Morgunblaðið - 25.08.1989, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.08.1989, Qupperneq 1
56 SIÐUR B/C 191. tbl. 77. árg.__________________________________FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Kólumbía: Frá útsýnishúsinu á Öskjuhlíð MorgunDlaöiö/öAK Stríðsyfir- lýsing- á hendur stj órninni Bogota. Reuter. EiturlyQasmyglarar í Kól- umbíu, sem eftirlýstir eru í Bandaríkjunum, lýstu yfir stríði á hendur stjórn landsins eftir að Bandaríkjastjórn hafði ósk- að eftir því að þeir yrðu fram- seldir fyrir kókaínsmygl til Bandaríkjanna. Nokkrum klukkustundum áður höfðu sprengjur sprungið í skrifstof- um tveggja stjórnmálaflokka í bænum Medellin, þar sem sam- neftidur eiturlyfjasmyglhringur er með höfuðstöðvar sínar. Eiturlyfjasmyglararnir sendu yfirlýsingu sína til fjölmiðla og sögðust lýsa yfir stríði á hendur stjórnvöldum og „fámennisstjórn iðnjöfra og ' stjórnmálamanna". Þeir sögðust einnig ætla að láta sverfa til stáls gegn blaðamönnum, dómurum, fjármálamönnum, verkalýðsleiðtogum og fleirum, sem þeir sökuðu um ofsóknir gegn sér. Sprengjuárásir voru fyrr um daginn gerðar á skrifstofur Ihalds- flokksins og Fijálslynda flokksins ' í Medellin-bæ. Enginn lýsti árásun- um á hendur sér en í yfirlýsingu eiturlyfjasmyglaranna er varað við því að verksmiðjur og eignir „fá- mennisstjórnarinnar“ verði eyði- lagðar. Stríðsyfirlýsingin virðist vera svar eiturlyfjasmyglaranna við þeirri ósk Bandaríkjastjórnar að tólf kólumbískir eiturlyfjakóngar verði handteknir og framseldir til Bandaríkjanna. Virgilio Barco, for- seti Kólumbíu, hafði fyrirskipað herferð gegn eiturlyfjaþrjótum landsins og hafa margir þeirra verið handteknir. Ritstjóri Samstöðu kjörinn forsætisráðherra Póllands: Sovétmenn segjast líta á Mazowiecki sem félaga Varsjá, Moskvu. Reuter, Daily Telegraph. TALSMAÐUR sovéska utanríkis- ráðuneytisins, Júrí Gremítskíkh, sagði í gær að sovésk stjórnvöld litu á hinn nýja forsætisráðherra Úkraína: Lögreglan ræðst á mótmælendur Moskvu. Reuter. SOVÉSKIR andófsmenn sögðu í gær að lögreglumenn hefðu beitt kylftim til að kveða niður mótmæli í Kíev, höfuðborg Sovétlýðveld- isins Úkraínu, í tileftii 50 ára aftnælis griðasáttmála þýskra nas- ista og Sovétmanna seint á miðvikudagskvöld. Þeir sögðu að tug- ir manna, þar á meðal konur og börn, hefðu orðið fyrir meiðslum í árás lögreglunnar. koma í veg fyrir að enginn úkraínskur fáni sæist á götum Kíev,“ sagði Shavtsjenko. Úkraínumaðurinn Oles Shavtsj- enko sagði að nokkur þúsund manna hefðu tekið þátt í mótmæl- unum og nokkrir hefðu verið hand- teknir. Mótmælendur héldu á gul- um og bláum fána úkraínskra þjóð- ernissinna. „Lögreglunni hafði greinilega verið fyrirskipað að Embættismenn í Kíev staðfestu að efnt hefði verið til mótmæla í borginni en kváðust ekki hafa frétt ■ af handtökum eða meiðslum. Póllands, Tadeusz Mazowiecki, sem félaga og hygðust bíða og sjá hvernig stefna stjórnar hans yrði. Mazowiecki var kjörinn forsætis- ráðherra á pólska þinginu með 378 atkvæðum gegn fjórum en 41 þingmaður greiddi ekki atkvæði. Hann sagði eftir kjörið, sem bind- ur enda á 40 ára alræði pólska kommúnistaflokksins, að hann myndi hafa samstarf við Sovét- menn og aðra bandamenn Pól- veija í Varsjárbandalaginu. „Við lítum auðvitað á Tadeusz Mazowiecki sem félaga og sam- starfsmann í þeim málum tengja lönd okkar," sagði Gremítskíkh á blaðamannafundi i Moskvu. Þegar hann var spurður hvort Pólveijar gætu áfram tekið þátt í samstarfi Austantjaldsríkja, til að mynda í efnahagsbandalagi þeirra, Comecon, svaraði hann að best væri að sjá hvað setur. Sovéska stjórnin sendi Mazowiecki heillaóskaskeyti, þar sem hún kvaðst fullviss um að vin- áttusamband og víðtækt samstarf Sovétmanna og Pólveija héldi áfram að þróast „á grundvelli jafnræðis, virðingar og gagnkvæmra hags- muna“. George Bush Bandaríkjafor- seti óskaði Mazowiecki einnig heilla og sagði að Bandaríkjamenn myndu Reuter Samstöðumaðurinn Tadeusz Mazowiecki myndar sigurmerki með fingrunum eftir að hann var kjörinn forsætisráðherra Pól- lands í gær. styðja efnahags- og stjórnmálaum- bætur Pólveija. Að sögn Mazowieck- is var fyrsta heillaóskaskeytið, er honum barst, frá austur-þýsku stjórninni, sem áður hafði látið í ljós áhyggjur vegna umbótanna í Pól- landi og Ungveijalandi. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, fylgdist með beinni sjónvarpsútsend- ingu frá atkvæðagreiðslunni á þing- inu og táraðist af gieði er atkvæði voru talin. Hann sagðist vona að stjórn Mazowieckis yrði stjórn allra Pólveija og tækist að leiða þjóðina frá alræði til lýðræðis. Bronislaw Geremek, leiðtogi Samstöðu á þing- inu, kvaðst furðu lostinn yfir þeirri öru þróun sem orðið hefur í Póllandi að undanförnu og sagði að sér sýnd- ist sem „45 ára harmleik" hefði lok- ið í einni svipan. Mazowiecki sagði að hugsanlegt væri að efnt yrði til þjóðaratkvæða- greiðslu, þar sem Pólveijar yrðu spurðir að því hvort þeir gætu fallist á harðar efnahagsaðgerðir sem nauðsynlegar væru til að leysa efna- hagsvanda þjóðarinnar. Hann kvaðst ætla að beita sér fyrir bættum sam- skiptum við öll ríki og vilja stuðla að sameinaðri Evrópu en halda þó tengslunum við Varsjárbandalagið. 37 þingmenn, sem flestir eru fé- lagar í kommúnistaflokknum, sátu heima er kjörið fór fram og talið er að þannig hafi þeir viljað sýna and- stöðu sína við Mazowiecki. Rúmur þriðjungur þingmanna kommúnista- flokksins greiddi þó atkvæði með Samstöðumanninum. Sjá: „Samstöðumaður kjörinn ... á bls. 18-19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.