Morgunblaðið - 29.04.1989, Side 46
46
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 29: APRÍL 1989
FOLK
Til Úganda
Morgunblaöiö/Bjarni
Gunnar Gunnarsson og Kjartan Steinbach pakka niður kennslugögnum fyrir
ferðina til Úganda. Þeir fara á morgun.
Morgunblaöið/Sverrir
Skíðamót í Grafarholti?
Björgúlfur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri GR, við klúbbhús GR. Eins og sjá
má er snjór mikill í Grafarholti.
■ GÚSTAF Bjömsson hefur
verið endurráðinn þjálfari meistara-
flokks karla hjá Fram í handknatt-
leik. Liðið datt niður í 2. deild í
vetur.
■ KJARTAN Steinbach, stjórn-
armaður í HSÍ og Gunnar Gunn-
arsson, formaður dómaranefndar,
halda á morgun til Úganda í
Afríku til að halda dómaranám-
skeið í handknattleik á vegum HSI.
Þeir fara með mikinn farangur með
sér - myndbandstæki, myndvarpa
og gífurlegt magn af pappír;
kennslugögn ýmis konar.
■ LÆKNÍR danska landsliðsins
í knattspymu, Rasmus Bach And-
ersen, fékk hjartaáfall í miðjum
HM-leik Dana og Búlgara í Sófíu
á miðvikudaginn, og lést í sjúkra-
húsi á fimmtudag. Andersen, sem
var 53 ára, hafði unnið fyrir danska
knattspymusambandið í 22 ár.
■ ÞAÐ verður ekki leikið golf á
velli GR í Grafarholti á næstunni
'vegna snjóþyngsla og völlurinn að
Korpúlfsstöðum er heldur ekki til-
búinn. Því verður ekkert mót haldið
á vegum félagsins 1. maí eins og
venja er. „Sums staðar eru 3-4
metra snjór á vellinum. Sums stað-
ar er autt — ef svo hefði ekki verið
hefði ég haldið hér 18 holu skíða-
göngumót!" sagði Björgúlfiir
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
GR við Morgunblaðið.
■ FHog Haukar mætast í öllum
flokkum í handknattleik um helgina
í árlegu Sparisjóðsmóti. Keppni
hefst í dag kl. 9.30 með leik 6.
flokka félaganna og síðan verður
haldið áfram til kl. 17.00. Á morg-
un lýkur mótinu með leikjum í
meistaraflokki karla og kvenna, og
að auki verður leikið í öðlinga-
flokki. Öðlingamir byija kl. 19.30,
síðan meistaraflokkur kvenna og
síðan karlamir. Verðlaunaafhend-
ing fer fram að mótinu loknu og
gefur Sparisjóður Hafnarflarðar
öll verðlaun eins og venjulega. Það
félag fær farandbikar sem sigrar í
fleiri flokkum.
I LANDSLIÐIÐ stúlkna í blaki
mætir Lúxemborg í dag kl. 14 í
íþróttahúsi Hagaskóla og á morg-
un kl. 14 í Digranesi. Eftirtaldar
em í liðinu: Guðrún Jónína Sveins-
dóttir, ÍS, frá KA em Sandra
Jóhannsdóttir og Karitas Jóns-
dóttir, frá Þrótti Nesk. em Elísa
Jóhannsdóttir, Jóna Harpa Viggós-
dóttir, Jóna Lind Sævarsdóttir og
Sveina María Másdóttir, Una Aldís
Sigurðardóttir, Elva Rut Helgadótt-
ir, Katrín Hermanndóttir, Anna G.
Einarsdóttir og Guðlaug H. Jó-
hannsdóttir frá HK.
Þjálfari liðsins er Kínverjinn Qiu
Feng Rui.
■ GEIR Hallsteinsson og Viðar
Símonarson starfrækja árlegan
handknattleiksskóla sinn í Hafnar-
fírði frá 22. maí til 28. maí. Kennt
verður í íþróttahúsinu við Strand-
götu og eins á skólamölinni við
Lækjarskóla. Heimavist verður í
Flensborgarskóla fyrir þá sem
þess óska. Námskeiðið er opið öllum
krökkum af landinu á aldrinum 8
til 16 ára. Hámarksfjöldi þátttak-
enda verður 60. Upplýsingar veita
Geir og Viðar í síma 91-50900 og
91-656218.
Ráðstefna um íþróttir barna
og unglinga á íslandi.
Unglinganefnd Í.S.Í. hefur ákveðið að standa fyrir
ráðstefnu um íþróttir barna og unglinga á íslandi.
Ráðstefnan verður haldin í Iþróttamiðstöðinni Laugardal,
sunnudaginn 7. maí n.k. og hefst hún kl. 10.00 og er
áætlað að ráðstefnulok verði um kl. 16.00.
Ráðstefnustjóri verður Hannes Þ. Sigurðsson varaforseti
I.S.I. ogformaður fræðslunefndar Í.S.f. Þátttökugjald er
1000 kr. og er hádegisverður og kaffiveitingar innifalið í
því verði.
Forráðamenn félaga, þjálfarar og aðrir áhugamenn um
bættarbamaíþróttir eruhvattir til að mæta á ráðstefnuna.
