Morgunblaðið - 29.04.1989, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Mikligarður:
Rætt um að
stofiiað verði
hlutafélag
AÐ sögn Þrastar Ólafssonar,
stj’órnarformanns KRON, hefur
verið rætt um að stofiia hlutafé-
lag um rekstur Miklagarðs, sem
er samvinnufélag, en endanleg
ákvörðun um það hefur þó ekki
enn verið tekin.
Þröstur segir að tilgangurinn
með því að stofna hlutafélag um
reksturinn, ef af því verður, sé
fyrst og fremst sá að opna mögu-
leika á því að fá nýja eignaraðila
í fyrirtækið, þar sem það væri
mun auðveldara í framkvæmd í
hlutafélagi en samvinnufélagi.
Aðspurður sagði hann að rekst-
ur Miklagarðs hafi gengið erfið-
lega undanfarið.
„Við höfum ekkert verið að
beija okkur á bijóst og segja að
allt sé í lagi, og það skal viður-
kennt að við eigum í erfiðíeikum,
en við erum þó ekkert að fara á
hausinn,“ sagði Þröstur Ólafsson,
stjómarformaður KRON.
Tryggingastofaun:
f . Morgunblaðið/Þorkell
Utifundur um öryggi í menntamálum
Félag framhaldsskóla efiidi I gær, föstudag, til fundar á Lækjar-
torgi sem bar yfirskriftina „Óryggi í menntamálum". Kristrún
Heimisdóttir, fulltrúi Félags firamhaldsskóla, sagði á fundinum
að verkfall Hins íslenska kennarafélags bitnaði á þúsundum fram-
haldsskólanema og skoraði á menn að semja strax. Svavar Gests-
son, menntamálaráðherra, sagði að menn ættu að setjast niður
strax og koma ekki út fyrr en þeir væru búnir að semja. Á fund-
inum töluðu einnig Svanfi*íður Jónasdóttir fulltrúi fjármálaráðu-
neytisins, Auður Hauksdóttir fulltrúi HÍK, Málfríður Guðný Gísla-
dóttir fulltrúi útskriftarnema og Eggert Sigurðsson fulltrúi
Landssambands öldungadeilda.
Útborgun
bóta óbreytt
AFGREIÐSLA ófi’ágenginna og
óleiðréttra bóta liggur niðri hjá
Tryggingastofiiun ríkisins með-
an verkfall háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna varir, en út-
borgun allra tryggingabóta,
sem fyrir voru, verður áfram
með óbreyttum hætti.
Með greiðslu þegar ákveðinna
tryggingabóta er á engan hátt
gengið inn í störf lögfræðinga
Tryggingastofnunar ríkisins, sem
eru í verkfalli, segir í fréttatilkynn-
"ingu frá Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu og Trygginga-
stofnun ríkisins í gær, en í frétt
Morgunblaðsins í gær var sá mis-
skilningur að samkomulagið um
afgreiðslu tryggingabóta í verk-
fallinu næði til allra bóta. Það nær
hins vegar aðeins til afgreiðslu
nýrra bótagreiðslna en þær sem
fyrir voru eru áfram með eðlileg-
um hætti.
Reykjavíkurborg:
Samningur við Kópavog um
sorplosun ekki endumýjaður
Fá frest til 1. júlí að koma sínu drasli fyrir annars staðar, segir borgarsljóri
DAVÍÐ Oddsson borgarsfjóri sendi í gær bæjaryfirvöldum í Kópa-
vogi bréf, þar sem þeim er tilkynnt að ekki verði áfram tekið við
sorpi Kópavogshúa á sorphaugum Reykjavíkur. Samningur við
Kópavog um afhot af sorphaugum Reykjavíkur rennur út næst-
komandi þriðjudag, 2. maí, og verður ekki endumýjaður.
að koma sínu drasli fyrir annars
staðar," sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri í samtali við Morgun-
blaðið.
„Kópavogur hefur fengið aö
koma á okkar sorphauga með allt
sitt rusl til mikilla óþæginda fyrir
okkur. í dag sendum við þeim að
vísu bréf, þar sem tilkynnt er að
ekki verði lengur hægt að veita
þeim þá þjónustu.
Samningur um sorplosun renn-
ur út 2. maí, en við viljum ekki
haga okkur eins og Kópavogur,
heldur gefum þeim frest til 1. júlí
Borgarstjóri sagði að framkoma
bæjaiyfirvalda í Kópavogi í garð
Reykjavíkur hefði verið með ólík-
indum undanfarið og kallaði á
hörð viðbrögð borgarinnar.
