Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.08.1989, Blaðsíða 21
2i Afnot af íbúð í Davíðshúsi Eins og áður hefur komið fram, þá gefst fræði- mönnum og listamönnum kostur á að sækja um 1-6 mánaða dvöl í lítilli íbúð í Davíðshúsi, til að vinna að fræðum sínum eða listum. Ákveðið hefur verið, að frestur til að skila umsóknum um afnot af íbúðinni árið 1990, renni út 30. septem- ber nk. Umsóknir ber að senda til: Akureyarbær, c/o Ingólfur Ármannsson, menningarfulltrúi, Strandgötu 19b, 600 Akureyri. Heiðargæs fjölgar mjög á afréttum Morgunblaðið/Rúnar Þór Húsum velt um koll Leikvöllurinn á Iðavöllum hefur ekki fengið að vera í friði nú síðsumars. Aðkoma fyrir starfs- menn og börn hefur verið heldur óskemmtileg á morgnana, svæðið allt út í rusli, sælgætis- bréfúm, gosdósum og vindlingastubbum. Þá hafa kvöld„gestir“ gert sér það að leik að henda um koll húsum barnanna, eins og sjá má á myndinni. Börnin hafa undrandi horft upp á umgengnina á vellinum þeirra. Að sögn starfs- manns á Iðavöllum er talið nær fullvíst að um unglinga sé að ræða og er þetta ekki í fyrsta sinn sem þeir ráðast til atlögu á vellinum, því undanfarin haust hafa ummerki verið með sama hætti. „Það er eingöngu á vorin og á haustin sem þetta gerist. Það er eins og krakkarnir fái einhvern fiðring í sig þegar þeir hætta í skólan- um eða eru að byrja aftur á haustin,“ sagði starfsmaðurinn. Morgunblaðið/Rúnar Þór Kraftar í kögglum Tíu sterkbyggðir kraftakarlar reyndu með sér i hjólbörum frá Hrísey nokkra vegalengd, en í í ýmsum aflraunum í göngugötunni á Akureyri I börunum var hvorki meira né minna en 800 kílóa í gær, en þar voru á ferðinni keppendur um titil- hlass. Keppnisgreinin vafðist ekki mikið fyrir inn Aflraunameistari íslands. Fyrsta keppnis- I flestum keppendanna. greinin var fólgin í því að aka þar til gerðum | NORÐLENSKIR bændur hafa þungar áhyggjur af fjölgun heiðar- gæsa á afréttum. Heiðargæsum hefur Qölgað jafht og þétt síðastlið- in 30 ár. Gæsunum fjölgar sífellt," sagði Tryggvi Harðarson í Svartárkoti í Bárðardal í samtali við Morgun- blaðið. „Hún er að leggja undir sig alla afréttina. Við höfum reynt að sporna við fjölguninni með eggja- töku á vorin en það sér ekki högg á vatni. Á haustin er veiði leyfð en gæsirnar eru styggar og erfiðar viðureignar." Tryggvi sagði gæsina hirða allan nýgræðing sem kæmi undan snjónum á vorin. Hann telur virkjunarframkvæmdir sunnan- lands eiga þátt í fjölgun gæsa fýrir norðan. Aðalsteinn Aðalsteinsson á Vað- brekku í Jökuldal hefur einnig orðið Útímarkað- ur og tívolí ÁRLEGUR útimarkaður Ung- mennafélags Arnarnes- og Skriðuhrepps verður haldinn í fimmta sinn nú í dag og hefst kl. 13.00. Útimarkaður þessi er í Reistarár- rétt í Arnarneshreppi og eru allir söludilkar upppantaðir. Þeir sem leið sína leggja á markaðinn geta fest kaup á hinum ólíklegustu hlut- um, nýjum, reyktum eða þurrkuð- um fiski, sveppum, kartöflum og grænmeti, auk hverabrauðs. Þá verða til sölu leirmunir, bútasaum- ur, notaður fatnaður og heima- saumuð barnaföt. Hlutavelta verður haldin og eins konar