Morgunblaðið - 05.09.1989, Page 28
MORGUNBÍiAÖIÐ ÞRIÐJUDAGUR k 'sÉPTkMBER 1989
(K
28
Gondólakeppni íFeneyjum
GONDÓLAR og- fleiri bátar í keppni, sem haldin er árlega á Miklaskurði í Feneyjum. Fór hún að
þessu sinni firam sl. sunnudag, 3. september, og fylgdist mikill mannfjöldi með kappróðrinum.
Flugslysið á Kúbu:
Að mínnsta kostí 126 fórust
þegar þota brotlenti í þorpi
Havana. Reuter.
AÐ minnsta kosti 126 manns týndu lífi þegar flögurra hreyfla far-
þegaþota kúbverska ríkisflugfélagsins brotlenti á sunnudagskvöld í
þorpi skammt frá flugvellinum í Havana. 113 liinna látnu voru ítal-
skir ferðamenn, að sögn hinnar opinberu fréttastofu á Kúbu, Prensa
Latina. Ótilgreindur fjöldi þorpsbúa lést þegar vélin brotlenti og 19
heimili gereyðilögðust. Óstaðfestar fréttir kúbverska.ríkisútvarpsins
hermdu að einn Itali hefði lifað slysið af og væri hann á sjúkrahúsi
með alvarleg brunasár. Þetta er mesta flugslys í sögu Kúbu.
Þotan, sem var af gerðinni Iljús- landi. Um borð voru 113 ítalskir
hin-62M, lagði af stað í slagviðri frá
flugvellinum í Havana og var ferð-
inni heitið til Mílanó á Italíu með
millilendingu í Köln í Vestur-Þýska-
ferðamenn og 13 manna kúbversk
áhöfn. í um tveggja km fjarlægð frá
flugvellinum brotlenti þotan í íbúa-
byggð. Þotan hlutaðist í sundur og
Eru fjölómettað-
ar fitusýrur hættu-
legar heilsunni ?
St. Andrews á Skotlandi. Frá Gudmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins.
VÍSINDAMENN hafa nú uppgötvað vísbendingar um að fjölómett-
aðar fitusýrur geti verið hættulegar heilsu manna að því er segir í
The Sunday Times sl. sunnudag. Niðurstöðurnar eru ekki óyggjandi.
Rannsóknarhópur við Iyfjafræði- einómettaðra fitusýra, sem ekki
deild háskólans í Cambridge hefur
komizt að þeirri niðurstöðu að fólk,
sem etur fjölómettaðar fítusýrur til
að koma í veg fyrir hjartasjúkdóma,
geti verið að setja sig í aukna hættu.
Þeir telja að íjölómettaðar sýrur séu
líklegri en aðrar til að valda æðakölk-
un.
í rannsóknum þessa hóps hefur
komið í ljós, að þegar líkaminn vinn-
ur úr kólesteróli þá veldur það stund-
um auknu magni af virku súrefni.
Það breytir svo þeim efnum, sem eru
rík af kólesteróli. Sú breyting veldur
því að efnin geta farið inn í æðavegg-
ina og stíflað æðina á endanum.
Fjölómettaðar fitusýrur hafa verið
faldar æskilegar til að Iækka kóleste-
ról. En kólesteról er ekki skaðlegt í
fsjálfu sér, einungis þegar súrefnið
breytir því.
Nú virðist skynsamlegast að neyta
Svíþjóð:
Saab-Scania
valda auknu súrefnL Mest af þeim
er í ólífuolíu, 74%. í smjöri er 29%
og yfirleitt um 12% í smjörlíki með
fjölómettuðum fitusýrum. í ríkjum
Suður-Evrópu, þar sem mikillar
ólífuolíu er neytt, er tíðni hjartveiki
lægri en í Norður-Evrópu.
