Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 2
eaei tsuoá .&£ muoa(ihao'jaj öiQAjaíiuoHOM
MORGUNBtAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST1989
Þorsteinn Pálsson á fiindi í Keflavík:
Losað verði um póli-
tísk tök á genginu
PÓLITÍSKAR ákvarðanir um
gengi íslensku krónunnar hafa
leitt okkur í ógöngur, sagði Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, á fundi í Rótary-
Sauðárkrókur:
Tveir ölv-
aðir sóttir
aðMálmey
BJÖRGUNARS VEITIN á Sauðár-
króki fór í gærkvöldi út að Málm-
ey að sækja tvo mjög ölvaða menn,
hvom á sínum handfærabátnum.
Mennirnir voru færðir í land á
Hofsósi þar sem lögreglan beið
þeirra og færði á lögreglustöðina
á Sauðárkróki.
Mennirnir voru á siglingu vestur
um Norðurland og heyrðist á fjar-
skiptum þeirra á milli að ekki væri
allt með felldu um borð. Þeir höfðu
blotnað og var getum að því leitt að
þeir hefðu verið að reyna að komast
á mílli bátanna. Ekkert amaði þó áð
mönnunum við komu á lögreglustöð-
ina. Þar gistu þeir í nótt en með
morgni beið þeirra félaga skýrslu-
taka þar sem þeir verða látnir gera
grein fyrir atferli sínu.
Deilur OLÍS og
Landsbanka
settar niður
LANDSBANKINN og Olís hafa
náð samkomulagi um deilumál
sín og var samkomulag um
áframhaldandi viðskipti undirrit-
að í gær. Olís hefúr gert samning
við Texaco um kaup þess síðar^
nefiida á 30% hlutaQár í Olís. í
kjölfar þessa hafa deilur fyrir-
tækisins og bankans verið settar
niður.
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagði sam-
komulag bankans og Olís felast í
því að ákveðið hefði verið að taka
upp eðlileg viðskipti, Landsbankinn
léti málsókn sína á hendur Olís falla
niður og Olís greiddi niður vanskil
sín við bankann á næstu átta mán-
uðum. „Félagið hefur stórstyrkt
stöðu sína með þessum samningum
við Texaco. Þetta er búið að vera
harðsnúin og langvinn deila en von-
andi erum við nú komnir yfír þenn-
an erfiða hjalla og fyrirtækið getur
starfað eðlilega í framtíðinni," sagði
Sverrir.
klúbbi Keflavíkur á fimmtudags-
kvöld. Taldi hann, að stöðugir
árekstrar milli ríkisstjórna og
atvinnuvega um gengismálin
hefðu leitt höfiiðatvinnveg þjóð-
arinnar, sjávarútveginn, í sjálf-
heldu. Þess vegna þyrfti að huga
að því að gjörbreyta því kerfi sem
gildir um ákvarðanir á gengi
krónunnar.
í ræðu sinni sagði Þorsteinn Páls-
son, að hann teldi rétt að taka til
alvarlegrar athugunar, hvort ekki
ætti að hverfa frá beinum pólitísk-
um ákvörðunum í gengismálum og
láta markaðinn ráða meiru. Þannig
mætti hugsa sér að markaðurinn
gæti án tafa brugðist við breyttum
aðstæðum og á þann veg mætti
forðast þá miklu árekstra milli at-
vinnuvega og stjórnvalda sem við
höfum orðið vitni að á undanfömum
árum.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
sagði, að ekki yrði losað um hin
pólitísku tök nema þeir sjóðir yrðu
afnumdir sem nú væru notaðir til
millifærslu og gengisfölsunar.
Loks taldi Þorsteinn Pálsson
nauðsynlegt að gera róttækar
breytingar í þeim tilgangi að hverfa
frá skuldsetningarstuðningi við at-
vinnuvegina yfir til eiginfjárupp-
byggingar. Það yrði að gera með
róttækum breytingum á skattalög-
um sem auðvelduðu spamað í at-
vinnurekstrinum. Allar breytingar
af þessu tagi þyrfti að sníða að
þeim breytingum, sem væri unnið
að, meðal annars með efnahags-
áætlun Norðurlanda og hinni nýju
skipan á markaðsmálum í Evrópu-
bandalaginu.
