Morgunblaðið - 25.06.1989, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 25.06.1989, Qupperneq 19
' MOldQUKHLABIÐ iFJCMJMHPLflft £5. j JÚNÍ; ■} C 19 Tímaritið Private Eye gjaldþrota? Hæstu skaða- bætur í sögu Bretlands EFASEMDUM UM hvort prent- frelsi sé í raun á Bretlandi hef- ur skotið upp kollinum eftir að breska ádeilu- og háðblaðið Prívate Eye tapaði skaðabóta- kröfu Soniu Sutcliffe, eiginkonp „Yorkshire-ripper“ morðingj- ans. Blaðið var dæmt til að greiða frú Sutcliffe um 54 millj- ónir króna auk réttarkostnaðar upp á níu milljónir vegna frétta sem það birti um hana. Þar sagði meðal annars að hún hefði selt ævisögu sína til Daily M/rrror fyrir 22 milljónir króna og að hún hefði vitað um glæpi eiginmanns síns. Dómnum hef- ur verið afrýjað. Urskurði Hæstiéttur blaðið til að að greiða upphæðina, verður það að öllum likindum gjaldþrota en nú hefur verið sto&aður sjóður því til aðstoðar. Skaðbæturnar er þær hæstu sem einstaklingi hafa verið dæmdar í Bretlandi. Þær hafa vakið furðu margra og hefur ver- ið talað um skipulega atlögu að blaðinu. Ian Hislop ábyrðarmaður blaðsins segir þær tákna endalok Private Eye þar sem því sé ekki Ian Hislop, ritsfjóri Prí- vate Eye, sér fram á gjaldþrot blaðsins. Sonia Sutcliffe gengur úr rétt- arsalnum þar sem henni voru dæmdar skaðabætur upp á 54 milljónir króna. mögulegt að greiða svo háa ijár- hæð en aðstandendur blaðsins áttu von á að dómur hljóðaði í mesta lagi upp á tvær milljónir króna. Þá hafa nokkrir aðstandendur fórnarlamba morðingjans, sem urðu alls þrettán, lýst undrun sinni á hinni háu kröfu, svo og faðir morðingjans. Frú Sutcliffe, sem dómarinn lýsti sem vel menntaðri, gáfaðri og úrræða- góðri konu, neitaði öllum ásökun- um sem tímaritið bar á hana og sagði að með skrifum sínum hefði það reynt að sverta mannorð sitt í augum kviðdómsins og að ásókn ijölmiðla hefði verið yfirþyrmandi. Siðanefiid blaðamanna: Flóknari o g tíma- fi^ekari mál NÚ LIGGJA fyrir tvær kærur hjá siðanefnd Blaðamannafélags íslands. Prófessor Bjarni Sig- urðsson formaður nefndarinnar segir að kærum til hennar hafi fjölgað nokkuð á undanfórnum árum. Bjarni sagði að þótt síðustu misserin hefðu aðeins íjórar kærur komið fyrir nefndina væri því ekki að leyna að kærum færi fjölgandi og starf nefndarinnar væri orðið viðameira en á fyrri tíð, en nefndin tók til starfa um miðjan sjöunda ártuginn. Fjöldi kvartana til nefndarinnar gæti farið yfír tug- inn á ári hveiju. Bjarni taldi ekki að íslenskir blaðamenn væru illvígari nú en fyrr á árum, en þjóðfélagið væri marg- brotnara en áður var. Samhliða því hefur öll umræða orðið opnari og þar að auki miklu meiri að vöxtum og umfangi. „Þá er hætt við að einhveijum þyki nærri sér höggvið." 011 kæruefni kreflast ítarlegrar umfjöllunar og á síðari tímum væru sum mál margþættari en gerðist á fyrstu árum nefndarinnar og að sama skapi tímafrek. Bjarni var ekki á því að menn væru viðkvæmari í seinni tíð, en þeir vildu að öllu réttlæti væri full- nægt. Siðanefndin væru nú orðin þekktari en áður var. Síðustu árin hafa úrskurðir nefndarinnar um alvarleg eða mjög alvarleg brot verið birtir í hinum brotlega fjöl- miðli, en áður var látið nægja að birta þá í félagstíðindum Blaða- mannafélagsins. Kærur og kvartanir til nefndar- innar væru nú taldar hafa meira fréttagildi. Til dæmis fékk kæra landbúnaðarráðuneytisins vegna skrifa DV um íslenskan landbúnað nokkra umfjöllun fjölmiðla áður en hún kom í hendur nefndarinnar. Aðspurður sagði Bjarni að það kæmi fyrir að nefndarmenn fréttu fyrst af kæru til nefndarinnar í fjöl- miðlum. FURÐUHEIMAR FJÖLMIÐLANNA (Hrörnunarmerkjadeild) Myndin gæti hugsanlega heitið „The Assassination“ eða annað í þessum dúr. Jafiivel „The Invador". Myndin var tekin með Alain Delon sem aðalleikara í karlhlutverki en man ekki fleiri nöfii á leikurum. Myndin gerðist í Frakklandi og í Iran og e.t.v. víðar___ - DV FLUG OG BILL VERÐ FRÁ KR. 25.800 (Verð m.v. bíl i c flokki í 2 vikurjg ^ MANN 2 fullorðna og 2 börn 2-f I óra) íbúð í viku frá kr. 12.600 WALCHSEE VERÐ FRÁ KR. 35.050 ÁMANN SALZBURG er ein fallegasta borg Evrópu með glæsilegum byggingum, leikhúsum, tónleikasölum, fjölmörgum kaffihúsum, veitingahúsum, ölkjöllurum og stórgóðum skemmtistöðum. Til Salzburg er flogið í beinu áætlunarflugi og gefst farþegum Urvals kostur á ýmsum gerðum hótela, bílaleigubíla auk dvalar á hinum vinsæla sumardvalarstað WALCHSEE í WALCHSEE er Úrval með aðalbækistöð sína í Austurríki. Þaðan skipuleggja fararstjórar Úrvals, þau Ingunn og Rudi, vikulega dagskrá með skoðun- arferðum, íþróttum, leikjum og grillveislum. Þeir farþegar, sem kjósa frekar að dvelja í ZELL AM SEE, geta líka tekið þátt í flestu því sem Ingunn og Rudi skipuleggja ÍWALCHSEE. Tekið er á móti farþegum á flugvellinum í Salzburg og þeir aðstoðaðir við að fá afgreiðslu á bílaleigubílum o.fl. Einnig er boðið upp á rútuferð frá flugvelli og til WALCHSEE við komu og brottför. Innifalið: Flug, flutningurtil ogfrá flugvelli í Salzburg, gisting í íbúð með einu svefnherbergi í tvær vikur og íslensk fararstjórn. (Verð m.v. staðgreiðslu og 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára). FíRÐASKRIFSTOFAN URVAl - fólk sem kann sill fag! FARKBRTQg Póslhússtrœti 13 - Sími 26900 FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.