„Ég vil ekki hefja fár gegn fjöl-
ómettuðum fitusýrum," sagði Morris
Brown, prófessor, sem stjórnar rann-
sóknahópnum. „Það má ekki líta svo
á að þessi hugmynd, að slíkar sýrur
séu hættylegar, sé sönnuð, en aukin
rök hníga til hennar.“
Almennt er talið skynsamlegt að
neyta ekki of mikillar dýrafítu og
mjólkurvara vegna aukins kólester-
óls, sem þær valda.
Dr. John Brown, sérfræðingur' í
hjarta- og æðasjúkdómum, taldi að
þessi kenning væri allt of óljós. í
vörum með fjölómettuðum fitusýrum
væri yfirleitt mikið af E-vítamíni,
sem hreinsaði súrefnið, sem mynd-
aðist. Sérfræðingur við háskólann í
Aberdeen taldi hins vegar að mestu
máli skipti súrefnið, sem myndaðist
við úrvinnslu fjölómettuðu fítusý-
mikill eldur varð samstundis laus.
Allir um borð í vélinni týndu lífi. 19
hús gereyðilögðust og er talið að
ljöldi íbúa hafi látist. 60 þorpsbúar
voru fluttir á sjúkrahús, að sögn
kúbverska útvarpsins. Ljósmyndari
sem kom á slysstaðinn sagði að engu
líkara væri en að sprengjur hefðu
fallið á svæðinu.
Fídel Kastró, forseti Kúbu, hélt á
slysstaðinn og kannaði eyðilegging-
una skömmu eftir atburðinn. Síðar
vitjaði hann slasaðra þorpsbúa sem
fluttir höfðu verið á sjúkrahús.
ítalska utanríkisráðuneytið hefur
sett á laggirnar neyðarnefnd til að
tilkynna aðstandendum fórnarlamb-
anna um slysið. Þetta er annað stór-
slysið á þessu ári sem hendir ítalska
flugfarþega á erlendri grund. I febr-
úar létust 144 menn, flestir þeirra
ítalskir ferðamenn, þegar Boeing
707 þota fórst á eynni Santa Maria
á Azoreyjum.
Málgagn austur-þýska kommúni-
staflokksins, Neues Deutschland,
greindi frá því í gær að Iljúshin-62
farþegaþotu austur-þýska ríkisflug-
félagsins Interflug hefði verið snúið
aftur til flugvallar í Austur-Berlín á
laugardag skömmu eftir flugtak.
Vélarbilunar hafði orðið vart í þo-
tunni. í júní st. létust 18 manns
þegar Iljúshin-62 þota Interflug-
flugfélagsins tókst ekki á loft og
rann út á engi við flugvöll í Austur-
Berlín.
Mexíká
flói
Havan
Miam! ” * ’]f‘
100 Km
Kúbönsk farþegaþota á leið til
Mílanó um Köln ferst og 126
manns með henni.
Auk þess lést fjöldi fólks á jöröu
niðri, þegar þotan steyptist niöur
skömmu eftir flugtak í þorp í 2 km
fjarlægö frá Havana-flugvelli.
Morgunblaðið/AM
Ungverski presturinn Roszik kjörinn á þing:
„Þjóðin veit að komm-
únismi er ekki svarið“
Godollo. Reuter.
LÚTERSKI presturinn Gabor Roszik í bænum Godollo í Ungverj-
alandi fékk næstum 70% atkvæða í aukakosningum til þingsins
í síðasta mánuði en mótframbjóðandi hans var úr röðum komm-
únista. Litið var á aukakosningamar í Godollo sem prófstein á
framgang fyrstu fjölflokka kosninganna í yfir 40 ár sem fram
fara á miðju næsta ári.
hyggur á sam-
starf við Ford
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
Stjórnendur sænska fyrirtæk-
isins Saab-Scania skýrðu frá því
í gær að hafnar væru viðræður
um samstarf við bandaríska bíla-
fyrirtækið Ford. Saab-Scania
hefur átt í verulegum erfiðleik-
um vegna minnkandi sölu og
mikils framleiðslukostnaðar.