Davíð nefndi að Reykjavík
þyrfti ekki á Kópavogi að halda
Járnblendið á Grundartanga:
Hugvit starfsmanna skap-
ar helming hagnaðarins
AF tæplega 500 milljón króna hagnaði íslenska jámblendifélags-
ins á Grundartanga er helmingur eða 250-300 mil^ónir hugviti
og vinnubrögðum starfsmanna verksmiðjunnar að þakka. Þetta
kemur fram í samtali Morgunblaðsins við Jón Sigurðsson for-
sljóra verksmiðjunnar.
Jón Sigurðsson segir að á
síðuatu fimm árum hafi verið þró-
'K'aðapvnýiar aðferðir í rekstrinum
7'nBán gtsra það að verkum að fram-
7~iiðstaiv-sé nú 25-30% tneiri en
úpphaflega vár áætlað. Sökum
þéssa voru síðustu 15.000 tonnin
áf 70.000 tonna heildarfram-
leiðslu síðasta árs nokkurskonar
bónus og meginuppistaðan í hin-
um mikla hagnaði.
Sem dæmi um hugvit starfs-
manna verksmiðjunnar má nefna
tvennt. Annarsvegar er svokallað-
ur „töppunarskörungur“ sem Jón
Gunnlaugsson hefur hannað;
Tækið er notað til að hreinsa sora
úr töppunargötum ofnanna í verk-
smiðjunni. Farið er að flytja tæk-
ið út og hafa sex slík verið seld
til Noregs. Erlend fagtímarit hafa
þar að auki fjallað um þetta tæki.
Hitt dæmið er efnið Steindalít
sem Leif Steindal hefur þróað.
Efnið er notað til einangrunar í
deiglum verksmiðjunnar og dugir
betur en innflutt efni. Þar að auki
sparar það miklar fjárhæðir á
hveiju áxi.
Tveir nemendur við Raunvfs-
índastofnun Háskólans vinna nú
að því að rannsaka notkunar-
möguleika Steindalíts sem háhita-
þolins byggingarefnis. Er það
lokaverkefni þeirra til prófs í
byggingarverkfræði.
hvað hitaveitu varðar, og raunar
bæri borginni ekki skylda til að
leggja hitaveitu í ný hverfi í bæn-
þótt hún hefði gert það af
um.
vinsemd við Kópavog.
Sjá viðtal við borgarsljóra á
bls. 19.
ISAL:
Gæðabónus settur í
innanhússamning
NÝLEGA var gengið frá nýjum innanhússamningi við starfsfólk ISAL.
Meginþættir samningsins eru gæðabónus annarsvegar og breytt til-
högun á yfirvinnu hinsvegar. Samningur þessi er ekki túlkaður sem
breyting á kjarasamingi starfsfólksins sem rennur út í ágúst.
Jón Marinósson ráðningarstjóri
ISAL segir að gæðabónusinn sé
reiknaður út mánaðarlega og hafi
verið ákveðið að hann yrði 2,5% af
greiddum launum fyrir aprílmánuð.
Samkvæmt kjarasamningnum
eiga laun starfsfólks að hækka um
2,7% nú 1. maí. Ofan á þessa hækk-
un er bætt 0,5% vegna breytts fyrir-
komulags á yfirvinnu. Jón segir að
tíðkast hafi að menn ynnu yfírvinnu
á tímabilinu kl. 16-22 einstaka daga
vikunnar. Með innanhússamkomu-
laginu er þessi yfirvinna jöfnuð út
á fleiri daga og áformað að hún
standi að jafnaði ekki lengur en til
kl. 19. Á móti þessu skuldbindur
ÍSAL sig til að sjá um að rútuferð-
ir frá verksmiðjunni verði í sam-
ræmi við þetta samkomulag.
Snæfellsnes:
Tveir neita talningu
TVEIR bændur á Snæfellsnesi
neituðu hreppstjóra og forða-
gæslumanni um aðgang að hús-
um sínum í talningu búfiár sem
þar er áð ^júka. Jóhannés Áma-
son sýslumaður sagði að skýrsfa
um talninguna yrði send tíl land-
búnaðarráðuneytisins og þar
yrði að ákveða hvort eitthvað
verði gert frekar í máli bænd-
anna tveggja.
Yfirlögregluþjónninn í Stykkis-
hólmi skipulagði búfjártalninguna á
Snæfellsnesi eftir að um það kom
beiðni frá landbúnaðar- og dóms-
málaráðuneytum. Forðagæslumenn
önnuðust talninguna_ Hreppstjórar
voru fulltrúar sýslumanns, en skipt-
ust á þannig að þeir þurftu ekki
að vera við talningu í sínum heima-
sveitum. Eðvarð L. Ámason yfirlög-
regluþjónn sagði að talningin hefði
almennt gengið vel.