Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 40
40 MORGyNBLAÐIÐ FIMM'yUDAGURf22., JÚNfí 1^9 1 fclk í fréttum BÍLLINN STYKKISHÓLMUR Systurnar halda upp á 25 ára starfsaftnæli ljósmóðurinnar Systumar á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi minntust þess 19. maí sl. að Elín Sigurðardóttir, Stykkishólmi, hefir starfað um fjórðung aldar að ljósmóðurstörfum í sjúkrahúsinu. Komu starfsfólk og ættingjar saman til að minnast þess. Elín hafði áður verið starfandi ljósmóðir í sveitarfélag- inu, eða réttara sagt ljósmóðurumdæmi Stykkishólms frá árinu 1955, en fyrir 25 árum opnaðist svo leið til að hún fengi að starfa á sjúkrahúsinu sem var mjög þægilegt fyrir alla aðila. Elín hefir verið farsæl í sínu starfi. - Árni Frumsýn- ingargest- ir á Leður- blöku- manninum Ný mynd um Leðurblöku- manninn „Batrnan" var frumsýnd í Los Angeles á mánu- daginn. Nokkrar stórstjömur vora viðstaddar fram- sýninguna, þeirra á meðal gamanleik- arinn Eddie Murp- hy og Kim Basin- ger, leikkona. Þús- undir aðdáenda biðu fyrir utan kvikmyndahúsið og vakti Kim mikla athygli þegar hún veifaði til þeirra íklædd gagnsæjum kjól úr chiffon efni. SNYRTING Á ÍSLANDI Glæsilegustu bílar landsins í Laugardalshöllinni dagana 21.-25. júní Sýningin er opin í dag og á morgunfrá 16-23 og um helgina frá 10-23. Missiö ekki af stærstu bílasýningu ársins! Ný aðferð til litgreiningar Að undanfömu hefur verið töluvert um að fólk fari í svokallaða lit- greiningu, þ.e. fái ráðlegg- ingar hjá sérstökum ráð- gjöfum um hvaða litir klæði það best. Algeng- asta kerfið, sem farið er eftir við litgreiningu, er kennt við árstiðimar og byggist á því að fólki er raðað í fjóra flokka, vetur, sumar, vor og haust, eftir húð- og augnlit. Anna Gunnarsdóttir, lit- greinir, er nýkomin heim frá námi í London þar sem hún kynntist öðru kerfi til litgreiningar. Litgreiningarkerfið, sem Anna vinnur eftir, er töluvert flóknara en það sem hingað til hefur verið notað. í því era sex yfir- flokkar og tólf undirflokk- ar sem fólki er raðað í eft- ir húð-, augn-, og háralit. Lögð er áhersla á að hjálpa fólki að klæða sig eftir persónugerð og starfsvett- vangi. Litasamsetningar skipta höfuðmáli og ráð- leggingar varðandi auka- hluti s.s. klúta og bindi fylgja litgreiningunni. Anna starfar hjá Módel- skólanum Jönu í Hafnar- stræti. Anna Gunnarsdóttir við litgreiningarkor- tið sem hún notar. u

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.