Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 38
MOftGUNBLAÐIÐ UlMMTUDAGUR .22. JÚNÍ1989 38 Minning: Sigurbjörg HaJldórs■ dóttír, Brekkukoti Þann 28. apríl sl. lést á sjúkra- húsi Sauðárkróks, eftir aðeins tveggja sólarhringa dvöl, kær vin- kona mín og að nokkru leyti fóstur- systir, Sigurbjörg Halldórsdóttir, Brekkukoti í Óslandshlíð, og var jarðsett að Viðvík 5. maí að við- stöddu fjölmenni. Langri og farsælli vegferð er lok- ið, og Skagaflörðurinn er fátækari eftir hefir misst eina af sínum dygg- ustu og fjölhæfustu dætrum. Sigurbjörg fæddist í Viðvík í Skagafirði 5. mars 1905, dóttir hjónanna Guðbjargar Guðmunds- dóttur og Halldórs Halldórssonar sem áttu þá heimili þar. Tveggja ára fiuttist hún að Fjalli í Kolbeins- dal með foreldrum sínum, og ólst þar upp til tólf ára aldurs, er þau fluttu að Brekkukoti í Óslandshlíð, en þar varð heimili hennar og starfsvettvangur upp frá því. Engin furða að hún hafi verið orðin samgróin Hlíðinni sinni, og kær sveitungum sínum, sem og kom skýrt í ljós við útför hennar, er þeir heiðruðu minningu hennar á margvíslegan hátt, ekki hvað síst kvenfélagskonur sveitarinnar, en þær buðu til höfðinglegra kaffiveit- inga að Hólum í Hjaltadal að útför lokinni. Hafði hún verið formaður kvenfélagsins frá stofnun þess 1941 til 1976, alls 35 ár. Sigurbjörg var mikil athafna- kona, ósérhlífin og dugmikil. Vand- ist snemma á að ganga í öll útiverk á sveitaheimili, sem ekki voru öll af léttara tagi á þeim árum. Gekk að slætti með föður sínum í þýfðu túni, mótekju á vorin, og hveiju sem var. Jafnhliða léku henni í höndum hverskonar hannyrðir. Ég man hve oft ég stóð hjá henni og horfði á hana „baldera" upphlutsborða, en það iðkaði hún nokkuð. Silfurlit eða gulllituð blöð mynduðust í höndum hennar, handbragðið snilld. Ég horfði á hana flosa mynd, gimba og hekla blúndur, sauma út og margt fleira, sem allt voru mér ævintýrahlutir í þá daga. Og síðast en ekki síst eru mér hugljúfar barnsminningar þegar hún settist við orgelið sitt og söng sálma eða þjóðlög sem hún kunni urmul af, og lífgaði það ekki lítið upp á tilveruna í fámenninu fyrir lítinn telpuhnokka. Eina broslega minningu á ég frá mínum fýrsta degi í Brekkukoti. Sigurbjörg var þá ung stúlka, og í heimsókn hjá henni var vinkona hennar og jainaldra, sem kölluð var Adda. Þær voru við orgelið og sungu, Sigurbjörg lék undir. Ég hlustaði á alveg hugfangin. Svo hættu þær, en ég vildi meiri söng og hljómlist. En þar sem ég var ekki ennþá viss, hvor þeirra var Sigurbjörg og hvor Adda, sagði ég einfaldlega: „Spilaðu Sigurbjörg Adda!“ Eg hlaut þá að hitta á nafn þeirrar sem spilaði. Þær hlógu báð- ar, og óskin var uppfyltt. En ég hefi oft verið minnt á þessa setn- ingu síðan. Einn hálfbróður átti hún, Sigurð Jóhann Gíslason, hann var 11 árum eldri. Átti hann lengst af heimili á Akureyri og vann á þessum árum í versluninni Höpner. Voru hátíðis- dagar þegar hann kom í heimsókn. Stundum færði hann mér eða sendi „auglýsingamyndir“ úr pappa og þ.h. Voru það dýrmæt leikföng á þeim árum. Seinna fékkst hann við kennslu og fræðimennsku, og er látinn fyrir nokkrum árum. Sigurbjörg var gæfusöm í einka- lífi sínu. Hún giftist eiginmanni sínum, Magnúsi H. Hartmannssyni frá Melstað í Óslandshlíð, fýrsta ágúst 1931. Þann dag man ég