Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 16
»1 . 6861 T8ÍI0A. .32 aiíOAaHAOUAJ SlöAJaVÍUOHO 16 ... MORGUNBLAÐIÐ'ESUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 Japan: Helsti aðstoðarmað- ur Kaifus segir af sér Tókíó. Reuter. TOKUO Yamashita, talsmaður japönsku ríkissljómarinnar, sagði af sér embætti í gær vegna kynlífshneykslis sem hann var viðriðinn. Eftirmaður hans var þegar tilne&dur Mayumi Moriy- Beirút. Reuter. FRÖNSK herskip sigldu úr færi stórskotaliðssveita shítamúsl- ima í Líbanon í gær en þeir höfðu hótað að skjóta á skipin ef þau nálguðust strendur lands- ins. Frönsk stjórnvöld höfðu fækkað í flotanum úr átta skip- Tsjemóbíl: Varað við menguðum sveppum Moskvu. Reuter. Sovéskir embættismenn hafa ráðlagt íbúum nærri Leníngrad-borg að neyta ekki villtra sveppa og segja að geislavirkni sem rakin er til Tsjemóbíl-kj amorkusly ssins 1986 sé enn á hættulegu stigi. í dagblöðum í Leníngrad voru birt landakort með skyggðum reitum yfír hættusvæðið sem nær frá landamærum Eist- lands til Finnskaflóa. Geisla- virkni þar er tvisvar til þrisvar sinnum hærri en eðlilegt telst. V etrarólympíuleik- ar 1994: CBS kaupir sjónvarps- réttinn New York. Reuter. Bandaríska CBS-sjónvarps- stöðin hefur keypt sjónvarps- réttinn að vetrarólympíuleik- unum sem haldnir verða í Lille- hammer í Noregi 1994. Greiddi sjónvarpsstöðin 300 miljónir dala, um 18 miljarða ísl. króna fyrir réttinn. Áður hafði CBS orðið sér úti um réttinn til að sjónvarpa frá vetrarólympíuleikunum í Al- bertsville í Frakklandi 1992. Astralía: Flugmenn segja upp störfiim Sydney. Reuter. Flugmenn í Ástralíu hafa lagt fram fjöldauppsagnir til að mótmæla því að þarlend flugfélög hófu að segja upp einum og einum flugmanni vegna launadeilna se_m hafa lamað flugþjónustu í Ástralíu. Alls sögðu 1.600 flugmenn upp störfum. Talið er að að- gerðir flugmanna geti valdið flugfélögunum alvarlegri skrá- veifu þar sem margir þeirra eiga rétt á háum eftirlaunum auk þess sem félögin hafa þegar orðið fyrir miklu tapi vegna launadeilnanna. ama. Hún er fyrsta konan sem gegnir embætti talsmanns japan- skrar ríkissljómar. Yamashita, sem gekk næstur Toshiki Kaifu forsætisráðherra, viðurkenndi á fimmtudag að hann hefði greitt um í fímm og þau héldu sig í 190 sjómílna fjarlægð frá Liban- on. „Við heitum því að skjóta á skipin ef þau nálgast landamæri okkar,“ sagði Nabih Berri, yfír- maður hers Amalshíta, sem nýtur stuðnings Sýrlendinga. Sýrlend- ingar, sem hafa 33.000 manna herlið í Líbanon, vöruðu einnig frönsk stjórnvöld við og sögðu að það gæti reynst þeim dýrkeypt að beita flota sínum við Líbanon. Sýrlendingar og bandamenn þeirra telja að herskipin séu send til stuðnings Michel Aoun, hers- höfðingja og leiðtoga kristinna manna, þrátt fyrir yfírlýsingar franskra stjómvalda þess efnis að herskipin hafí verið send til Líban- ons af mannúðarástæðum. Sovésk sendinefnd reynir nú að miðla málum í Líbanon. Genadí Tarasov, forsvarsmaður nefndar- innar og fulltrúi Edúards She- vardnadze, utanríkisráðherra Sov- étríkjanna, sagði að nefndarmenn hefðu átt viðræður við Michel Aoun og Nasrallah Sfeir, leiðtoga maroníta, um að bundinn yrði end- ir á átök milli hersveita Aouns og Sýrlendinga. Tarasov sagði að sovésk stjóm- völd, sem fylgja Sýrlendingum að málum, hefðu sett sig í samband við stríðandi