Morgunblaðið - 22.06.1989, Side 17

Morgunblaðið - 22.06.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JUNI 1989 17. Iðnsýningarnar 1977 og 1985 vöktu undrun og aðdáun íbúa iands- hlutans á hvað iðnaðarmenn og iðja á Austurlandi gátu framleitt og boðið í þjónustu. í þetta sinn eru allar atvinnugreinar til staðar á einni sýningu undir forystu At- vinnuþróunarfélags Austurlands og átaksverkefnisins á Egilsstöðum og Seyðisfirði. Atvinnugreinarnar Sjávarútvegur og fiskvinnsla ásamt landbúnaði eru undirstöðu- greinar í atvinnu Austfirðinga. Við alla strandlengjuna, frá sönd- um í suðri að Langanesi í norðri, eru blómlegar byggðir, þar sem dugmiklir einstaklingar og félög reka myndarleg og öflug fyrirtæki í sjávarútvegi. Fiskeidisstöðvar eru víða að hasla sér völl í flörðum og víkum. Og í skjóli ofangreindra framleiðslugreina þrífst blómlegur þjónustuiðnaður með iðnaðarmenn að störfum á heimsmælikvarða í fagþekkingu og handverki. Verslun og verslunarþjónusta er til staðar með framsýnu starfsfólki sem þekkir sinn markað og þjón- ustuskyldu. Landbúnaðurinn í umhverfinu, í íjörðum og héruðum, framleiðir heilnæma matvöru og skirskotar til uppnma fólksins í öðrum atvinnu- greinum og þess sem íslensk þjóð hefur fram yfir aðrar, þekkingu á Blomberq vaskar í stáli og hvítu. 15gerðir. Hagstætt verð. Góð greiðslukjör. __________sél_ Einar Farestveit&Co.hf. BORQARTÚNI28, SÍMi 16995. Lalð 4 stoppar vlA dymar Success GUARANTEHD ^ FERFECriN IfSf^P 8 MINUTES Framandi og ógleymanlegur hrísgrjónaréttur. Löng hrísgrjón blönduð með ses- am, möndlum og núðlum og kryddað á afar sérstæðan hátt. Svo sannarlega öðruvísi kjúktingaréttur. Fyrir 4 - suóutími 8 mín. Heildsölubirgðin KARL K. KARLSSON&CO. Skúlatúni 4, Rcykjavík, sími 62 32 32 náttúruöflun og ávöxtun moldar í brauði og menningu. í „Drekanum ’89“ fögnum við, með þessum atvinnugreinum, unn- um sigrum og fylkjum liði, allir sem einn, til að standa vörð um atvinnu- greinarnar og renna enn frekari stoðum undir tilvist þeirra og framtíð. Höfuðmarkmið okkar íslendinga er að tryggja að allar vinnandi hendur geti fengið vinnu við sitt hæfi. Eina færa leiðin til að ná þessu markmiði og búa við þá stöðu, er að stórauka úrvinnslu hráefna bæði frá landbúnaði og sjávarútvegi. Já, nú þegar er þessi bylting hafin. Stóraukin ijölbreytni er i út- flutningi sjávarfanga og markaðs- svæðið hefur stækkað ‘ mikið nú á síðustu árum og enn er svigrúm óendanlegt. Það er þrátt fyrir allt bjart yfir börnum þessa lands. Atvinnuþróun Nýting vísindalegrar þekkingar og samheldni landsmanna eru horn- steinar þeirrar atvinnuþróunar sem nauðsynleg er — þessa steina verða stjórnmálamenn að festa í þjóð- félagsbyggingunni og skapa bjart- sýni og raunsæi í stað stöðugrar svartsýni sem dregur mátt úr lands- mönnum. Það verður að vera til hvati til að efla menn til átaka — sá hvati felst auðvitað í því frumkvæði sem á að vera til staðar hjá löggjafar- og framkvæmdavaldi þjóðarinnar — þeirra er að skapa skilyrði fyrir því að hver einstaklingur geti virkjað hug sinn og hönd til jákvæðrar þátttöku í uppbyggingu þjóðfélags- ins. Leikreglur settar í lögum verða að vera réttlátar og mótaðar af víðsýni og skilningi á grundvallarat- riðum mannlífs í þessu landi. Nýjar atvinnugreinar eru fólgnar i nýtingu auðlinda sem þjóðin á og eru vannýttar eða ónýttar með öllu — stóriðjan svokallaða er af þessum meiði. Efnaiðnaður í stórum stíl er mögulegur á íslandi í framtíðinni — jafnvel iðnaður sem alfarið vinnur úr íslenskum hráefnum í formi orku og fastra efna. Til að fórnarkostnaður í þróun nýrra greina verði ekki of hár þarf að stórauka vísindalega rannsókn- arstarfsemi — alltof litlum hluta þjóðartekna hefur verið varið til siíkra starfa ef miðað er við önnur lönd. Það er einnig bjart yfír Austur- landi í þessum efnum. Landshlutinn býr yfir stærsta hluta óbeislaðrar vatnsorku landsins. Dýrmæt hrá- efni, gabbróið, er inniheldur títan — króm og járn ásamt öðrum málm- söltum er til staðar í landshlutanum. Margir aðrir kostir efnaiðnaðar eru til staðar. Austurland er ekki bara vatns- orkusvæði, háhitasvæði eru í Kverkfjöllum og víðar í vestur- mörkum landshlutans. Með slíka auðlegð og náttúrugæði, ásamt með auðlindum til sjávar og sveita og í steinefnum og málmsöltum þurfa Austfirðingar engu að kvíða í framtíðinni. Nálægð Austurlands við megin- land Evrópu og breyttar áherslur í samskiptum Evrópuþjóða gera Austurlandið enn mikilvægara en áður og skerfur þess mun sífellt stækka til sameiginlegra þarfa íslenskrar þjóðar. En meginatriði nú er að efla manninn í samfélagi byggða á Austurlandi, í mótstöðu gegn svart- nættisrugli því sem heltekið hefur málefnalega umræðu á íslandi og hefja þess í stað málefna- lega umræðu um heiðarlegar leikreglur vegna skiptingar þeirrar auðlegðar sem íslensk þjóð vissulega á, í mold- inni, í sjónum og orkú fallvatna. Það er okkar draumur. Atvinnusýningin „Drekinn ’89“ sem hefst 23.júní nk. er hluti af slíkri umræðu og þar taka menn undir með skáldinu, Jóhannesi úr Kötlum; sem talar í nafni landsins. Æ, hví sérðu ei, mitt bam, það hið sígilda pund, er ég sál þinni í vögguna gaf: Þennan öfluga foss, þessa ilmandi grund, þetta auðuga, ljósbláa haf? Em ei gæði mín nóg, ef þér giftan er léð til að greina þau, skipta þeim rétt? V íst er saklaust mitt blóð, og þó sit ég hér með þessa synd: hina kúguðu stétt. Höfundur er rafveitustjóri á Austurlandi. Fagurt umhverfi bætir mannlífið! HÚSA SMIOJAN Búsáhaldadagar: Afsláttur af búsáhöldum þessa viku. SKÚTUVOGI 16 SÍMI 6877 00 Efni, áhöld og góðar hugmyndir. •tíiiisn 5 .# i.íli t-r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.