Morgunblaðið - 29.04.1989, Síða 47

Morgunblaðið - 29.04.1989, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989 47 Mm FOI_K H EDI Krncevic, sem er marka- hæstur í 1. deild belg-ísku knatt- spyrnunnar með 22 mörk, tilkynnti í gær að hann myndi fara frá And- erlecht að loknu yfírstandandi tímabili. Ástæðan er sú að Aad de Mos, sem tekur við liðinu í vor, hefur sagt að Ástralinn, sem hefur gert 75 mörk fyrir Anderlecht á undanförnum þremur árum, sé ekki inni í myndinni hjá sér. Mulhouse, sem er í 2. deild í Frakklandi, hefur boðið Krncevic girnilegan þriggja ára samning og eins hefur Bordeaux sýnt áhuga. H OTTAVIO Bianchi, þjálfari Napólí, óskaði eftir því í gær að vera leystur frá störfum eftir þetta keppnistímabil. Forráðamenn Na- póli fóru þá fram á það við Bianc- hi að hann endurskoðaði þessa bón sína og í framhaldi af því ákvað hann að vera með liðið fram til 1990. Bianchi, sem er 45 ára, réð- ist til starfa hjá Napólí 1985 og gerði liðið að ítölskum meisturum í fyrsta sinn í sögu félagsins 1987. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Landsliðshópurinn valinn fyrir sumaræfingar: Margir nýliðar í hópnum Stór hópur valinn til æfinga fyrir leikina gegn Austur-Þjóðverjum „VIÐ höfum rætt við nær atla landsliðsmennina og bendir allt til að flestir verði með okkurfram yfir Heimsmeist- arakeppnina íTékkóslóvakíu. Reyndar vantar nokkra í fyrstu lotu, sem hefst á mánudag, en þeir verða væntanlega með í annarri lotu — í jún»,“ sagði Guðjón Guðmundsson, aðstoðar- maður Bogdans Kowalczyk landsliðsþjálfara í handknatt- leik, við Morgunblaðið i gær. Bogdan kemur til landsins á mánudag og um kvöldið verður fyrsta æfing fyrir vináttu- leikina gegn Austur-Þýskalandi, sem verða í Austur-Berlín 13. og 14. maí. Æft verður einu sinni á dag. „Þorgils Óttar Mathiesen er eini leikmaðurinn í hópnum, sem var í B-keppninni, sem hefur ákveðið að taka sér frí fram á haustið. Einar Þorvarðarson er meiddur og við höfum ekki af- skrifað Sigurð Sveinsson, því menn hafa oft sagst ætla að hætta, en snúist hugur'," sagði Guðjón aðspurður um hvaða leik- menn tækju ekki þátt í undirbún- ingnum í maí. „Þá kemst Rristján Arason ekki vegna leikja á Spáni,“ bætti hann við. Stór hópur í Frakklandsferðinni voru Ein- ar Þorvarðarson, Jakob Sigurðs- son, Valdimar Grímsson, Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson og Sigurður Sveinsson, Val. Guð- mundur Hrafnkelsson, UBK. Hrafn Margeirsson, ÍR. Guð- Þorgils Óttar Mathiesen verður ekki með landsliðinu að sinni. mundur Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson, Víkingi. Þorgils Ottar Mathiesen og Héðinn Gilsson, FH. Birgir Sigurðsson, Fram. Álfreð Gíslason, KR. Sigurður Gunnars- son, ÍBV, og Kristján Arason, Teka. Að auki hafa eftirtaldir verið boðaðir til æfínga: Páll Guðnason, Val, Gísli Felix Bjamason og Stefán Kristjánsson, IGt, Jón Kristjánsson, Val, Óskar Ármannsson, Guðjón Ámason og Gunnar Beinteinsson, FH, Ámi Friðleifsson og Karl Þráinsson, Víkingi. Til viðbótar hefur verið rætt við Finn Jóhannesson, ÍR, Konráð Olavson og Leif Dagfínns- son, KR, með sumarið í huga, en þeir æfa nú með landsliðinu skip- að leikmönnum tuttugu og eins árs og yngri. Eins er Sigurður Bjamason, Stjömunni, í mynd- inni, en hann er meiddur, og rætt verður við Atla Hilmarsson hjá Granollers um helgina. KORFUKNATTLEIKUR/NORÐURLANDAMOTIÐ íslendingar veittu Svíum harða keppni ísland leikurgegn Noregi um þriðja sætið ÍSLENDINGAR veittu Svfum harða keppni í Njarðvík í gær- kvöldi, en baráttugleði íslend- inga dugði þó ekki til sigurs gegn risavöxnu liði Svía sem virðist það sterkasta á mótinu. Svíarnir, með sjö menn yfir vel yfirtvo metra á hæð, sigruðu með 15 stiga mun, 93:78 eftir ísland—Svíþjóð \ 78 : 93 íþróttahúsið í Njarðvík, Norðurlanda- I mótið í körfuknattleik, föstudaginn 28. I aprfl 1989. Gangur leiksins: 2:0, 4:10, 13:16, I 20:22, 24:33, 29:41, 38:48, 43:52, I 47:53, 50:55, 52:57, 59:68, 66:77, I 71:82, 71:87, 77:90 78:93. Stig íslands: Guðjón Skúlason 20, I Guðmundur Bragason 16, Teitur Örl- I ygsson 14, Birgir Mikaelsson 7, Magn- I ús Guðfínnsson 6, Jón Kr. Gíslason 5, I Tómas Holton 4, Axel Nikulásson 2, I Falur Harðarson 2. Stig Svíþjóðar: Mattias Sahlstöm 31, I Staffan Perssson 20, Örjan Anderson I 13, Peter Hellström 7, Oscar Lefwerth I 6, Christer Sabel 4, Henrik Cadderfors I 4, Henrik Ringmar 3, Torbjöm Gehrke I 3, Joon-Olof Karlsson 2. Ahorfendur: 350. Dómarar: Kurt Gettermann frá Dan- I mörku og Jorma Ovaskati frá Finn- I landi og dæmdu nyög vel. Norðurlandamótið í körf uknattleik Island- Finnland....................63:71 Danmörk - Noregur...................65: 85 SvíþjóS - Danmörk...................103:77 Finnland - Noregur...................75:73 (sland - Danmörk........................ (sland - Svíþjóö...................... 93 Danmörk - Finnland....................... Svíþjóð- Noregur....................101:69 Fj. loikja U J T Mörk Stig Sviþjóð 3 3 0 0 297: 224 6 Finnland 3 3 0 0 214: 191 6 ísland 3 1 0 2 231: 240 2 Noregur 3 1 0 2 227:241 2 Danmörk 4 0 0 4 273: 346 0 að þeir höfðu haft níu stiga forystu í hálfleik 52:43. ís- lenska liðið sýndi mikla bar- áttugleði í leiknum og kom sænsku leikmönnunum oft úr jafnvægi með kraftmiklum leik sínum. Ekki var nein þreytumerki að sjá á sænska liðinu, þrátt fyrir að það hafði leikið gegn Norðmönnum fyrr um daginn, og það náði fljót- IBBH lega yfirhöndinni í Bjöm leiknum. Hittnin hjá Blöndal íslenska liðinu var skrífar 0ft rysjótt og slíkt dugar ekki gegn jafnsterku liði og því sænska. Engu að síður héldu okkar menn lengi vel í við Svíana, sérstaklega í síðari hálfleik þegar íslenska liðið náði að minnka muninn niður í fímm stig 55:50 og 57:52. En undir lokin jókst munurinn aftur og þrátt fyrir mikla keppnishörku íslenska liðsins var sænsku sigur verðskuldaður. Guðmundur Bragson, Guðjón Skúlason 0g Teitur Orlygsson voru bestu menn íslenska liðsins í gær og skoruðu 50 stig samtals. Magn- ús Guðfinnsson var góður í vöm- inni, en átti erfítt uppdráttar í sókn- inni og það sama má segja um hina. Jón Kr. Gíslason var í strangri gæslu og fékk lítið að gert. Valur Ingimundarson sem verið hefur einn af aðalmönnunum í landsliðinu til þessa hefur lítið fengið að spreyta sig í mótinu og í gærkvöldi kom hann varla við sögu í leiknum, fékk aðeins áð vera inná í nokkrar mínútur. Svíamir sem em núverandi Norð- urlandameistarar virðast vera með sterkasta liðið og mæta þeir Finnum á morgun í Keflavík í hreinum úr- slitaleik. Á undan þeim leik leika íslendingar og Norðmenn um þriðja sætið og stefnir þar í hörkuleik. Bestu menn hjá Svíunum í gær- kvöldi voru Staffan Persson, Matt- ias Sahlström og Öijan Anderson. Morgunblaðið/Einar Falur