Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989
29
Skaðvaldur í túnum bænda:
Túnamítill þegar
farirni að valda tjóni
TÚNAMÍTILL hefur gert sig heimakominn í túnum bænda í Eyja-
firði og reyndar víðar um Norðurland. Bjarni Guðleifsson ráðunaut-
ur lyá Ræktunarfélagi Norðurlands hefur verið á ferðinni undan-
fama daga og kannað ástandið og segir hann að allt stefhi í að
mikið verði um mítilinn nú í sumar, en þó líti ekki út fyrir að um
faraldur verði að ræða.
Mítill þessi gengur gjarnan undir
nafninu roðamaur og hefur hann á
undanförnum árum gert bændum
lífið leitt. Bjarni segir nokkuð auð-
velt að ráða niðurlögum hans ef
lyfinu Permasect sé úðað á grasið
strax og grös spretta. Einkum sæk-
ir mítillinn á vallarfoxgras, en síður
á harðgerð íslensk grös.
Mítillinn sígur næringu úr gras-
inu og segir Bjarni að samkvæmt
Þrotabú Svartfugls:
Nauðasamn-
inga leitað
BJARTSÝNI ríkir um að nauða-
samningar takist í þrotabúi
Svartfugls hf. eftir skiptafund
sem haldinn var síðastliðinn
þriðjudag. Ásgeir Pétur Ásgeirs-
son héraðsdómarí og skiptaráð-
andi í búinu sagði að boðið værí
að greiða 30% af kröfiun.
Nú þegar hefur borist samþykki
yfir 50% kröfuhafa að fjöldanum
til og 33% af kröfufjárhæð. „Eins
og er virðist þetta ætla að ná í
höfn,“ sagði Ásgeir Pétur.
Gjaldþrotið var upp á um 40
milljónir króna, en eignir búsins eru
metnar á um 17 milljónir króna.
Næsti skiptafundur verður haldinn
að mánuði liðnum.
rannsóknum sem gerðar hafa verið
þá sé fóðurgildið lakara þar sem
mikið er um mítilinn, en óljóst sé
hvort uppskerurýmun verði af hans
völdum. Mitillinn lifir einna best á
norðlægum slóðum, en svo virðist
sem ákveðin veðurskilyrði, kalt veð-
ur en stillt og þar sem lítið er um
rigningar, séu einna best fyrir hann.
Bjarni segir túnamítilinn vera
vandamál á íslandi, Grænlandi og
í Norður-Noregi og er fyrirhugað
að norrænar þjóðir hafi með sér
samvinnu varðandi rannsóknir á
lifnaðarháttum hans og vamir gegn
honum. Fyrirhugað er að þeir sem
hafa með rannsóknimar að gera
beri saman bækur sínar nú í haust.
„Það stefnir allt í að mikið verði
um mítilinn nú í sumar, en ég sé
ekki enn að minnsta kosti fyrir mér
að um faraldur verði að ræða,“ seg-
ir Bjarni. Hann bendir á að til að
ráða niðurlögum hans þurfi að úða
mjög snemma, eða strax og grös
spretta á vorin, þannig séu sumir
bændur orðnir of seinir að úða á
þessu sumri. Hann segir fjölgun
þessa skaðvaldar vera breytilega
frá ári til árs og ræðst það af veður-
fari hveiju sinni. Túnamítillinn er
einkum virkur á nóttinni, en forðast
sólarljósið; hann hverfur ofan í
svörðinn yfir hádaginn. Yfirleitt
veldur hann mestu tjóni á þurrum
túnum og skemmdir af hans völdum
eru mun meiri á Norðurlandi heldur
en á Suðurlandi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Búið að opna Hótel Norðurland
HÓTEL Norðurland hefur verið tekið í notkun og strax á öðmm opnunardegi fylltist hótelið af erlendum
ferðamönnum. „Ég er mjög ánægð með viðtökumar og bjartsýn á sumarið. Það er vel bókað hjá okkur
miðað við að hótelið er nýtt og lítið kynnt,“ sagði Guðrún Erla Gunnarsdóttir hótelstjóri. Á hótelinu eru
28 herbergi, þar af 18 með baði. Herbergin eru búin öllum þægindum, síma og sjónvarpi, og einnig er hægt
að ná erlendum stöðvum í gegnum gervihnött. „Minibar“ er á öllum herbergjum. Fundaraðstaða er til
staðar fyrir um 30 manna hóp, setustofa,^ koníaksstofa og veitingasalur sem tekur um 50 manns í sæti.
Veitingareksturinn er leigður út og er það Íslensk-kólimbíska sem hefur reksturinn á leigu, en veitingastað-
urinn ber nafnið Hlóðir. Ahersla verður lögð á ítalskan, suðuramerískan og íslenskan mat, en í miðri viku er
í gangi sérréttaseðill og geta menn þá kitlað bragðlaukana með austurlenskum mat. Á mjmdinni fylgist
Guðrún Erla hótelstjóri með því er kokkurinn ber fram pizzu á opnunarkvöldinu, en á innfelldu myndinni
eru þeir Carlos Mendez og Mario Degado sem umsjón hafa með veitingarekstrinum.
