Morgunblaðið - 12.08.1989, Síða 13
tekur ekki herzlu. Með auknu köl-
efnisinnihaldi verður jámið stinnara
og herðist,' ef það er kælt snögg-
lega. Þegar kolefnisinnihald er und-
ir 0,4% er herzla gagnslaus.
Kynni afjárnvinnslu í
Svíþjóð
Á síðari hluta sjötta áratugarins
var haldið málmfræðslunámskeið í
Borlánge í Svíþjóð. Þá var komið á
það fyrirkomulag, sem enn er við
lýði í Iðnskólanum í Reykjavík, að
kennarar greiðaí utanfararsjóð og
njóta þess framlags síðan á náms-
ferðum, sem hafa viðgengist lengi
við Iðnskólann. Hafa margir kenn-
arar átt kóst á námsferðum fyrir
tilstilli sjóðsins. Stjórn hans skipa
á hveijum tíma formaður kennara-
félagsins, formaður stjórnar
skólans og skólastjóri/skólameist-
ari. Mjög er kennurum nauðsynlegt
að fara utan, aðallega á sumrum,
til þátttöku í námskeiðum þar sem
veitt er fræðsla á viðkomandi sviði.
Þannig fengum við tveir kennarar
í vélgreinum tækifæri til að komast
á umrætt málmnámskeið í Bor-
lánge, sem er þýðingarmikill námu-
bær í Dölunum (Dalarna) í Mið-
Svíþjóð, þar sem aðallega er unninn
járnmálmur en einnig kopar og eir.
Málmvinnslan er þarna * á stóru
svæði, og fer hún fram ýmist ofan
jarðar eða í djúpum námum, sem
grafnar eru allt niður á 1.000
metra, og kvísluðust þá göngin í
ýmsar áttir.
Frá Iðnskólanum í Reykjavík fór
auk mín Sigurður Kristjánsson yfir-
kennari og tæknifræðingur, og
þriðji maður var Árni Árnason
tæknifræðingur, þá forstjóri vél-
smiðjunnar Odda á Akureyri. Vel
var tekið á móti okkur í Borlánge.
Á fyrsta mánudegi eftir komu okk-
ar þangað hófst kennslan. Þarna
voru tæknimenntaðir menn frá öll-
um Norðurlöndum. Stjórnandi nám-
skeiðsins og jafnframt kennari var
Gösta Karlson verkfræðingur, sér-
menntaður í málmfræðigreinum.
Fyrsta kennsludaginn sagði
Karlson í stórum dráttum frá því,
hversu mikilvægur málmgröfturinn
væri fyrir sænskt efnahagslíf. Mik-
ið öryggi væri fengið með því að
vita.málminn í jörðu, en málmlögin
lægju hallandi í jarðskorpunni, og
væri þykkt þeirra venjulega sú
sama á löngu svæði. Þannig væri
tiltölulega auðvelt að reikna út járn-
magnið, þegar lengd og breidd járn-
laganna væri fengin, þar sem báðir
endar eru mjög svipaðir að þykkt.
Járnmálmurinn er með misjöfnu
járninnihaldi, frá 30-37% Fe. Þykir
það gott nú til dags.
Eins og skilja má af ofansögðu
þarf að setja kalkstein í blönduna,
þegar málmurinn hefur verið mul-
inn í hæfilegar kornstærðir. Síðan
er notað koks, sem mettar málminn
kolefni. Þar er misjafnlega mikið
innihald, og þarf að fylgjast vel
með ástandi málmsins á mismun-
andi hitastigum.
Að námskeiðinu loknu urðum við
íslendingamir á einu máli um að
ferðin hefði lánast með afbrigðum
vel og við orðið fróðari um járn-
vinnslu og raunar blöndun á margs-
konar málmum.
Efltirmáli
. Oft hefur verið á það bent, að
aðalatvinnuvegir okkar, fiskveiðar
og landbúnaður, eru ekki þess
megnugir að taka við allri þeirri
mannfjölgun, sem kemur á vinnu-
markaðinn næstu árin. Því er gott
til þess að vita að nú skuli vera
farið að tala í alvöru um nýja járn-
bræðsluverksmiðju hérá landi, sem
fær það verkefni að nýta sem mest
af því járni, sem til fellur í úreltum
bifreiðum og vinnuvélum, sem
hrannast upp hvarvetna um landið,
og um ýmsar fleiri járnvörur gegn-
ir sama máli. Slík bræðsluverk-
smiðja verður þess væntanlega
megnug að uppfylla þær vonir, sem
til hennar verða gerðar, bæði að
því er varðar arðsemi og þrifnað,
svo að hún geti orðið styrkur hlekk-
ur í þeirri keðju, sem tengir iðnað-
inn heilbrigðum verksmiðjurekstri.
Höfundur er tæknifræðingur.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1989
TEKJU SK ATTINN
VERÐUR AÐ LÆKKA
eftir Halldór Blöndal
Skattbyrði hefur þyngst svo á
þessu ári, að ég hef ekki tölur um,
að hún hafi í annan tíma verið
meiri. Þó fer fjármálaráðherra ekki
dult með, að hann telji nauðsynlegt
að þyngja skattana enn. Það rétt-
lætir hann með því, að til séu í
veröldinni dæmi um þjóðir, sem
verða að bera enn þyngri skatt-
byrði en við og vill taka þær sér
til fyrirmyndar. Vitaskuld vegna
þess, að hann treystir sér ekki til
að draga úr rekstrarkostnaði ríkis-
sjóðs og hefur ekki þrek til að
stöðva frekari útþenslu ríkisbákns-
ins.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar voru heildarskattar
eftirfarandi hundraðshluti af vergri
landsframleiðslu:
Árið 1986 29,4%
Árið 1987 29,5
Árið 1988 31,9%
Árið 1989 33,2%
Þessi þróun er ískyggileg. Sér-
staklega þó vegna þess, að þrátt
fyrir þyngingu skattbyrðarinnar
má búast við um 5 milljarða halla
á ríkissjóði á þessu ári. Loks hefur
ríkisstjórnin boðað frekari skatta-
hækkanir á næsta ári.
