Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989
19
Alþjóðleg samkeppni arkitekta:
Ein verðlaunatillaga frá íslandi
TILLAGA Guðmundar Jónssonar arkltekts, er ein af sextán, sem
valin hefur verið á sýningu í New York á hugmyndum, sem bárust
í alþjóðlega samkeppni um hugsanleg tengsl austurs og vesturs við
Diomede eyjarnar í Beringssundi milli Sovétríkjanna og Alaska. Það
eru félög bandarískra og sovéskra arkitekta, sem standa að þessari
samkeppni og bárust rúmlega 4.000 hugmyndir frá 1.290 arkitektum
í 28 löndnum.
„Þessi alþjóðlega hugmyndasam-
keppni snérist um tvær eyjar í Ber-
ingsundi í Norður íshafi, önnur
eyjan er sovésk en hin bandarísk
og skilja 2 km J)jóðirnar að,“ sagði
Guðmundur. „I sundinu milli eyj-
anna liggur alþjóðlega tímalínan,
sem skilur milli daga. Það er því
sama klukkustundin á báðum eyj-
unum en mánudagur á vestari eyj-
unni og þriðjudagur á þeirri aust-
ari. Beðið var um hugmyndir á
breiðum grundvelli er gætu orðið
innlegg í umræðuna um aukin sam-
skipti austurs og vesturs. Átti hug-
myndin um leið að tengja eyjarnar
og vekja menn til umhugsunar um
tímann. Engin forsögn var í þessari
samkeppni og mátti . senda inn
hvaða hugmynd sem var er tengdi
arkitektúr við bætt samskipti þess-
ara þjóða.“
Sjö dómarar völdu 80 tillögur
hver af þeim 4.000, sem bárust og
síðan valdi hver dómari milli tíu og
tuttugu er honum þótti áhugaverð-
astar. Ekki voru veitt verðlaun fyr-
ir hugmyndirnar sem þóttu athygl-
isverðastar en þær munu verða
sýndar á sýningum víða um heim
og fer sýningin sem nú stendur yfir
í New York væntanlega til Moskvu
og Leníngrad.
„Þetta er í fyrsta sinn sem arki-
tektar leggja eitthvað til málanna
í samskiptum austurs og vesturs,“
sagði Guðmundur. Á sovésku eyj-
unni er veðurathugungarstöð en
enginn býr sem stendur á þeirri
bandarísku. í tillögu Guðmundar
er sameining eyjanna og um leið
austurs og vesturs táknuð með brú
milli eyjanna og snýst sá hluti henn-
ar ser sker daglínuna á milli eyj-
anna, eins og vísir á klukku. Á sjón-
um umhverfis eyjarnar eru leysi-
geislar, sem lýsa upp himininn á
klukkustundar frestir þegar brúa-
rendarnir beinast að þeim, blátt ljós
við bandarísku eyjuna en rautt við
þá sovésku. „Þannig er hægt að
fylgjast með hvað klukkan er, en
þegar klukkan er tólf á hádegi og
á miðnætti er ljós á öllum kösturun-
um,“ sagði Guðmundur. „Með því
að láta brúna snúast minnir hún á
að tíminn er afgerandi í samskipt-
um þjóðanna. Það er einungis tvisv-
ar á sólarhring, klukkan sex að
kvöldi og sex að morgni, sem ey-
jamar tengjast."
Leikhópurinn Perlan:
Sýndi fyrir fiillu húsi
í Kennedy Center
FYRIR skömmu var haldin alþjóðleg listahátíð fatlaðra í Washing-
ton DC. Leikhópurinn Perlan tók þátt í þessari hátíð en yfir 1000
manns frá 50 þjóðlöndum og 50 fylkjum Bandaríkjanna voru þátttak-
endur í hátíðinni.
Pétur Johnson, blaðafulltrúi Perl-
unnar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að leikhópurinn hefði
sýnt leikatriðin Sólina og vindinn
og Síðasta blómið þann 17. júní sl.
í Kennedy Center, fyrir troðfullu
húsi. Sagði Pétur, að Perlan hefði
fengið frábærar viðtökur og áhorf-
endur hefðu risið úr sætum sínum.
Perlufélagar voru gestir forseta-
hjónanna í Hvíta húsinu og í mót-
töku hjá íslenzku sendiherrahjón-
unum í Washington. Þeir kynntust
fólki frá flestum þjóðlöndum heims
og listsköpun þeirra. í skeyti, sem
Morgunblaðinu hefur borizt frá
leikhópnum segir, að dvölin í Was-
hington hafi í alla staði verið gagn-
leg og skemmtileg og að Perlufé-
lagar sendi beztu kveðjur heim.
Lokiðvið
hring’veg á
Vestflörðum
TILBOÐ hafa verið opnuð hjá
Vegagerð ríkisins í nýbyggingu
vegar við Langadalsá í IsaQarðar-
djúpi. Með þeim vegi, sem á að
vera tilbúinn næsta sumar, lýkur
hringtengingu úr Steingrímsfirði
í ísaflarðardjúp.
