Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 198» €>1980 UniverMl Press Syndicate „ Er þetta. jakkinn serr) SonarSonur þinn gaf þér i c*.fmaeLisgijöf'í/// ÁSTER... ... að vera getspakur. Með morgnnkaffiriu TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved e 1989 Los Angeles Times Syndicate o- ^ 'e? 532” '**•' -nZtRMOW&Kl Styrlgum böm í þróunarlöndum Ágæti Velvakandi. Eru einhveijir sem vilja styrkja fjárhagslega barn í þróunarlöndun- um? Til dæmis barn á Grænhöfðaeyj- um, þar sem við íslendingay höfum unnið að þróunarhjálp. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta er að mig langaði tii þess í mörg ár að styrkja barn á þennan hátt en hafði enga hugmynd um hvernig það mætti verða. Svo frétti ég af sam- tökum sem eru dönsk og nú styrki ég niu ára gamla stúlku á Græn- höfðaeyjum sem heitir Zulmira. Hún býr hjá ömmu sinni sem er um sjötugt og sem hefur fyrir öðru bami að sjá. Og þetta kostar 120 dkr. á mánuði, sem er um 900 kr. ísl. Fyrir þessa peninga er henni séð fyrir fæði, læknishjálp og lyfj- um. Henni verður tryggð skóla- ganga í grunnskóla og jafnvel eitt- hvert iðnnám. Á Grænhöfðaeyjum er skólanám annars ókeypis en þar sem fátækt er svo mikil fara börnin ekki í skóla, fólk hefur ekki ráð á fötum og bókum. Þessi samtök heita: Bornefonden, 0sterbrogade 85, Dk-2100 Knbenhavn 0. Danmark. Hægt er að skrifa (á dönsku eða ensku) og fá nánari upplýsingar. Margir íslendingar kannast vafa- laust við þessi samtök og „eiga“ barn einhvers staðar. Heiðrún Betri nýting’ Til Velvakanda. Öllum ber saman um að minna er um fisk á miðum við landið en áður og er þar auðvitað mikilli veiði um að kenna en menn greinir á um hvernig bregðast skuli við þessu. Sjálfsagt er að auka nýtinguna eins og reyndar hefur verið reynt á mörgum sviðum. Ég tel það hins vegar vera skref afturábak að saumað hefur verið að smábátasjó- mönnum. Allir vita að þeir stunda ekki smáfiskadráp og sennilega kemur besti fiskurinn upp úr trillun- um. Það er því hagstætt að sem mest af heildaraflanum komi á þær. Allir vita að togarar fara illa með botninn og talað er um mikið smáfiskadráp hjá þeim. Lítið hefur verið gert í því máli enda ekki auð- velt við að eiga. Eina ráðið er að efla þær veiðar þar sem smáfiska- dráp kemur ekki til greina. Trillukarl Hestamenn: Verið vel á verði, þar sem ökutæki eru á ferð. Haldið ykkur utan fjölfarinna akstursleiða. Stuðlið þannig að auknu umferðaröryggi. « i Hvaða styrkíeiki nægir ykkur á vélhjólunum? HÖGNI HREKKVlSI Yíkverji skrifar Víkveiji hefur áður minnst á það í dálkum sínum hversu illa honum er við, þegar talað er um verð í fleirtölu. Verslanir og fýrir- tæki hreykja sér gjarnan af því í auglýsingum, að „bjóða bestu verð- in“. Nú hefur Víkveiji fengið í hend- ur kver, sem nefnist „Málfar í fjöl- miðlum“, eftir Árna Böðvarsson, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins, en kver þetta er gefið út af Ríkisút- varpinu og Morgunblaðinu og hugs- að sem handbók fyrir starfsmenn þessara fjölmiðla. I kveri þessu er meðal annars fjallað um nafnorðið verð. Þar segir: „Nafnorðið verð hlýtur þungar búsiljar í fjölmiðlum. Eðli þess er eintala, þó að formið banni ekki fleirtölumynd, enda kemur það fyr- ir þegar í fornu máli og þá með fleirfaldstölu. Talað er um tvenn og þrenn verð í Laxdælu þar sem menn deila um hross. Þar er átt við tvöfalt og þrefalt verð. Það hæfír vönduðu máli að tala um margs eða ýmiss konar verð (í eintölu), margvíslegt, breytilegt verð, vöru á (við) öllu (alls kon- ar) verði, en ekki „?mörg verð“. Allt verð er lágt í verslun minni, en hinum manninum mælist illa sem segir „?öll góðu verðin í minni versl- un“. Honum gæti líka dottið í hug að tala um „?ódýr verð“ hjá sér. En verð er hvorki „dýrt“ né „ódýrt“, það er hátt, lágt, mikið eða lítið, og frá öðru sjónarmiði gott eða lélegt.“ Svo mörg voru þau orð Árna Böðvarssonar. Vonandi hverfa „verðin" úr auglýsingum og fréttum og „verðið“ kemur í staðinn. xxx að er ef til vill ekki hægt að ætlast til þess að fólk vandi mál sitt, ef óvandað mál er haft fyrir því í bernsku. Víkveiji horfði fyrir nokkru á barnatíma á Stöð 2, þar sem „Begga frænka“ brá á leik með bömunum. Beggu þessa þurfa forráðamenn Stöðvar 2 að tukta dálítið til, því hún vandar mál sitt ekki nógu vel. Hún talaði um að gott væri að sitja í íslenskum garði, þvíþar væru „eingvar" slöng- ur og svo tilkynnti hún að þarna gæti maður „sitið“ í ró og næði. Síðar í þættinum var hún að kenna börnunum leik og útskýra hvernig ætti að fara að, ef „fleirri" tækju þátt í leiknum. Hún „spekúleraði“ og dáðist að einhveiju „flottu", en þó tók fyrst steininn úr þegar kom að því að hún brá sér í leik með börnunum, þar sem hún þurfti að „standa með lappir í sundur". Svo þurfti einhver „að koma og skríða í gegnum lappirnar á mér“. Víkveiji lætur lesendum sínum eftir að geta sér þess til hvernig það var gert. Þegar Víkveiji hafði fengið nóg af að hlusta á þá íslensku sem Begga frænka hafði fyrir börnunum horfði hann á bamatíma ríkissjón- varpsins. Þar var þátturinn um Heiðu á skjánum og var þar ólíku saman að jafna. Málfar Heiðu og félaga var hið vandaðasta og þátt- urinn því ríkissjónvarpinu til sóma. XXX Yíkveiji getur ekki lokið þessum pistli sínum án þess að vekja athygli á nýrri tískusögn, „að lág- marka“. Haft var eftir nýjum for- manni Vinnuveitendasambandsins fyrir skömmu að hlutverk sam- bandsins hefði löngum verið „að reyna að lágmarka vitleysuna í efnahagsmálum þessarar þjóðar ...“ Skömmu síðar birtist svo aug- lýsing frá verðbréfafyrirtæki í Morgunblaðinu. Þar var að finna spurninguna: „Hvernig lágmarka ég skattana?" Hrifning Víkveija á þessari nýju tískusögn er afar „lágmörkuð". i I 4 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.