Morgunblaðið - 05.09.1989, Side 55

Morgunblaðið - 05.09.1989, Side 55
MORGUNBLADIl) ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1989 55 Ungur glæsilegur brúðgumi í ein- kennisbúningi brezka flotans leiðir brúði sína að altari í Kristskirkju á Landakotstúni þar sem hún var gefin Frank Pitt í heilagt hjónaband og sami litli drengur er nú orðinn brúðarsveinn og fylgdi henni að altarinu með systur sinni, stoltur af þessari fallegu frænku sinni. Með þessum ágæta manni átti hún börn- in sín, lifandi eftirmyndir gleði hennar og gæzku. Anna Dúfa er stödd á heimili móður minnar, aftur kominn roði í kinnar hennar og í augum hennar er klingjandi hlátur og gleði, þegar hún kynnir Brendan Egan fyrir okkur og á svipstundu skynjuðum við öll hamingju þeirra beggja. Og áfram reikar hugurinn um minningarnar, um Elínu móður hennar, Onkel Ludvig og hana sjálfa. „og hugskotsins auga með undrnn og fögnuði sér eitt andartak birtast þar mynd síðan forðum af þér.“ (Jón Helgason) Megi frænka mín góð hvíla í friði. Knútur Bruun Þegar stundin kemur að við kveðjumst hér á jörðu, þá sækja að manni minningar, og svo fór með mig. Ég var komin í huganum á Laugaveg 15, æskuheimili hennar Önnu Dúfu Storr, og svo í KFUM og K, þar sem við kynntumst 7 ára gamlar og hefur sú vinátta haldist síðan. Ég var svo lánsöm að eign- ast þessa fallegu og góðu vinkonu, falleg var hún og vakti alls sta'ðar athygli vegna þess. Þeir sem henni kynntust vissu að hin ytri fegurð var jafnvel ekk- ert á móts við hina innri. Erfitt er að lýsa slíkri manneskju en Önnu Dúfu einkenndi alla tíð falsleysi; látleysi og tryggiyndi. Gaman var að vera með henni úti í náttúrunni og sjá og heyra hrifnæmi hennar yfir blómum, Ijöllum og öðru sem náttúran hefur upp á að bjóða. í nokkur sumur var hún með mér, systur minni og móður í sveit í Mosfellssveit. Vinátta okkar var slík þegar við vorum börn að varla mátti líða sá dagur er við værum ekki saman. Við áttum ekki heima í sama bæjarhluta og fór ég yfir- leitt á hveijum degi heim til henn- ar. Því þar sem hún var eina barn foreldra sinna, vildu þau heldur að við værum á þeirra heimili. Anna Dúfa var ekki heilsugóð sem barn og þurfti oft að vera rúm- liggjandi og þá notaði hún tímann til að teikna og síðar að mála. Fannst mér hún vera hreinn snill- ingur í þessari list. Ég hef því mið- ur ekki séð neitt eftir hana á síðari árum, en mér hefur verið tjáð að henni hafi stöðugt farið fram í þess- ari list. Þegar við vorum 16-17 ára fórum við með skipi til Akureyrar og dvöldum þar í mánaðartíma. Á leið- inni var ég, sjómannsdóttirin, sjó- veik en hún ekki. Minnist ég þess að er við sigldum með fram strönd- inni og komum t.d. að Hornbjargi, þá kallaði hún mig út og sagði að ég mætti ekki missa af þessari feg- urð og tignarleika. Er við komum til Akureyrar hittum við þar skóla- systkini mín, sem gerðu allt til að við gætum skemmt okkur sem best. Var Anna Dúfa ekki lengi að vinna vináttu þeirra allra. Minnist ég þess þegar hún sagði „á ég að segja þér að ég finn að ég er meiri Norðlend- ingur en Sunnlendingur, ég finn það á fjöllunum og landslaginu“. Hún sagðist skilja núna hrifningu móður sinnar EKnar, sem var af Lax- mýrarætt. Þrátt fyrir 45 ára búsetu Önnu Dúfu í Bretlandi hafa vináttuböndin aldrei rofnað. Heim fórstu, hollvin en hjörtu vor klökk á legstað þinn leggja lofgróna þökk. (M. Joch.) Nenna Frænka okkar, Anna Dúfa Storr, er látin. Hún var dóttir föðursystur okkar, Elínar Sigurðardóttur Storr og Ludvig Storr. Dauðastríð Önnu Dúfu varði aðeins fáar