Morgunblaðið - 29.04.1989, Síða 44

Morgunblaðið - 29.04.1989, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRIL 1989 >1988 Univefsal Press Syndicate Ast er... . stundum viðkvæm. TM Reg. U.S. Pal Off.—all rights reserved c 1989 Los Angeles Times Syndicate Með morgurtkaffinu Fyrir alla muni hættu þess- um skugga-hnefaleikum. Þau koma ekki heim fyrr en á sunnudagskvöldið. — Get ég skilað einhveiju? HÖGNI HREKKVÍSI Ragnari úr Seli svarað Til Velvakanda. Ragnar nokkur úr Seli skrifar í Velvakanda þ. 25. apríl sl. pistil um svokallaða „borgaralega fermingu". Hann kveðst ekki trúa á Guð, og vitnar jafnframt til niðurstaðna úr könnun Guðfræðistofnunar á trú- arlífi íslendinga, þar sem fram komi, að 37% íslendingar telji sig vera kristna og 14% svarenda trúi að við dauðann rísi maðurinn upp til samfélagsins við Guð. Af þessum tölum ályktar Ragnar, að mennta- málaráðherra, sem heiðraði hina fyrstu borgaralegu ung- mennavígslu hér á landi með nær- veru sinni, hafi á þeirri samkomu verið fulltrúi 86% þjóðarinnar, „sannarlega fulltrúi almennings í þessu landi,“ eins og Ragnar úr Seli kemst að orði. Hafi ráðherrann verið fulltrúi þeirra, sem aðhyllast guðleysi, ateisma, sem skal ósagt látið, þá flutti hann ávarp sitt fyrir munn mikils minnihluta þjóðarinnar, því að skv. fyrrgreindri könnun eru það 17% svarenda, sem segjast ekki trúa á Guð. Hitt er svo aftur rétt hjá Ragn- ari, að það voru 37%, sem lýstu trúarafstöðu sinni með því að merkja við svarsmöguleikann „ég er trúaður/trúuð og játa kristna trú“, en aðrir trúaðir kusu fremur valkostinn „ég er trúaður/trúuð á minn eigin persónulega hátt“, en þeir reyndust vera 42%. Hvað varð- ar líf eftir dauðann, þá voru lang flestir þeirrar skoðunar, að eitthvað tæki við eftir dauðann, en „enginn getur vitað hvað það verður", 59%. Næstir þeim að fjölda komu þeir sem merktu við svarið „við dauðann flyst sálin yfir á annað tilverustig, 31%, en 14% merktu við svarið „maðurinn rís upp til samfélagsins við Guð eftir dauðann." Hér ber að hafa í huga, að fólki var gefinn kostur á að merkja við fleiri en einn svarsmöguleika. Ragnar úr Seli hefur það eftir „forseta Guðfræði- stofnunar Háskóla íslands", að skv. hans áliti séu það einungis þessi 14%, sem „geti með réttu talist kristnir" hér á Iandi. Þetta er rangt eftir haft. Hið rétta er, að undirrit- aður hefur látið i ljós þá skoðun, að í þessum hópi manna sé að finna þá, sem hvað eindregnast taka afstöðu með hefðbundinni kristinni kenningu. Hið saman má einnig segja um þann miklu fjölmennari hóp sem hikar ekki við að lýsa því yfir,að hann játi kristna trú. Ástæðulaust er að efast um kristi- legt hugarþel fjölmargra annarra, þótt þeir af ýmsum ástæðum, m.a. af auðmýkt, treysti sér ekki til að telja sig á meðal „sannkristinna“ manna. Seint verður úr því skorið töl- fræðilega, hversu kristnir við ís- lendingar erum. En hitt má full- yrða, að fylgjendur kristins siðar í landinu eru margfalt fleiri en Ragn- ar úr Seli vill vera láta. Þess má að lokum geta, að heild- arniðurstöður úr könnun Guðfræði- stofnunar verða birtar síðar á þessu ári. Björn Björnsson Dulbúinn áróður? Til Velvakanda. Síðastliðinn þriðjudag birtist í dálkum þínum pistill frá „kjós- anda“, þar sem fram kemur gagn- rýni á Þorstein Pálsson og Sjálf- stæðisflokkinn. Kveðst „kjósandi" hafa verið stuðningsmaður flokks- ins en sé nú að verða honum frá- hverfur, einkum vegna þess að Þor- steinn Pálsson hafi ekki haft nógu góðar tillögur til að leysa efnahags- vandann á liðnu hausti. Ástæða er til að gera athuga- semdir við þessi skrif. Það er fyrsta lagi ekki traustvekjandi, þegar menn sem kveðja sér hljóðs um stjómmál á opinberum vettvangi þora ekki að segja til nafns. Slík framkoma hlýtur að vekja upp þá spumingu, hvor viðkomandi sé að villa á sér heimildir. Með öðmm orðum, hvort hér sé ekki á ferð áróðursmaður einhvers vinstri flokkanna í dulbúningi. Sé svo verða vinnubrögðin að teljast afar lág- kúmleg. Þótt þau komi ekki á óvart. En það eru efnisatriðin sem að sjálfsögðu skipta mestu. Og þar gæti reginmisskilnings hjá „kjós- anda“. Síðastliðið haust var það mat Þjóðhagsstofnunar að sjávarút- vegur væri rekinn með 5—6% halla. Tillögur Þorsteins Pálssonar, þáver- andi forsætisráðherra, miðuðu að því að koma atvinnugreininni upp á svokallaðan „núllpunkt", þ.e. stöðva hallareksturinn. Þetta var vissulega