Morgunblaðið - 05.09.1989, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR-5. SEPTEMBER 1989 33
~1 Samvinnubankinn:
tigað
tidegi
við húsið og sungn fyrir forvitna
■ niður einn og einn og teknir með
c . - .. n í *i i ' •’i Morgunblaðid/Einar Falur
Syngjandi leikarar framan við Borgarleikhusio.
Það var í mörg horn að líta áður en að afliendingunni koni og hér
sést Guðrún Ásmundsdóttir leikkona sem ásamt öðrum starfsmönnum
bretti upp ermarnar við tiltektir á laugardaginn.
Davið Oddsson
borgarstjóri
ávarpar leikara,
starfsmenn og
gesti um leið og
hann afhendir
Leikfélagi
Reykjavíkur borg-
arleikhúsið til af-
nota.
, Morgunblaðið/Einar Falur
I gærmorgun komu leikarar til fúndar og á fyrstu æfingu í Borgarleikhúsinu en gert er ráð fyrir að
fyrsta frumsýning verði fyrsta vetrardag eða 21. október næstkomandi.
Kaupverð fer ekki
til skuldaj öftiunar
Salan á að bæta lausaflárstöðu Sam-
bandsins, segir stjórnarformaðurinn -
KAUPVERÐ það sem Landsbankinn greiðir fyrir 52% hlut Sambands
íslenskra samvinnufélaga í Samvinnubankanuni mun fara til þess að
bæta rekstrarstöðu Sambandsins, en verður ekki tekið upp í skuldir
Sambandsins við Landsbankann né mun það rýra yfirdrátt eða aðra
fyrirgreiðslu þess hjá Landsbankanum, segir Ólafur Sverrisson stjórnar-
formaður Sambandsins. Samþykkt var á stjórnarfúndi á sunnudag áð
selja hlutinn í Samvinnubankanum með átta atkvæðum gegn einu. Birna
Bjarnadóttir, varamaður í Sambandsstjórn, greiddi atkvæði gegn söl-
unni. Sverrir Hermannsson bankastjóri Landsbankans segir að ætlunin
sé að kaupa Samvinnubankann að fullu og verði öðrum hluthöfúm
boðin sambærileg kjör og Sambandiuu. Hann segir það verð sem nefnt
hefúr verið, 880 milljónir króna, ekki vera rétt, en var ekki reiðubúinn
til að tjá sig nánar um það.
Sambandið er langstærsti hluthaf-
inn í Samvinnubankanum, þangað
til kaupin hafa verið staðfest af
stjórn Landsbankans, sem tekur
ákvörðun næstkomandi fimmtudag.
Um 1.500 hluthafar eru í Samvinnu-
bankanum, þeir stærstu á eftir Sam-
bandinu eru Samvinnutryggingar
hf., Kaupfélag Eyfirðinga, Olíustöðin
í Hvalfirði hf., Samvinnulífeyrissjóð-
urinn, KRON og Kaupfélag Borgfirð-
inga. Þessi fyrirtæki og önnur dótt-
urfyrirtæki SÍS eiga 32-33% og ein-
staklingar 14-15% hlutafjár.
Ætlum að ráða ferðinni
„Við ætlum að minnsta kosti að
kaupa það mikið að við að við getum
með öllu ráðið þeirri ferð og stjórnað
honum og samvinnu bankanna,“ seg-
ir Sverrir Hermannsson, aðspurður
um hvort ætlun Landsbankans væri
að eignast Samvinnubankann að
fullu. „Það hefur verið okkar mark-
mið að við gæfum öðrum hluthöfum
kost á að selja sín hlutabréf, um það
verður auðvitað samið þegar þar að
kemur.“ Hann sagðist búst við að
fljótlega verði hafnir samningar við
dótturfyrirtæki Sambandsins.
Sverrir kvaðst búast við að þessum
hluthöfum verði boðið sambærilegt
verð við það sem Sambandinu var
boðið, en þar sem ekki er endanlega
samið um greiðslukjör fyrir hlut
Sambandsins væri ekki hægt að full-
yrða um verðið. „En það er okkar
stefna að gera öllum jafn hátt undir
höfði, eða jafn lágt eftir því hvernig
menn skilja það.“
Hvernig verður staða Landsbank-
ans eftir þessi viðskipti, verður hann
ekki með allar skuldir sambandsins
og hugsanlega einhverjar ábyrgðir á
herðunum?
„Já, þetta eru alveg ófrágengin
mál, það er ekki svona einfalt í snið-
um eins og menn kannski halda, en
um það er ég ekki fær að tala eins
og stendur. Við þurfum samninga
við fleiri aðila, við þurfum að leita
samninga og aðstoðar Seðlabanka í
þessu sambandi við þessa endur-
skipulagningu, og ég á von á því að
við njótum þeirrar aðstoðar því að
ég held að menn telji sameiningu
bankanna mikilvæga. I leiðinni erum
við, Landsbankinn, að endurskoða
allt okkar skipulag og starfsemi,
þannig að þetta kemur á góðum tíma.