Vantar fjóra til fímm millj-
arða upp á að endar nái saman
segir ármálaráðherra um fjárlagavinnu fyrir næsta ár
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, íjármálaráðherra, segist telja að í §ár-
lagavinnunni fyrir næsta ár muni vanta fjóra til fimm milljarða
króna upp á að endar nái saman. Hann segist telja óraunhæft mið-
að við þann vöxt, sem verið hafi í ríkisútgjöldum fi-á 1983, að brúa
þetta bil á tólf mánuðum. Því ætti að reka ríkissjóð með halla næsta
ár og reyna að jafha hann á 20-30 mánuðum.
Ólafur Ragnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að fjármálaráðuneyti
og ríkisendurskoðun væru sammála
um að fjárlagahalli á þessu ári væri
4-5 milljarðar króna. Aukaútgjöldin
væru hins vegar til komin vegna
nýrra ákvarðana, en fjárlagaramm-
inn, og sá ríkisrekstur, sem hann
hefði verið miðaður við, hefði ekki
breytzt.
„Alþingi mun fá tækifæri til þess
með fjáraukalögum í haust að
ákveða, hvort það vill láta þessar
nýju ákvarðanir koma til fram-
kvæmda. Vilji þeir, sem hæst tala
um spamað og niðurskurð í ríkisút-
gjöldunum, sýna manndóm sinn og
dug, hafa þeir tækifæri til þess á
Alþingi í október," sagði ráðherra.
„Með því að leggja fram Qáraukalög
fyrir yfirstandandi ár verður þingið
að standa frammi fyrir því að taka
ábyrgð. Þingmenn hafa þá ekki leng-
ur fjarvistarsönnun frá ákvörðunun-
um og geta ekki bara skammað fjár-
málaráðherrann. “
Fjármálaráðherra sagði að yrði
tillaga sín samþykkt, um að breyta
ijárlagaárinu þannig að það hefjist
1. júní, kæmu nokkrar aðferðir til
greina við að hefja þá breytingu.
Ein væri sú að afgreiða sautján
mánaða fjárlög, önnur sú að afgreiða
fjárlög fyrir almanaksárið 1990 og
síðan sérstök fjárlög fyrir fyrstu
fimm mánuði 1991, sú þriðja að
afgreiða fyrst fjárlög fyrir fyrri hluta
árs 1990 og síðan tólf mánaða fjár-
lög fyrir nýtt fjárlagaár 1990-1991.
Líklegast væri að sautján mánaða
ijárlög yrðu ofan á.
Ólafur Ragnar sagði að það væri
út af fyrir sig rétt að breyting á fjár-
lagaárinu leysti ekki stóran vanda í
ríkisfjármálunum. Hins vegar væri
hún ein af þeim breytingum, sem
þyrftu að koma til ef ætti að leysa
ríkisijármálavandann. Of þröngar
skorður hefðu verið settar við undir-
búning og meðferð ijárlaga og
plaggið ekki verið nægilega vandað
í sjálfu sér. Opinberir aðilar hefðu
þess vegna kannski ekki talið sig
bundna af því.
Færði Náttúru-
fræðistofhun 10
milljóna ára
steingerving
SVEINN Guðmundsson í Mið-
húsum í Reykhólasveit færði
Náttúrufræðistofhun íslands
steinrunninn trébút, sem fannst
i 10 milljóna ára gömlum jarð-
lögum, að gjöf á föstudag.
Sveinn Jakobsson, yfirmaður
jarðfræðideildar safiasins, tók
við gjöfinni.
Steingervinginn fékk Sveinn
Guðmundsson að gjöf frá hjónun-
um Aðalheiði Jónsdóttur og Þór-
arni Kristjánssyni á Hólum í
Reykhólasveit fyrir um 20 árum.
Þórarinn er nú látinn en í sam-
ráði við Aðalheiði ákvað Sveinn
að gefa Náttúrufræðistofnun ís-
lands stóran hluta af steingerv-
ingnum. Sveinn hefur safnað
steinum og jurtum í áratugi.
Trébúturinn, sem er 55 cm í
þvermál, er að áliti viðarfræðinga
af rauðviðarætt (Taxodiacea) en
sú ætt er skyld risafuru sem nú
vex í Kaliforníu. Árhringir sýna
að tréð hefur náð um 500 ára
aldri. Að sögn Sveins Jakobssonar
er steingervingurinn með verð-
mætustu eignum safnsins.
Þess má geta að Náttúrufræði-
félag íslands og Náttúrugripasafn
íslands eiga 100 ára afmæli á
þessu ári. Nafni Náttúrugripa-
safnsins var breytt í Náttúru-
fræðistofnun íslands árið 1965.