Sex tilboð bárust í verkið, en veg-
urinn verður 2,3 kílómetra langur.
Lægsta tilboðið var frá Karli Þ.
Bjömssyni á Hoimavík, 6,3 milljónir,
en kostnaðaráætlun var upp á tæpar
10,3 milljónir. Tilboð H. Samúelsson-
ar sf., Reykjanesi, var einnig undir
kostnaðaráætlun eða rúmar 8 millj-
ónir. Hæsta tilboðið hljóðaði upp á
17,5 milljónir króna.
Einnig hafa verið opnuð tilboð í
endurbyggingu og lagfæringu á
Skagafjarðarvcgi, frá Varmalæk að
Mælifellsá. Fj'ögur tilboð bárust og
var lægsta tilboðið frá Vélum og
krafti hf., rúmar 4 milljónir en kostn-
aðaráætlun var rúmar 6 milljónir.
Tvö önnur tilboð voru undir kostnað-
aráætlun, frá Króksverki hf. og Firði
sf.
Sólveig Eyjólfsdóttir og Eysteinn Jónsson, fyrrverandi ráðherra,
við brjóstmynd Ríkharðar Jónssonar af Eysteini.
Verslunarafrnæli Djúpavogs:
Brjóstmynd af
Eysteini Jóns-
syni afhjúpuð
Djúpavogi.
400 ára afmæli Djúpavogs, sem verslunarstaðar.var haldið hátíð
legt dagana 17. til 20. júní sl. Lokadag hátiðarhaldanna heim-
sótti frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, Djúpavog. í til-
efni afmælisins var afhjúpuð brjóstmynd af Eysteini Jónssyni,
fyrrverandi ráðherra.
Frú Sólveig Eyjólfsdóttir, eigin-
kona Eysteins Jónssonar, fyrrver-
andi ráðherra frá Hrauni á Djúpa-
vogi, afhjúpaði bijóstmynd af eig-
inmanni sínum. Styttu þesa gerði
Ríkharður Jonsson myndhöggv-
ari.
Þá var opnuð sýning í
grunnskól
anum á listaverkum bræðranna
Finns Jónssonar listmálara og
Ríkharðar Jónssonar myndhöggv-
ara, auk sýningar á ýmsum mynd-
verkum heimamanna, gömlum
munum og náttúrugripum. Sýn-
ingin verður opin til mánaðamóta.
Tveir kórar heimamanna sungu
á hátíðinni og auk þess fengum
við góða gesti sem flutttu tónlist
og fleira efni. Fjöldi gesta heim-
sótti Djúpavog alla hátíðardag-
ana. Flest gesta var á þriðjudag
um þúsund manns.
Ingimar
Afiiotagjöld RÚV:
Munur á fastagjöldum
og mánaðarlegri áskrift
- segir Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri
„Fastagjöld af opinbeiTÍ þjónustu eru annars eðlis en mánaðarleg
áski-iftargjöld,“ sagði Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri, er hann
var spurður álits á því að ekki er hægt að segja upp afhotagjjöldum
RÚV skemur en í 3 mánuði. „Þótt gjalddögum afnotagjalda RUV hafi
verið fjölgað í 12 á ári fólki til hægðarauka þýðir það aðeins að fasta-
gjaldinu hefiir verið dreift á fleiri gjalddaga en áður, auk þess leyfa
Qárlög stofnunarinnar sem Alþingi setur engan afslátt" sagði Markús
Orn.
Útvarpsstjóri sagði rekstur
Ríkisútvarpsins byggja á útvarpslög-
um og samkvæmt reglugerð sem
Sverrir Hermannsson, þáverandi
menntamaálaráðherra, hefði gefið
út árið 1986 væri lækkun afnota-
gjalda ríkisútvarpsins því aðeins veitt
að innsiglt væri í 3 mánuði hið
skemmsta. Gjald fyrir að innsigla
skuli vera sem svarar útvarpsgjaldi
í einn mánuð þegar innsiglun á sér
stað.
„Þar sem RÚV sendir aðeins út
opna dagskrá er ekki hægt að koma
við lokun nema með því að innsigla
móttökutæki," sagði Markús Örn og
bætti við að það gæti orðið ákaflega
flókið og kostnaðarsamt fyrir opin-
berar stofnanir ef almenningur gæti
sagt fastagjöldum upp tímabundið,
t.d. vegna sumarleyfa í nokkrar vik-
ur. Kvað hann slíkt almennt ekki
tíðkast hjá opinberum stofnunum hér
á landi.
„Einnig ber að hafa hugfast að
afnotagjaldið er greitt fyrir þjónustu
útvarps jafnt sem sjónvarps þótt
gjaldstofn miðist við það að eiga sjón-
varp,“ sagði Markús Örn að lokum.
kynningarafsláttur
af Rosenthal
borðbúnaði
Matar- og kaffistell í sérflokki
Laugavegi91.