aðeins fyrsta skref til bjargar og ekki fullnægjandi til lengri tíma, en afar mikilvægt samt. Framsóknarflokkurinn treysti sér ekki til að samþykkja nauðsynlegar ráðstafanir í þessu skyni og hljóp ásamt Alþýðuflokknum frá vandan- um. Verður sá viðskilnaður lengi í minnum hafður. Samkvæmt nýju mati Þjóðhags- stofnunar, nú þegar vinstri stjórn hefur setið að völdum í sjö mán- uði, verður hallinn á rekstri sjávar- útvegsins í næstu mánuði 5—6%. í haust stefnir hallinn í að verða 10%. Það þýðir að vandinn í þess- ari höfuðatvinnugrein þjóðarinnar hefur tvöfaldast fyrir „bjargráð" vinstri stjórnarinnar! Er það þetta sem „kjósandi“ kallar að „bjarga útflutningsatvinnuvegunum?“ Vinstri stjórnin hefur að sönnu staðið fyrir skuldbreytingum í sjáv- arútvegi, en treystir einhver sér til að halda þvi fram að það leysi í rauninni einhvem vanda? Kjami málsins er sá, að ríkisstjómin hefur ekkert gert til að bæta rekstrarskil- yrði sjávarútvegs og því miður bendir margt til þess að það verði ekki gert fyrr en Sjálfstæðisflokk- urinn hefur á ný tekið við forystu- hlutverki í landstjóminni. Með þökk fyrir birtinguna Sigurbjörn Magnússon, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Víkverji skrifar Af marggefnu tilefni skal enn brýnt fyrir mönnum að taka því með mátulegum fyrirvara sem sagt er í íslenska textanum sem fylgir erlenda efninu í sjónvarps- stöðvunum okkar. Þýðendunum eru vægast sagt mislagðar hendur. Sumir eru ágætir og sumir svona slarkfærir eða þar um bil, en einn og einn sýnist satt best að segja alls ekki vera starfi sínu vaxinn. Þannig varð „shooting stick“ að „byssu“ um daginn í Ruth Rendell reyfaranum Ovæntum málalokum, en því fer auðvitað víðs fjarri. Umræddur gripur er eins konar göngustafur sem er svo hugvitsam- lega gerður að hægt er að slá hand- fanginu út nánast eins og regnhlíf og er stafurinn þar með orðinn að sæmilegasta sæti sem eigandinn getur tyllt sér á þá hann gerist göngumóður. Sá sem mundaði umrætt þarfa- þing eins og skotvopn og gerði sig til dæmis líklegan til þess að ganga til ijúpna með það eitt að vopni yrði auðvitað tafarlaust tekinn úr umferð og afgreiddur inn á ein- hveija geðdeildina. Fáeinum dögum eftir byssuglöp- in bætti síðan starfsbróðir umrædds þýðanda gráu á svart með því að reyna að telja okkur trú um það í textaþýðingu sinni að enska orðið „sink“ þýddi „klósett". Maður hlýtur að vona að maður- inn verði farinn að gera greinarmun á þessu tvennu ef það á fyrir honum að liggja einhvern tíma að þiggja gistingu á ensku heimili. Oprúttnir ökumenn skyldu þó aldrei vera farnir að laumast til þess í bílastæðafæðinni í mið- bænum að leggja bílunum sínum í göngugötuna eða jafnvel á sjálft Lækjartorg? Ósköp hversdagslegir fólksbílar standa stundum þarna grunsam- lega lengi og eru síður en svo þess- legir að þeir séu notaðir til vöru- flutninga, en slíkir flutningar munu samt eiga að heita eina gilda afsök- unin fyrir akstri um þetta svæði. Mikið hvort ekki er tekið fram að auki að flutningabílamir megi ein- ungis vera á ferðinni þarna í bítið á morgnana. Stundum er raunar augljóst að menn em að stelast. Einstaklega ólánlegum fólksbíl sem var alveg á síðasta snúningnum var til dæmis lagt núna um daginn nánast alveg ofan í aðalanddyri Utvegsbankans, þetta virðulega með musterissúlun- um sem snýr út að Lækjartorgi. Ef þetta var bankastjórakerra, biðj- um vér guð að hjálpa viðskiptavin- um þessarar frægu peningastofn- unar. Á fimmta tímanum smeygði síðan mjósleginn, fölleitur náungi sér uppí hina dularfullu druslu og hélt sína leið með bauki og bramli. Farartækið, sem var raunar með I-númeri, var þá búið að dorma þarna lungann úr síðdeginu. Kristján Guðmundsson, bæjar- stjóri í Kópavogi, upplýsir í einu bæjarblaðanna að nýja sund- laugin þeirra þarna suðurfrá verði því miður ekki fullgerð í ár eins og vonir höfðu staðið til. Ástæðan er þessi venjulegi höfuðverkur allra landsmanna um þessar mundir, nefnilega fjárskortur. Bæjarstjórin er svo sem ekkert að beija sér og væntir þess fastlega að Kópavogsbúar geti „stungið sér til sunds í verulega góðri sundlaug" þegar á næsta ári. Hinsvegar finnst honum sem ríkið hefði mátt vera rausnarlegra. Og að vonum. Það hefur nú þijú ár í röð skammtað mannvirkint nákvæmlega sömu upphæðina á fjárlögum — 5.000 kall hveiju sinni! t I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.