Morgunblaðið - 06.09.1989, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989
13
Myndlist frá Moldavíu
FASTEIGNASALA
Suðurlandsbraut 10
s.: 21870—687808—687828
Ábyrgð - Reyxisla - Öryggi
SJA FASTEIGNABLAÐ
SL. SUNNUDAG BLS. 8B
Nýkomið i sölu
OFANLEITI V. 7,4
Mjög falleg 3ja herb. ca 90 fm
íb. á 2. hæð. Þvottaherb. og
geymsla inní íb. Skemmtil. innr.
Fráb. staðs. Áhv. ca 1,7 millj.
GRÆNAHLÍÐ V. 6,3
Gullfalleg ca 100 fm sérh.
(jarðh.). 3 svefnh. og stofa. íb.
er ölí nýstands. Sérþvottah. í íb.
Ekkert áhv.
ÞORFINNSGATA V. 5,3
Góð 95 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð. Mjög
rúmg. herb. ásamt aukaherb. í kj. Laus
í okt. Áhv. 600 þús.
BLÖNDUBAKKI V. 5,6
105,8 fm 3ja herb. íb. á 2. hæð m.
aukaherb. í kj. íb. er pll hin vandað-
asta. Parket á öllum gólfum. Tvennar
svalir. Búr innaf eldh. Áhv. 300 þús.
Laus í feb. ’90.
MIÐTÚN
Hæð og ris ásamt bílsk. Gott steinh.
Góð staðs. Ekkert áhv. Laus fljótl.
KRUMMAHÓLAR V. 4,8
Falleg 3ja herb. íb. á 6. hæð. Parket.
Áhv. 1,1 millj.
Ármann H. Benediktsson hs. 681992,
Geir Sigurðsson hs. 641657,
Hilmar Valdimarsson, Jmm
Sigmundur Böðvarsson hdl. j§§
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
WARMA
PLAST
ÁRMÚLA 1 6 OG 29, S. 38640
Æ^\ FASTEIGNASALA
STBAWDGM* 2». Slhl: ;1-65J790
Sími 652790
Einbýli — raðhús
Kvistaberg — Hfj.
Nýl. einb. með innb. bílsk. Alls 230 fm.
V. 11,2 m.
Brattakinn — Hfj.
160 fm einb. ásamt 45 fm bílsk. V. 9,4 m.
Nönnustígur — Hfj.
Járnkl. timburh. á tveimur hæðum 144
fm. 2 millj. áhv. langtlán. V. 6,9 m.
Arnarhraun — Hfj.
Einb. á tveimur hæðum 170 fm ásamt
35 fm bílsk. V. 10-10,5 m.
Brekkubyggð — Gbæ
100 fm raðhús á tveimur hæðum ásamt
bílsk. V. 7,1 m.
4ra herb. og stærri
Breiðvangur — Hfj.
5-6 herb. ca 125 fm íb. á 1. hæð ásamt
bílsk. V. 7,5 m.
"Tryggvagata — Rvík
125 fm íb. á tveimur hæðum í Hamars-
húsinu. Háir gluggar með útsýni yfir
höfnina. Sérinng. Áhv. húsnstjlán ca 2
millj. V. 6,9 m.
Arnarhraun — Hfj.
Efri sérhæð með tveimur herb. í kj.
Alls 153 fm. V. 7,7 m.
Sunnuvegur — Hfj.
4ra-5 herb. 125 fm neðri hæð í þríb.
V. 5,5 m.
Lundarbrekka — Kóp.
4ra herb. ca 110 fm endaíb. á 2. hæð.
V. 5,9 m.
Hjallabrekka — Kóp.
114 fm neðri sérhæð í tvíbh. V. 6,7 m.
Sléttahraun — Hfj.
Falleg 4ra herb. íb. ca 110 fm.
Þvottah. á hæð. Parket. Suðursv.
Gott útsýni. Bílskréttur. V. 5,7 m.
Álfaskeið — Hfj.
4ra-5 herb. ca 125 fm íb. V. 5,8 m.
Reykjavíkurvegur — Hfj.
5 herb. ib. á 3. hæð ásamt litilli íb. í
risi alls 190 fm, svo og bílsk. Góð
greiðslukjör.
Hringbraut - Hfj.
4ra herb. ca 100 fm ib. á jarðhæð. V.
5,3 m.
2ja og 3j'a herb.
Suðurgata — Hfj.
3ja-4ra herb. ca 100 efri hæð ásamt
bílsk. V. 5,4 m.
Kaldakinn — Hfj.