Stjómendurnir vildu ekki upplýsa
í hveiju þetta samstarf myndi fel-
ast en sögðu að ekki kæmi til greina
að selja fyrirtækið. Þeir skýrðu frá
því að tap fyrirtækisins hefði num-
ið 800 milljónum sænskra króna
(7,4 milljörðum ísl. kr.) á fyrri helm-
ingi þessa árs og að líkur væru á
tapið myndi aukast á síðari helm-
ingi ársins.
Sala á vörubílum fyrirtækisins
hefur gengið vel og aukist um 20
af hundraði. Hins vegar hefur salan
á fólksbílum til Bandaríkjanna
minnkað um 15 af hundraði, þrátt
fyrir að verð hafi verið lækkað vem-
lega. Epnfremur veldur smíði orr-
ustuþotúnnar JAS 39 stjórnendum
fyrirtækisins áhyggjum vegna
seinkana og mikils kostnaðar.
Fyrirtækið ráðgerir að grípa til
sparnaðaraðgerða á næstunni,
fækka til að mynda starfsmönnum
sínum um 2.000.
„Gjörðu svo vel og sestu, fé-
lagi,“ var sagt við Gabor Roszik
þegar hann sýndi skilríki sín á
ungverska þinginu þar sem hann
tók sæti eftir stórsigur í aukakosn-
ingum í síðasta mánuði. „Viltu
vera svo vænn að kalla mig herra
Roszik, ekki félaga," svaraði hann.
„Ég er í stjórnarandstöðu."
„Þetta er stórkostleg tilfinn-
ing,“ sagði hann þegar hann hafði
verið kjörinn á þing, fyrstur stjórn-
arandstæðinga frá 1947. Stjómar-
andstæðingar unnu fleiri sigra í
aukakosningum fyrr í þessum
mánuði og ef viðlíka kosningasigr-
ar endurtækju sig 1990 í fijálsum
kosningum þýddi það endalok
valdaeinokunar ungverska komm-
únistaflokksins.
„Ég kom skilaboðum mínum
skilmerkilega á framfæri: „Ég er
á móti kommúnistaflokknum og
því sem hann hefur staðið fyrir
síðustu 40 ár. Ég er á móti ótta,““
sagði Rozsik í viðtali við frétta-
mann Reuíers-fréttastofunnar.
„Þjóðin var reið, hrædd og óán-
ægð. Hún veit að kommúnismi er
ekki svarið. Hún vill eitthvað
nýtt,“ sagði hann á ensku sem
hann lærði er hann var við guð-
fræðinám á Bretlandi á áttunda
áratugnum. Roszik, sem er 35
ára, var í framboði fyrir Ung-
versku lýðræðishreyfinguna,
HDF.
„Ungveijaland verður hlutlaust
ríki og hér verður komið á lýðræði
og frelsi,“ segir hann. „Ungveijar
munu lifa, þeir munu lifa vel. Ég
get ekki fært sönnur á það, en ég
trúi því.“
Roszik kvaðst ekki óttast að
reynsluleysi stjórnarandstæðinga
mundi standa þeim fyrir þrifum.
„Meira en tveir þriðju hlutar kjós-
enda í Godollo gengu að kjörborð-
inu um mitt sumar,“ sagði hann.
Hann spáði því að kosningaþátt-
taka yrði um 75% í þingkosningun-
um á næsta ári. „En enginn einn
flokkur mun standa með pálmann
í höndunum,“ sagði hann.
Gabor Roszik.
Ungverskir kommúnistar hafa
viðurkennt að ólíklegt sé að þeir
vinni meirihluta í þingkosningun-
um. Roszik segir samt að litlar
líkur séu á því að HDF gangi til
stjórnarsamstarfs við kommún-
ista.
HDF var stofnað fyrir tveimur
árum af hópi þjóðernissinnaðra
rithöfunda og á stefnuskrá sam-