Morgunblaðið - 12.08.1989, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1989
Norræni gárfestingabankinn:
Landsvirkjun fær 2,4
milljarða króna lán
LÁNSSAMNINGUR milli Landsvirkjunar og Norræna Qárfestinga-
bankans var nýlega undirritaður í Helsingfors vegna láns til Lands-
virkjunar að fjárhæð 40 milljónir Bandaríkjadollara eða uni 2.400
milljónir íslenskra króna á núverandi gengi. Lán þetta er hið
stærsta sem Norræni fjárfestingabankinn hefur veitt íslenskum
aðila firá upphafi. Verður lánsfénu að hálfu varið til Qármögnunar
framkvæmda Landsvirkjunar við Blönduvirkjun og að hálfii til að
greiða upp eldri lán með óhagstæðari kjörum.
hæðimar hafa farið
kvæmda í orkumálum.
til fram-
Lánveitingar bankans til íslands
á árunum 1988-89 nema nú, að
meðtöldu þessu láni, samtals um
11,5 milljörðum íslenskra króna á
núverandi gengi.
Lánið er til 15 ára og endur-
greiðist með jöfnum hálfsárslegum
afborgunum að liðnum fyrstu árum
lánstímans. Vextir eru breytilegir
6 mánaða millibankavextir í Lon-
don (,,Libor“) að viðbættu vaxtaá-
lagi sem fyrstu 10 árin nemur 0,1%
p.a. Með álaginu eru vextir þessir
í dag 8,7% p.a., segir í fréttatil-
kynningu.
Af hálfu Landsvirkjunar var
lánssamningurinn undirritaður af
Halldóri Jónatanssyni, forstjóra
VEÐUR
Landsvirkjunar, og af hálfu Norr-
æna fjárfestingabankans af Jannik
Lindbæk bankastjóra og Þórhalli
Ásgeirssyni, fyrrverandi ráðuneyt-
isstjóra sem sæti á í stjóm bank-
ans.
Að undanfömu hefur Norræni
fjárfestingabankinn, sem hefur
aðsetur í Helsingfors í Finnlandi,
fjármagnað allmargar fram-
kvæmdir á íslandi. Stærstu upp-
Undirritun lánssamnings Landsvirkjunar og Norræna fjárfestinga-
bankans. Talið fi-á vinstri: Jannik Lindbæk, bankastjóri Norræna
fjárfestingabankans, Halldór Jónatansson forsljóri Landsvirkjunar
og Þórhallur Ásgeirsson, sfjómarmaður í bankanum.
Flugkappar óvelkomn-
ir í danska flughelgi
DÖNSK flugmálayfirvöld hafa
tilkynnt Loftferðaeftirlitinu hér
á landi að tveir flugkappar, sem
VEÐURHORFUR I DAG, 12. AGUST
YFIRLIT í GÆR: Milli íslands og Færeyja var 973 mb lægð, sem
þokast vestur og síðar suðvestur. Yfir norðaustúr Grænlandi er
1018 mb hæð. Hiti breytist fremur lítið.
SPÁ: Norðaustanstrekkingur víðast hvar á landinu. Víðast súld eða
rigning á Norður- og Austurlandi en annars þurrt. Hiti 5-15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðaustanátt um mest
allt land. Súld eða rigning með köflum á Noröur- og Austurlandi,
en víðast úrkomulaust á Suður- og Vesturlandi. Hití á bilinu 7-15
stig.
a Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er2vindstig.
r r t
r r r r Rigning
r r r.
* / *
r * r * Slydda
r * r
# # #
# * * * Snjókoma
* # *
■J0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
V Él
•> •>
>
Þoka
Þokumóöa
Súld
OO Mistur
—J. Skafrenningur
Þrumuveður
* ^ ðri flK?
C i s w
> ¥ 4
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 10 rigning
Reykjavík 14 skýjað
Bergen 14 rign. á síð.klst.
Helsinki 21 skýjað
Kaupmannah. 19 þokumóða
Narssarssuaq 7 alskýjað
Nuuk 6 skýjað
Osló 17 skýjað
Stokkhólmur 20 þokumóða
Þórshöfn 11 alskýjað
Algarve 27 alskýjað
Amsterdam 17 rign. á sið. klst.
Barcelona 27 hálfskýjað
Berlín 28 léttskýjað
Chicago 16 þokumóða
Feneyjar 19 rigning
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 17 skúr á síð. klst.