3ja herb. ca. 85 fm íb. Sérinng. V. 4,7 m.
Hellisgata — Hfj.
3ja herb. 86 fm íb. Sérinng. V. 4,9 m.
Krosseyrarvegur — Hfj.
3ja herb. ib. ca 65 fm ásamt 40 fm
bílsk. V. 4,3 m.
Kaldakinn — Hfj.
3ja herb. ca 80 fm ib. á 3. hæð. V. 4,6 m.
Brattakinn — Hfj.
3ja herb. miðhæð V. 3,2 m.
Ingvar Guðmundsson,
lögg. fasteignasali, M™
heimasími 50992,
Myndlist
Bragi Asgeirsson
í Hafnarborg, menningarstofnun
Hafnfirðinga, stendur nú yfir og
út ágústmánuð kynning á moldaví-
skri myndlist auk nokkurra list-
muna. Vafalaust þekkjum við Is-
lendingar jafn lítið til listiðkana
þeirra í Moldavíu, sem liggur að
Rúmeníu, og þeir til okkar, svo að
slíkar sýningar ber að nálgast á
sérstakan hátt.
Hér er um opinbera myndlist að
ræða, en listmunirnir byggjast á
fornri hefð í handverki og eru því
verðmætur þjóðlegur arfur, hafinn
yfir allt dægurþras. Fúslega viður-
kenni ég fáfræði mína á mold-
LAUFÁS
FASTEIGNASALA
SÍÐUMÚLA 17
82744
GRUNDARGERÐI
3ja herb. endurnýjuð risíb. Sér-
inng. Ákv. sala. Fallegt útsýni.
Lítið áhv. Verð 4 millj.
KARFAVOGUR - LAUS
3ja herb. risíb. í parhúsi. Endurn. að
hluta. 60% útb. Verð 4,2 millj.
4ra herb. og stærri
HRINGBRAUT
4ra herb. íb. á 2. hæð í tvíbhúsi. End-
urn. að hluta. Verð 5 millj.
KÓNGSBAKKI
- SKIPTI Á MINNI EIGN
4ra herb.-90 fm rúmg. íb. á 2. hæð.
Áhv. ca 2 millj. Verð 5,7 millj.
Hæðir
ALFHEIMAR
Einkasala. 127 fm efri sérhæð með
bílsk. Falleg og vel meðfarin íb. 3-4
svefnherb. Verð 8,5 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR
5 herb. 117 fm neðri hæð í tvíbhúsi. 4
svefnherb. Búr og þvottaherb. innaf
eldh. Mikið endurn. Útsýni. Verð 7 millj.
VESTURBÆR
Stórglæsil. ca 120 fm efri sér-
hæð. Fallega hönnuð íb. Parket
á öllum gólfum. Bílsk. Áhv. 1,7
millj. Verð 8,5 millj.
Fyrirtæki
SOLUTURN
- GOTT TÆKIFÆRI
Traustur söluturn er til sölu.
Velta tæpar 2 millj. Langur leigu-
samn. Framhaldsskóli í nágrenn-
inu. Uppl. aðeins á skrifst.
Atvinnuhúsnæði
KOPAVOGUR
AUSTURBÆR
430 fm lager- og geymsluhúsn. v/Smiðju-
veg. Innkdyr. Verð 8,0 millj.
RÉTTARHÁLS
780 fm verslhúsn. á jarðh. Góð bíla-
stæði. Laust strax.
SÍÐUMÚLI
Til leigu 190 fm verslhæð. Laus strax.
SMIÐJUVEGUR
470 fm glæsil. verslunarhúsn.
GRAFARVOGUR
125 fm íb. með innb. bílsk. í tvíbhúsi.
SMÁÍBÚÐAHVERFI
Mjög glæsil. parhús við Borgar-
gerði. Afh. fokh. að innan, tilb.
að utan með útihurðum og
bílskhurð. Húsið er 208 fm. Verð
8,5 millj.
VESTURBÆR
Tilb. u. tréverk:
3ja herb. íb. V. 5300 þús.
5 herb. íb. V. 7450 þús.
Teikn. á skrifstofu.
Auður Guðmundsdóttir
sölumaðut
Magnús Axelsson fasteignasali
avískri myndlist og get því ekki
beitt samanburði af neinu tagi í
umfjöllun minni, til þess þyrfti al-
mennari og nánari skoðun á heima-
slóðum eða sýningu í miklu stærra
samhengi.
