Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1989 15 Miklar hafiiarfram- kvæmdir á Húsavík Húsavík. MIKLAR framkvæmdir hafa verið við Húsavíkurhöfn á líðandi sumri og er áætlað að þær kosti um 43 milljónir króna. I tlp S# • ....... ' í fyrra var gerður brimbijótur við svo kallaðan Norðurgarð, sem er inn- an við Bökuna og myndaðist þar mikið lón, sem stóð ófyllt sl. vetur. í vor var svo samið við Dýpkunarfé- lagið hf. um að dæla lausu efni, sandi og leir, úr höfninni upp í lónið, um 14.000 rúmmetrum, og þar með um leið að dýpka höfnina. Verkið hófst í júní og þegar búið var að dæla um 10.000 rúmmetrum reyndist ekki meira laust efni í höfn- inni og varð þá að aka því efni, sem á vantaði til að fylla lónið, og er því verki nú að ljúka. Með því að dæla efninu úr höfninni og í lónið vinnst tvennt. Efnið sem upp er dælt nýtist og jafnframt sparast flutningur á því með prömmum út í hafsauga eins og venja er við dýpkun hafna. Einn- ig reyndist kostnaður á hvern rúm- metra til fyllingar við lónið vera minna á þennan hátt en að aka fylli- efninu úr námum upp til fjalla. Jafnframt hefur verið unnið að sprengingum og gijótvinnslu í gijót- ' námunni í Kötlum frá því í vor. Þar er um að ræða 16.000 fermetra af- gijóti og verður hver steinn, sem nothæfur er, að vera 1 til 4 tonn. Til viðbótar hafa svo verið unnir 2.500 ferm. af 4 til 8 tonna „björg- um“ í brimbijótinn. Það sem smærra er í námunni er notað til að gera sjóvarnargarð í fjörunni neðan Stangarbakka en sá garður verður jafnframt vegur fyrir þungaflutninga fyrir neðan Bakkann. Við þessar framkvæmdir stækkar og verður þægilegra allt athafnasvæði við höfnina. Yfirverkstjóri við allar þessar framkvæmdir er Guðmundur Hjart- arson og hefur verkið unnist vel miðað við aðstæður. - Fréttaritari Kísilskemman við hafhargarðinn og slippurinn á Naustafjöru. Morgunblaðið/Silli — Rauði krossinn: Námskeið í skyndihjálp REYKJAVÍKURDEILD RKÍ stendur fyrir kvöldnámskeiði í skyndihjálp 29. ágúst til 3. sept- ember. Námskeiðið hefst næst- komandi þriðjudag kl. 20.00. Öll- um 15 ára og eldri er heimil þáttaka á námskeiðinu sem hald- ið verður að Armúla 34. Meðal þess sem kennt verður á námskeiðinu er endurlífgun og margt fleira sem getur skipt máli er slys ber að höndum. Leiðbein- andi verður Guðlaugur Leósson. Þeim sem áhuga hafa á að kom- ast á námskeiðið er bent á að hafa samband við skrifstofu RKÍ. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Fyrirlestur: Tölvunotkun í stærðfræði- kennslu VIGGO Sadolin lektor við Dan- marks Lærehojskole heldur fyr- irlestur í Kennaraháskóla íslands um tölvunotkun i stærðfræði- kennslu mánudaginn 28. ágúst. Fyrirlesarinn hefur langa reynslu af þróun forrita til stærðfræði- kennslu. Mörg forrita hans hafa nú verið þýdd á íslensku á vegum Reiknistofnunar Háskóla íslands og munu þau m.a. kynnt í fyrirlestrin- um. Námsgagnastofnun mun ann- ast sölu forritanna. Á undanförnum árum hefur áhersla í skólum hvarvetna beinst í auknum mæli að því að nýta tölv- ur beint í kennslu hinna ýmsu náms- greina. Ýmis rannsóknar- og þróun- arverkefni hér á landi og erlendis ijalla um það viðfangsefni. Meðal þeirra má nefna danska verkefnið INFA (Informatik i skolens fag) sem á íslensku má kalla upplýsinga- tækni í kennslu námsgreina. Viggo Sadolin hefur tekið virkan þátt í þessu rannsóknaverkefni frá upp- hafi. Fyrirlesturinn hefst klukkan 16 og er í stofu 201. (Úr fréttatilkynninjfu.) -hefur kennt íslendingum aö meta gott kaffi. Þú getur valið um þijár mismunandi tegundir af Merrild-kaffi. 103 - Millibrennt 3 04 - Dökkbrennt 104 - Mjög dökkbrennt Merrild-ilmandi og ljúffengt kaffi, sem bragö er af.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.