Hundraðshluti beinna skatta til
ríkisins hefur verið þessi af tekjum
einstaklinga:
Árið 1986 4,5%
Árið 1987 3,3%
Árið 1988 4,6%
Árið 1989 5,5%
Eins og tölurnar sýna hefur
skattbyrði beinna skatta til ríkisins
þyngst um 66,67% frá 1987, þegar
Halldór Blöndal
„Staðgreiðslu tekju-
skatts fylgja margvís-
legir kostir. En líka
ókostir. Sá versti er, að
staðgreiðsla dregur úr
vinnugleði og sjálfs-
bjargarviðleitni, ef
skatthlutfallið er of
hátt. Nú er það komið
upp í 37,74%. Þegar
þess er gætt, að mikilli
vinnu fylgja oftast auk-
in útgjöld og margvís-
legt óhagræði, er fljót-
legt að sjá, að þetta
skatthlutfall er of hátt.“
hún var að vísu óvenju létt. Frá
síðasta ári hefur skattbyrðin þyngst
um 19,56% og raunar enn meir, ef
tillit er tekið til þess, að kaup-
máttur hefur farið minnkandi á
þessu tímabili.
Staðgreiðslu tekjuskatts fylgja
margvíslegir kostir. En líka ókostir.
Sá versti er, að staðgreiðsla dregur
úr vinnugleði og sjálfsbjargarvið-
leitni, ef skatthlutfallið er of hátt.
Nú er það komið upp í 37,74%.
Þegar þess er gætt, að mikilli vinnu
fylgja oftast aukin útgjöld og
margvíslegt óhagræði, er fljótlegt
að sjá, að þetta skatthlutfall er of
hátt. Mín skoðun er, að skatthlut-
fallið megi ekki fara yfir þriðjung
launa og sé þó nauðsynlegt að vext-
ir séu frádráttarbærir. Það er for-
senda þess, að sjálfseignarstefna
Sjálfstæðisflokksins haldi velli.
Haustið leggst illa í menn og
flestum þykir ríkisstjórnin ekki á
vetur setjandi. Fyrir því eru margar
ástæður og flestar veigamiklar. Ein
er sú, að ríkisstjórnin skilur ekki,
að sú efnahagsstefna gengur ekki
upp að setja ríkið ofar fyrirtækjun-
um og fólkinu í landinu. Þetta hef-
ur þegar valdið því, að stjórnendur
fyrirtækja halda að sér höndum.
Yfirvinna hefur dregist saman, yfir-
borganir eru ekki jafnmiklar og
áður og í sumum byggðarlögum er
ekki hægt að tala um sama atvinnu-
öryggi og áður.
Það er deyfð og drungi yfir þjóð-
félaginu, að ég ekki segi óhugur.
En með nýjum kosningum og nýrri
ríkisstjórn mun glaðna til.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Norðurland eystra.
TVÍ
HÁSKÓLANÁM í KERFISFRÆÐI
haustönn 1989
Markmið námsins er að útskrifa kerfisfræðinga sem geta unnið við öll stig hugbúnaðar-
gerðar, skipulagt og séð um tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og annast kennslu og þjálf-
un starfsfólks.
Hægt er að hefja nám í janúar og september. Stúdentar af hagfræðibraut ljúka námi
á þremur önnorn en'aðrir stúdentar geta þurft að sækja tíma í fornámi, sem er ein önn
til viðbótar. Áhersla er lögð á að fá til náms fólk, sem í dag starfar við tölvuvinnslu og
í tölvudeildum fyrirtækja, auk nýstúdenta. Sérstaklega skal bent á að þeir sem hafa
þriggja mánaða uppsagnarfrest í starfi þurfa að sækja nú þegar um innritun á vorönn.
Nemendur sem vilja halda áfram að vinna hluta úr degi, jafnframt námi, þurfa að ræða
við kennslustjóra um möguleika á því.
Eftirtaldar námsgreinar verda kenndar:
Fornám
Bókfærsla
Rekstrarhagfræði
Tölvufræði
Stærðfræði
Vélritun
Fyrsta önn
Forritun í Pascal
Kerfisgreining
og hönnun
Stýrikerfi
Vélamál
Forritahönnun
Verkefni
Önnur önn
Gluggakerfi
Gagnaskipan
AS/400
Gagnasafnsfræði
Forritun í Cobol
Málþing
Verkefni
Þriðja önn
Fyrirlestrar
um valin efni
Forritunarmál
Hugbúnaðargerð
Málþing
Lokaverkefni
Innritun á haustönn stendur yfir til 14. ágúst, en umsóknarfrestur fyrir
vorönn er til 18. september nk. IJmsóknareydublöd fást á skrifstofu Versl-
unarskólans, Ofanleiti 1. Kennslustjórinn verður til viðtals á skrifstofu
skólans tyrir hádegi á meðan innritun stendur yflr og í síma 688400.
13
+
Píanóbar
Dansstaður
Sœlherastaður
•
Dansað til
klukkan þrjú
í nótt.
m
Aldurstaktnark
25 ár
\ Hverfisgata W
\8—10, sími