Morgunblaðið - 06.09.1989, Qupperneq 33
33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1989
Minning:
SæmundurM. Ósk-
arsson frá Eyri
Hver kynslóð er örstund ung
og aftur til grafar ber
en eilífðaraldan þung
lyftir annarri á brjósti sér
þá kveðjumst við öll, voru kvöldi hallar
en kynslóð nýja til starfa kallar
sá dagur, sem órisinn er.
(Tómas Guðm.)
Hann Sæmundur bróðir er dáinn.
Tveir hlekkir úr systkinahópnum
eru brostnir. Steinunn systir okkar
dó árið 1969 og var hún elst okk-
ar. Sæmundur fæddist á Hyrnings-
stöðum í Reykhólasveit 6. desember
1915. Foreldrar hans voru Óskar
Arinbjörnsson og Guðrún Guð-
mundsdóttir sem þá bjuggu þar.
Þegar Sæmundur var á fjórða ári
fluttust þau að Eyri í Gufudals-
sveit. Þau höfðu þá fest kaup á
hálfri Eyrinni því tvíbýli var þá á
jörðinni. Það hefur líklega verið um
1930 sem faðir okkar festi kaup á
allri jörðinni. Ekki var Sæmundur
eina barnið sem fluttist þangað með
þeim, þau áttu þijú önnur, Stein-
unni, Arnór og Kristin, sem þá var
yngstur. Eina dóttur höfðu þau
misst sem ekki lifði fæðinguna af.
Eftir að Guðrún og Óskar fluttust
að Eyri eignuðust þau þrjú börn,
mig sem þessar línur skrifar, Guð-
mund og Guðrúnu sem er yngst.
Öll ólumst við upp saman, okkur
þótti vænt hvert um annað og tók-
um þátt í hvers annars gleði og
sorgum. Tilbreyting var ekki mikil
í sveitinni í þá daga en alltaf var
reynt að gera sér eitthvað til
Mig langar til að minnast góðrar
vinkonu minnar, Ingibjargar Sveins-
dóttur frá Fáskrúðsfirði. Hún hefði
orðið níræð í dag, 6. september, en
hún lést 25. apríl síðastliðinn.
Eg kynntist Ingu, eins og hún var
ávallt kölluð, fyrir 14 árum síðan
þegar ég gitist frænda hennar. Strax
tókst með okkur mikil vinátta, þrátt
fyirr að aldursmunurinn væri rúm-
lega hálf öld.
Við áttum margar stundir saman
þar sem við ræddum um lífið og til-
veruna, var hún sérstaklega mann-
glögg og minnug. Inga sagði mér
oft frá liðnum tímum og var frásögn
hennar svo lifandi og skemmtileg.
Hún Inga var sannarlega barn síns
tíma og þurfti að hafa fyrir lífinu.
Ung þurfti hún að fara úr foreldra-
húsum til þess að vinna fyrir sér.
Þetta setti mark á hana. Það sem
hana langaði mest til að gera var
ómögulegt, en það var að læra. Hún
átti sér drauma sem ekki rættust.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofii blaðsins í Haftiarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar g;et-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
skemmtunar, fara í Ijallgöngur,
útreiðartúra, fara með öngul og
snæri og orm í boxi að ánni að
veiða silung í sunnudagsmatinn, að
ógleymdum kirkjuferðum. Á vet-
urna voru skautaferðir á ísilögðum
firðinum, þó skautarnir væru bara
tunnustafir, skíðaferðir á snjósköfl-
um, eða hlaupið á milli bæja að
hitta krakkana. Alltaf var góður
andi þar á milli og unnið saman,
svo sem þegar safnað var í brennu
fyrir gamlárskvöld, þá var oft glatt
á hjalla.
Þegar aldur færðist yfir hjálpuðu
allir til við þau verk sem nauðsyn-
legust voru, og árið 1937 réðst
pabbi í að byggja steinhús á Eyri
með aðstoð sona sinna sem þá voru
orðnir liðtækir menn. Þær hrærðu
alla steypuna, sem fór í húsið, án
þess að hafa nokkra vél.
