Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 Aðalfundur skógræktarfélags íslands: Undirbúið átak um land- græðsluskóga árið 1990 ísafirði. Frá blaðamanni Morgunblaðsins Kristínu Gunnarsdóttur. UNDIRBÚNINGUR að átaki um landgræðsluskóga árið 1990 er viðfangsefni aðalfundar Skógræktarfélags Islands, sem að þessu sinni er haldinn á Isalírði. Við setningu fundarins minntist Hulda Valtýs- dóttir, formaður Skógræktarfélags íslands, Hákonar Bjarnasonar fyrrverandi skógræktarstjóra, en hann var heiðursfélagi félagsins. Sagði hún að Hákon hefði verið brautryðjandi í íslenskri skógrækt. Hann hefði átt á brattan að sækja framan af en með atorku tókst honum að efla skilning á mikilvægi skógræktar á íslandi. í tilefhi fúndarins voru Skógræktarfélagi IsaQarðar færðar birkiplöntur að gjöf sem fúndarmenn munu gróðursetja í reit félagsins í dag. í ávarpi Sigurðar Blöndals skógræktarsfjóra sagði hann meðal annars að nú væri tími til kominn að ríkið styrkti skógræktarfélögin með myndarlegu Qárframlagi. Sigurður, sem lætur af störfum sem skógræktarstjóri um næstu áramót, minntist samskipta sinna við skógræktarfélögin í þau 12 ár sem hann hefur gegnt embætti. Sagði hann að innan félaganna væri að finna fólkið sem biði með útréttar „grænar hendur“ eftir að fá tækifæri til að klæða skógi eitt- hvað af því landi sem laust er und- an beitaráþján liðinna alda þar væri:„Fólkið, sem spyr ekki um efn- islegan hag í ræktuninni, en þráir þann andlega hag, sem hún veitir því. Fólkið, eins og ykkur skógrækt- arfélaganna, hjálpræðisher landsins okkar, sem hefir það hlutverk að ganga feti framar en hið mögulega í ræktuninni og uppsker oftast árangur, stundum óvæntan og iðu- lega óskiljanlegan. Fólkið, sem á ekki hvað minnstan þátt í að skóg- rækt á íslandi, er nú að því er virð- ist orðin þjóðarmál. Þessi „myndarlegi stuðningur" sem ég nefndi svo, af hálfu Al- þingis þarf að felast í því, að grænu hendurnar ykkar fái eins margar trjáplöntur til að binda með um sárin á landinu okkar og þið komist yfir að nota með svo góðum kjörum sem ykkur dugir til þess að geta unnið þetta líknarstarf óhindrað. Um leið og ég dreg mig nú í hlé sem atvinnumaður í skógrækt, slæst ég formlega í hóp ykkar áhugafólksins og vonast til þess að mæta ykkur sem oftast í skóginum sjálfum, því þar þykir mér best að vera.“ I gærkvöldi kynnti framkvæmda- nefnd um landgræðsluskóga hug- myndir um skipulagningu og mark- VEÐURHORFUR í DAG, 26. ÁGÚST YFIRLIT í GÆR: Um 400 km suð-suð-vestur af Vestmannaeyjum er 1.002ja mb. lægð, sem færist austur og síðan suð-austur, en yfir norð-austur Grænlandi er 1.021 mb. hæð. Hiti verður víða um 4-8 stig norðanlands, en 10-14 stig í öðrum landshlutum. SPÁ: Hæg breytileg átt á landinu, víða þokuloft við norðurströnd- ina og jafnvel suð-vesturströndina fram eftir morgni, en annars léttskýjað víða um land. Hiti víðast 8-14 stig að deginum. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg suð-austar) átt og lítils- háttar súld á annesjum suð-vestan- og vestanlands, en úrkomu- laust annars staðar. Hiti 6-14 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Sunnan og suð-austanátt. Súld eða rign- ing sunnanlands en að mestu þurrt annars staðar. Hiti 9-12 stig. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað s, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / ■J0° Hitastig: 10 gráður á Celsíus Skúrir — Þoka = Þokumóða * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ’ , ’ Súld CO Mistur —{* Skafrenningur Þrumuveður w VEÐUR VÍÐA UM HEIM k\. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl voSur Akureyri 6 þoka Reykjavík 12 léttskýjað Bergen 13 skýjað Helsinkí 13 skýjað Kaupmannah. 16 léttskýjað Narssarssuaq 8 léttskýjað Nuuk 5 þoka i grennd Ósló 15 skýjað Stokkhólmur 12 skýjað Þórshöfn 11 alskýjað Algarve 30 þokumóða Amsterdam 18 skýjað Barcelona 30 mistur Berlín 14 rigning Chicago 18 léttskýjað Feneyjar 27 þokumóða Frankfurt 19 skýjað Clasgow 14 skýjað Hamborg 16 skýjað Las Palmas 29 heiðskírt London 21 alskýjað Los Angeles 18 mistur Lúxemborg 15 skýjað Madríd 32 léttskýjað Malaga 29 skýjað Mallorca 31 skýjað Montreal 20 léttskýjað New York 17 heiðskírt Orlando 26 hálfskýjað París 21 hálfskýjað Róm 29 þokumóða Vín 28 iéttskýjað Washington 19 léttskýjað Winnipeg vantar Morgunblaðið/ÚlfarÁgústsson Frá setningur aðalfundar Skógræktarfélags íslandi. mið átaksins á næsta ári. í dag sem veittar verða leiðbeiningar um heimsækja fundarmenn skógarreit gróðursetningaraðferðir og með- Skógræktarfélags ísafjarðar þar ferð ungplantna Aðalfundur SSA: Verðum að komast út úr hrepparígnum - segir Hraftikell A. Jónsson Aðalfundur Sambands sveitarfé- laga í Austurlandskjördæmi hófst á Vopnafirði í gær. Yfirskrift fundar- ins að þessu sinni er Austurland árið 2000. Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar var einn framsögumanna. Hann sagði að til greina kæmi að Byggðastofnun keypti stóran jarðgangabor til að lána íslenskum verktökum til jarð- gangagerðar. Hann sagðist setja þessa hugmynd fram til að undir- strika þá skoðun sína að bættar samgöngur væru forsenda raun- hæfrar byggðarþróunar í landinu. Þetta væri kannski eina ráðið til að snúa þróuninni við landsbyggð- inni í hag. Það var Hrafnkell A. Jónsson formaður Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi sem setti fundinn. Hann sagði í ræðu sinni að það væri kominn tími til að breyta uppbyggingu Samtaka íslenskra sveitarfélaga til þess að reyna að koma í veg fyrir það að landshlutasamtök sveitarstjórnar- manna vinni sífellt hvert gegn öðru. Hrafnkell sagði einnig að Austfirð- ingar yrðu að komast út úr þeim landlæga hrepparíg sem þar væri. „Við verðum að endurmeta stöðu okkar megin atvinnulega og af raunsæi án tilfinningasemi og án þess að sjá hlutina í rómantískum hillingum. Við verðum að sætta okkur við að þróun sem við ráðum ekki við, getur leitt til þess að byggðir fari í eyði.“ Hann sagði einnig að menn yrðu að beygja sig undir þá staðreynd .að heilbrigt atvinnulíf krefst þess að gætt sé hagkvæmni í rekstri og skynsamleg byggðastefna hlyti að krefjast þess sama. Hann sagðist telja að eitt meginmarkmiðið hlyti einnig að vera að geta lagt stofnun á borð við Byggðastofnun niður og það sem fyrst. „Við verðum að byggja upp samfélag sem gerir okkur kleift að bera ábyrgð á eigin gerðum,“ sagði Hrafnkell. Garðar Rúnar Bolungarvík: Deilt um framkvæmd- ir við grunnskólann ÚTBOÐ vegna innanhússfrágangs í nýbyggingu Grunnskólans í Bolungarvlk heíúr valdið nokkrum deilum í bænum. Bæjarstjóm Bolungarvíkur samþykkti í síðustu viku með fjórum atkvæðum gegn tveimur að semja við trésmiðjuna Þrótt um verkið eftir að bæjaryfir- völd töldu jjóst að ekki næðust samningar við Jón Friðgeir Einars- son, verktaka á Bolungarvík, sem hafði verið með lægra tilboð í útboði er fram fór. Jón Friðgeir telur sig hafa verið misrétti beitt- ur, formlegar samningaviðræður við hann hafi aldrei átt sér stað. Hefúr Verktakasamband ísland sent bæjarstjórninni bréf þar sem málsmeðferð er gagnrýnd. Fimm aðilum var boðin þátttaka í útboði um verkið en tilboð bárust einungis frá tveimur verktökum, Trésmiðjunni Þrótti og Jóni Frið- geiri Einarssyni. Voru bæði tilboðin, sem opnuð voru 31. mars sl., tölu- vert yfir kostnaðaráætlun en tilboð Jóns Friðgeirs nokkuð lægra. Var ákveðið að ógilda útboðið og endur- skoða kostnaðaráætlun. Var báðum aðilum sent bréf 27. apríl þar sem þeim var tilkynnt um þá ákvörðun og Jóni Friðgeiri boðið að ganga til samninga um hluta verksins. Síðan deilir aðila á um hvað gerð- ist. Jón Friðgeir telur að aldrei hafi verið hafnar formlegar samninga- viðræður og engar formlegar tölur lagðar fram heldur hann einungis fengið bréf þar sem hann var beð- inn um að taka verkið að sér miðað við endurskoðaða kostnaðaráætlun. Deila aðilar um hvort sundurliðuð kostnaðaráætlun hafi fylgt með bréfinu eða ekki. Hafi hann óskað eftir viðræðum en ekki heyrt frekar frá bygginganefnd. Bæjaryfirvöld telja hins vegar að viðræður hafi farið fram og sýnt hafi verið að ekki gæti náðst samkomulag og ákváðu að semja við Þrótt. Jón Friðgeir Einarsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hann kynni enga skýringu á þessu og gæti lítið gert, þetta væri sjálfsagt allt löglegt en siðlaust. Taldi hann að ekki hafi svo mikið legið á að ekki hefði .verið hægt að fresta málinu og skoða það betur. Verktakasamband íslands hefur sent bæjarstjórn Bolungatvíkur bréf vegna þessa máls þar sem seg- ir að Verktakasambandið telji að ekki hafi verið staðið rétt að málum varðandi samningsgerð við lægst- bjóðanda og að þau vinnubrögð se'm eðlileg hljóta að teljast í máli eins og þessu hafi verið sniðgengin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.