Við getum fellt það að okkar úttekt
og endurskipulagningu, það kemur
mjög vel út. Sambandið verður aðal-
viðskiptavinur okkar sem hingað til.
Ég hef ekkert kannað innviði Sam-
vinnubankans í sjálfu sér, hvernig
þau mál standa, það kemur allt núna
fram þegar við heíjum þessa tveggja
mánaða vinnu, sem við höfum ætlað
að taki okkur að gera úttekt á öllu
og ganga frá nákvæmum samning-
um um öll atriði sem að þessum
kaupum lúta.“
Skuldir SÍS minnka
Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sam-
bandsins kvaðst ekki geta tjáð sig
um söluverð Samvinnubankans fyrr
en bankastjórn Landsbankans hefði
fjallað um málið.
Hann var spurður hver væri
skuldastaða Sambandsins við Sam-
vinnubankann. „Það eru hlutir sem
ég hvorki get né vil upplýsa.“
Ilann sagði áhrif sölunnar fyrir
SÍS augljóslega vera að hún minnk-
aði skuldir Sambandsins. Aðspurður
um hvort nóg væri þá að gert í þeim
efnum með þessari ráðstöfun svaraði
Guðjón: „Það fer eftir því hvernig
kaupin gerast á eyrinni og hvernig
þróun verður í íslenskum efnahags-
málum á næstu árum, ef þú getur
sagt mér það, þá get ég svarað þess-
ari spurningu.“
Bætir lausafjárstöðuna
Ólafur Sverrisson stjórnarfor-
maður Sambandsins sagði söluna
bæta lausafjárstöðuna um verulega
upphæð. „Þetta er auðvitað gert til
þess,“ sagði hann. Hann var spurður
hvort til greina hafi komið að selja .
aðrar eignir til að ná sömu niður-
stöðu. „Það hefur verið selt dálítið
af smærri eignum og er í athugun
með fleiri, en það eru ekki neitt svip-
aðar upphæðir sem þar eru á ferð-
inni, þannig að í bráð var ekki um
annan stóran pakka að ræða en
þennan.“
Hann var spurður hvernig Lands-
bankinn greiddi kaupverðið. „Þetta
á að bæta lausafjárstöðu Sambands-
ins verulega. Það þýðir að þessir
peningar verða ekki teknir til skulda-
jöfnunar og verða ekki til þess að
skerða yfirdrátt eða fyrirgreiðslu
sem við höfum í Landsbankanum."
Um skuldir_ SÍS við Samvinnuban-
kann sagði Ólafur: „Það verður leyst
í einum pakka í samvinnu við Lands-
bankann.“
Hveiju svarar hann Ólafur gagn-
rýni Birnu Bjarnadóttur á söluna?
„Hún er nú varamaður hún Birna
og hefur þar af leiðandi ekki tekið
þátt í umræðu um þetta, ekki að
minnsta kosti í Sambandsstjórn, fyrr
en þetta, og þessi sérbókun hennar
gekk nú að meiningunni til út á að
harma að þetta skyldi þurfa. Það
hefðum við sjálfsagt öll í Sambands-
stjórn getað tekið undir, en það verð-
ur stundum að gera fleira en gott
þykir.“ Ólafur tók fram, að í samn-
ingum um kaupin væri kveðið á um
að starfsfólk Samvinnubankans nyti
jafnréttis á við starfsfólk Lands-
bankans þegar að því kemur að
fækka útibúum og hagræða í rekstr-
inum.
Breytir ekki stöðu SÍS
Birna Bjarnadóttir segir sína af-
stöðu tengjast stærra máli, sem _er
rekstrarvandi Sambandsins. „Ég
taldi að sala á þessum hlutabréfum
væri aðeins lítið brot til að leysa
þann vanda og vildi frekar sjá áður
heildaráætlun til lausnar á þeim
vanda sem slíkum og að reynt yrði
til hlítar að selja fasteignir og eignir
í öðrum fyrirtækjum sem hefðu ekki
jafn mikið að segja fyrir samvinnu-
menn almennt í landinu eins og Sam-
vinnubankinn hefur,“ segir Birna.
Hún vísar því á bug að hún hafi
ekki fylgst með málum sem vara-
maður og kveðst hafa starfað innan
samvinnuhreyfingarinnar í tíu ár og
fylgst vel með málefnum hreyfingar-
innar undanfarinn áratug. „Þetta er
auðvitað ekki nýr vandi sem Sam-
bandið stendur frammi fyrir, rekstr-
arvandinn, hann hefur safnast fyrir
á undanförnum árum, en greinilega
ekki verið nægilega tekið á því máli
og mér finnst bara verið að bjarga
í land rétt í nokkra mánuði með
þessu. Og sem samvinnumanneskju
finnst mér það alvárlégur hlutur að
láta Samvinnubankann í þá hít án
þess að sé hægt að sjá fyrir endann
á því hvað verður næst.“