Sæmundur brá sér til Reykjavík-
ur og kynntist þá lífsförunaut
sínum, Elínu Ingibjörgu Ingimund-
ardóttur, ættaðri frá Ystabæli und-
ir Eyjafjöllum. Hún flutti vestur og
tóku þau við helmingi jarðarinnar
Eyri árið 1944. Ekki var nú bú-
stofninn mikill og engum allsnægt-
um úr að spila. A þessum árum var
enginn akvegur kominn þangað,
ekkert rafmagn, nema ef einhver
hafði efni á að setja upp svokallaða
heimarafstöð, og held ég að hún
hafi komið þarna seinna.
Mikil vinna er í því falin að
stunda bústörf, þau eru einnig mjög
bindandi. Sjaldan held ég að þau
Hún kvartaði þó aldrei, hún sagði
mér bara frá þessu. Inga var mjög
barngóð, siðavönd og heiðarleg
manneskja. Börnunum mínum var
hún mjög góð. Hún kom í heimsókn
eins oft og hægt var, og ævinlega
á jólunum. Eitt barnanna sagði að
jólin væru komin þegar Inga kæmi.
Inga var mjög myndarleg til allra
verka. Alltaf gat hún gefið mér góð
ráð, hvort sem um handavinnu eða
matseld var að ræða. Fyrir tæpum
tveimur árum fór Inga að veikjast
alvarlega og síðustu mánuðina sem
hún lifði dvaldi hún til skiptis á heim-
ili okkar og í Landakotsspítala. Það
er ómetanlegt að hafa fengið að
kynnast manneskju eins og henni.
Hún gaf manni svo margt sem ekki
Sæmundur og Elín hafi brugðið sér
af bæ, að minnsta kosti ekki í lang-
ferðir meðan þau bjuggu á Eyri.
Þau kappkostuðu að sinna búpen-
ingnum sem allra best.
Sæmundur og Elín voru miklir
höfðingjar heim að sækja enda áttu
þau marga góða vini. Gestrisni
þeirra var alveg einstök, hlýlegt
viðmót og hlýtt handtak einkenndi
þau. Öllum sem þekktu þau bar
saman um það.
Árið 1954 drukknar Óskar, faðir
okkar, og þá verða þáttaskil og
Sæmundur og Elín taka við allri
jörðinni.
Þegar vegasamband komst á
vestur á Patreksfjörð varð gest-
kvæmara hjá þeim hjónum. Það var
reyndar algengt að uppbúin rúm
biðu langferðabílstjóranna og mat-
ur og kaffi á dekkuðu borði niðri í
eldhúsi, sama hvort var að nóttu
eða degi.
Ég kom þarna og sá með mínum
eigin augum, og naut þess að vera
gestur þeirra með manni og sjö
börnum okkar í heilan mánuð. Eg
minnist þeirra daga með þakklæti
og gleymi aldrei tímanum sem ég
átti með þeim þá. Það er ógleyman-
legt.
Árið 1978 urðu þau Sæmundur
og Elín að bregða búi, heilsu þeirra
vegna. Þau þurftu bæði á læknis-
hjálp að halda og fluttu suður. Fyrst
leigðu þau sér húsnæði en síðan
keyptu þau íbúð í Ástúni í Kópa-
vogi. Þau bjuggu þar til ársins
1984, þá andaðist Elín, 25. októ-
ber, og hafði hún búið við mikla
vanheilsu síðustu árin. Konumissir-
inn varð Sæmundi eins og gefur
að skilja mikið áfall því þau höfðu
alla tíð staðið saman og aldrei látið
hugfallast í gegnum búskap, heilsu-
leysi eða aðra erfiðleika. Þau Sæ-
mundur og Elín eignuðust sex börn,
einn son og fimm dætur, en eina
et' hægt að kaupa fyt'ir peninga.
Mér finnst eins og hún hafi opnað
fyrir mér ýmsar gáttir í lífinu, sem
annars hefðu verið mér lokaðar. Við
söknum hennar öll tnjög mikið.
Blessuð sé minning hennar.
Erla Skaftadóttir
dóttur misstu þau sólarhrings-
gamla. Þau sem upp komust eru:
Guðmundur Arinbjörn, býr á Reyk-
hólum; Inga Þórunn, býr í Kópa-
vogi; Kristín Una býr í Bolung-
arvík; Guðrún Ósk býr í Kópavogi
og Sigþrúður Ingibjörg sem býr í
Breiðholtinu.
Fjórtán voru barnabörn Sæ-
mundar orðin og tvö langafabörn.
