Morgunblaðið - 12.08.1989, Page 23
MQRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1989
Nú grillum við svínakjöt
Islendingar virðast hafa grillað villt og bijálað í sumar, hvort sem þeir eru staddir í sunnanþey og
sólskini fyrir norðan og austan eða dumbungsveðri fyrir sunnan. Maður ekur varla um borg eða sveit
án þess að finna grilllykt, einkum um helgar, og þessi nýi ilmur blandast hinum gamla af heyi, birki
og taði og yfir sumarbústaðalöndum svífur ilmandi grillský. Hvernig fóru landsmenn að lifa áður en
grillið kom til sögunnar? Flestir hafa grillað lambakjöt, enda hefur það verið selt á sérstöku tilboðsverði
og mikið auglýst. Og þótt maður hitti varla svo grillmeistara að ekki hafi kviknað í öllu saman, er samt
haldið áfram að grilla. Færri grilla svínakjöt, sem líka hefur verið á tilboðsverði, en grillaðar svínakótilett-
ur standa hinum síst að baki. Þær eru yfirleitt þykkara skornar en lambakjötið og þar með safaríkari.
Bakaðar kartöflur og hrásalat er mjög gott með og meðan grillmaturinn er borðaður getur ábætisréttur-
inn bakast á grillinu.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
23
Epli eða bananar með
kókosmjöli
10 epli eða 5 bananar )/ i
safi úr !4 sítrónu / Á
2 dl kókosmjöl, helstgróft Uj V / n
1 dl púðursykur
1. Kjúfið ávextina, eplin þvert fe fju'C
en bananana langsum. Hýðið á
að vera á. (A
2. Penslið skurðflötinn með
sítrónusafa. Hægt er að nota eld-
húspappír til að pensla með.
3. Blandið saman kókosmjöli
og púðursykri. Skiptið jafnt á
ávextina.
4. Setjið í álmót, setjið álpappír
eða annað mót yfir. Setjið á gril-
lið og glóðið i 20 mínútur eða leng-
ur.
Tíminn er mismunandi eftir því
hve langt þetta er frá glóðinni.
Enn um chillipipar
Maður kom að máli við mig og
sagði að ég mætti alls ekki fleygja
fræjum úr chillipipar. Þau væru
góð í pottrétti og súpur, þá nokk-
ur fræ eftir smekk. Þau gæfu
mjög gott piparbragð. Hann sagð-
ist þurrka fræin, setja í krukku
og geyma á dimmum stað.
Góðar ábendingar eru alltaf vel
þegnar.
Mér finnst alltaf best að búa
sjálf til lög (marineringu) á grill-
kjötið. Þar sem hér eru svínakóti-
lettur, er betra að lögurinn sé
mildur og örlítið sætur.
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Grilllögur
Safi úr 2 sítrónum
1 dl matarolía
mikið af nýmöluðum pipar
134 tsk. salt
1 msk. Mild Taco Sauce
(pipar-papríkusósa með
lauk)
1 msk. Sweet & Sour So-
uce (súrsæt kínversk sósa)
Þessar sósur fást víða.
Og svo 10-12 svínakótilett-
ur.
1. Kreistið safann úr sítrónun-
um, setjið í skál ásamt matarolíu,
pipar og salti. Þeytið vel saman.
Þetta á að þykkna örlítið þegar
því er hrært saman.
2. Setjið Taco-sósu og Sweet &
Sour-sósu út í og hrærið vel sam-
an.
3. Þerrið kótiletturnar vel, dýf-
ið þeim síðan í löginn. Hellið því
sem eftir er yfir. Best er ef hægt
er að láta kótiletturnar liggja í
einföldu lagi á fati eða skál.
4. Látið standa í kæliskáp í
6-12 klst. en ekki meira en 1-2
klst. á eldhúsborðinu. Kjötið
„marinerast“ fyrr í hita.
5. Hitið grillið, þar til öll kolin
eru orðin grá.
6. Grillið síðan í nokkrar mínút-
ur á hvorri hlið.
Athugið: Svínakjöt á alltaf að
vera gegnsteikt.
Uppáhalds salatið mitt .
