Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNI 1989 35 Fermingar sam- kvæmt sannfeeringu eftir Hope Knútsson I hvatvíslegri grein sem séra Ragnar Fjalar Lárusson skrifar í Morgunblaðið í dag, 8. júní 1989, reynir hann að lítillækka mig fyrir að hafa ekki fæðst á íslandi. Hann kallar mig „einhvern útlending" eins og ég sé ekki jafningi íslend- inga. Eg er reyndar íslenskur ríkis- borgari en tel mig alls ekki vera léttvægari fyrir það að hafa fæðst annars staðar á þessari plánetu. Eg er manneskja og þess vegna jafningi annarra manneskja, að íslendingum meðtöldum. Þetta segi ég sem siðrænn húmanisti og lýðræðissinni. Mér blöskrar sá ókristilegi skortur á kærleika og umburðarlyndi sem þessi grein prestsins opinberar öllum lands- mönnum. Hann virðist hafa nóg af fordómum þessi þjónn guðs á þessari litlu eyju! Skrif séra Ragnars Fjalars eru einhvers konar svar við grein minni „Kirkjan hefur ekki einka- leyfi á orðinu ferming". Talar hann um að ég fari með órökstuddar staðhæfingar. En hann hefur nóg af slíku sjálfur. Hann segir að skilgreining á orðinu „confirmare“ skipti ekki máli á íslandi. Samt notar íslenska þjóðkirkjan þetta útlenda orð mikið í sinni eigin bók sem nefnist „Kirkjumál: Lög og reglur“. Ég hef lesið þar þá kafla sem snerta fermingu og varð þess áskynja að útlenda orðið „confirm- are“ er notað þar jafnvel oftar en íslenska orðið „ferming“. Kirkjan notar þetta orð sem sagt sjálf i sínum eigin lögum og reglum. ís- lensk tunga varð ekki til af sjálfu sér. Hún sækir iðulega orð til ann- arra tungumála. En þetta er ekki meginatriðið. Dapurlegra er að Ragnar Fjalar reynir í grein sinni að gera borg- aralega fermingu tortryggilega. Hann veit ekkert um innihald eða gæði fræðslunnar sem böm okkar hafa fengið en samt gerir hann lítið úr henni. Hann segir að við höfum verið að útiloka áhrif krist- indóms og kirkju á börnin okkar, en það er ekki rétt. Við höfum vissulega ekki kennt þeim um kristindóminn. En það er ekki vegna andstöðu við hann, heldur Blombero eldavélar-úrvals vestur-þýskt merki. 5 gerðir — 5 iitir. Hagstætt verð. Góð greiðslukjör. Einar Farestvett&Co.hff. BORQARTÚNI28, SÍM116996. LelA 4 stoppar viA dymar er kristindómurinn okkur óvið- komandi. Af hveiju eigum við húmanistar að kenna bömum okk- ar hugmyndafræði sem höfðar ekki til okkar? Enginn býst við að kristin kirkja kenni fólki um sið- rænan húmanisma, búddisma, ásatrú, gyðingdóm, múhameðstrú o.s.frv. Hins vegar höfum við frætt bömin okkar um: siðfræði, sam- skipti foreldra og ungmenna, sögu barna og ungmenna, tilgang borg- aralegrar fermingar, samskipti kynjanna, vímuefni, rétt unglinga í þjóðfélaginu, jafnrétti, umhverf- ismál, friðarfræðslu, mannréttindi og virka þátttöku í samfélaginu. Séra Ragnari Fjalar virðist þykja þessi fræðsla lítið kristileg, jafnvel andkristileg, pg að ég sé að reyna að kenna íslendingum nýja siðþ Til fróðleiks vil ég upp- „Við höfum vissulega ekki kennt þeim um kristindóminn. En það er ekki vegna andstöðu við hann, heldur er kristindómurinn okkur óviðkomandi.“ lýsa hann iim það, að fyrirlesarar allir vom íslendingar og sérfræð- ingar á sínum sviðum: alþingis- menn, heimspekingur, sálfræðing- ur, læknir, hjúkmnarfræðingur, lögfræðingur, sagnfræðingur o.s.frv. Fermingarbömunum okk- ar, og reyndar foreldram þeirra sem tóku þátt í námskeiðinu, fannst þessi fræðsla mjög gagnleg og vandaður undirbúningur fyrir það að lifa ábyrgu og virku lífi í nútíma lýðræðisþjóðféiagi. Ég vil taka það fram einu sinni enn: við emm ekki á móti einum eða neinum, ekki á móti kristinni trú, en við emm einfaldlega ekki kristin! Við höldum að trúfrelsi ríki á íslandi og að við eigum full- an rétt á að fræða börn okkar um mikilvæga hluti sem skólakerfið gerir ekki nægilega vel. Ennfrem- ur viljum við halda upp á helstu tímamót lífsins á húmanískan hátt. Vissulega höfum við hug á að bjóða upp á fleiri borgaralega möguleika en fermingu, t.d. útför. Sérhver maður sem hugsar málið skilur, að það er óvirðing við minn- ingu þeirra látnu sem aldrei hafa verið kristnir að jarðsyngja þá á kristilegan hátt. Hvort sem þjóð- kirkjunni líkar betur eða verr, býr á íslandi fólk frá flestum menning- arsvæðum heims. Nú búa yfir 5.000 manns hér sem ekki fædd- ust á íslandi. Ekki eru allir þessir menn kristnir. Ekki heldur eru allir íslenskættaðir menn kristnir. Samkvæmt könnun sem guðfræði- deild Háskóla íslands gerði ný- lega, kemur það skýrt í ljós. Á að bjóða upp á aðeins eina tegund útfarar fyrir allt þetta fólk? Höfundur er samhæfíngarstjóri borgaralegrar fermingar á fslandi. Seglbretti ÍBlÍ?) Bretti, segl Búningar - SEGLBRITTI Skátabúöin hefur nú sölu á seglbrettum, seglum og öðrum búnaði til seglbrettasiglinga. Eins og í öðrum vöruflokkum þá býður Skátabúöin aðeins uppá þekkt vörumerki í öllum verðflokkum. Við bendum sérstaklega á bretti og búnað frá BIC i Frakklandi en BIC er stærsti brettaframleiðandi í heiminum í dag. Eins og ávallt þá leggur Skátabúðin áherslu á góða þjónustu og leiðbeiningar reyndra mannavið val á útbúnaði. Vatnið og vindurinn eru ókeypis og verðin hjá okkur virðast það líka. Byrjendapakki BIC Melody-bretti með mastri, segli og bómu á aðeins kr. 39.980,- Sæti, flot, aukahlutir SKATABUÐIN -SKAKAK FRAMÚK SNORRABRAUT 60 SÍM112045

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.