Tilkynna þarf þátttöku til skrifstofu Í.S.Í. fyrir kl. 12.00
fostudaginn 5. maí n.k.
Dagskrá:
Kl. 09.45 Greiðsla ráðstefnugjalds og afhending ráðstefnugagna.
« 10.00 Setning ráðstefnunnar. Katrín Gunnarsdóttir, formaður Unglinganefndar Í.S.Í.
u 10.15 Hugleiðingar um bama- og unglingaíþróttir á íslandi. Magnús Harðarson, starfsmannastjóri Vífilfells og nefndarmaður í Unglinganefnd Í.S.Í.
u 10.30 íþróttir barna og unglinga og skólakerfið. Janus Guðlaugsson námstjóri í íþróttum í Menntamálaráðuneytinu.
u 10.45 Þáttur fjölmiðla í fþróttum barna og unglinga. Ingólfur Hannesson deildarstjóri íþróttadeildar RUV.
u 11.00 Nýjar íþróttagreinar - hentugar í þjálfun bama og unglinga. Cees van de Ven, íþróttakennari á Akureyri.
u 11.15 Keppnisíþróttir barna og unglinga. Þráinn Hafsteinsson, íþróttakennari við íþróttakennaraskóla íslands.
u 11.30 Hvaða tilboð eru í gangi fyrir börn og unglinga á íþróttasviðinu á íslandi? Samanburður við Noreg og Svíþjóð. Jón Ottar Karlsson, íþróttafræðingur.
u 12.00 Hádegisverður.
u 13.30 Umraeður.
GETRAUNIR / 1 X 2
Bi_'f____
SIGURÐUR
Leikir29. apríl
Aston Villa - Middlesbro
Luton - Derby
Man. Utd. - Coventry
Millwall - Tottenham
QPR - Charlton
Sheff. Wed. - West Ham
Wimbledon - Newcastle
C. Palace - WBA
Hull - Watford
Oxford - Man. City
Portsmouth - Blackburn
Stoke - Leeds
1
1
1
2
X
1
1
X
1
X
2
1
JÓN KR.
Sigurður Pálsson hefur að undanfömu verið að
koma sér fyrir á Akureyri á ný. „Ég er rétt byij-
aður að æfa með Þór, en það verður erfitt að komast
í liðið. Ef það gengur ekki eftir er ekki um annað
að ræða en fara í golfið. Maður er enn lamaður eftir
harmleikinn í Sheffield og í raun er alveg sama hvem-
ig leikimir fara. Láðin virðast vera sama sinnis og ég
er ánægður með að Arsenal frestaði leik sínum gegn
Wimbledon. Það sýnir að titillinn skiptir ekki máli og
því er erfitt að spá um úrslit," sagði Sigurður.
Jón Kr. Gíslason, ÍBK, er fýrirliði íslenska landsliðs-
ins í körfuknattleik, sem nú tekur þátt í Norður-
landamótinu, er fer fram á Suðumesjum og lýkur í
dag. „Ég verð að viðurkenna að ég fylgist mun minna
með enska boltanum nú en áður og líst því illa á að
tippa svona einn, tveir og þrír. Það er annað mál með
körfuna. Laugardagur til lukku — ég spái að við vinn-
um Norðmenn 80:75 í síðasta leik okkar á Norður-
landamótinu og höfnum í 3. sæti,“ sagði fýrirliðinn,
sem heldur með Manchester United og Leeds.
Laugardagur kl. 13:45
17. LEIKVIKA- 29. APRIL 1989 II! m m
Leikur 1 Aston Villa - Middlesbro
Leikur 2 Luton - Derby
Leikur 3 Man. Utd. - Coventry
Leikur 4 Millwall - Tottenham
Leikur 5 Q.P.R. - Charlton
Leikur 6 Sheff. Wed. - West Ham teningur
Leikur 7 Wimbledon - Newcastle
Leikur 8 C. Palace - W.B.A.
Leikur 9 Hull - Watford
Leikur 10 Oxford - Man. Citv
Leikur 11 Portsmouth - Blackburn
Leikur 12 Stoke - Leeds
Símsvari hjá getraunum á
laugardögum eftir kl. 16:15 er
91-84590 og -84464.
Tölvuval
fyrir200
krónur gaf
ásjöftu
milljón
Um síðustu helgi kom fram ein
röð með 12 réttum leikjum og
fékk sá heppni 5.583.962 krónur í
vinning. Auk þess fékk hann
133.500 krónur fyrir fímm raðir
með 11 réttum. Vinningshafinn lét
vélina velja raðir fyrir 200 krónur
og hreppti hæsta vinning, sem fall-
ið hefur á eina röð í sögu íslenskra
getrauna.
Roz og Fylkisven leika til úrslita
í hópleik Getrauna, en vegleg verð-
laun eru í boði.
Sigurður Pálsson hafði betur en
Jón Magnússon í getraunaleik
Morgunblaðsins og heldur því
áfram. Jón Kr. Gíslason, fyrirliði
landsliðsins í körfuknattleik, tekur
sæti nafna síns.