vel. Sólbjartur dagur. Brúðkaupsgestir sátu á hólnum sunnan við blóma- garðinn, því þröngt var í gömlu baðstofunni. Presturinn talaði til brúðhjón- anna, og hugfestust mér orð hans, að mál manna væri að hjónabandið færi eftir veðrinu á brúðkaups- daginn, og þar sem slíkt sólskin væri í dag, spáði það góðu! Og það reyndist svo. Þau hjón voru samhuga og samstillt í gegn- um allt, þó stundum væri gengið í gegnum skúri og skugga. Magnús var mjög heilsuveill mörg seinni ár, þó aldrei gæfi hann eftir. Óþijót- andi eljusemi að byggja upp og endurbæta, þó oft væri hann sár- þjáður. Gekk hann að störfum fram á síðasta dag, en hann lést mjög snögglega 18. janúar 1985. Veit ég að það var Sigurbjörgu þung raun, en hún hélt reisn sinni sem áður. Þau hjón eignuðust íjögur börn. Tvö misstu þau í fæðingu. Þau sem lifa eru: Halldóra, húsmóðir í Brekkukoti, gift Jóhannesi Sig- mundssyni, eiga þau 4 börn: Sig- mund, Sigurveigu, Magnús og Sæ- unni Hrönn. Hartmann Páll, býr í Hofsósi, kvæntur Herdísi Fjelsted. Þau eiga 2 börn: Sigurlínu og Magnús Óm- ar. Barnabarnabömin voru orðin 2, yndislegar litlar stúlkur sem áttu stórt rúm í hjarta ömmunnar, þeim vom líka helguð síðustu handtökin hennar. í pijónavélinni var hálfunn- in flík úr rauðu fínu gami, sem ætluð var lítilli stúlku, nafnið henn- ar á miða hjá. Önnur flík nákvæm- lega eins, samsett og frágengin — ætluð annarri lítilli stúlku, nafn hennar hinum megin á miðanum. Þannig var Sigurbjörg, sístarf- andi, óþreytandi í umhyggju sinni fyrir flölskyldunni allri og vinum, sem hún átti marga. Með þessum fátæklegu línum langaði mig að þakka allt sem hún hefir verið mér frá því ég fýrst kom á Brekkukotsheimilið, þá tæplega sex ára gömul, til dvalar hjá foreldr- um hennar. Var um eins árs dvöl að ræða í upphafi, en það urðu fimm og hálft ár, og hefi ég alla tíð síðan talið Brekkukotsheimilið „mitt“ heimili. Fóstru minnar Guðbjargar minn- ist ég með þökk og virðingu, og manns hennar sömuleiðis. Sérstak- lega var ég þó bundin henni, sem reyndist mér alla tíð sem besta móðir, svo ljúf og trygg til hinstu stundar, en hún lést 1952. Halldór lést 1937. Minningar M þessum tíma renna eins og á færibandi. Fóstra mín. kenndi mér að lesa og pijóna. Sigur- björg erfiðaði með fyrstu skriftar- kennsluna, ég hugsaði oft seinna að ég vildi skrifa eins og hún — en það hefur aldrei tekist. Hún kenndi mér að leggja saman fyrstu tölurnar og draga frá, skóla- skylda var þá seinna en nú. I rökkrinu, áður en kveikt var á lömpunum sagði hún mér sögur. Biblíusögumar þekkti ég mest af hennar munni áður en ég kom í skóla. Mörg sálma- og bænavers kenndi hún mér, þar á meðal nokk- ur vers sem lesin voru við kistulagn- ingu hennar, og vom kvöldbæn mín á bemskuárum. Margt þetta var veganesti sem ég hefí búið að síðan og fyrir það þakka ég Guði, sem fyrirbjó mér þetta kæra heimili í æsku. Sigurbjörg var mér alltaf sem stóra systir, og sama tryggðin og systurþelið lífið í gegn. Hugkvæmn- in til að gleðja var með fádæmum. Oft var komið að óvömm, með gesti með sér, allir vom velkomnir, og oft sagði hún: „Þú þarft ekkert að láta vita þó þú komir, komdu bara hvenær sem er.