1 meðalstór íslenskur
hvítkálshaus
1 hálfdós kurlaður ananas
2 dósir sýrður rjómi, full-
feitur eða 10%
1. Hellið ananasinum í sigti og
látið renna af honum.
2. Hrærið kurlið út í sýrða ijóm-
ann.
3. Takið stilkinn úr kálinu, sax-
ið það síðan og setjið saman við.
Hrærið saman með tveim göfflum.
Kristín Jónasdótt-
ir -Aítnæliskveðja
Það er ótrúlegt en satt, hún
Kristín Jónasar er sjötug í dag!
Við sem þessar línur ritum lítum
á það sem ein af forréttindum okk-
ar í lífinu að hafa kynnst Kristínu
í gegnum vinnu okkar á Árbæjar-
safni, en þar hefur hún unnið sl.
14 ár. Hún sér um textíla safnsins,
en auk þess leggur hún gjörva hönd
á margt annað. Þegar við hittumst
fyrst bjó hún enn í Eskihlíð 8, sem
var ævintýraland útaf fyrir sig, en
fyrir nokkrum árum réðst hún í að
byggja sér íbúð við Aðalland. Bæði
heimilin bera smekk hennar vitni,
allt er yfirfullt af blómum, bókum
og listaverkum og þó hún flytti sig
um set fylgdi hinn góði heimilisandi
og gestrisnin hélst hin sama. Það
er alltaf jafn gaman að heimsækja
Kristínu, hvort sem það er til að
ræða heimsmálin (en Kristín er
mjög íhaldssöm í róttækni sinni)
eða til að bragða á framandi réttum
og frumlegum drykkjum.
Það er ekki nóg með að Kristín
sé hafsjór gamals fróðleiks og nýs,
heldur er hún alltaf tilbúin með
úrlausnir á öllum okkar vandamál-
um, hvort sem þau eru andleg eða
veraldleg. Á meðan á námsárum
okkar stóð og við vorum hvað dug-
legastar í kreppulifnaði nutum við
dyggilegrar aðstoðar Kristínar.
smá auglýsingar
Wélagslíf
{fiíj Útivist
Sunnudagsferðir 13. ágúst:
Kl. 08.00. Þórsmörk - Goða-
land. Stansað 3-4 klst. i Mörk-
inni. Verð 1.500,- kr. Munið sum-
ardvöl.
Kl. 10.30. Nesjar - Skinnhúfu-
höfði (L-17a). Skemmtileg
ganga með suðurströnd Þing-
vallavatns. Verð 1 .OOO,- kr.
Kl. 13.00. Með Ölfusvatnsvik
(L-17b). Sameinast morgun-
göngunni. 17. ferð í (,andnáms-
göngunni, ferðasyrpu sem allir
ættu að taka þátt i. Verð 1.000,-
kr., fritt f. börn m. fullorönum.
Brottför frá BSÍ, bensinsölu.
Ársrit Útivistar 1989 er komiö
út. Útivistarfélagar, vinsamleg-
ast greiðið heimsenda gíróseðla
fyrir árgjaldinu.
Útivist, ferðafélag.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn bænasamkoma i kvöld
,kl. 20.30.
'Allir velkomnir.
Krossinn
Auðbrekku 2, 200 Kópavogur
Afmælishátið i dag i Fannborg
2, sem hefst kl. 15.00. Samkoma
i kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir.
Skipholti 50b 2. hæð
Samkoma i kvöld kl. 20.30.
Gestir frá Livets Ord i Svíþjóð.
Allir velkomnir!
Hún sá okkur lengi vel fyrir sam-
kvæmisklæðnaði og það var ósjald-
an sem við skörtuðum kjólunum
hennar á Borginni sælla minninga.
Hvort sem við þurfum að setja á
okkur skotthúfu, breyta kjól eða
gera annað í höndunum er óbrigð-
ult að leita til hennar, að ekki sé
minnst á matreiðslu eða húsráð, en
Kristín býryfir a.m.k. 2012 húsráð-
um, sem hún er óspör á að miðla
öðrum.
Það er nokkuð til í því sem ein
samstarfskona okkar sagði eitt
sinn, að Kristín er uppi á vitlausum
tíma, hún hefði átt að vera uppi á
tímum safnara og veiðimanna. Víst
er að alltaf er gaman að kíkja á
bækurnar hennar, að ekki sé minnst
á úrvalið í skápunum og í frystikist-
unni, en það er mál manna að
Kristín geti brauðfætt her manns
ef til heimsstyijaldar eða hungurs-
neyðar kemur.
