Morgunblaðið - 12.08.1989, Síða 10
MORQUNBLAÐIÐ. ILAUGARDAGUR' 12. ÁGÚST 1980
kh
" EFNILEGUR
GÍTARLEIKARI
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Gítarinn er hljóðlátt hljóðfæri
og sama má segja um tónleikaröð
sem haldin var á Kjarvalsstöðum
nú í sumar, því undirritaður missti
af fyrstu tónleikunum en á þeim
léku Símon H. ívarsson og Hinrik
D. Bjarnason. Síðustu tónieikamir
voru haldnir á fimmtudaginn
síðasta og þar lék Kristinn H.
Árnason verk eftir S.L. Weiss,
H. Villa-Lobos, J. Turina og A.B.
Mangore.
Kristinn hélt sína fyrstu tón-
leika í Langholtskirkju fyrir ári
eða svo en hyggur á framhalds-
nám hjá José Tomas á Spáni.
Hann er sérlega efnilegur gítar-
leikari og var leikur hans nú í
alla staði frábær. Kristinn hefur
náð valdi á einstakiega fallegri
og mjúkri tónun, aflað sér mikillar
tæknikunnáttu og það sem mest
er um vert, snertir við þeim
fíngerðu tilfinningablæbrigðum
sem eru sjaldfundin í skarkala-
glamri nútímans, en eru innviðir
sjálfrar fegurðarinnar.
Takist Kristni að vinna úr góðri
kunnáttu sinni og varðveita sitt
hljóðláta listfengi, þar sem þó er
Kristinn H. Árnason gítarleikari.
ofið saman í einn streng djúpstæð-
um átökum og fíngerðum tilfinn-
ingum, getur hann orðið gítarleik-
ari af stóru gerðinni. Listfengi er
ásköpuð náttúra en kunnáttan
áun_nin og svo virðist sem Kristinn
H. Ámason gítarleikari hafi þegið
þær stóm gjafir úr hendi lista-
gyðjanna, er munu vísa honum
torsótta leiðina upp til heimkynna
þeirra, en þar leikur þolraun
tímans stórt og kröfuhart hlut-
verk, sem ekki verður undan kom-
ist að takast á við, til að skapa
sér sögu sem listamaður.
Eitt verka Höskuldar Björnssonar.
Sýning á verkum Hösk-
uldar Bjömssonar í Eden
ÆTTINGJAR Höskuldar Björns-
sonar listmálara halda sýningu á
verkum hans í Eden í Hvera-
gerði til 20. ágúst.
Höskuldur var einna þekktastur
fyrir fuglamyndir sínar. Á sýning-
unni eru 28 verk, olíumálverk,
vatnslitamyndir og teikningar, sem
öll era til sölu. Síðast var haldin
yfirlitssýning á verkum Höskuldar
á Kjarvalsstöðum árið 1982.
Höskuldur bjó í Hveragerði frá
1946. Hann átti við vanheilsu að
stríða síðustu ár ævi sinnar og lést
1963 þá 56 ,ára gamall.
91^70 LÁRUS Þ• VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I I 3U ■ L I 0 / y KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. lögg. fasteignas.
Til sölu er að koma m.a. eigna:
í fjórbýlishúsi í Heimunum
stór og góð 3ja herb. íb. á jarðh. 99,3 fm. Allt sér (inng., hiti, þvottah.)
ib. er öll nýendurbyggð. Ræktuð lóð. Nýhlaðin sólverönd.
Skammt frá Melaskólanum
neðri sérhæð 4ra herb. í þríbhósi 98,5 fm nettó auk geymslu í kj. og
sameignar. Vel skipulögð. Laus fljótl. Trjágarður.
Skammt frá Glæsibæ
mjög stór 4ra herb. íb. á 4, hæð við Álfheima 114,4 fm nettó. Sólsval-
ir. Góðir skápar. Mikið útsýni. Skuldlaus. Hentar m.a. þeim sem hafa
lánsloforð.
Fyrir hina vandlátu
3ja og 4ra herb. stórar og góðar íb. í byggingu við Grafarvog. Afh.
með frág. sameign, fullb. u. trév. í byrjun næsta árs. Sérþvottah. og
bílsk. fylgir hverri íb. Byggjandi Húni sf. Hagkvæm greiðslukjör.
Hentar smið eða laghentum
Höfum á skrá nokkrar eignir sem þarfnast endurþóta og viðgerðar.
Nánari uppl. aðeins á skrifst.
Til kaups eða leigu
Fjárst. kaupandi nýkominn til landsins óskar eftir verslhúsn. 50-150
fm á 1. hæð á góðum stað í borginni. Rétt eign verður borguð út.
Nánari uppl. trúnaðarmál.
