt í samræmi við þessi kaup.“
Davíð sagði að rétt væri að menn
áttuðu sig á því að þessir 30,6 hekt-
arar, sem borgin hefði afhent Kópa-
vogi endurgjaldslaust, væru á núvirði
um 100 milljóna króna virði. „Þegar
því er allt í einu haldið fram að borg-
in hafi verið að kaupa lögsöguna
fyrir 100 milljónir króna, sjá allir
hvílík della það er. Yfirleitt er ekki
verzlað með lögsögu, og hún er ekki
eignarréttarígildi. Borgin keypti sjálf
landið af Fífuhvammi, en fékk það
ekki frá Kópavogi. Ástæðan fyrir því
að borgin á að fá endurgjalds- og
kvaðalaust 20 hektara landið undir
brautina í Fossvogi, er auðvitað sú
að hún er búin að greiða 100 milljón-
ir króna á núvirði til þess að Kópa-
vogur geti fengið þetta land við
Skemmuveginn."
Borgarstjóri sagði að ummæli
Heimis Pálssonar, forseta bæjar-
stjórnar Kópavogs, í Morgunblaðinu
í gær, um að makaskipti hefðu farið
fram á landinu við Skemmuveg og
Fífuhvammslandinu, væru röng.
„Makaskipti er það, þegar menn
leggja land á móti landi. Við keyptum
hins vegar skikann úr Fífuhvamms-
landi fullu verði, en þeir fengu
Skemmuveginn fyrir ekki neitt.
Heimir Pálsson, sem er íslenzkufræð-
ingur, verður að kynna sér betur
hvað orðið makaskipti þýðir. Það
má þá líka spyija sem svo, að ef
hlutirnir eru eins og Heimir segir,
af hveiju átti Reykjavíkurborg þá
að fá landið undir Fossvogsbrautina
frítt?“ sagði borgarstjóri.
100 miiyóna krafa ef
samningnum er rift
Davíð sagði að Kópavogsbær
segðist nú ætla að rifta hluta samn-
ingsins við Reykjavík frá 1973.
„Annaðhvort rifta menn samningum
eða ekki. Ef þeir telja sig geta rift
þeim hluta samningsins, sem íjallar
um Fossvogsbraut, hafa þeir líka rift
samningnum um landið við Skemmu-
veg, og það er ljóst að ef um slíka
riftun væri að ræða, myndi borgin
krefjast 100 milljóna endurgjalds og
sækja það mjög fast.“
Aðdraganda síðustu ákvarðana
bæjarstjórnar Kópavogs segir Davíð
mjög sérstakan. Samskiptin við
Kópavogsbæ hafi verið með ólíkind-
um, svo og öll framkoma forráða-
manna hans. Borgin hafi margoft
látið rannsaka nauðsyn á gerð Foss-
vogsbrautar, og niðurstöður ævin-
lega verið kynntar bæjarstjórn Kópa-
vogs, svo þar ætti ekkert að koma
mönnum á óvart. „Borgin kom með
hugmyndir um að verulegur hluti
brautarinnar yrði niðurgrafinn þótt
það myndi kosta 600 milljónum
Davíð Oddsson borgarstjóri.
meira en ella. Þeim hugmyndum
hefur ekki einu sinni verið svarað
af hálfu Kópavogs. Skipulagsstjóm
ríkisins lagði til að gerð yrði hlutlaus
útttekt á vægi Fossvogsbrautar í
umferðarkerfí höfuðborgarsvæðisins
og áhrifum hennar á umhverfið.
