Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989
33*.
I
i
I
|
I
i
Þessir hringdu . . .
Framsókn og Pólland
230712-4099 hringdi:
„Ég segi ekki að nokkur maður
sé framsóknarmaður, nema að ég
sé handviss um að svo sé. En mér
finnst að þegar Gorbatsjov heimtar
að pólskir kommúnistar eigi að
ráða öllu í Póllandi, þegar fólkið
er hætt að kjósa þá, þá er það eins
og þegar Steingrímur Hermanns-
son sagðist hafa þingmeirihluta af
því að hann vildi verða forsætisráð-
herra en hafði hann ekki. Það er
nógu bölvað þegar framsókn er í
stjórn með þingmeirihluta en ekki
hægt þegar hún hefur hann ekki.“
Kettir
Rasmus, sem er svartur með
hvítan haus, hvarf frá Gijótagötu
fyrir nokkru. Finnandi hringi í síma
10786.
Þrír kettlingar fást gefíns. Upp-
lýsingar gefur Marta í síma
681624.
Taska
Hvít og rauð íþróttataska tapað-
ist í Hvalfirði um miðjan júlí.
Finnandi er beðinn um að hafa
samband við Árna í síma 21179.
Svefiipoki og jakki
Svefnpoki, rauður að utan en
ljósdrapplitaður að innan, fannst á
útihátíðinni í Húnaveri. Upplýsing-
ar gefur Stella í síma 52651.
Hjá sama aðila er einnig grár
krakkajakki, sem er í óskilum og
fannst í Hellisgerði í Hafnarfírði.
Páfagaukur
Ljósblár páfagaukur tapaðist í
Jakaseli síðasta miðvikudagskvöld.
Þeir sem hafa orðið hans varir, eru
beðnir um að hringja í síma 71041.
Hver kann ljóðið?
Ásta hringdi:
„Sigurður Eggerz orti eitt sinn
ljóð í tilefni af skipsskaða við Mýr-
dalssand. Það hefst svo: ,;Alfaðir
ræður, öldumar hníga..“. Ég man
ekki alveg ljóðið allt en ef einhver
getur sagt mér það, bið ég viðkom-
andi að hafa samband við mig í
síma 681721.“
Furðuleg samningsgerð
Guðmundur Níelsson hringdi:
„Ég er mjög undrandi á því
hvernig staðið hefur verið að ráðn-
ingu Siegfrieds Helds, landsliðs-
þjálfara í knattspyrnu. Eftir því
sem Ellert B. Schram, formaður
KSÍ, segir, þá er bara til munnleg-
ur samningur milli hans og KSI.
Hvers konar samningsgerð lærði
Ellert í lögfræðinni?
Nú er Held farinn að þjálfa lið
í Tyrklandi og á mjög erfítt með
að fylgjast með íslenzku leikmönn-
unum. Svo segist hann verða eins
og hlutlaus áhorfandi að leik Is-
lands og Tyrklands. Held er sjálf-
sagt góður þjálfari en það er mikið
atriði fyrir lið, að þjálfari standi
algjörlega á bak við sína menn.
Því væri sennilega réttast að fá
nýjan þjálfara strax.“
Hálsfesti
Gullhálsfesti fannst fyrir 18-20
árum og í nistið er grafið nafnið
Erna Dís Elena. Finnanda hefur
ekki tekizt að hafa upp á eigandan-
um öll þessi ár, þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir. Ef einhver getur veitt
upplýsingar um eigandann, er við-
komandi beðinn um að hafa sam-
band við Örnu í síma 98-75096.
Myndavél
Myndavél af gerðinni Rico tap-
aðist um síðustu helgi annað hvort
á Ártúnssvæðinu eða við
Reykjavíkurhöfn. Finnandi hringi í
síma 672491.
Jörundur og hundadagar
Erna Ingólfsdóttir hringdi:
„í dagskrárlok á miðvikudags-
kvöldið sagði kynnirinn í Ríkissjón-
varpinu, að hundadagar hefðu ver-
ið nefndir eftir Jörundi hundadaga-
kóngi. Þessu er hins vegar öfugt
farið. Jörundur var hér við völd á
hundadögum og það var hann, sem
var kenndur við þá. Hann var
nefndur hundadagakóngur í háði.“
Hamar
Lítill hamar, merktur með út-
skornum stöfum, S.B., er týndur.
Hamarinn er 60 ára gamall og eig-
andanum kær. Finnandi hafí sam-
band við Sæmund í síma 686879.
Seðlaveski
Svart seðlaveski tapaðist í Sund-
laug Vesturbæjar á fímmtudags-
morgun. í því er fjöldi mikilvægra
skilríkja. Finnandi er vinsamlegast
beðinn um að hringja í síma
624412.
I
4
4
4
-I
Sovéskir dagar 1989:
Tónleikar í Þjóðleikhúsinu
Lokatónleikar listafólksins frá Moldavíu, Kammerhljómsveitar
moldaviska útvarpsins undir stjórn A. Samúile og óperu-
söngvaranna Maríu Bieshú, sópran, og Mikhaíls Múntjans,
tenor, verða í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 27. ágúst og
hefjast kl. 16 - kl. fjögur síðdegis. Á efnisskránni eru hljóm-
sveitarverk, óperuaríur, einsöngslög og þjóðleg tónlist.
Miðasala í Þjóðleikhúsinu laugardag kl. 13-17 og sunnudag
kl. 13-16.
MIR.
FRA KL. 12 00 TIL 19:00.
Það verður uppi fófur og fit
í Sundaborg 16 fram á laugardag.
Axel Ó h eildverslun rýmir skó af lager
og portúgölsk skóverksmiðja notar
tækifærið og selur skó á útsöluverði.
Kuldaskór fási trá 990 kr•,
og aðrir skór frá 790 kr.
Gefðu buddunni undir fótinn og líttu
inn í Sundaborg 16 án tafar.
Þú ferð þaðan vel skóaður.