fylkingar í landinu í því skyni að stuðla að friðsam- legri lausn. Hann skýrði ekki nán- ar frá tillögum Sovétmanna. fyrrum ástkonu sinni þijár milj- ónir jena, um 1,2 miljónir ísl. króna, til að þagga niður í henni. „Mér er ekki stætt á því að vera í ríkisstjóm Kaifus sem hefur pólit- ískar umbætur og upprætingu spill- ingar að markmiði," sagði Yamas- hita við blaðamenn þegar hann til- kynnti afsögn sína. Vikuritið Shukart Shincho birti viðtal við ónafngreinda konu er gegnir starfi þjónustustúlku á bar þar sem hún lýsti sambandi sínu við Yamashita sem stóð í þijú ár. Samkvæmt frásögn konunnar hófst samband þeirra er Yamashita nauðgaði henni þegar þau sátu að drykkju og horfðu á klámfengin myndbönd í skrifstofu hans. „Frásögn hennar er í aðalatriðum rétt,“ sagði Yamashita við blaða- menn. „En ég er kannski ósammála henni í fáeinum atriðum." Á blaðamannafundinum sagði Yamashita að hneykslismálið væri blettur á hinni nýju ríkisstjórn og Kínversku heimildarmennirnir sögðu að Wang hefði verið haldið í einangrun fyrstu vikurnar í fang- elsinu en væri nú með öðrum pólitískum föngum. Þeir sögðu að hann hefði staðfastlega neitað að svara spumingum við yfírheyrslur. Fjölmiðlar í Kína hafa ekki skýrt Tokuo Yamashita sagði af sér embætti talsmanns japönsku ríkisstjórnarinnar í gær en hann viðurkenndi á blaðamannafundi í Tókíó á fimmtudag að hann hefði greitt fyrrum ástkonu sinni þijár miljónir jena til að þagga niður í henni. að hann bæri alfarið ábyrgðina. „Það er við mig einan að sakast að þessi tíðindi spyijast út. Ríkis- stjórn Toshikis Kaifus er nýtekin til starfa og mér er skylt að sjá til þess að spillingu sé haldíð utan við stjórnmál," sagði hanni Vikuritið sagði að Yamamshita frá handtöku Wangs þótt japanskir blaðamenn hafí fengið staðfestingu á henni frá talsmanni stjómarinnar í síðustu viku. Dagblöðin Politiken í Danmörku og Dagens Nyheterí Svíþjóð hyggj- ast veita Fang Lizhi Frelsisverð- launin í Kaupmannahöfn 10. sept- Reuter Mayumi Moriyama er fyrst kvenna til að gegna embætti tals- manns japanskrar ríkisstjórnar. hefði afhent konunni peningana sem hún hefði skilað tveimur vikum síðar ásamt öðmm gjöfum hans. Eftirmaður Yamashita, Mayumi Moriyama, var áður í forsvari fyrir umhverfismálastofnun Japans. Stjórnmálaskýrendur telja að með tilnefningu Moriyama vilji Fijáls- lyndi demókrataflokkurinn, sem fer með völd í Japan, skáka kvenleið- toga sósíalistaflokksins og stærsta stjórnarandstöðuflokksins, Takako Doi, sem nýtur mikilla vinsælda. ember. Námsmannaleiðtoginn Wu- er Kaixi og fleiri kínverskir andófs- menn verða viðstaddir athöfnina en Fang kemst ekki þar sem hann er enn í bandaríska sendiráðinu í Pek- ing, sem veitti honum skjól er kínversk stjómvöld hófu ofsóknir sínar á hendur andófsmönnum. Wang Jin-sheng, fulltrúi í kínverska sendiráðinu í Kaup- mannahöfn, sagði að verðlauna- afhendingin væri ögmn við kínversku þjóðina og íhlutun í inn- anríkismál Kínveija, þar sem Fang væri „eftirlýstur glæpamaður“ í Kína og vildi steypa stjórninni. Ríkissljórn Samstöðu í Póllandi: Efiiahagsviðreisn Póllands háð aðstoð Vesturlanda Washington. Reuter. HIN nýja ríkisstjórn Póllands þarf að líta í vesturátt, ef tilraunir hennar til þess að ráða bót á eftiahagsvandanum eiga að bera árangur. Að líkindum á ástandið þó enn eftir að versna