Þetta erum við sáttir við, en Kópa-
vogur hafnaði tillögunum. Þar ofan
á bætist, að á meðan við erum í við-
ræðum við þessa aðila um þessa hluti
alla saman, skipuleggur Kópavogur
langt inn á svæðið, sem okkur er
ætlað og birtir það skipulag í fjöl-
miðlum, hefst handa um skógrækt í
dalnum og lætur búa til bækling, sem
dreift er í hús, þar sem segir að
markmiðið sé að gera þennan samn-
ing, sem bærinn er sjálfur aðili að,
óframkvæmanlegan. Nú undir lokin
úthluta þeir íþróttafélagi landi í daln-
um, landi sem þeir hafa sjálfir samið
um að láta þriðja aðila hafa endur-
gjaldslaust. Þessi framkoma er nátt-
úrlega með slíkum hætti, að það tek-
ur engu tali.“
Borgarstjóri sagði að hver maður
sæi að samþykkt bæjarstjómarinnar,
um að samningurinn væri úr gildi
fallinn að hluta til, væri marklaus.
Engu að síður væri það mjög alvar-
leg aðgerð að úthluta saklausum
þriðja aðila landi, sem Kópavogur
hefði skuldbundið sig til að afhenda
Reykjavík ef þörf reyndist á. „Slíkt
hlýtur að kalla á mjög hörð viðbrögð
borgarinnar," sagði borgarstjóri.
Umferðartruflanir verða
óþolandi án Foss-
vogsbrautar
Hann sagði að bæjaiyfirvöld í
Kópavogi hefðu sagt opinberlega að
bærinn hygðist sjálfur leysa um-
ferðarvandamál með lagningu sér-
stakrar Kópavogsbrautar. Uppbygg-
ing sú, sem Kópavogur vildi að færi
fram í Fífuhvammslandi, hefði hins
vegar að beiðni bæjarins verið metin
inn í umferðarlíkan höfuðborgar-
svæðisins og útreikningar sýndu að
slík byggð kallaði á svo mjög aukna
umferð, að Kópavogsbraut dygði
henni ekki og hún myndi væntanlega
auka enn á þrýsting á Fossvogs-
braut. Fullyrðingar um að Kópavogs-
braut gæti komið í stað Fossvogs-
brautar væru því rangar. „Menn
skulu átta sig á því, að ef Fossvogs-
brautinni verður ekki komið í þennan
dal, til dæmis niðurgrafinni, þar sem
umhverfissjónarmiða væri gætt,
bendir allt til að umferðartruflanir á
Miklubraut, Bústaðavegi og Nýbýla-
vegi í Kópavogi verði algerlega óþol-
andi. Hins vegar myndi lagning Foss-
vogsbrautar greiða fyrir umferð,
slysatíðni yrði lægri á höfuðborgar-
svæðinu í heild, sérstaklega þó á
safngötum og tengibrautum eins og
Bústaðavegi, Hamrahlíð og Nýbýla-
vegi,“ sagði Davíð.
Borgarstjóri sagði að bæjaryfir-
völd í Kópavogi bæru það fyrir sig
að hætt hefði verið við áform um
stofnbraut í Elliðaárdal, og það gerði
Fossvogsbraut óþarfa. „Allar um-
ferðarspár sýna að á Elliðaárdals-
braut yrði mjög lítil umferð, og hún
0
L
v-
=>
s
''t'. CD
'X cc
Fyrirhuguð FOSSVOGSBRAUT
W 5
....
0
REYKJAVIK
____ FOSSVOGSHVERFI
Fyrirhugað íþrótta-
svæði í Fossvogsdal
SVÆÐIÐ SEM
DEILT ER UM
KÓPAVOGUR
Morgunbiaðið/ KG
500
1000 m
rrv
-<
&
mmm
m
XS3
3
c
Morgunblaðið/KG
Kort, er sýnir skástrikað svæðið, sem Reykjavíkurborg á að fá í sinn hlut ef ákveðið verður að leggja
Fossvogsbraut. Einnig sést svæðið, sem Breiðabliki hefúr verið úthlutað.
myndi engin áhrif hafa á gerð Foss-
vogsbrautar, þar sem Fossvogs-
brautin myndi fyrst og fremst þjóna
Breiðholti og efri byggðum Kópa-
vogs,“ sagði hann.
Engin ákvörðun um
lagningu brautarinnar
„Það hefur engin ákvörðun verið
tekin um að leggja Fossvogsbraut.