“ Og það var notað! Ég og mitt fólk vomm ekki einu gestimir, hygg ég að mörg sumrin hafi verið fáar helgar sem ekki vom fleiri manns þar á ferð. Sjald- an hvíldartími fyrir mæðgurnar á bænum. En ekki var kvartað. Öllum var tekið með sömu hlýju gestrisn- inni af þessari samrýndu fjölskyldu, sem alltaf hefir búið saman sem ein heild. Nú er ævistarfi hennar lokið, og autt sæti sem verður vandfyllt. En áfram heldur lífið, hvert og eitt okkar gengur áfram sitt afmarkaða skeið, þar til kallið nær einnig okk- ur. Þá er gott að hafa falið sig í hendur Frelsarans sem sagði. „Sá sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi.“ Það veit ég að hún gjörði. Ég kveð hana með þakklæti og söknuði — en einnig í glaðri von um endurfundi á degi upprisunnar. Öllum ástvinum hennar og venslafólki sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur, og bið Drottin að blessa ykkur öll. Sigurlaug Kristinsdóttir t Eiginkona mín, móðir okkar og amma, SIGRÍÐUR KRISTIIMSDÓTTIR, Grensásvegi 58, lést í Landspítalanum að morgni 21. júní. Alfreð Jónsson, börn og barnabörn. t Faðir okkar, SUMARLIÐl EYJÓLFSSON, Hrafnistu, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. júní kl. 15.00. Börn hins látna. 1 ’ t Bróðir og frændi, GUÐJÓN SIGURÐSSON, Núpi, Vestur-Eyjafjöllum, verður jarðsunginn frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 24. júní kl. 16.00. Ólafía Sigurðardóttir, Guðmundur Guðmundsson. + Móðir mfn, SIGRÍÐUR ÞORBJARNARDÓTTIR, Efstasundi 84, Reykjavik, sem lést 16. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu, föstudag- inn 23. júní kl. 10.30. Fyrir mfna hönd og annarra vandamanna, 1 T Tengdamóðir mín, EDITH KAMILLA GUÐMUNDSSON, fædd KAARBY, lést í Landakotsspítala 19. júní. Otför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík, þriðjudag 27. júní kl. 13.30. Blóm eru afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag íslands. Fyrir hönd annarra vandamanna, Heimir Áskelsson. + Móðir okkar, MARGRÉT ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR, Miðfelli, Hrunamannahreppi, sem lést 16. júní sl., verður jarðsungin frá Hrepphólakirkju laugar- daginn 24. júní kl. 14.00. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.30 með viðkomu í Fossnesti á Selfossi. Synir hinnar látnu. + T Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Eyvindarholti, Vestur-Eyjafjöllum, verður jarðsungin frá Stóra-Dalskirkju föstudaginn 23. júní kl. 14.00. Jón Kjartansson, Ólafur Kjartansson, Sigríður Kjartansdóttir, Garðar Sveinbjarnarson, og barnabörn. + Fóstursystir okkar, DAGMAR HLI'F SIGURÐARDÓTTIR frá Borgartúni, Efstasundi 97, verður jarðsungin frá Hábæjarkirkju, Þykkvabæ, laugardaginn 24. júní kl. 14.00. Kristrún Sigurðardóttir, j Sigurjón Sigurðsson. _L T Útför heiðursborgara Eyrarbakkahrepps, VIGFÚSAR JÓNSSONAR, fyrrv. oddvita, verður gerð frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 24. júní nk. kl. 14.00. Að ósk aðstandenda eru blóm og kransar vinsamlega afþakkað- ir, en þeim sem vildu minnast Vigfúsar, er bent á að láta Sól- velli, dvalarheimili aldraðra á Eyrarbakka, njóta þess. Bílferð verður frá BSI kl. 12.30. Hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps. + Eiginmaður minn og faðir, GARÐAR KARLSSON, Kleppsvegi 48, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. júní kl. 13.30. Hrafnhildur Þorbergsdóttir, Hörður Garðarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.