Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 39
SUPCRM
as§s«3
7ojÍc°l°"
Verð frá kr. 7.340,-
hjfr Vir
jA L z&z
UTIUF
Sími 82922
-MORGtJNBLADIÐ, FIMMTU.DAQUR' 22; ÍUNI 1089
(39
Nýtt námskeið
INNHVERF ÍHUGUN er huglæg þroskaaðferð, seirl
allir geta lært. Iðkun hennar vinnur gegn streitu
og stuðlar að heilbrigði og ánægju í daglegu lífí.
Nýtt námskeið hefst með kynningarfyrirlestri í
kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 á Laugavegi 18a.
Aðgangur er ókeypis. Uppl. í síma 16662.
Islenska íhugunarfélagið. Maharishi Mahesh Yogi
FUJICOLOR
S-00-
MYNDAVÉL FYLGIl
Skipholti 31 - Simi 680450
Eiríkur Einars-
son - Minning
Fæddur 29. október 1935
Dáinn26. maí 1989
Að morgni föstudagsins 26. maí
sl. lést í Landspítalanum vinur minn
og mágur Eiríkur Einarsson, eða
Eddi einsog hann var kallaður af
vinum og kunningjum. Foreldrar
hans voru hjónin Einar Vídalín, loft-
skeytamaður og starfsmaður
Landsímans um langt áraþil, og
Þóra Gísladóttir, fædd á Eskifirði
en uppalin í Vestmannaeyjum. Þóra
lést 1967. Þau hjónin áttu fjögur
böm; Sigurborgu húsmóður í Kópa-
vogi, Agnar, tæknimann hjá Sjón-
varpinu, og Maríu, húsmóður í
Hafnarfirði. Eddi var giftur systur
minni Þóreyju Eiríksdóttur Kjerúlf
og áttu þau þtjú böm; Önnu Þóru,
sem er búsett í Svíþjóð, um það bil
að Ijúka námi í læknisfræði, Ragnar
Öm, verkamaður í Reykjavík, og
Edda Hrönn, búsett í Svíþjóð og
nemur hagfræði. Ég kynntist Edda
fyrst árið 1952, þegar hann trúlof-
aðist systur minni. Þá var unga
parið ákaflega ástfangið og var
lítill og ódæll bróðir gjarnan að
flækjast fyrir, en kynnin urðu góð
og á unglingsárum mínum sótti ég
gjarnan þann styrk sem ég þurfti,
og mér fannst á vanta í foreldrahús-
um, inná þeirra heimili, hvar sem
það var. I þessum síðbúnu kveðju-
orðum nú að leiðarlokum hugleiði
ég hvað það var sem gerði þennan
sérkennilega gáfumann svo hug-
stæðan, en svarið er margt, til
dæmis sá einstaki hæfileiki að ná
hámarksárangri með lágmarksfyr-
irhöfn í hveiju sem hann tók sér
fyrir hendur. Einnig vom áhuga-
málin mörg, skák, tónlist, jarð-
fræði, flug og flugsaga, tungumál
og þar með talin japönsk menning
og tunga og margt fleira. Eddi vin-
ur minn var mikill fjölskyldumaður,
en ekki mjög mannblendinn, og var
heimili þeirra hjóna að Grýtubakka
30 hans kastali. Heimsóknir þangað
vom sérstakar, húsbóndinn hlýr,
skemmtilegur og laginn við að
Bjom Bjarnasoiv
° f - - ? Tuiinmng
Jón Jónsson, tré-
smiðu^-~Minning
Birtíng
aímælis-
ogminning-
argreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð £ Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafoarstræti
85, Akureyri.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki em
tekin til birtingar frumort Ijóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu aftnælisgreina
gildir sú regla, að aðeins em
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar em
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 60 ára
eða eldra.
koma af stað umræðum um áhuga-
verð málefni, og skoða þau frá
ýmsum sjónarhornum. Alltaf var
maður aðeins ríkari þegar maður
fór, en þegar maður kom. Ég minn-
ist þess að á þeim ámm sem skák-
in átti hug hans, frá 1955-60, sat
hann um að komast að erlendum
stórmeisturum sem hingað komu
og héldu fjöltefli. Þar mátti meðal
annars sá mæti maður Bent Larsen
lúta í lægra haldi og meistari Mark
Tajmanov sættast á skiptan hlut.