Kristín er ein af þeim sem kann
að njóta lífsins og nýta tímann vel,
til marks um það eru ferðir hennar
til Kína og Parísar á liðnum árum
og þau mýmörgu námskeið sem hún
hefur sótt, nú síðast í brids, glerlist
og framsögn.
Kynslóðabil er merkingalaust orð
þegar Kristín er annars vegar því
að hið síunga lífsviðhorf hennar
veldur því að hún verður alltaf á
óræðum aldri. Við óskum henni til
hamingju með daginn og þökkum
allt gott á liðnum árum.
Ragnhildur og Salvör
MAÐURINN A
PRESTSSETRINU
•• *
eftir Örn Ólafsson
í sumar var ég sex vikur á ís-
landi en ég hefi annars verið búsett-
ur íKaupmannahöfn sl. tvö ár. Eins
og í fyrrasumar fékk ég herbergi
til afnota hjá vini mínum séra Gunn-
ari Björnssyni. Aldrei hefi ég greitt
krónu fyrir, enda heitir þetta greið-
vikni þar sem ég ólst upp. Hef ég
og stundum haft þá ánægju að
hýsa vini mína úti í Kaupmanna-
höfn án þess að það væri talið brot
á húsaleigulögum. Þar sem þau
Gunnar og Ágústa ætluðu um
Kaupmannahöfn á leið sinni til tón-
listarnámskeiðs í Weimar, bauð ég
þeim að nota mína íbúð sem afdrep
milli ferða.
Ekki væri nú skrifandi um þetta
í blöðin nema af eftirfarandi ástæð-
um. Þriðjudaginn 1. ágúst kom ég
á prestssetrið laust eftir hádegið.
Örfáum mínútum eftir að ég kom
inn hringdi síminn, og var þar Skúli
Pálsson lögfræðingur, sem hefur
stofu skáhallt á móti prestssetrinu.
Mætti ætla, að vel sé fylgst með
því. Skúli kynnti sig sem lögfræðing
safnaðarstjórnar Fríkirkjunnar, og
að fyrir hennar hönd vildi hann
spyija um ferðir mínar í þessu húsi.
Sagði ég honum það, svo sem hér
að ofan greinir, og kallaði hann þau
íbúðaskipti leigu. Því mótmælti ég
eindregið, og sagði aðspurður, að
þau Gunnar kæmu heim nk. laugar-
dag. Ekki gat safnaðarstjórn beðið
þess, að hann fengi tækifæri til að
svara fyrir sig, heldur hljóp í frétta-
stofu Utvarps fimmtudag með ein-
hveija furðufrétt um að sr. Gunnar
leigði mér prestssetrið, og þá í
heimildarleysi eiganda og ólöglega.
Þegar ég heyrði um þessa vitleysa
daginn eftir, hringdi ég inn leiðrétt-
ingu til fréttastofunnar. En þar sem
ég heyrði ekki fréttirnar, bið ég
Morgunblaðið fyrir þessa áréttingu.
„En það verð ég að
segja, að hefði ég aldrei
kynnst frekara fólki, þá
vissi ég ekki hvað orðið
frekja þýðir.“
Þetta fáranlega upphlaup safnaðar-
stjórnar þykir mér sýna vantrú
hennar á eigin málstað. Annars
skipti ég mér ekki af málum
Fríkirkjunnar, enda er ég ekki í
henni.
Að lokum þetta: Óvinir þeirra
Gunnars og Ágústu hafa breitt það
út, að þau séu svo frek, að með
þeim geti enginn maður starfað.
Sem heimagangur hjá þeim vikum
saman tvívegis, hefði ég átt að finna
fyrir slíkri frekju manna fyrstur.
En það verð ég að segja, að hefði
ég aldrei kynnst frekara fólki, þá
vissi ég ekki hvað orðið frekja þýðir.
Höfundur er lektor við
Kaupmannahafiiarháskóla.
OKV 3 6T77
AUCLVSINCASTOFA MYNDAMÓTAHF