Morgunblaðið - 25.08.1989, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 25.08.1989, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989 19 Lech Walesa og Samstaöa 15. júlí: 800.000 verkamenn í Varsjá og Lublin fara í þriggja daga verkfall og krefjast lægra matvöruverös og hærri launa. 14. ágúst: Verkamenn taka völdin í Lenín-skipa- smíðastöö- inni í Gdansk. 10. nóvember: Hæstiréttur Póllands staöfestir stofn- skjal Samstööu til aö afstýra allsherjarverkfalli. Hún verður fyrsta óháöa og löglega verkalýöshreyfingin austantjalds. 2. október: Lech Walesa kjörinn formaöur hreyfingar- innar á fyrsta þingi Samstöðu. 12. desember: Wojchiech Jaruzelski hershöfðingi setur herlög. Walesa og 49.000 aðrir eru handteknir. 29. desember: Bandaríkin hefja refsiaögeröir. 8. október: Pólska þingið bannar Samstöðu formlega. Hreyfingin starfar áfram „neðanjaröar". 14. nóvember: Walesa sleppt eftir 11 mánaöa fangavist. 31. desember: Herlög afnumin. ... 5. október: Walesa fær friöarverölaun Nóbels. _ 11. ágúst: Pólitískir fangar og verkalýösforkólfar fá sakaruppgjöf. 19. febrúar: Bandaríkin láta af refsiaögeröum. 12. júní: Jóhannes Páll páfi annar II. heimsækir Gdansk; hundruö þúsunda fagna stuöningi hans viö Samstöðu. 2. maí: Verkfall í skipasmíðastöð í Gdansk hefst; , verkfallsmenn krefjast lögmætis Samstööu. -16. ágúst: Verkföll hefjast í kolanámum í Suöur-Pól- landi og breiöast brátt út til Gdansk og annarra borga. .4. júní: Fyrstu frjálsu kosningar í Póllandi í 40 ár; Samstaða vinnur 99 sæti af 100 í öldungadeildinni. -9.-11. júní: George Bush Bandaríkjaforseti heimsæk- ir Pólland og lýsir yfir stuðningi viö pólitískar umbætur. 24. ágúst: Tadeusz Mazowiecki kjörinn forsætisráö- herra af Póllandsþingi. Löng barátta Samstööu fyrir þátttöku í stjórn landsins á enda. KRTN Viðbrögð risaveldanna; Hamingjuóskir frá Bush en viðvörun frá Moskvu Kennenbunkport í Maine og Moskvu. Reuter og Daily Telegraph. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sendi Tadeusz Mazowiecki, nýkjörn- um forsætisráðherra Póllands, í gær hamingjuóskir og notaði tækifæ- rið til þess að fullvissa Mazowiecki um stuðning Bandaríkjastjórnar við eftiahagsumbætur og breytingar í lýðræðisátt Póílandi. Frá Moskvu var tónninn ekki jafii glaðlegur, því Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti lagði áherslu á að ríkisstjórn án þátttöku kommúnista væri „óhugsandi“. „Ég vil óska Mazowiecki til ham- ingju með kjör hans til forsætisráð- herraembættisins og ég fullvissa hann um stuðning okkar við viðleitni hans til þess að leíða land sitt til efnahagsbata og breytinga í lýðræð- isátt," sagði Bush, en hann er nú í sumarleyfi í Kennenburkport í Maine. Bush hrósaði Wojiech Jaruzelski Póllandsforseta fyrir þá „stjórnvisku hans að veita þeirri ríkistjórn braut- argengi, sem endurspeglar raun- verulegan vilja pólsku þjóðina.“ Talsmaður pólska kommúnista- flokksins tilkynnti að Gorbatsjov hefði átt 40 mínútna langt samtal við Rakowski, pólska flokksleiðtog- ann, í síma á þriðjudag. Slík tilkynn- ing hefur aldrei verið gefin áður og eru fréttaskýrendur einróma um að tilgangur hénnar sé að veita Sam- stöðu viðvörun um að ganga ekki of langt. Voru flokksleiðtogarnir tveir sagð- ir hafa verið sammála um að ríkis- stjórn án þátttöku kommúnista væri „óhugsandi". Talið er að með þessu sé einnig gefið til kynna að yfirlýs- ingar Sovétforsetans um að Sovétrík- in muni ekki hafa nein afskipti af innanríkismálum bandamanna sinna, eigi sér takmörk. Samstaða hefur á engan hátt brugðist við þessari viðvörun og í breska blaðinu Daily Telegraph segir að það sé hreyfingunni til hróss og sérstaklega til marks um pólitískan þroska hins nýja forsætisráðherra Samstöðu. Pólskur almenning- ur ánægður, en efins Varsjá. Reuter. PÓLSKUR almenningur fagnaði í gær kjöri Tadeusz Mazowiecki til forsætisráðherraembættisins, en margir létu í ljós ótta um að efiiahags- vandinn reyndist honum oíViða. „Við eru öll yfir okkur ánægð, en ég sé skýjabakka við sjóndeildarhringinn," sagði gamall stáliðjumaður. „Hlutimir kunna að ganga fyrir sig með eðlilegum hætti í sljómarsam- starfinu, en hversu mikið af því mun hafa áhrif á hversdagslíf okkar: verslanirnar, biðraðirnar og þrautir daglegs lífs?“ Mazowiecki er fyrsti forsætisráð- herra í Austur-Evrópu í fjóra ára- tugi, sem ekki er kommúnisti. „Þetta er það, sem við höfum öll verið að bíða eftir,“ sagði ellilífeyris- þegi við gröf séra Jerzy Popieluszko, Samstöðuprestsins, sem var myrtur af öryggislögreglunni árið 1984. „Kannski Pólverjar geti loks um fijálsara höfuð strokið i eigin landi.“ „Kjör Mazowieckis er sem vatna- skil. Af því, sem ég hef heyrt, skilst mér að hann sé heiðarlegur maður og hafinn yfir flokkadrætti. Hann er heiðarlegur, sannsögull og hefur haldið jarðsambandi við alþýðu manna,“ sagði 64 ára gamall skrif- stofuþjónn. Fjölmargir vegfarendur í miðborg Varsjár sögðu fréttamönnum Reut- ers þó að þeir efuðust um að Mazowi- ecki gæti haldið aftur af verðbólg- unni, sem nú nálgast 200%, greitt 39 milljarða dala skuldir Póllands við útlönd, eða bundið enda á skort á matvöru og neysluvarningi. „Það verða engin kraftaverk gerð. Aðalatriðið er að fá fólkið aftur til ' vinnu. 45 ár af kommúnisma hafa gert þjóðina lata. Fólkið vinnur ekki, en fær kaupið sitt samt,“ sagði 45 ára gamall bílavérkstæðiseigandi. „Pólitíkusarnir og blöðin kunna að vera uppveðruð af þessu, en fólk- ið í biðröðunum er það ekki.“ Reuter Þingmenn Samstöðu samþykkja útnefningu Mazowieckis á þing- inu í gær. Þu þekkir ekki Braga fyrr en þú hefur prófaö M Santos-blönduna! Kaffibrennsla Akureyrar hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.