En hins vegar er einfalt mál að
beita samanburði við vestræna
myndlist, en ég veit ekki hvaða til-
gangi það þjónar í þessu tilfelli,
vegna þess að hér er um svo stað-
bundna myndlist að ræða. Til að
mynda mætti segja, að listamaður-
inn sem málaði myndina sem vænt-
anlega fylgir þessum línum, hafi
komist í kynni við vestræna
strauma, en svo er það álitamál,
hvort það megi segja honum til
hróss eða lasts.
Margur mypdi vafalítið hlaupa á
slíka sýningu, ef fram kæmu áhrif
frá súpudósum Warhols eða af-
skræmdum andlitum Bacons og
tala um frelsun listarinnar undan
opinberri myndskoðun. En málið er
einungis ekki svo einfalt, því eins
og list þeirra kumpána túlkar á
snjallan hátt umhverfi þeirra og
samtíð, þá skyldi maður einmitt
ætla, að hlutverk moldavískra
myndlistarmanna sé að túlka sitt
umhverfi svo sem þeim kemur það
fyrir sjónir. Slíkt væri óyggjandi
nútímalist frá þeirra hendi.
En þá má deila um það, hvort
þeir geri það á þessari sýningu eða
máli eftir ákveðinni forskrift, en
slík flarstýring er alltaf afleit hvort
heldur hún er runnin að ofan eða
frá öðrum hagsmunaaðilum. Hér
verð ég að tjá það álit mitt, að ég
varð ekki mikið var við æðaslátt
lífsins, raunveruleikans og
hvunndagsins í þessum myndum,
en hins vegar er næsta lítið um
beinar áróðursmyndir fyrir sóvéskt
hagkerfi. Mun minni en t.d. súpu-
dósir Warhols fyrir amerískt hag-
kerfi!
Við fáum hins vegar innsýn í
það, hvernig nokkrir málarar frá
Moldavíu beita pentskúfum sínum
og vafaltið gera þeir það af nokk-
urri íhaldsemi að okkar dómi. En
menn geta hins vegar verið gripnir
af þeim stemmningum, sem mynd-
irnar framkalla við túlkun
moldavísks hlutveruleika og á þetta
helst við um málverkin. Hér beind-
ist athygli mín að myndum T.N.
Betrynú, M.I. Niijanú, P.V. Obúkh,
D.V. Petsév og A.G. Syrbú, sem
er næsta abstrakt í útfærslu, hvað
ég tel henni þó ekkert frekar til
tekna.
í grafík-myndunum á sýningunni
koma að mínu mati fram öllu meiri
átok við efniviðinn á milli hand-
anna, og hér sér maður hugnæm
verk, sem gætu allt eins verið á
sýningu nútímalista í vestrinu svo
sem myndir S.K. Zamsha „í tímans
rás; (æting 1987), E.I. Kildeskú:
„Gamla skúljan", (þurrnál 1977)
og V.V. Melnik: Jörð; (æting 1987).
Kunni ég öllu betur við mig innan
um þær myndir.
í sýningarskrá segir: „Rætur
moldavískrar myndlistar má rekja
aftur í forna tíma. Við fornleifaupp-
gröft hafa fundist leirskálar, skart-
gripir, freskumálverk og slitur úr
handritum, sem bera því vitni, að
þegar á fyrstu öld e.Kr. hafi hand-
verkslist þess fólks, sem byggði
þetta land, komist á hátt stig.
Það er þó ekki fyrr en á nítjándu
öld, sem myndlistin verður atvinnu-
grein, þegar fyrsti myndlistarskól-
inn hefur störf á þessum slóðum,
sem síðar var breytt í Félag listunn-
enda.
Núna eru starfandi listaskólar í
mörgum þorpum og borgum
Moldavíu, þar sem sérhvert barn
gætt listrænum hæfileikum getur
hlotið menntun. Þegar grunnskóla-
námi lýkur halda flestir þeir, sem
stundað hafa nám á listrænu sviði ■
áfram námi í listaskólum Iandsins.
Á þeirri sýningu, sem hér hefur
verið sett upp, geta íslendingar,
sem áhuga hafa á menningu
Moldavíu, aðeins séð örlítið brot af
málverkum, svartlistaverkum og
þjóðlegri list, sem valið var til sýn-
ingar á íslandi í málverkageymslum
Ríkislistasafnsins í Moldavíu, en
vonandi gefa þessi sýnishorn
nokkra hugmynd um færni málara
og-svartlistamanna í Moldavíu."