Guðmundur Bragason lék mjög vel í gær. Hér veður hann í gegnum sænsku vömina sem er þó ekki árennileg. Jón meðflest ar stoðsendingar Jón Kr. Gíslason hefur átt flestar stoðsendingar allra á Norður- landamótinu eða 30 í þremur leikj- um. Sá sem kemur næstur, með 20 sendingar, er Svíinn Peter Hells- tröm. Jón átti 10 stoðsendingar í gær, þrátt fyrir að vera í strangri gæslu sænsku varnarmannanna. Magnús Guðfinnsson er í 4. sæti á lista yfír flest fráköst. Magnús hefur tekið 24 fráköst í leikjunum þremur. Þess má geta að 22 af þessum fráköstum eru í vöm og þar er hann efstur. Sá sem hefur tekið flest fráköst er Steffen Rein- hold frá Danmörku. Hann hefur tekið 29 fráköst en leikið einum leik fleira en Magnús. Guðjón Skúlason hefur hitt best allra í skotum innan teigs eða í fímm af sex skotum sínum sem gerir 83% nýtingu. Guðjjón er í 2. sæti í skotum utan teigs — hefur hitt úr átta af þrettán skotum sínum, sem gerir 61,5% nýtingu. Guðjón Skúlason hefur gert flest stig íslendinganna eða 46 og Teitur Örlygsson 45. Þeir eru í 7.-8. sæti en eiga litla möguleika á að ná á toppinn. Þar er Norðmaðurinn Ha- akon Austerfjörd en hann hefur gert 70 stig. NBA-úrslít Úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik, átta liða úrslit í vestur- og austur-deild, er hafin. Það lið sem sigrar fyrr í þremur leikjum kemst í aðra umferð. Úr- slit fyrstu leikjanna urðu þessi: Austurdeild Atlanta - Milwaukee..100: 92 New York - Philadelphia...l02: 96 Vesturdeild Golden State - Utah Jazz ..123:119 LA Lakers - Portland.128:108 Um helgina Knattspyma Reykjavíkurmótíð Undanúrslit í Reykjavflcurmótinu í knattspymu fara fram á gervigrasinu í Laugardal um helgina. í dag klukkan 17 leika KR (nr. 1 í a-riðli) og Fylkir (nr. 2 í b-riðli), en á morgun klukkan 20.30 hefst leikur Víkings (nr. 1 í b- riðli) og Fram (nr. 2 í a-riðii). Litla bikarkeppnin Fjórir leikir verða í Litlu bikarkeppn- inni í dag og heíjast þeir allir kl. 13.30. Stjaman og FH leika í Garðabæ, Víðir og Haukar í Garðinum og ÍA og Sel- foss á Akranesi. Þá eigast Breiðablik og ÍBV við í bæjarkeppni á morgun kl. 13.00. Fijálsíþróttir Flóahlaup Flóahlaup Umf. Samhygðar hefst við Vorsabæ í Gaulverjabæjarhreppi, fyrir sunnan Selfoss, kl. 14 í dag. Allir hlaupa 10 km, en skráning er þjá Markúsi ívarssyni (s. 98-63318). Handbolti Alþjóðlegt mót heymarlausra Alþjóðlegt mót heymarlausra í hand- knattleik hófst í Laugardalshöll (gær, en því lýkur í dag. KI. 10 leika ísland og ísland B, kl. 11.30 Noregur og V-Þýskaland, kl. 15.30 Noregur og tsland B, kl. 17 ísland og V-Þýskaland og kl. 18.15 verður verðlaunaafhend- ing. Fimleikar Trompkeppni Kl. 13 í dag hefst trompkeppni í fím- leikum í íþróttahúsinu Digranesi. Þetta er íslandsmeistaramótið í hópakeppni, þar sem keppt verður í trampolínstökk- um, dýnustökkum, stökki yfír hest og gólfæfíngum. Skíði Samhliðasvig Armanns fer fram í Blá- fiöllum í dag og hefst kl. 13. Á ísafirði verður öldungameistaramót. KörfuboKi Norðurlandamót Norðurlandamótinu í körfuknattleik lýkur í Keflavík ! dag. Kl. 14 leika Island og Noregur, kl. 16 hefst leikur Svíþjóðar og Finnlands og kl. 20 byijar lokahóf í Glaumbergi 1 Keflavík. Golf Fyrsta opna golfmótið á þessu sumri verður haldið á Strandavelli á mánu- dag. Skráning fer fram "amorgun kl. 10-18 (s. 78208).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.