Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989 VEÐUR Sex þeirra sem fóru til Sviþjóðar, frá vinstri Marion Scobie, Krisljana Thorlacius, Erla Marteins- dóttir, Steinunn Knútsdóttir, Bjarni Einarsson og Magnús Ólafsson. Bagall páfe. afhentur í Landakotskirkju SJÖ kaþólsk ungmenni afhentu biskupi kaþólskra hér á landi bagal páfa við hámessu þar á sunnudag. Um var að ræða eftirlíkingu af hinum raunverulega bagal en ungmennin fengu gripinn afhentan við hátíðlega athöfn norrænna ungmenna með páfa í Svíþjóð er páfinn heimsótti Norðurlönd. Athöfn þessi var haldin í Vatnstena í suðurhluta Svíþjóðar og tóku 2.000 kaþólsk ungmenni, frá öllum Norðurlönd- unum, þátt í henni auk annarra gesta. íslensku ung- mennin fóru héðan til Svíþjóðar með tvo gripi sem þau gáfu páfa. Um var að ræða eftirlíkingu af mið- aldasilfurkrossi sem fannst á Keldum á Rangárvöllum og olíulampa. Biynja Halldórsdóttir, ein sjömenning- anna, segir að lampan hafí þau gefíð páfa sem tákn ljóssins. „Það var stórkostleg upplifun að taka þátt í athöfninni með páfa í Svíþjóð," segir Brynja. „Þetta var stund sem gleymist aldrei þeim sem þátt tóku." Sem fyrr segir var biskupi kaþólskra hér á landi afhentur bagallinn til varðveislu og mun hann verða geymdur í Landakotskirkju. / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa isiands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) I/EÐURHORFUR í DAG, 22. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Vestlæg átt, gola eða kaldi víðast hvar á landinu. Skúrir voru á Suðvestur- og Vesturlandi en annars víðast þurrt. Hiti var 7-17 stig. SPÁ: Norðvestankaldi víðast hvar og kalt í veðri. Lítilsháttar rign- ing á Norðurlandi og dálitlar skúrir sumstaðar vestanlands, en á Suður- og Suðausturlandi léttir víðast hvar til á morgun. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Vestan- og suðvestan- átt og hlýtt á Norðaustur- og Austurlandi, en fremur svalt á Suð- ur- og Vesturlandi. Skýjað en dálítil súld vestanlands en þurrt og víða léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað y. Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heii fjöður er 2 vindstig. r r r / / r r Rigning / / / * r # r * r # Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * # * ■\0 Hitastig: 10 gráður á Celsius V Skúrir * V Él — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður xm VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veöur Akureyri 15 skýjaö Reykjavík 8 úrkoma Bergen 21 léttskýjað Helsinki 25 léttskýjað Kaupmannah. 26 skýjað Narssarssuaq vantar Nuuk vantar Ósló 19 skýjaö Stokkhólmur 21 skýjað Þórshöfn 10 alskýjað Algarve vantar Amsterdam 21 skýjað Barcelona 27 mistur Bertín 27 léttskýjað Chicago 17 þokumóða Feneyjar vantar Frankfurt 28 hálfskýjað Glasgow " 19 léttskýjað Hamborg 25 skýjað Las Palmas 25 léttskýjað London 22 léttskýjað Los Angeles 17 mistur Lúxemborg 25 hálfskýjað Madríd 29 léttskýjað Malaga 29 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Montreal vantar New York vantar Orlando 24 léttskýjað París vantar Róm Vin 17 rlgning Washington 23 skúrir Winnipeg vantar Leitað undanþágu á útflutningi reiðhesta ISLENSK stjórnvöld eru að kanna hvort undanþága fáist varðandi útflutning á reiðhestum til landa Evrópubandalagsins, en samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnar EB frá 24. maí síðastliðnum er út- flutningur á fersku kjöt og lifandi dýrum frá íslandi til landa EB óheimill frá 1. júní siðastliðnum, vegna skorts á fúllnægjandi upplýs- ingum um hvort notuð séu hormónalyf í fóður hér á landi. Að sögn Sigurðar Ragnarssonar, sem annast hefur útflutning á hrossum til Evrópulanda, hafa á þessu ári verið seld úr landi um 500 hross fyrir rúmlega 40 milljónir króna, og sagðist hann áætla að um helmingur þeirra hefði farið til landa innan Evrópubandalagsins. Hann sagði að hrossaútflytjendum hefði ekki borist nein tilkynning frá landbúnaðarráðuneytinu um bann við útflutningi, og í síðustu viku hefðu rúmlega 20 hross verið send með skipi til Þýskalands, en þau hafí komið til Hamborgar á mánu- daginn. Hann sagði engar athuga- semdir hafa borist í því sambandi, og því væri raunverulega ekki ljóst