Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 27
27 - - M0ftGtrN'BÍAi5lÐ MIÐVIKÚDAGUR 6. SEPTEMBER 1988 __________Brids_____________ Arnór Ragnarsson Bikarkeppnin Bridssambandinu hafa borist nokkur úr- slit í leikjum úr Bikarkeppninni. Sveit Val- týs Jónassonar frá Siglufirði gerði sér lítið fyrir og vann sigur á sveit Sigurðar Vil- hjálmssonar í sextán liða úrslitum. Leikur- inn var geysijafn og spennandi og skildi aðeins einn impi sveitirnar í lokin. Lokatöl- ur voru 80-79, svo jafnari gat leikurinn varla verið. Leikurinn var spilaður 19. ágúst. Miðvikudaginn 23. ágúst léku Valtýr og félagar svo gegn Skrapsveitinni frá Reykjavík og varð þá Valtýr að láta í minni pokann. Lokatölur í þeim leik voru 113-66. Skrapsveitin er þar með komin í undanúr- slit. Spilarar í Skrapsveitinni eru Hjördís Eyþórsdóttir, Jacqui McGreal, Rúnar Magn- ússon og Kristján Már Gunnarsson. Sveit Flugleiða er einnig komin í undanúrslit, en hún lék gegn sveit Sigmundar Stefánssonar í 8 sveita úrslitum mánudaginn 28. ágúst. Sveit Flugleiða vann þann leik örugglega, 126-27, en sveit Sigmundar gaf leikinn eft- ir þijá lotur af ijórum. Spilararnir í sveit Flugleiða eru Jón Baldursson, Aðalsteinn Jörgensen, Ragnar Magnússon og Ragnar Hermannsson. Undanúrslitin eru spiluð 9.-10. september og úrslitin (um 1. og 2. sætið og 3. og 4.) 22.-23. september. Opið stórmót í Kópavogi Fimmta og síðasta Alslemman á þessu sumri, verður spiluð í Félagsheimili Kópa- vogs, helgina 16.-17. september. Spilaður verður barometcr og þátttaka bundin við 28-32 pör hámark, með 3 spilum milli para. Þegar eru um 16 pör bókuð til leiks, en skráningu annast Ólafur Lárusson í síma 91-16538 og Jakob Kristinsson í síma 91- 623326 og 14487. Veitt verða verðlaun fyrir 3.-4. efstu sætin, að jafnvirði vel yfir 100 þúsund krón- ur, auk þess sem spilað veðrur um silfur- stig. Mótið er opið öllu bridsáhugafólki, en minnt á takmarkaða þátttöku. Sumarbrids Góð þátttaka var í Sumarbrids sl. fimmtudag, 31. ágúst. 44 pör mættu til leiks og var spilað í 3 riðlum. Úrslit urðu (efstu pör); A-riðill Guðrún Jóhannsdóttir — Gróa Guðnadóttir 250 Dúa Ólafsdóttir — Ólína Kjartansdóttir 243 Sigríður Ottósdóttir — Ingólfur Böðvarsson 242 Lovísa Eyþórsdóttir — Hildur Helgadóttir 239 Lárus Hermannsson — Óskar Karlsson 237 Gunnþórunn Erlingsdóttir — Sigrún Pétursdóttir 232 B-riðiIl Björn Arnórsson — Ólafur Jóhannesson 181 Hermann Lárusson — Magnús Ólafsson 180 Björn Arnarson — Guðlaugur Eilertsson 178 Anton R. Gunnarsson — Friðjón Þórhallsson 170 Guðjón Einarsson — Runólfur Jónsson 167 Hjördís Eyþórsdóttir — Jakob Kristinsson 166 C-riðill Ólafur Lárusson — Rúnar Lárusson 210 Murat Serdar — Bernódus Kristinsson 187 Steingrímur Steingrímsson — Örn Scheving 175 Eyjólfur Magnússon — Jóhannes Guðmannsson 170 Helgi Nielsen — Hreinn Hreinsson 164 Ljósbrá Baldursdóttir — ' Sveinn R. Eiríksson 162 Og staða efstu spilara hefur lítið breyst. Þórður Björnsson er enn efstur með 375 en næstu menn eru: Murat Serdar 348, Anton R. Gunnarsson 312, Lárus Her- mannsson 310, Jakob Kristinsson 268, Óskar Karlsson 235, Sigurður B. Þorsteins- son 223, Gylfi Baidursson 210, Hjördís Eyþórsdóttir 194 og Lovísa Eyþórsdóttir 167. 