Morgunblaðið - 25.08.1989, Side 32

Morgunblaðið - 25.08.1989, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1989 fréttum Phylicia með eiginmanni sínum og dóttur. LEIKARARAUNIR Fyrirmyndarmóðirin var forfallinn fíkniefiianeytandi Phylicia og Victor slitu sam- vistum árið 1980. Eftir það tók líf- hennar aðra stefnu og hún hætti neyslu eiturlyfja. Skömmu síðar fékk hún hlutverk fyrir- myndarmóðurinnar í sjónvarps- þáttum Bills Cosbys. Hún kynnt- ist núverandi eiginmanni sínum og saman eiga þau litla dóttur. Einkalíf leikkonunnar er núna jafn gott ög líf sjónvarpsfjölskyld- unnar. Eftir að Phylicia sneri baki við fíkniefrium hefur gæfan bros- að við henni. Phylicia Rashad sem leikur Claire Huxtable í þáttunum hans Bills Cosbys um Fyrirmynd- arföðurinn er í dag hamingjusam- lega gift fótboltahetjunni Ahmad Rashad. En fyrir tíu árum var hún forfallinn fíkniefnaneytandi og líf hennar var oft sem martröð. Árið 1978 giftist Phylicia söngvaranum Victor Willis sem þá var í söngflokknum Village People. Hann hefur sagt frá því að í þau fjögur ár sem þau voru saman hafi hún neytt kókaíns og annarra fíkniefna fyrir allt að fimm þúsund dollara (300.000 kr.) á viku. Undir áhrifum þeirra gekk hún um húsið eins og vél- menni og talaði við veggina. Hún sá húsgögnin hreyfast og var sannfærð um að það væru draug- ar í húsinu. Stundum hljóp hún um æpandi af hræðslu. Eigin- maðurinn fyrrverandi var einnig eiturlyfjaneytandi og fíkniefnin keyptu þau af manni sem kom heim til þeirra oft í viku, dulbúinn sem pitsasendill. > ; y TVÍBURAR Fjölda- samkoma í Twins- burg Arleg tvíburasamkomi var haldin i Twinsbur) í Ohio í Bandaríkjunum fyri skömmu. 2.300 tvíburapö komu til borgarinnar af þessu tilefni og skemmtu sér vel en þetta var í 14. sinn sem svona samkoma var haldin. Keppt var ! 104 tvíburagreinum, m.a. um það hvaða tvíburar væru líkastir o g hveijir ólíkastir og hveijir væru fæddir með lengstu millibili. Elstu tvíburarnir í Twinsburg voru 89 ■ ára en þeir yngstu 2!4 vikna. Fólk á öllum aldrí kom á tvíburasamkomuna. HOLLYWOOD Keypti mynd af sjáJfri sér Kvikmyndaleikkonan Brooke Shields fékk tækifæri til að breyta ímynd sinni á hvíta tjaidinu nýlega þegar hún lék hálfgerða götustelpu sem ekur um á stóru mótorhjóli. Fyrir skömmu kom Brooke inn á veitinga- stað og sá málverk af sjálfri sér ög hjólinu. Hún varð yfir sig hrifin af myndinni og keypti hana þótt verðið hafi verið litlar áttahundruð þúsund krónur. Myndin prýðir nú glæsilegt heimili leik- konunnar ungu í Bandaríkjunum. SHUSIÐ 'aeéi&œ—— Hljómsveit Hilmars Sverrissonar Vilhjalms leika fyrir dansi í kvöld og annaö kvöld. opið frá kf. 22.00 til kl. 03.00. Rúllugjald 750,- Ath.: Snyrtilegur klæönaöur. Muniú Bítlavinalélagið 9. sept. Forsala hefst miðvikudaginn 30. ágúst kl. 10 árdegis. KASKO ■ leikur í kvöld.B #HDTEL« nocnioA JtZnom Ftin tnn tynt W 21 00 AAgangseyrír kr. 350,- e/kl. 21.00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.