Opið ídag laugardag
kl. 10.00-15.00. ______________________________
Fjöldi fjársterkra kaupenda. FASTEI GNASAl AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ALMENNA
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 499. þáttur
Pétur Þorsteinsson í Minnea-
polis skrifar mér mikið bréf, og
er þetta upphaf að:
„Kæri Gísli.
Hingað út barst mér 489.
þáttur þinn um íslenzkt mál í
Mogganum frá 3. júní sl. Reyni
ég ævinlega að lesa þá, þegar
ég kemst yfir blaðið, og þakka
ég þér hér með fyrir þessa
þætti. Ekki veitir af að hafa
þess háttar í blöðunum og öðrum
fjölmiðlum.
í þessum þætti, þá fjallar þú
um mannanöfn og nafngiftir.
Þar — því miður — talar þú um
að skíra einu nafni eða tveimur,
„6 skírðar þessu nafni“ o.s.frv.
Þú ert ekki einn um það. Valdi-
mar Gunnarsson, Erlingur Sig-
urðarson, Sigurður Tómasson
og nú síðast Baldur Sigurðsson
— allir umsjónarmenn þáttanna
um daglegt mál í Ríkisútvarp-
inu/hljóðvarpi — þessir framan-
taldir gerðust einnig sekir um
slíkt og þó eru það allt ágætis
íslenzkumenn allir saman ...
Sögnin „að skíra“ merkir fyrst
og fremst að afdjöfla viðkom-
andi í þessari ákveðnu at-
höfn . . .“
Síðan útskýrir bréfritari sjón-
armið sín í löngu máli og vill
halda sögninni að skira í hreins-
unarmerkingunni: „Um að gera
að nota það [orðið að skíra] sem
víðast, bara alls staðar nema
þegar verið er að gefa nafn,
hvort sem það er skip, flugvél,
hross eða bara lítið barn,“ segir
Pétur Þorsteinsson í Minneapolis
og biður mig að taka þetta efni
fyrir og kveður með virktum.
Ég þakka Pétri fyrir vinsam-
leg orð og fyrir að bijótast í því
að skrifa mér um langan veg.
Um trúarlega þáttinn í máli
hans fjalla ég auðvitað ekki.
Hitt verð ég að segja, að ég finn
til engrar sektar, þótt ég noti
sögnina að skíra í merkingunni
að gefa nafn. Vissulega merkti
hún að hreinsa, sbr. heiðskír,
skíra guli, skína, skíma, skima
og skær, svo fátt eitt sé talið
skyldustu orða.
En í öllum orðabókum, sem
mér eru tiltækar, bæði um fornt
mál og nýtt, er skíra einnig
gefin í merkingunni: gefa nafn,
d. döbe. Fyrir því sé ég enga
ástæðu til að breyta aldagamalli
hefð. Ég tel rétt að menn skíri
börn sín þessu eða hinu nafni
og geri ráð fyrir að slík athöfn
sé ætíð framin af góðu hugar-
fari.
Um sögnina að afdjöfla er
það hins vegar að segja, að ég
þekki hana aðeins í merkingunni
að ferma (konfirmera). Hún var
notuð í minni sveit í óvirðulegum
og hlýjulausum tón, og ekki
báru sér allir hana í munn. Ég
setti hana í samband við spurn-
ingu sem lögð var fyrir mig við
ferminguna og hófst á orðunum:
„Afneitar þú djöflinum?“ Það
voru helst menn sem létu sér
ekki allt fyrir brjósti brenna eða
þóttust vera „kaldir kallar", sem
sögðu við nýfermda stráka
(naumast við stelpur): Er nú
búið að afdjöfla þig?
Niðurstaða: Ég fellst ekki á
sjónarmið Péturs Þorsteinssonar
né annarra þeirra sem amast við
sögninni að skíra í merkingunni
að gefa nafn.
★
Hlymrekur handan kvað:
Mér er sama um bramlið í boxfósum
eins og blaktandi hélog af koksljósum
eða analfabeta.
Best kann ég að meta
afburði sr. Eggerts í Vogsósum.
★
1) „Gæði svínakjöts hafa tek-
ið miklum framförum", sagði í
fréttatilkynningu (Mbl. 22. júlí).
Þetta er gott dæmi um sókn
nafnorðastílsins á mál okkar, að
enskri fyrirmynd. Þar á ofan
taka gæði ekki framförum. Þau
eru góð í sjálfum sér. Á sæmi-
legu mannamáli mætti segja:
Svínakjöt(ið) hefur batnað mjög
(til mikilla muna, að miklum
mun) eða: svínakjöt(ið) er nú
miklu betra en áður.
Hitt má sá eiga, sem samdi
fréttatilkynninguna, að hann
hefur ekki gleymt orðinu fram-
för. Hvað eftir annað hefur
heyrst talað um „bætingar"
íþróttamanna í staðinn fyrir
framfarir eða framför. Við
skulum láta bætingarnar duga
á netin, en vonandi fer íþrótta-
mönnum og öðrum fram. Von-
andi verður framför þeirra sem
mest (eða framfarir mestar).