Menn vilja gera hlutlausa úttekt á
því hvort það sé nauðsynlegt og hvort
hægt sé að komast hjá því. Ákvörð-
unin verður ekki tekin fyrr en 1992
eða 1993, fyrr eru ekki allar forsend-
ur komnar. En það þýðir ekki það
að annað bæjarfélagið geti einhliða
gert ráðstafanir til þess að það verði
ókleift að uppfylla samninginn, reyn-
ist það nauðsynlegt," sagði Davíð.
Hann sagði að borgin hefði gert
allt fyrir Kópavog, þrátt fyrir að
samskiptin við nágrannana hefðu
verið með ólíkindum af þeirra hálfu.
„Nýlega barst okkur bréf, þar sem
Kópavogur segir upp samningi um
ferðaþjónustu fatlaðra. Þetta bréf
var ein eða tvær línur, engin skýr-
ing, engar viðræður, bara uppsögn
á samningnum."
Getum vel án
Kópavogs verið
„Eins og kunnugt er var gerður
við þá samningur, þeim afar hag-
stæður, um Hitaveitu Reykjavíkur.
Þeir geta ekki án hitaveitu verið, en
við getum mjög vel án Kópavogs
verið hvað varðar hitaveituna. Samn-
ingur um vatnsveitu er byggður á
lögum frá 1923 eða 1924, um að
heimilt sé að gera ráð fyrir því að
köldu vatni sé veitt til íbúa í Sel-
tjamameshreppi hinum foma. Það
er verið að tala um brostnar forsend-
ur, en skyldu ekki. vera brostnar for-
sendur fyrir samningi sem var gerð-
ur fyrir fjóra sveitabæi, núna 14.000
manna byggð? Kópavogur hefur líka
mjög hagstæðan samning við okkur
um slökkvilið, og greiðir fyrir um
þriðjung af því, sem Garðabær þarf
að greiða fyrir þjónustu slökkviliðs
Hafnarfjarðar. Við þurfum ekkert á
slíkum samningi að halda, það getur
verið kostur fyrir okkur að vera laus-
ir við hann, og við getum sagt honum
upp með þriggja mánaða fyrirvara.
Kópavogur hefur fengið að koma á
okkar sorphauga með allt sitt msl
til mikilla óþæginda fyrir okkur. í
dag sendum við þeim að vísu bréf,
þar sem tilkynnt er að ekki verði
lengur hægt að veita þeim þá þjón-
ustu. Samningur um sorplosun renn-
ur út 2. maí, en við viljum ekki haga
okkur eins og Kópavogur, heldur
gefum þeim frest til 1. júlí að koma
sínu drasli fyrir annars staðar," sagði
Davíð.
Ber ekki skylda til að leggja
hitaveitu í Kópavog
„Af því að Heimir Pálsson sagði
glaðhlakkalegur að Kópavogur væri
eigandi að Hitaveitu Reykjavíkur, er
reyndar rétt að taka fram að þeir
eiga einn fjögurhundraðasta part í
veitunni á móti 399 hlutum
Reykjavíkur. Ég er ánægður með að
Heimir skuli vera montinn af þeim
eignarhluta. í samningnum um hita-
veituna er það reyndar svo að borgin
hefur á undanfömum ámm ekki ver-
ið skyldug að leggja hitaveitu í ný
hverfi Kópavogs. Hitaveitan hefur
ekki náð þeirri arðsemi að borginni
sé það skylt, en við höfum engu að
síður gert það af vinsemd við Kópa-
vog, þótt hitaveitan hafi fyrir bragð-
ið staðið verr en við hefðum viljað.
Það virðist ekki ætlast til þess leng-
ur af hálfu Kópavogs að við sýnum
þeim neina vinsemd umfram skyldu.“
OÞS
Láttu drauminn rætast
Sýnum og kynnum seglskútur í dag
milli kl. 14-17 á athafnasvæði
Snarfara við Elliðavog. _
Sjón er sögu ríkari.
SKUTU
BENCOHF
SÍMI985-23500