áður en birta tekur til á ný. Þetta er mat bandariskra sérfræðinga í eftia- hagsmálum og máleftium Póllands. Þeir segja að Vesturlönd verði að taka stjórninni — sem er hin fyrsta í kommúnistaheiminum þar sem kommúnistar fara með aukahlutverk — opnum örmum, en Uóst þykir að vestræn eftiahagsaðstoð verði að koma til eigi Samstöðumenn að geta lappað upp á efhahagsástandið. Þar nálg- ast verðbólga það að vera-200% og erlendar skuldir eru um 40 milljarðar Bandarikjadala. Samstöðumaðurinn Tadeusz Mazowiecki, hinn nýi forsætisráð- herra Póllands hefur þegar óskað eftir efnahagsaðstoð frá Banda- ríkjunum, en hinir bandarísku efnahagssérfræðingar eru þeirrar skoðunar að fyrst og fremst þurfí Pólveijar að koma á markaðshag- kerfí í stað miðstýringar og taka upp náin efnahagstengsl við ná- granna sína í Vestur-Evrópu. „Hvort Póllandi tekst að koma efnahag sínum á þurrt eða ekki ræðst af þvi, að hve miklu leyti landið verður hluti af hinni evr- ópsku efnahagsheild," segir Jerry Hough, sem er efnahagssérfræð- ingur og stjómmálaskýrandi við Brookings-stofnunina banda- rísku, í viðtali við Reuters. Hough segir að pólskir verka- menn þurfí enn að bíta á jaxlinn hvað vöruverð áhrærir, því eigi efnahagurinn að komast á réttan Iq'öl þurfí iðnaðurinn og bændur að fá hvatningu til framleiðslu- aukningar — hærra verð. Hann telur einnig að Pólvetjar þurfi að skyggnast vestur yfir Jámtjald — sérstaklega til Vest- ur-Þýskalands — í leit að efna- hagsaðstoð, flármagni til einka- geirans og tækniaðstoð. „Það er hins vegar Vestur- Evrópu að segja sem svo: ,Mark- aðurinn verður opnaður, vilji Austur-Evrópa fá aðgang að hon- um‘,“ sagði Hough. Viðbrögð Vestur- landa óljós Viðbrögð Vesturlanda em hins vegar ekki á hreinu. Undirtektir þeirra við þá yfírlýsingu Lechs Walesa í vor, að Pólveijar yrðu að fá 10 milljarða Bandaríkjadala inn í efnahagslífíð, vom fremur dræmar, en á hinn bóginn kemur að flestar vestrænar ríkisstjómir vildu bíða og sjá hvers konar ríkis- stjóm tæki við völdum. Áðurnefndir stjórnmálaskýr- endur telja að erfitt verði fyrir Vesturlönd að hafna beiðnum um efnahagsaðstoð frá lýðræðislegri stjóm, eftir að hafa hvatt til slíkrar stjómar um árabil. í næsta mánuði mun beiðni George Bush Bandaríkjaforseta um 119 milljóna dala efnahagsað- stoð við Pólland koma til kasta Bandaríkjaþings. Margir þing- menn vilja að meira fé verði sent til Póllands, en ljóst má telja hveijar sem lyktir verða, að mjög ákveðnar kröfur verða gerðar til Vestur-Evrópu og ábyrgðar henn- ar á grönnum sínum í austri. Líbanon: Frönsku herskip- in halda sig flarri Ofsóknirnar í Kína: Andófsmaður sætir barsmíðum í fimgelsi Kínverjar mótmæla verðlaunaafhendingu norrænna blaða Peking, Kaupmannahöfh. Reuter. KÍNVERSKI námsmannaleiðtoginn Wang Dan hefur sætt barsmíðum í fangelsi frá því hann var handtekinn í síðasta mánuði en er enn á lífi, að því er haft var eftir heimildarmönnum innan lögreglunnar í Peking í gær. Wang var efstur á lista yfir þá sem kínversk stjórn- völd lýstu eftir er mótmælin i Peking höfðu verið kveðin niður. Kínverska sendiráðið í Kaupmannahöfn hefur sent danska utanríkis- ráðuneytinu kvörtun vegna áforma tveggja norrænna dagblaða um að veita kínverska andófsmanninum Fang Lizhi Frelsisverðlaunin svokölluðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.