hvort banninu yrði framfylgt varð- andi reiðhesta. Sigurbjöm Bárðarson tamninga- maður sagði að næði bannið fram að ganga varðandi reiðhesta væri fyrirsjáanleg mikil offramleiðsla á hestum hérlendis, og sala á hrossum myndi því því væntanlega stöðvast hjá bændum. Þá sagði hann að ef ekki fengist undanþága fyrir út- flutning væri ljóst að landslið Is- lands gæti ekki flutt með sér hesta héðan til að taka þátt í Evrópumóti íslenskra hesta, sem fram fer í Danmörku í ágúst, en úrtökumót fyrir Evrópumótið fer fram hér á landi í byijun júlí. Háskóli íslands: Stúdentar vilja próf í desember MIKILL meirihluti stúdenta við Háskóla íslands vill flytja haustmiss- erispróf frá janúar og fram í desember, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar, sem Stúdentaráð framkvæmdi í vor. 82,3% þeirra sem afstöðu tóku lýstu sig fylgjandi slíkri breytingu en 17,7% voru henni andvígir. Könnunin fór fram um leið og endurskráning í skólann ogtók 1.831 stúdentþátt í henni, eðaum 86% endurskráðra. Þátttakendur voru spurðir, hvort þeir vijdu flytja próf haustmisseris frá jaiiúar og fram-í desember. Já sögðu* 1.412, eða rúm 77%, nei sögðu 304, eða um 16% og 117 tóku ekki afstöðu, eða rúm 6%. Ef aðeins er litið til þeirra sem afstöðu tóku voru 82,3% fylgjandi breyting- unni, en 17,7% andvígir henni. Ef litið er á niðurstöður könnun- arinnar miðað við einstakar deildir Háskólans, þá kemur í ljós, að áhuginn á breytingunni er mestur í læknadeild, þar sem 91,3% þeirra sem afstöðu tóku kváðust henni fylgjandi, og í viðskipta- og hag- fræðideild, þar sem það hlutfall var um 88%. Minnstur reyndist áhuginn vera hjá stúdentum í raunvísinda- deild, þar sem 72% vildu flytja próf- in fram í janúar og í guðfræðideild, þar sem 74% lýstu sig fylgjandi breytingunni. Jónas Fr. Jónsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið, að niðurstöður könnunarinnar væru ótvíræð vísbending um vilja stúd- enta; úrtakið hefði verið stórt og jafnvel í þeim deildum, þar sem áhuginn á þessari breytingu hefði verið minnstur, hefðu þrír af hveij- um flórum lýst sig henni fylgjandi. Jónas sagði að þessu máli yrði fylgt eftir á vettvangi menntamálanefnd- ar Stúdentaráðs auk þess sem nið- urstöður könnunarinnar yrðu kynntar í háskólaráði. Háskólahátíð á laugardag: Jóhannes Nordal heiðursdoktor við HI Háskólahátíð verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 24. júní nk. kl. 14. Þar verður lýst kjöri heiðursdoktors jafhframt því sem kandídatar verða braut- skráðir. , Athöfnin hefst með því að Guðný Guðmundsdóttir fíðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari leika Duo eftir Jón Nordal. Prófessor dr. Ráðherrar heim- sækja Grænland STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra og kona hans eru nú stödd á Grænlandi í boði heimstjórnarinnar þar. v Þar munu þau taka þátt í hátíðahöld- um vegna 10 ára afmælis heima- sljórnarinnar. í för með forsætisráðherra eru Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra, Steingrímur Sigfússon landbúnað- arráðherra og konur þeirra, Páll Pétursson fulltrúi Norðurlandaráðs og Jón Sveinsson aðstoðarmaður forsætisráðherra. Þorvaldur Gylfason, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar, lýsir heiðursdoktorskjöri dr. Jóhannesar Nordals, bankastjóra. Háskólarekt- or, dr. Sigmundur Guðbjarnason, ræðir málefni Háskólans og ávarpar síðan kandídata. Deildarforsetar afhenda kandídötum prófskírteini. Að lokum syngur Háskólakórinn nokkur lög undir stjórn Áma Harð- arsonar. Að þessu sinni verða brautskráð- ir 363 kandídatar og skiptast þeir þannig: Embættispróf í guðfræði 1, emb- ættispróf í læknisfræði 39, kandíd- atspróf í lyfjafræði 9, BS-próf í hjúkrunarfræði 38, BS-próf í sjúkraþjálfun 11, embættispróf í lögfræði 39, kandídatspróf í íslenskri málfræði 1, kandídatspróf í íslenskum bókmenntum 3, próf í íslensku fyrir erlenda stúdenta 4, BA-próf í heimspekideild 31, loka- próf í byggingarverkfræði 12, loka- próf í rafmagnsverkfræði 17, kandídatspróf í viðskiptafræðum 69, kandídatspróf í tannlækningum 8, BA-próf í félagsvísindadeild 26, BS-próf í raunvísindadeild 50. I \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.