Hann elskaði íjölskyldu sína og
langaði oft til að gera meira fyrir
hana en hann gat. Hann sagði eitt
sinn við mig er við áttum tal sam-
an: „Það er verst, ég get svo lítið
hjálpað." Sæmundur mátti vera
stoltur af börnum sínum, þetta eru
allt vel gefnir og góðir þjóðfélags-
þegnar.
Eftir að Sæmundur missti konu
sína, bjó hann ekki nema skamman
tíma í Ástúni, heilsa hans leyfði
ekki að hann byggi einn. Sæmund-
ur flutti til Ingu dóttur sinnar og
Magnúsar tengdasonar síns í Hlað-
brekku 3 í Kópavogi.
Hann var glaðui' yfir þvf að fá-
að dvelja hjá þeim og Inga ekki
síður ánægð að fá að hafa föður
sinn þessi síðustu ár, og geta hlúð
að honum meðan hann þurfti. Það
voru alltaf miklir kærleikar milli
þeirra feðgina.
Sæmundut' hafði unnið hjá Olíu-
félaginu Skeljungi frá því hann
flutti suður vann þá allan daginn,
en frá áramótum vann hann hálfan
daginn, var honum brugðið, og
núna í mars var hann lagður inn á
Borgarspítalann mikið veikur og
átti þaðan ekki afturkvæmt.
Sæmundur var mikill húmoristi,
en þó var hann mikill alvörumaður,
hló sjaldan og hafði góða stjórn á
skapi sínu sem ég veit að var mik-
ið ef því var að skipta. Sæmundur
var dulur maður, kvartaði aldrei og
ræddi ekki um það sem framundan
var. Maður veit ekki hvað býr í
huga manns sem veit að lokaferðin
er í nánd. Ég hef reynt að mynda
mér skoðun um það og kemst alltaf
að sömu niðurstöðu: Það hlýtur að
þurfa mikinn kjark og sterka trú
til að taka slíkum fréttum með
æðruleysi en það fannst mér hann
svo sannarlega gera. Það eina sem
við gátum gert var að sitja hjá
honum og tala við hann á meðan
hann var hress og hann vissi af
okkur hjá sér. Inga dóttir hans kom
til hans á hverjum degi og sat hjá
honum margar klukkustundir í einu
og stundum kom hún tvisvar á dag.
Guðmundur sonur hans sem býr á
Reykhólum tók sér frí til að geta
verjð hjá honum, voru það 10 eða
14 dagar sem hann dvaldi hér í
einu. 011 reýndu börnin að létta
honum síðustu stundirnar eins og
í þeirra valdi stóð.
Sæmundur kvaddi þennan heim
í Borgarspítalanum 2. ágúst síðast-
liðinn og var jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju 16. ágúst að miklu ljöl-
menni viðstöddu. Ég vil þakka
hjúkrunarfólki og læknum á deild
A6 og A7 á Borgarspítalanum fyrir
frábæra hjúkrun, hlýju og nær-
gætni sem það sýndi honum á með-
an hann dvaldi þar.
Börnum hans, tengdabörnum,
barnabörnum og öðrum ættingjum
sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
Drottin gefi dánum ró og hinum
líkn sem lifa.
Guðbjörg Oskarsdóttir
BÓKFÆRSLA OG VÉUUIUN
KVÖLDNÁMSXEID
Sækið námskeíð hjá traustum aðila
Haldin verða á næstunni eftirfarandi námskeið:
Námskeið Dagsetning
Bókfærsla I - fyrri hlutl.12., 14., 19., 21., 26. og 28. sept.
Bókfærsla I - seinni hluti.3., 5., 10., 12., 17. og 19. okt.
Vélritun (byrjendur).1 1., 13., 18., 20., 25., 27. sept., 2., 4., okt.
Ymis stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku.
Skraning 09 frekari upplysingar: Sími 91-688400.
Verzlunarskóli íslands
Ræðumennska og mannleg samskipti.
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn fimmtu-
dag kl. 20.30 að Sogavegi 69, gengið inn
að norðanverðu.
★ Námskeiöiö getur hjálpað þér að:
★ Öðlast HUGREKKI
og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANiR þínar af meiri sann-
færingarkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst að um-
gangast aðra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
— heima og á vinnustað.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum
og draga úr kvíða.
Fjárfesting í menntun
gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
0
STJÓRI\IUI\IARSKÓUIVI\I
9o Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin"
Ingibjörg Sveins-
dóttir — Kveðjuorð