4 keppniskvöld eru eftir í Sumarbrids, þar af 3 sem telja til stigakeppni sumars- ins. Verðlaun verða síðan afhent fimmtu- daginn 14. september. Bridsfélag HaftiarQarðar Nýlega kom nýkjörin stjórn félagsins saman til fyrsta fundar eftir aðalfuna og á þeim fundi skipti stjórnin með sér verkum á eftirfarandi hátt: Formaður: Kristján Hauksson, varaformaður: Ingvar Ingvars- son, gjaldkeri: Trausti Harðarson, ritari: Arni Hálfdánarson, ■ áhaldavörður: Ársæll Vignisson og meðstjórnandi: Ólafur Torfa- son. Spilamennska vetrarins hófst 4. septem- ber nk. með einskvölds tvímenningi en 11. september hefst Hausttvímenningurinn sem að þessu sinni verður með barómeter-sniði. Þær stjórnuðu hlutaveltu sem haldin var inni í Kleppsholtinu, Kambsvegi. Þar söfnuðust rúmlega 2.700 kr. til Reykjavíkurdeild- ar Rauða krossins. Dömurnar heita: Ásta Dögg Jónasdóttir, Sigur- laug Mjöll Jónasdóttir, Sigurrós Jóna Oddsdóttir og Hildigunnur Birgisdóttir. Gleriá s£, NÚ FLYTJUM VIÐ OKKUR UM SET Á BÍLDSHÖFÐA 16 Eins og áður erum við með: Oryggisgler, skurð, slípingu og framrúður, ísetning samdægurs. Spegla, borðplötur, kílgúmmíborða o.fl. Enn betri þjónusta. Gleriá s/19 BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 686-510. Innilegar þakkir til al/ra, sem glöddu mig á 95 ára afmœlinu með heimsóknum, gjöfum og skeytum. Guð blessi ykkur öll. Kristín P. Sveinsdóttir frá Gufudal. Innilegt þakklœti til a/lra, er sýndu mér vin- áttu á sjötíu ára afmœli minu þann 10. ágúst s/., með simtölum, -skeytum, blómum og öðrum gjöfum. Guð blessi ykkur öll. Jón Egill Ferdinandsson, Furugerði1. TÖLVUSKÓU STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS . TÖLVUSKÓÍAR A TOLVUSKÓU QlSLA j. johnsen Byrjendanámskeið fyrir notendur dBASE III- og dBASE IV _ 11.-15. sept. kl. 13-17 á Nýbýlavegi 16, Kópavogi. Leiðbeinandi: Ólafur H. Einarsson. SKRÁNING í SÍMUM 621066 og 641222 TÓLVUSKÓU STJOflNUNARf ÉLAQS ISLANOS . TÖLVUSKÓLAR A TÓLVUSKÓU QlSLA J. JOHNSEN OFLUG OG AUÐLÆRÐ Byrjendanámskeið 11.-14. sept. kl. 8.30-12.30 í Ánanaustum 15, Reykjavík Leiðbeinandi: Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen. SKRÁNING I SfMUM 621066 og 641222 TÓLVUSKÓU STJÓRNUNARFÉLAQS ISLANOS . tölvusjólarA TÓLVUSKÓU QlSLA J. JOHNSEN ítarlegt 60 stunda grunn- námskeið Kvöldnámskeið: 11. sept.—1. nóv. kl. 19.30-2.30 Dagnámskeið: 18. sept,—6. okt. kl. 8.30—12.30 í Ánanaustum 15, Reykjavík Leiðbeinandi: Ólafur H. Einarsson. SKRÁNING f SÍMUM 621066 00 641222. I VERÐBREFAREIKNINGI VIB FELST M.A. ÞESSI ÞfÓNUSTA: Yfirlit um verðbréfaeign á tveggja mánaða fresti, áramótayfirlit sem auðveldar skátfframtal, heildarumsjón með verðbréfaeign og innheimta afborgana, eftirlit með ardgreiðslum og útgáfu jöfnunarhlutabréfa. SPARIFÉÐ ER í GÓÐRI UMÖNNUN Á VERÐBRÉFAREIKNINGI VIB Margt fólk sem komið er á miðjan aldur á verulegar eignir. Þetta fólk hefur sýnt fyrirhyggju og sparaö og á nú ýmist fasteignir eða umtalsverða fjármuni í bönkum. Verðbréfareikningur VIB er sérstaklega sniðinn að þörfum þessa fólks enda eru það æ fleiri sem ávaxta fé sitt í traustum verð- bréfum. Þannig ávaxtastéignimar vel og eigandinn á að þeim greiðan aðgang. SPARIFEÐ ER VEL TRYGGT A VERÐBRÉFAREIKNINGI VIB Á Verðbréfareikning er hægt að skrá öll þau verðbréf sem VIB hefur á boðstólum: Sjóðsbréf 1,2,3 og 4, bankabréf, skuldabréf Glitnis, Iðnlánasjóðs ogspariskírteini. Einnig hlutabréf sem og önnur verðbréf á mark- aðnum. Með því að dreifa kaupunum á nokkrar tegundir verðbréfa fæst í senn öryggi og góð ávöxtun. Verið velkomin í Armúla 7 eða hringið í síma 681530 og fáið bækling sendan heim. VIB VERÐBREFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.