Morgunblaðið - 12.08.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1989
17
---»4 c
Panama:
Bandaríkin beita Nor-
iega auknum þrýstingi
Panamaborg. Reuter.
BANDARÍSKIR hermenn voru í gær við æfingar við Fort Amador-
herstöðina í Panama sem Bandarikjamenn reka í samvinnu við stjórn-
völd þar í landi. Spenna í samskiptum ríkjanna hefur farið vaxandi
undanfarna daga en Bandaríkjamenn hafa allt frá því í febrúarmán-
uði freistað þess að fá Manuel Antonio Noriega, herstjóra í Panama
og voldugasta mann landsins, til að leggja niður völd.
Reuter
Fundu 2.500 kíló afkókaíni
Fíkniefiialögreglan i Mexíkó handtók fyrr í vikunni 13 menn sem
hafa nú ákærðir fyrir stórfellt eiturlyfjasmygl. Mennirnir voru
handteknir er lögreglumenn réðust til uppgöngu í bát einn sem
sigldi undir fána Panama. í bátnum fúndust 2.500 kíló af hreinu
kókaíni en verðmæti þess er talið vera um 200 milljónir Banda-
ríkjadala (um 12 milljarðar ísl. kr.). Myndin sýnir hluta eitursins
og 10 þeirra sem lögreglan klófesti.
Reuter
Leitað lækninga í Bandaríkjunum
Kirill Podorozdanov er tveggja ára gamall, sovéskur drengur og
þjáist af heilaæxli sem talið er að geti orðið honum að bana á
hverri stundu. Á myndinni sést hann í örmum ömmu sinnar,
Zonu Zdsnovskaju, á Kennedy-flugvelli í New York-borg en þang-
að var farið með Kiril til að láta skera hann upp á Montefiore-
sjúkrahúsinu.
Aðalskrifstofa Noriega hershöfð-
ingja er í Fort Amador en blaða-
menn sem fylgdust með æfingunum
töldu allt að 1.000 hermenn hafa
tekið þátt í þeim auk þess sem
þyrlum og brynvörnum liðsflutn-
ingavögnum var ekið um í nágrenni
herstöðvarinnar.
Noriega var ákærður fyrir smygl
og eiturlyfadreifingu í Bandaríkjun-
um fyrr á þessu ári og tóku stjórn-
völd vestra þá þegar að þrýsta á
hann um að hverfa frá völdum.
Umsvif herafla Bandaríkjamanna í
landinu hafa aukist til muna frá
því í maí er Noriega og nánustu
undirsátar hans ógiltu úrslit þing-
kosninga sem fram fóru í landinu.
George Bush Bandaríkjaforseti
lét að því liggja í viðtali á miðviku-
dag að Noriega yrði hugsanlega
handtekinn og dreginn fyrir dóm í
Bandaríkjunum. Kvaðst forsetinn
hafa svarið þess dýran eið að virða
lögin í hvívetna er hann varð for-
seti Bandaríkja.nna en • í eiðnum
væri þess hvergi getið hvaða að-
ferðum bæri að beita til að koma
eftirlýstum glæpamönnum í hendur
réttvísinnar.
Um 3000 andstæðingar herstjór-
Ítalía:
Mannræningj um
greitt lausnargjald
Siderno á Ítalíu. Reuter.
ITALSKIR mannræningjar létu í gær lausan 69 ára gamlan lögfræð-
ing sem þeir höfðu haft á valdi sínu í tæpa sjö mánuði. Áður höfðu
ættmenni lögfræðingsins greitt ræningjunum 500 milljónir líra (tæp-
ar 22 milljónir ísl. kr. ) í lausnargjald.
Að -sögn lögregiu var lögfræð-. kvöld, 500 milljónir líra. Hefðu pen-
ingarnir verið afhentir glæpamönn-
unum á mjög afskekktum stað
skammt frá þorpinu Ardore en þar
var lögfræðingnum rænt þann 17.
febrúar sl.
Lögregluyfirvöld telja að mann-
ræningjar hafi a.m.k. fjóra menn á
valdi sínu í Aspromonte-héraði. Það
er fjalllent og erfitt yfirferðar og
því kjörinn griðastaður fyrir útlaga
og hvers kyns glæpalýð.
ingnum, Nicola Campisi, sleppt í
hijóstrugu héraði er Aspromonte
nefnist og er á suðurodda Ítalíu.
Campisi var sagður við ágæta heilsu
en annar fótur hans var bólginn
enda höfðu illmennin haldið honum
í hlekkjum.
Dóttir Nicola Campisi skýrði
Reuíers-fréttastofunni frá því að
Ijölskylda hans hefði greitt ræningj-
um lausnargjald á fimmtudags-
ans fóru í göngu um Panamaborg
á fimmtudagskvöld til að minnast
Arnulfo Arias, fyrrum forseta Pa-
nama. Arias lést fyrir réttu ári í
útlegð í Miami í Bandaríkjunum.