tívolí í smækkaðri útgáfu. Lokst gefst markaðsgestum tæki- færi til að drekka síðdegiskaffið á staðnum, en kaffi verður til sölu og eitthvað til að bíta í með. Fyrirhugað að byggja nýja dagvist við Þverliolt ÞAR SEM dregið hefur úr að- sókn bama á gæsluvelli em uppi áform um að byggja næstu dagvistir Akureyrarbæjar á slíkum völlum, en með því nýt- ist svæðið betur og einnig verð- ur hægt að veita þar fjölbreytt- ari þjónustu. Ágúst G. Berg húsameistari Akureyrarbæjar hefiir fyrir hönd bæjarins sótt um lóðimar númer 3 og 5 við Þverholt, en þar er fyrirhugað að byggja nýja dagvist, sem að hluta til yrði einnig gæsluvöllur. Á fundi bygginganefndar fyrr í þessum mánuði var erindinu fre- stað þar sem eðlilegt þótti að fram færi grenndarkynning og kynning á umfangi þeirra bygginga sem fyrirhugaðar eru á lóðinni. Jón Björnsson félagsmálastjóri sagði að á þessu ári hefði komið til 15 milljón króna fjárveiting úr bæjarsjóði til verkefnisins, en þar sem fjárhagsáætlun yrði endur- skoðuð fljótlega hefði verið ákveð- ið að hinkra aðeins við varðandi framkvæmdir. Þó hefur verið unn- ið að því að skoða ýmsa valkosti, en fyrirhugað er að reisa rúmlega 200 fermetra einingahús á lóð- inni. Fyrirkomulagi yrði þannig háttað að samhliða yrði þar rekin gæsluvöllur og dagvist. Jón sagði stöðuna í dagvistar- málum á Akureyri oft hafa verið verri. „Við nálgumst það að geta sinnt dagvistarþörf 2-6 ára barna, en það er sá hópur sem hefur for- gang á dagvistum bæjarins. Enn eru nokkuð langir biðlistar, en bið- tími hvers barns er hins vegar ekki langur,“ sagði Jón. Öll aukn- ing í dagvistum undanfarið hefur komið í Glerárhverfi og nýjasta dagvistin sem fyrirhugað er að rísi í Þverholti er einnig í því hverfi. Jón segir að hverfið eigi því að vera nokkuð vel sett hvað dagvistunarrými varðar, en á móti kemur að um er að ræða barnf- lesta hverfið. _ Skakkt númer í nýrri símaskrá sem KA-menn hafa nýlega lokið við að dreifa hafa af einhveijum ástæðum átt sér stað slæm mistök. I auglýsingu frá Morgunblaðinu misritaðist símanúmer á ritstjórn blaðsins og í stað hins rétta númers 21100 er gefið upp númer bæjarskrifstof- anna á Akureyri. var við fjölgun heiðargæsa. „Hér sást varla gæs fyrir nokkrum árum. Nú er svo komið að gæsabeit er meira áberandi en beit eftir sauðfé á afréttinni á vestur-öræfum. Af- réttin er ein af víðlendustu og grón- ustu afréttum á landinu." Að sögn Aðalsteins er eggjataka þó nokkur á vorin og veiði á haustin. Það virð- ist þó ekki hafa áhrif á stofninn. „Mér hefur skilst að eggjataka geti jafnvel valdið fjölgun, þeir ungar sem komi úr eggjunum sem eftir verða fá meiri fæðu og komast frek- ar á Iegg,“ segir Aðalsteinn. Menn eru ekki á eitt sáttir um hvað valdi fjölgun heiðargæsa. Annars vegar eru þeir sem teija friðun heiðargæsa á vetrarstöðvum í Evrópu vera skýringuna. Hins vegar eru þeir sem telja aukna áburðarnotkun bænda í Skotlandi hafa bætt lífsskilyrði gæsanna og valdi því að fleiri lifi vetursetuna af. Heiðargæsaveiði mátti hefjast 20. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.