Hamborg 24 skýjað
Las Palmas 27 léttskýjað
London 22 skúr á síð. klst.
Los Angeles 18 þokumóða
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd 32 iéttskýjað
Malaga 32 heiðskirt
Mailorca 33 léttskýjað
Montreal 19 alskýjað
New York 16 rigning
Orlando 22 þokumóða
París 21 skýjað
Róm 27 skýjað
Vin 25 skýjað
Washington 19 súld á síð. klst.
Winnipeg vantar
staddir em hér á landi, séu óvel-
komnir inn i danska flughelgi.
Þar með geta þeir hvorki lent i
Færeyjum eða á Grænlandi, eins
og ætlun þeirra var.
Hollendingurinn Eppo Numan
kom til íslands frá Færeyjum fyrir
síðustu helgi. Héðan ætlaði hann á
vélknúnum svifdreka sínum til
Kulusuk á Grænlandi, en hafði iáðst
að sækja um flugleyfi áður en hann
lenti í Færeyjum.
André-Georges Lafitte frá Dijon
í Frakklandi lenti í Reykjavík í
fyrrakvöld á svokölluðu físi, sem
er smávél af gerðinni Aviasud
Mistral. Lafitte var einnig stöðvað-
ur vegna skeytis, sem Loftferðaeft-
irlitinu barst frá dönskum flugmála-
yfírvöldum í gær. Hann hafði sótt
um leyfí og fengið það að uppfyllt-
um ýmsum skilyrðum. Dönsk flug-
málayfirvöld kröfðust þess m.a. að
fylgdarvél yrði með Lafítte í för-
inni, en hann hafði ekki orðið við
því. Lafitte fór frá Frakklandi til
Blackpool á Englandi á vél sinni,
síðan til Edinborgar og þaðan til
Kirkjuvogs á Orkneyjum. Þaðan fór
hann til Islands. Héðan var förinni
heitið til Narssarsuak á Grænlandi
og sem leið liggur til Kanada.
Björn Bjömsson, starfsmaður
Loftferðaeftirlitsins, sagði að flug-
mennimir tveir gætu lítið annað
gert en að pakka farskjótum sínum
saman og senda heim með skipi.
Þeir kæmust ekki til sinna heima
á vélunum án þess að fljúga í
danska flughelgi.
Morgunblaðið/Pétur Johnson
Frakkinn André-Georges Lafitte med vél sína á Reykjavíkurflugvelli
í gær.
Sprengingin í skemmtibátnum Gusti:
Eigandi bátsins úrskurð-
aður í gæsluvarðhaldi
Grunur um tryggingasvik
EIGANDI skemmtibátsins Gusts á ísafirði hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 25. þessa mánaðar. Sprenging varð í bátnum
er honum var siglt frá ísafirði til Reykjavíkur í lok síðasta mánað-
ar. Við rannsókn á bátnum kom í ljós að ekki var allt með felldu
hvað sprenginguna varðar og var krafist gæsluvarðhalds yfír eig-
anda bátsins vegna gruns um tryggingasvik af hans hálfu.
Tildrög málsins em þau að eig-
andi bátsins, við annan mann, ætl-
uðu að sigla bátnum suður til
Reykjavíkur til að sýna hann þar
væntanlegum kaupendum. Þeir
höfðu viðkomu á Ólafsvík á leiðinni
og gistu þar eina nótt. Segir ekki
af ferðum þeirra fyrr en seint dag-
inn eftir að þeir koma á lögreglu-
stöðina á Ólafsvík, 30 júlí, og segja
að sprenging hafí orðið um borð
er báturinn var staddur undan Önd-
verðamesi.
í fyrstu var ætlunin að hafa sjó-
próf í þessu máli en báturinn var
fluttur suður til Reykjavíkur. Þar
fékk lögreglan á ísafirði Rannsókn-
arlögregluna í lið með sér við að
kanna skemmdir á bátnum. Eftir
þá könnun var ákveðið að hætta
við sjópróf og setja af stað lögregl-
urannsókn í staðinn.
Bæði eigandinn og sá sem sigldi
bátnum með honum voru hand-
teknir en þeim síðamefnda sleppt
eftir að hann hafði dvalið sólarhring
í fangelsi. Hinsvegar var eigandinn
hepptur í gæsluvarðhald eins og
fyrr greinir.