Kaupleiguíbúðir:
Þremur íbúðum óúthlutað
ÞREMUR ibúðum sem verið er
að byggja í kaupleiguíbúðakerf-
inu er enn óúthlutað af tiu sem
þyggðar verða í almenna kerfinu.
íbúðirnar eiga að vera tilbúnar
frá verktaka um mánaðamótin
mars/apríl á næsta ári, eh húsið
stendur við Helgamagrastræti
53.
Upphaflega sóttu sextán um
Dagsprent tapaði
9 milljónum króna
DAGSPRENT tapaði 9 milljónum á síðasta ári, en aðalfiindur félagsins
var haldinn fyrir skömmu. „Þetta gekk ekki nógu vel, en nú stefhum
við að því að rífa reksturinn upp úr þeirri lægð sem hann hefur verið
f,“ sagði Hörður Blöndal framkvæmdasfjóri.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Talsvert fleiri unglingar eru nú í unglingavinnunni en undanfarín
sumur og mun fleiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Á aðalfundinum var samþykkt að
auka hlutafé um 12 milljónir króna
og sagði Hörður að reksturinn ætti
að geta gengið, með því að aðhalds
væri gætt sem unnt væri. „Aðhalds-
aðgerðir sem gripið var til á síðasta
ári eru farnar að skila árangri. Við
drögum saman í rekstrinum, reynum
að auka tekjurnar og ef við fáum
það hlutafé sem við þurfum þá á
þetta allt að geta gengið,“ sagði
Hörður.
Fyrir skömmu var skrifstofu Dags
í Reykjavík lokað og sagði Hörður
að blaðið myndi einbeita sér að Norð-
urlandi í framtíðinni. Hann sagði að
rekstur skrifstofunnar hefði ekki
komið nægilega vel út. „Við erum
of litlir í stóru landi þar.“
íbúðimar tíu, en fimm uppfylltu
ekki skilyrði sem gerð voru til kaup-
enda. Á meðal skilyrða má nefna
að umsækjendur verða að vera láns-
hæfir hjá Húsnæðisstofnun og með
fjölskyldutekjur á bilinu 115-120
þúsund á mánuði.
Dan Brynjarsson hagsýslustjóri
Akureyrarbæjar sagði að íbúðirnar
yrðu að líkindum auglýstar aftur í
haust. Hann sagði að á sama tíma
og kaupleiguíbúðirnar voru auglýst-
ar í vor hafi einnig verið auglýstar
íbúðir í verkamannabústöðum og,
íbúðir fyrir aldraða þannig að urii'
90 íbúðir í bænum voru auglýstar
á sama tíma. Þá sagði hann einnig
að við samanburð á verði kaupleigu-
íbúðanna og íbúða í verkamannabú-
stöðum hafi þær fyrrnefndu þótt
dýrari og það hafi áhrif.
Fleiri í unglingavinnunni en áætlað var:
Sótt hefiir verið um 8-10 millj
ón króna aukaíjárveitingu
é||||% Stýnmanntideild
Dalvíkurskóla
Kennara vantar í siglinga- og sjómennskugreinum.
Umsóknarfrestur til 27. júní.
Upplýsingar gefnar í símum 96-61380, 96-61162 og
96-61355.
Skólanefnd Dalvíkur.
UMHVERFISNEFND hefiir farið firam á 8-10 milljóna króna auka-
gárveitingu úr bæjarsjóði, en fjöldi unglinga í unglingavinnunni í
sumar er um það bil eitt hundrað fleiri en gert var ráð fyrir í áætl-
unum. Fjallað var um eríndið í bæjarráði fyrir skömmu, en af-
greiðslu var frestað.
í bókun umhverfisnefndar kemur
fram að við gerð fjárhagsáætlunar
fyrir árið 1989 hafi fjárveiting til
unglingavinnunnar verið lækkuð
miðað við tillögur nefndarinnar. Á
fjárhagsáætlun var úthlutað um
15,5 milljónum króna til unglinga-
vinnunnar, en fyrstu tillögur um-
hverfisnefndar voru um 22 milljónir
króna.
Rúmlega 450 unglingar á aldrin-
um 13-15 ára hafa skráð sig í ungl-
ingavinnuna í sumar og starfar
hver hópur alls í átta vikur. Valdi-
mar Pétursson umsjónarmaður
unglingavinnunnar sagði það stefn-
una að allir þeir sem vildu fengju
vinnu. Reynsla fyrri ára væri sú
að talsvert stór hópur skráði sig til
vinnu í upphafi, en dytti síðan út
ef önnur vinna fengist. Slíkt hafi
ekki gerst nú og því væru mun
fleiri unglingar við störf nú en á
síðustu árum, en síðustu flögur ár
hafa að jafnaði verði um 300 ungl-
ingar í vinnu.
Valdimar sagði að næg verkefni
væru fyrir hendi við fegrun og
snyrtingu bæjarins, við gróðursetn-
ingu og ýmislegt fleira.
DALVIKURSKDLI
Dalvíkurskóli
Yfirkennari
Staða yfirkennara við Dalvíkurskóla er laus til
umsóknar. Umsóknarfrestur til 4. júlí 1989.
Upplýsingar gefnar í símum 96-61380, 96-61162
og 96-61355. ‘
Skólanefnd Dalvíkur.