Hann var þrívegis forseti landsins
en herafli landsins kom honum jafn-
oft frá völdum. Fólkið hrópaði slag-
orð gegn Noriega og stjórn hans
en þetta er í fyrsta skipti frá því í
maímánuði sem stjórnarandstæð-
ingar skipuleggja mótmæli gegn
herstjóranum.
Manuel Noriega
Njósnir Felix Blochs:
„Finnskur“ KGB-liði
reyndist tilbúningur
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
FINNAR hafa tekið því illa að einn af útsendurum sovésku öryggislög-
reglunnar, KGB, skuli hafa notað finnskt vegabréf víðs vegar í Evr-
ópu. Njósnarinn er talinn hafa haft samband við bandarískan sljórnarer-
indreka, Felix Bloch, sem grunaður er um njósnir í þágu Sovétstjórnar-
innar. Ný þykir á hinn bóginn sannað að vegabréf KGB-mannsins hafi
ekki verið falsað heldur virðist maðurinn, „Reino Gikman“ hafa verið
tilbúningur frá upphafi.
Lögregluyfirvöld í Austurríki hafa
skýrt frá því að KGB-maðurinn hafi
notað finnsk vegabréf um árabil og
þóst vera finnskur kaupsýslumaður.
„Reino Gikrnan" er sagður hafa
gengið erinda KGB í Vínarborg en
Felix Bloch starfaði einmitt við
bandaríska sendiráðið þar í borg.
Fram hefur komið að „Gikman“
sé fæddur í afskekktri sveit á land-
svæði sem Sovétmenn náðu af Finn-
um í seinni heimsstyijöldinni. Hins
vegar eru ekki lengur til neinar
traustar heimildir fyrir því hveijir
bjuggu á þessu svæði fyrir stríð.
Bókum með nöfnum íbúanna var sto-
lið úr skjalasafni í byijun sjötta ára-
tugarins.
Stærsta dagblað Finnlands Hels-
ingin Sanomat hefur látið rekja sögu
„Gikman-ættarinnar". „Reinos Gik-
mans„“ er fyrst getið 4, apríl 1966
þegar maður nokkur sótti um vega-
bréf hjá finnska ræðismanninum í
Bremen í Vestur-Þýskalandi Maður-
inn fékk vegabréf að líkindum sökum
þess að ekki var unnt að afsanna
að hann væri fæddur í Uuskirkko-
hreppi á svæði því sem Rússar hert-
óku á árum síðari heimsstyijaldar-
innar. Voru þá liðin tólf ár frá því
bækurnar hurfu úr skjalasafninu.
Nafnið „Gikman“ þykir einnig
dularfullt. Finnar eiga erfitt með að
bera fram g-hljóð og þar að auki eru
mannanöfn sem enda á ,,-man“ ekki
rétt samkvæmt finnskri málfræði.
Hefur því verið fullyrt að menn ættu
að muna eftir fjölskyldu með svo
einkennilegt ættarnafn. Blaðamaður
Helsingin Sanomat ræddi við svei-
tunga „Gikman“-fjölskyldunnar og
könnuðust þeir ekki við hana. Engar
skráðar heimildir fundust í sveitar-
króniku Uuskirkko-búa.
Engar heimildir eru til um foreldra
„Reinos Gikmans" nema mjög óljósar
upplýsingar um að faðir hans hafi
fallið í bardaga árið 1944 en móðir
hans er sögð hafa dáið á ótilgreindum
stað árið 1958. Sjálfur á hann að
hafa dvalist um skeið „heirna" í Finn-
landi. Á árunum 1966-68 mun
„Reino Gikman" hafa búið ásamt
konu sinni í Suður-Finnlandi. Leigðu
þau hjónin m.a. íbúð í eigu Kansa-
tryggingafélagsins en það félag er í
nánum tengslum við finnska komm-
únistaflokkinn.
Frá Finnlandi fluttust „Gikman“-
hjónin til Vestur-Þýskalands og eign-
uðust son árið 1969. Finnsk yfirvöld
hafa reynt að hafa upp á fjölskyld-
unni nokkrum sinnum, m.a. vegna
herskyldu sonarins, en þær tilraunir
hafa engan árangur borið.
Menn velta því nú fyrir sér hvort
KGB eða hugsanlega leyniþjónusta
einhvers annars ríkis hafi stolið skjöl-
unum á sjötta áratugnum til þess
að geta „búið til“ finnska ríkisborg-
ara.
KOMDU í \
KOLAPORTID!
0 Nýtt og spennandi tímabil að hefjast.
• Skemmtileg markaðsstemning.
• Opið í dag frá 10-16. /
KOIA PORTIÐ
MœnKaÐStOgr
undir seðlabunkanum.