Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989
15
Guðsþjónusta að Hólum í Hjaltadal:
Verður útvarpað
um öll Norðurlönd
SIÐASTLIÐINN sunnudag var
hljóðrituð guðsþjónusta á Hólum
í Hjaltadal, sem útvarpað verður
á öllum Norðurlöndunum. Predik-
ari í guðsþjónustunni var Guðrún
Asmundsdóttir leikkona, en þetta,
mun vera í fyrsta skipti sem koná
predikar við slíka guðsþjónustu,
og einnig í fyrsta sinn sem leik-
maður stígur í stólinn við þetta
tækifæri. Altarisþjónustu annaðist
séra Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup, en karlakórinn
Heimir og kirkjukór Hóladóm-
kirkju sungu.
Guðsþjónustunni verður útvarpað
hér á iandi 23. júlí næstkomandi, en
guðsþjónusta af þessu tagi er haldin
árlega á Norðurlöndunum til skiptis.
Síðast var hún haldin hér á landi í
Skálholti, en þá predikaði séra Sigur-
björn Einarsson biskup, sem einnig
annaðist altarisþjónustu.
í tengslum við hljóðritun guðs-
þjónustunnar að Hólum var haldinn
fundur þeirra starfsmanna útvarps-
stöðvanna á Norðurlöndum sem hafa
umsjón með trúarlegu efni, en þeir
hittast jafnan árlega af þessu tilefni
og ræða skipulagsmál.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Að lokinni hljóðritun guðsþjónustunnar í Hóladómkirkju. Talið frá vinstri: Frank Tangen frá norska
útvarpinu, sr. Bernharður Guðmundsson, Evan Th. Westergaard frá danska útvarpinu, Gun Lundell
frá sænskudeild finnska útvarpsins, sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, Viena Inkeri Lounela frá
finnska útvarpinu, frú Aðalbjörg Halldórsdóttir vígslubiskupsfrú, Kari Saastad frá norska útvarpinu,
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, Ingeborg Gayer Fosman dagskrárstjóri finnska útvarpsins, Rögn-
valdur Valbergsson organleikari, Jan Erik Andelin frá finnska útvarpinu, Birna Friðriksdóttir, Claes
Hollander frá sænska útvarpinu og Stefan Cederlöf frá sænska útvarpinu.
Þrír hval-
ir veiddir
ÞRIR hvalið höfðu veiðzt um
miðjan dag í gær. Sá fyrst barst
að landi á þriðjudagsmorgun, en
hinir tveir veiddust í gærmorg-
un.
Hvalur 8 kom með fyrstu lang-
reyðina á þessari vertíð að hvalstöð-
inni í Hvalfirði á þriðjudagsmorgun
um klukkan 8. Hvalurinn var skor-
inn fyrir hádegi. Milli klukkan 10
og 11 í gærmorgun náðu bátarnir
hvor sínum hvalnum og dokuðu
síðan fram eftir degi í leit að fleir-
um. Bræla var þá á miðunum og
búizt var við því að bátarnir héldu
inn með hvalina. Um sólarhringur
má líða frá því hvalur er skotinn
og þar til hann þarf að vera kominn
til vinnslu.
Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að útlit væri fyrir stutta
vertíð og rólegt sumar. „Við megum
aðeins taka 68 langreyðar og þykir
ekki mikið. Á'árum áður var þetta
góð sumarveiði á hvern bát, en
þeir hafa stundum farið yfir 70
hvali hver á sumri,“ sagði Kristján.
Tónleikar
í Norræna
húsinu
Á sunnudag 25. júní klukkan
20.30 verða tónleiar í Norr-
æna húsinu. Örn Magnússon
leikur á píanó toccötu í fís og
enska svítu í a eftir J.S. Bach
og sónötur ópus 26 og 109
eftir Ludwig van Beethoven.
Örn Magnússon lauk burt-
fararprófí frá Tónlistarskóla
Akureyrar vorið 1979. Hann
stundaði framhaldsnám í píanó-
leik í Manchester, Berlín og
London á árunum 1980-1986.
Örn hefur haldið fjölda tónleika
í Reykjavík og út um lands-
byggðina jafnframt því að
stunda kennslu við Tónlistar-
skóla Sigursveins D. Kristins-
sonar í Reykjavík.
Embætti þriggja
héraðsdýra-
lækna auglýst
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEY-
TIÐ hefúr auglýst laus til um-
sóknar embætti hérðasdýra-
lækna í Gullbringu- og Kjósar-
sýsluumdæmi, Strandaumdæmi
og Norðausturlandsumdæmi.
Embætti héraðsdýralæknis í
Gullbringu- og Kjósarsýsluumdæmi
veitist frá 1. ágúst næstkomandi,
og er umsóknarfrestur til 10. júlí.
Embætti héraðsdýralæknis í
Strandaumdæmi veitist frá 1. sept-
ember næstkomandi, og er umsókn-
arfrestur til 1. ágúst. Embætti hér-
aðsdýralæknis í Norðausturlands-
umdæmi er laust nú þegar. >