vikur. Fregnin um það kom afar óvænt. Við, sem þekktum Önnu Dúfu, eig- um erfitt með að sætta okkur við að hún sé látin. Anna Dúfa bjó mestan hluta full- orðinsára sinna á erlendri grund. í Bristol í Englandi áttu þau heimili, hún og Frank Pitt lögrhaður. Þang- að heimsóttum við systkinin þau, sum okkar reyndar oftar en einu sinni, og dvöldumst þá við gleði og gestrisni hjá þeim hjónum og börn- unum þeirra. Var heimili þeirra rausnarlegt og fjölskylduna ein- kenndi ljúfmennska og góðhugur. Þar sat Anna Dúfa í öndvegi en Frank lagði einnig mikið af mörkum til að gera dvöi okkar ógleyman- lega. Tímar liðu og síðar fór það svo að þau hjónin slitu samvistum. Það varð Önnu Dúfu frænku okkar til mikillar gæfu og lífsfyll- ingar að hún eignaðist Brendan Egan skólastjóra sem lífsförunaut á síðari æviárum sínum. Áttu þau saman allmörg kærleiksrík ár. Fjölskyldutengsl föður okkar og Önnu Dúfu voru mjög náin og nær + Hugheilar þakkir til allra er sýndu mér og fjölskyldu minni samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, ALFREÐS PÁLSSONAR, Stekkjargerði 18, Akureyri. Aðalheiður Oddgeirsdóttir, Einlægar þakkir sendi ég öllum er §ýndu mér og fjölskyldu minni hlýhug og hluttekningu við andlát og útför eiginmanns míns, HARÐAR TULINÍUSAR, Eikarlundi 10, Akureyri, Erna A. Tuliníus. + Alúðarþakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, BENJAMINS ÓLAFSSONAR, Kópavogsbraut 113, Kópavogi, sem andaðist 13. ágúst. Svala Sölvadóttir, Halldór Valur Geirsson, Jóna Kristín Bjarnadóttir, Ragnheiður Benjamínsdóttir, Ólafur Ingólfsson, Guðrún Lilja Benjamínsdóttir, Magnús Hjörtur Karlsson, Jóhann Ólafur Benjamínsson, barnabörn. því að vera systkinabönd en frænd- semis, enda var hún eina barn for- eldra sinna sem komst á legg og aðeins átta árum yngri en faðir okkar. Urðu þau bönd órofin meðan Önnu Dúfu entist aldur. Móður okkar og Önnu Dúfu varð einnig vel til vina. Þær áttu sameiginleg áhugamál, m.a. í myndlist og ekki dró það úr vináttunni að börn þeirra fæddust á svipuðum tíma. Anna Dúfa hafði einstaka per- sónutöfra. Hun vár glaðlynd og já- kvæð, einlæg og hrifnæm. Þar við bættist að hún var fríð sýnum, svo af þótti bera. Anna Dúfa tók kaþ- ólska trú og var trúin henni alvöru- mál, hjarta hennar hreint sem barns. Hún hafði líflega framkomu; þar sem hún fór, var ævinlega eitt- hvað á seyði. Oft reynist erfitt að halda tengsl- um við ættingjá og vini sem flytj- ast búferlum til Ijarlægfa staða. Þótt Anna Dúfa flyttist af landi brott allmörgum árum fyrir okkar minni, þá ruddi hún alltaf hvers konar feimni eða ókunnugleika burt í einu vetfangi, hvenær sem fundum okkar bar saman, með tilgerðar- lausri framkomu sinni og ástúð. Það var éins og hún hefði aldrei farið. Og svo verður áfram, því hún verð- ur um kyrrt í huga okkar sem ást- fólgin minning. Frændsystkinin Ægisíðu 58 Lokað Lokað vegna jarðarfarar eftir hádegi í dag. David Pitt & Co. hf., Klapparstíg 16. Lokað Lokað vegna jarðarfarar eftir hádegi í dag. Glerslípun & speglagerð sf., Klapparstíg 16. Lokað í dag frá kl. 14.30 vegna jarðarfarar ÖNNU DÚFU STORR. Listasalurinn Nýhöfn, Hafnarstræti 18. Þegar þú heyrir minnst á nafnið EPSOIU, dettur þér örugglega fyrst í hug hágæða prentarar. En þá er bara hálf sagan sögð... ....því EPSON tölvurnar standa prenturunum hvergi að baki hvað gæði og afl snertir. PCe er góð í ritvinnsluna og heimilisbókhaldið. PC AX2/80286 fyrir þá, sem þurfa meiri vinnsluhraða og afl. PC AX3/80386, þungavigtarmeistarinn væntanlegi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.