Haldið verður upp á afmælið 30.
september næstkomandi.í tilefni
afmælisins verður opnaður endur-
gerður sýningarsalur þar sem
steintegundir og jurtir verða til
sýnis.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Á myndinni standa þeir Sveinn Guðmundsson og Sveinn Jakobs-
son og á innfelldu myndinni má sjá viðarbútinn.
Svíakonungur á Austfiörðum:
Kom til Islands vegna geisla-
mengunar eftir Tsjernobyl
Egilsstöðum.
KARL Gústaf Svíakonungur kom til Egilsstaða í gær í einkaerind-
um. Með konungi í för eru niu nánir vinir hans. Erindi þeirra hing-
að austur er að stunda hreindýraveiðar á Fljótsdalsheiði. Mennta-
málaráðuneytið gaf út sérstakan kvóta fyrir konung upp á 10 hrein-
dýr. Hér fyrir austan mun konungur dveþ'ast í Snæfellsskála og á
Skriðuklaustri. Svíakonungur er þekktur sportveiðimaður og hefúr
stundað elgsveiðar á hverju hausti í Norður-Svíþjóð. Nú kaus hann
hins vegar að koma til Islands og mun ein ástæða þess vera að
villidýr í Norður-Skandinavíu urðu fyrir geislun í Tsjemobyl-slysinu.
Hér eystra mun konungur
stunda veiðamar á Fljótsdalsheiði
og allt inn undir Vatnajökul og var
ráðgert að aðfararnótt laugardags
gisti hann í skála Ferðafélags
Fljótsdalshéraðs í Snæfelli en
næstu nótt á Skriðuklaustri. Veð-
urspá laugardagsins gerði ráð fyrir
björtu og góðu veðri á þessu svæði.
Fararstjóri konungs í veiðiferð-
inni er Skarphéðinn Þórisson
líffræðingur en Hákon Aðalsteins-
son verður ökumaður konungs. Til
ferðarinnar notar Hákon 36 ára
gamlan bíl af gerðinni Dodge We-
apon. Einnig verða í förinni fram-
byggður rússajeppi undir vopn og
skotfæri og Toyota-pallbíll undir
farangur. Lífverðir konungs óku
hins vegar á Land-Rover-jeppa.
Konungur og fylgdarmenn hans
komu með vopn sín með sér ásamt
öllum farangri og vó hann alls Um
300 kíló. Miðað við koffortin sem
vopnin voru í eru þetta mestu kjör-
gripir og virðist hann hirða byssur
sínar mun betur en almennt gerist
um íslenska veiðimenn. Öryggis-
gæslu konungs hér eystra annast
menn úr sænsku öryggisgæslunni,
vegalögreglumenn og sérsveit Iög-
reglunnar í Reykjavík.
Staðarhaldari að Skriðuklaustri
þann tíma sem konungur dvelur
hér eystra er Þóra Guðmundsdóttir
arkitekt frá Seyðisfirði en Rúnar
Marvinsson úr Reykjavík mun ann-
ast matreiðslu. Konungur mun
væntanlega halda af landi brott til
Færeyja á sunnudag. - Björn
Ráðherra sagði að aukinheldur
væru þeir dagar, sem liðu frá af-
greiðslu fjárlaga rétt fyrir jól og
fram að áramótum, ekki nægilegur
tími til að undirbúa framkvæmd lag-
anna. „Það þarf helzt rúman mánuð
frá því að frumvarpið er samþykkt
og þangað til það tekur gildi til þess
að fjármálaráðuneytið geti undirbúið
greiðsluáætlanir fyrir ráðuneyti og
ríkisstofnanir, þannig að þær hafi í
upphafi íjárlagaárs skýr fyrirmæli
um útgjöld sín, útgjaldaskiptingu og
greiðsluflæði. Undanfarin ár hafa
þessar áætlanir ekki verið tilbúnar
fyrr en í febrúar eða marz, þegar
sjöttungur hefur oft verið búinn af
fjárlagatímabilinu," sagði Ólafur
Ragnar.
Hann sagði að ef í framtíðinni
yrði fylgt þeirri nýju venju, sem
hann vildi skapa; að leggja fram í
upphafi þings ríkisreikning fyrra
árs, fjáraukalög fyrir yfirstandandi
ár og fjárlagaáætlun þijú ár fram í
tímann, auk fjárlagafrumvarpsins,
væri það óvinnandi vegur fyrir þing-
ið að sinna öllum þeim málum á
tæpum tveimur mánuðum.