2) „ ... hversu mikinn bjór
þeir hugðust neyta“, heyrðist í
sjónvarpsfréttum. Sögnin að
neyta (orsakarsögn af njóta)
stýrir eignarfalli eins og móður-
sögnin. Því hefðu menn átt að
hugleiða hversu mikils bjórs
þeir ætluðu að neyta. Nota stýr-
ir hins vegar þolfalli. Margir
notuðu mikið tóbak.
3) Menn bíða hnekki og bíða
tjón og bíða skaða, en menn
„bera (ekki) verulegan hnekki“,
eins og heyra mátti í sömu sjón-
varpsfréttum. Hins vegar geta
menn borið þess merki eða
menjar að hafa orðið fyrir slys-
um og tjóni.
★
Þegar Matthías Jochumsson
var prestur orðinn sendi hann
Eggert O. Brím stud.theol. svo-
hljóðandi boð í kvelddrykkju
síðasta vetrardag (25. apríl
1867):
Sumarröðull signir fjallatinda,
sit því hjá mér stund til málamynda
og kneyfðu úr einni kollu,
minn kæri vinur Brím,
svo glöðu geði og hollu
við gamalt þíðum hrím.
Kæri minn,
klukkan átta, mundu!
Mælir þinn,
meður hýrri lundu,
Mattaskinn.
Auk þess leggur H.S. til að í
staðinn fyrir orðahröngiið „við í
hönd farandi kosningar“ verði
sagt annaðhvort: í komandi
kosningum eða í næstu kosn-
ingnm.
I síðasta þætti misprentaðist
á einum stað „svif“ fyrir svifa
(kvk.). Beðist er afsökunar á
þessu.
Mikið samstarf á meðal nor-
rænu jafiiaðarmannaflokkanna
Morgunblaðiö/BAR
Framkvæmdasljórar jafnaðarmannaflokka Norðurlanda fiinduðu á
Hótel Sögu sl. mánudag. Frá vinstri eru: Hans Jörgensen frá Færeyj-
um, Guðmundur Einarsson fyrrverandi framkvæmdasljóri Alþýðu-
flokksins, Christer Ahlén framkvæmdastjóri samstarfsnefndar norr-
ænu jafnaðarmannaflokkanna, SAMAK, Ulpu Iivari frá Finnlandi,
Juhku Elo ritari utanríkismálanefhdar finnska jafhaðarmannaflokks-
ins og Bo Toreson frá Svíþjóð. Á myndina vantar Steen Christensen
frá Danmörku og Torbjörn Jagland frá Noregi.
- segir Guðmund-
ur Einarsson
Framkvæmdastjórafundur norr-
ænu jafharðarmannaflokkanna
var haldinn í Reykjavík sl. mánu-
dag. Mikið samstarf er á meðal
jafhaðarmannaflokka á Norður-
löndum og fara slíkir fundir fram
þrisvar til fjórum sinnum á ári,
að sögn Guðmundar Einarsson-
ar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Alþýðuflokksins. Síðast
var fundað í Reykjavík fyrir fímm
árum. Af og til sitja fundina full-
trúar jafhaðarmannaflokka á
Grænlandi og Álandseyjum.
Að sögn Guðmundar gefa menn
svokallaðar Iandskýrslur í upphafi
funda. „Menn skýra frá gangi
stjórnmála hver í sínu landi og segja
frá helstu máiaflokkum. Samstarfs-
nefnd norrænu jafnaðarmanna-
flokkanna, SAMAK, stendur fyrir
tveimur fundum á næstunni og var
undirbúningur þeirra ræddur. í
haust er ráðgerður formannafundur
j'ifnaðarmannaflokkanna í Osló og
í janúar er á dagskrá fundur form-
anna flokkanna og forsvarsmanna
verkalýðshreyfinga. Þá skipuleggur
SAMAK fundi um ákveðin afmörk-
uð umræðuefni. Á næsta ári er
ætlunin að halda fund um vanda-
mál stórborga sem farin eru að
setja svip sinn á borgir Norðurlanda
jafnt sem annars staðar. Hin seinni
ár hefur umræða um Evrópusam-
starf aukist til muna, þ.e. sam-
skipti við jafnaðarmannaflokka í
Evrópubandalaginu sem þegar eru
orðin töluverð," sagði Guðmundur.
Á þriðjudaginn var farið með
gestina í skoðunarferð um Hafnar-
fjörð og Reykjanes. Farið var í bað
í Bláa lóninu og gengið að Reykja-
nesvita. Að því búnu buðu hjónin
Karl Steinar Guðnason og Þórdís
Þormóðsdóttir til hádegisverðar í
Keflavík. Næsti fundur fram-
kvæmdastjóranna fer fram í tengsl-
um við formannafundinn í Osló í
október nk.