Ég segi fyrir mig, að eftir skoðun
þessa iitla og ófullkomna sýnishorns
leikur mér forvitni á að sjá miklu
meira af list Moldavíu, og þá ekki
síst af listmununum, því að þeir eru
margir hverjir gullfallegir. Vil ég
nefna hér af handahófi; Handofið
pils; frá lokum 19 aldar (ull/baðm-
ull) eftir M.N. Gangúijan. Ermalaus
jakki eða vesti eftir N.T. Múntjan
og sama eftir E.M. Tarosha. Út-
saumað klæði, handþurrka, baðm-
ull, eftir V.N. Martsinkús. Klæði,
ull/baðmull eftir V.G. Stratúlat.
Maður þakkar fyrir sig.
Notalegt sjónarhorn
Eins og ýmsir munu vita, þá er
Sævar Karl Ólason, klæðameistari,
unnandi núlista og mun eiga all-
nokkuð safn þeirra. Hann er og
eigandi klæðaverzlunar hér í borg,
sem hefur umboð fyrir leiðandi
firmu í tízkuheiminum og er stað-
sett að Bankastræti 9. í húsakynn-
um verzlunarinnar hafa iðulega
hangið myndlistarverk og þar hafa
farið fram kynningar á einstökum
Logafold
Til sölu 4ra herb. 100 fm skemmtileg jarðhæð í tvíbýlis-
húsi. 3 svefnherb. Sérinng. Sérþvottah. Áhv. bygg-
sjóðslán ca kr. 3,5 millj. Ákv. sala.
Ingileifur Einarsson,
löggiltur fasteignasali, sími 623444,
Borgartúni 33, Reykjavík.
if
FASTEIGNASALA
STRANDGATA 28, SÍMI: 91-652790
Ölduslóð - efri sérhæð
Til sölu myndarleg efri sérhæð ca 125 fm ásamt 36 fm
bílskúr. 3 svefnherb. (möguleg 4), rúmgóð stofa, hol,
eldhús, þvottahús, baðherb. o.fl. Eign í góðu ástandi.
Verð 8,2 millj.
Suðurbraut - góð 3ja herb.
Falleg 3ja herb. íbúð 96 fm á 3. hæð í góðu fjölbýlis-
húsi. Þvottahús og geymslg innaf eldhúsi. Ágætt út-
sýni. Suðursvalir. Verð 5,1 millj.
Ingvar Guðmundsson, lögg. fasteignasaii, hs. 50992.
listamönnum, svo sem sjá hefur
mátt í fréttum.
Sævar hefur ekki látið staðar
nurnið í þessari lofsverðu áráttu
sinni og nú hefur hann valið einkar
notalegt athvarf fyrir þessar kynn-
ingar sínar í litlum sal í horni bygg-
ingarinnar á annarri hæð, er snýr
að Laugavegi og Ingólfsstræti.
Listamann ágústmánaðar hefur
Sævar valið Eggert Pétursson, sem
telst einn af núlistamönnunum í
kring um Nýlistasafnið, og sýnir
hann þar á drifhvítum veggjunum
og við frábæra lýsingu sex mynd-
verk. Allt er þetta nafnlausar olíu-
myndir á léreft utan ein, sem er
unnin í gvass á pappír. Ef til vill
mætti nefna þetta myndljóð, því að
í þeim er einhver ofurviðkvæmur
ljóðrænn strengur og um leið er í
þeim heilmikið af heimspeki. Þessar
myndir, sem láta svo lítið yfir sér,
eru í raun þaulhugsuð tjáning lista-
mannsins á brotabroti hlutveruleik-
ans, og hér leitar hann mjög til
jurtaríkisins, en samkvæmur sér
aðeins hluta þess. Ef ekki kæmu
til ýmis örlítil frávik frá eintóna
endurtekningu, gætu myndirnar
virkað sem innrammað veggfóður.
En hér er um nokkurn galdur að
ræða, sem lætur ekki þann ósnort-
inn, sem auga hefur fyrir ríkidómi
smáatriðanna og því sem þau hafa
fram að færa í listrænni tjáningu.
Fyrir margt minna þessar mynd-
ir mig á smáhluta á verkum meist-
ara fyrri alda, en þær boða annan
sannleik og aðra myndhugsun.
Það er vel til fundið hjá Sævari
Karli Ólasyni að innrétta þetta
bjarta og fallega skot fyrir' litlar
listkynningar og hér gefst mönnum
ekki aðeins færi á að sjá listina frá
nýju sjónarhorni heldur og mannlíf-
ið fyrir utan og hafa af hvort-
tveggja nokkurn ávinning.