Annars var fjölskyldusportið á
Grýtubakkanum stangveiði, og
margir vom þeir túrar sem vom
farnir að Kleifarvatni og á fleiri
staði með börnin að veiða. Síðustu
árin eftir að bömin vom vaxin úr
grasi og farin að heiman var það
flugið og flugsagan sem áttu hug
hans allan, og eftirlætisiðjan var
að ganga á fjöll, að finna flugvélafl-
ök frá stríðsámnum og bjarga
merkilegum hlutum frá glötun.
Eddi vinur minn átti öll sín full-
orðinsár við áfengisvandamál að
stríða, en síðustu átta árin eða svo
fór þó virkilega að rofa til með
aðstoð góðra mann hjá SÁÁ og á
vettvangi AA-samtakanna. Það
fóm að vinnast merklegir áfanga-
sigrar í baráttunni við Bakkus.
Heilsan Iagaðist, efnahagurinn
batnaði, og tómstundirnar urðu
fleiri. Nú gat hann látið gamlan
draum rætast og lært flug, en hann
lauk einkaflugmannsprófi og keypti
sér hlut í flugvél, og þurfti ekki
lengur að ganga um óbyggðir held-
ur var flogið um og landið rannsak-
að. En síðastliðið haust syrti að,
hann varð alvarlega veikur, greind-
ist með lungnakrabbamein á því
stigi að lítið sem ekkert var hægt
að gera. Hann lá Landspítalanum
í desembermánuði alvarlega veikur,
en komst til nokkurar heilsu á ný
og fekk að fara heim fýrir jól. Hann
lá sína banalegu heima, eiginkonan
fékk frí frá störfum á Landspítalan-
um til að hjúkra manni sínum, og
dæturnar skiptust á að koma heima
og vera hjá föður sínum. Lokabar-
áttan var stutt, aðeins fimm dagar
eða svo á sjúkrahúsi.
Sérstakar þakkir skulu færðar
starfsfólki Landspítalans og sjúkra-
hússpresti fyrir mikið og óeigin-
gjarnt starf og kærleiksríka aðstoð
við ijölskylduna á þessum erfiðu
tímum. Eiríkur var kvaddur að við-
stöddu fjölmenni í Fossvogskapellu
föstudaginn 2. júní og jarðsettur í
Fossvogskirkjugarði á nýju svæði
dálítið uppá hæðinni þar sem sér
yfir flugvöllinn og þar sem ég stóð
þar yfir moldum hans, hugsaði ég
með mér: hér hefði hann sjálfur
helst kosið sér stað.
Sölvi Kjerúlf
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug við andlát dóttur okkar,
HREFIMU SALVARAR,
Sigurveig Björnsdóttir, Jón Lambi.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JAKOB JÓNSSON,
fyrrverandi sóknarprestur,
sem lést á Djúpavogi 17. júní, verður jarðsunginn frá Hallgríms-
kirkju mánudaginn 26. júní kl. 13.30.
Þóra Einarsdóttir,
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir, Hans W. Rothenborg,
Svava Jakobsdóttir, Jón Hnefill Aðalsteinsson,
Þór Edward Jakobsson, Jóhanna Jóhannesdóttir,
Jón Einar Jakobsson, Gudrun Jakobsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum samúðarkveðjur og vinarhug við andlát og jarðarför eigin-
konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
KRISTJÖIMU MAGNÚSDÓTTUR
- frá Deplum.
Þorvaldur Guðmundsson,
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát,
kveðjuathöfn og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁGÚSTU ARNBJÖRNSDÓTTUR.
Einnig hugheilar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana af
nærgætni og hlýleik á hjúkrunardeild E2 Hrafnistu, Reykjavík.
Sigurjón Kristinsson, Jónina Ingólfsdóttir,
Magnús Kristinsson, Gréta Bachmann,
Arnbjörn Kristinsson, Ragnhildur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
VALDIMARS JÓNSSONAR
frá Flugumýri.
Sérstakar þakkir til Guðmundar Benediktssonar læknis og hjúkr-
unarfólks og lækna á deild 12-A á Landspítalanum.
Dóra Ragnheiður Guðnadóttir,
Sigriður Valdimarsdóttir, Guðjón Ólafsson,
Steinunn María Valdimarsdóttir,
Sara Regína Valdimarsdóttir,
Inga Aðalheiður Valdimarsdóttir,
Guðjón Viðar Valdimarsson,
Ólafur R. Jónsson,
Þórarinn Magnússon,
ÓlafurÖrn Klemensson,
Guðrún Sigurðardóttir
og barnabörn.